Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Síða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.8. 2021 LESBÓK ENDURKOMA Það var þungt högg fyrir aðdáendur ensku leikkonunnar Nicolu Walker þegar persóna hennar, Cassie Stuart rannsóknarlögreglumaður, var skrifuð út úr glæpa- þáttunum Unforgottten, sem sýndir hafa verið hér á landi. Þeir sömu geta nú tekið gleði sína á ný því á dögunum voru frum- sýndir flunkunýir glæpaþættir í Bretlandi með Walker í aðalhlutverki. Annika nefnast þættirnir og fer okkar kona með hlutverk Anniku Strandhed sem fer fyrir morðdeild skosku strandlögreglunnar. Fyrstu viðbrögð hafa verið jákvæð og gefur blaðið The Guardian þátt- unum fjórar stjörnur af fimm og ber sérstakt lof á Wal- ker. Gagnrýnandanum þykir þó starfsheiti Anniku álíka ótrúverðugt og ráðgjafi Alexanders Lúkasjenkós í mannréttindamálum. Yfir í strandmorðin Nicola Wal- ker í spari- fötunum. AFP GLEÐI Jæja, þá er sjö ára bið eftir nýrri breiðskífu frá þrasströllunum í Exodus senn á enda en Persona Non Grata kemur í allar betri plötubúðir 19. nóvember næstkomandi. Hún er sú ellefta í röðinni en bandið var stofnað árið 1979. Gerð nýju plötunnar hefur meðal annars tafist vegna skuldbindinga gít- arleikarans Garys Holts, Garðars í Holti, með Slayer, áður en það bræðraband Exodus lagði upp laupana, og veikinda trommarans Toms Huntings. Nú síðast stöfuðu tafirnar víst af því að öllum helstu vínylverksmiðjum vestra var lokað í fyrra vegna heimsfarald- ursins og eru þær rétt að ná sér á strik aftur. Nýtt efni loks væntanlegt frá Exodus Gary Holt hinn geðþekki gítarleikari Exodus. AFP Meg Ryan naut vinsælda á sinni tíð. Biður Ryan afsökunar IÐRUN Michael Parkinson hefur beðið leikkonuna Meg Ryan afsök- unar á framferði sínu í viðtali sem hann tók við hana í spjallþætti sínum í breska ríkissjónvarpinu, BBC, fyrir átján árum. Viðtalið er frægt að en- demum enda lá afskaplega illa á þeim báðum við þetta tækifæri. Ryan var að kynna erótíska tryllinn In the Cut og Parkinson þótti ber- sýnilega hvorki mikið til mynd- arinnar né leikkonunnar koma. „Ég vildi óska þess að ég hefði ekki misst stjórn á skapi mínu við Meg Ryan,“ tjáði hinn 86 ára gamli Parkinson Radio Times. „Ég hefði átt að vera kurteisari. Ég var greinilega reiður út í hana og það er ekki mitt hlut- verk að vera reiður við gesti mína. Ég virkaði fullur yfirlætis og hefði átt að gera betur.“ F jölskyldan hafði ekki heyrt í honum í nokkra daga og bað því fyrrverandi kærustu hans að huga að honum, þar sem hann bjó einn. Um leið og hún hleypti sér inn gerði hún sér grein fyrir því að hann væri allur; óþefurinn sem mætti henni gaf það ótvírætt til kynna. Símtalið í neyðarlínuna var því í raun formsatriði; of seint var að grípa inn í. Trymbillinn Joey Jordison var að- eins 46 ára þegar hann lést í svefni á heimili sínu í Bandaríkjunum 26. júlí síðastliðinn. Hann hafði glímt við van- heilsu um tíma, greindist með tauga- sjúkdóm, sem kallast þverlæg merg- bólga og lýsir sér í bólgum við mænuna, árið 2015 og þurfti um tíma að hætta að spila, auk þess sem hann missti mátt í öðrum fætinum. Með endurhæfingu komst hann þó aftur þangað sem honum leið best – á bak við trommusettið. Í neyðarlínu- Hverjum tromman glymur Eins og fjölmörg dæmi sanna þá virðist það að vera trymbill í vinsælli rokkhljómsveit ekki endi- lega vera ávísun á langlífi. Nú nýlega misstum við hinn hæfileikaríka Joey Jordison, sem frægastur er fyrir veru sína í málmbandinu Slipknot. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is John Bonham í essinu sínu á tónleikum Led Zeppelin í Laugardalshöllinni á Listahátíð í Reykjavík sumarið 1970. Hann lést aðeins 32 ára að aldri. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Colin Trevor Flooks, betur þekktur undir listamannsnafninu sínu Cozy Powell, lést í bílslysi árið 1998 fimmtugur að aldri. Hann var mjög eftirsóttur trommari á sinni tíð og lék meðal annars með The Jeff Beck Group, Rainbow, Robert Plant, Whitesnake og Black Sab- bath. Tony Iommi, forsprakki síðastnefnda bandsins, fjallar um and- lát Powells í endurminningum sínum, Iron Man. Þar kemur fram að Powell hafi verið undir árif- um áfengis þegar gift kona sem hann var að slá sér upp með hringdi og bað hann um að koma í hvelli. Powell mun hafa rokið af stað. Þar sem hann brunaði eftir M4-hraðbrautinni nærri Bri- stol hringdi vinkonan aftur til að grennslast fyrir um hvar hann væri staddur. „Ég er á leiðinni,“ á hann að hafa sagt og síðan: „Hver djöfullinn!“ Þá heyrðist hátt brothljóð. Powell var ekki í bílbelti og flaug út um fram- rúðuna. Hann var úrskurðaður látinn á vett- vangi. Hvaðan Iommi hefur þessar nákvæmu upplýsingar liggur ekki fyrir. Þá heyrðist hátt brothljóð Cozy Powell. sa

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.