Morgunblaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2021 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is DVERGARNIR PLÚS+ Öflugri undirstöður DVERGARNIR R Dvergarnir plús+ henta vel undir merkingar og skilti. Ofan á þá er hægt að festa úrval af tengistykkjum, t.d. fyrir skiltarör eða kaðalgrip til afmörkunar. NAGGUR PLÚS+ PURKUR PLÚS+ TEITUR PLÚS+ ÁLFUR PLÚS+ 2021 ALÞINGISKOSNINGAR „Heilbrigðismálin og samgöngur eru stóru málin hér,“ segir Geir Jón Þórisson í Vestmannaeyjum. „Sjúkrahúsið þarf að efla, í dag er þetta lítið meira en heilsugæslustöð. Margvís- lega þjónustu þarf jafnan að sækja suður og þá er slæmt að ætlunarflug hingað hafi verið lagt af. Siglingar með Herjólfi í Landeyjahöfn ganga vel. Við þurfum þó líka flug og þar þarf ríkið að koma inn með einhvern stuðning.“ Ríkið styðji áætlunarflug „Mikilvægt er að styrkja stöðu landsbyggðarinnar í heild,“ segir Elfa Birkisdóttir, skólastjóri Bláskógaskóla á Laug- arvatni. „Standa þarf vörð um að skólar út um landið eflist, svo mikilvægir eru þeir við búsetuval. Þá er mikilvægt að horfa til nýsköpunar í landbúnaði. Stóra verkefnið er annars að hlúa vel að unga fólkinu og standa um það vörð; svo sem með því að verja meiru fé í alhliða forvarnir.“ Unga fólkið og nýsköpunarstarf „Atvinnulíf hér þarf að vera fjölbreyttara og að því ber að vinna með nýsköpun ýmiskonar,“ segir Guðbjörg Krist- mundsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla- víkur. „Starfsemi tengd fluginu er mikilvæg, en við megum ekki vera háð henni um of. Efling heilbrigðisþjónustu hér á svæðinu er annað brýnt málefni og svo þarf fleiri valkosti í húsnæðismálum; með byggingu ódýrra íbúða. “ Fleiri valkosti í húsnæðismálum „Flugsamgöngur skipta landsbyggðina miklu og ég styð þau sem stuðla að því að áfram verði flugvöllur í Reykjavík,“ seg- ir Vigdís Borgarsdóttir, umboðsmaður flugfélagsins Ernis á Höfn. „Réttindamál eru mikið rædd fyrir kosningar og ómögulegt annað en að styðja slíka baráttu. Þá þurfum við að vinna gegn hlýnun andrúmsloftsins. Vatnajökull gefur stöð- ugt eftir, eins og við Hornfirðingar sjáum vel.“ Vatnajökull gefur stöðugt eftir Hvað brennur á íbúum? Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Alls eiga 38.424 manns atkvæðisrétt í Suðurkjördæmi, eða 15,09% kjós- enda á landinu. Fólkið býr á svæðinu frá Vatnsleysuströnd og austur fyrir Hornafjörð; í landshluta þar sem að- stæður, svo sem í atvinnuháttum og menningu, eru mjög ólíkar milli staða. Vegalengdir eru miklar og fjarri er að kjördæmið sé samfélags- leg heild; nema að í umboði íbúa sitja á Alþingi 10 fulltrúar, sem valdir verða um aðra helgi. Skipta má kjördæminu í fernt; það er Suðurnes, Suðurlandssléttan, Vestmannaeyjar og austan Skeiðar- ársands er Vatnajökulssvæðið. Milli Þjórsár og Lómagnúps eru Ása- hreppur, Rangárþing ytra og eystra og Mýrdals- og Skaftáhreppur; sveitarfélög sem áhugi er á að sam- eina. Jafnhliða þingkosningum greiða íbúar í framangreindum byggðum atkvæði um tillögu sem miðar að því að til verði Sveitarfé- lagið Suðurland. Í umræðum um hugsanlega sameiningu koma vega- mál oft til tals, eins og að malarvegir í sveitunum verði byggðir upp og lagt slitlag á þá. Þjónusta fylgi fólksfjölgun Í Reykjanesbæ búa nú um 20 þús- und manns og hefur íbúum fjölgað um þriðjung á sjö árum. „Þessi mikla fjölgun kallar á uppbyggingu sem ríkið þarf að koma að, eins og við höfum rætt við bæði frambjóð- endur og ríkisstjórn,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. „Opinber þjónusta á að fylgja fólksfjölgun og þar þokast mál í rétta átt, sbr. að heilbrigðisráðherra hefur upplýst að heilsugæslustöð, til viðbótar þeirri sem fyrir er, verði stofnsett á næstu misserum. Einnig er mikið fjallað um atvinnuástand, sem lagast eftir því sem Covid fjar- lægist og starf á flugvellinum tekur betur við sér.“ Æðakerfi samfélags „Stöðugleiki í stjórnarfari og efna- hagsmálum er mikilvægt kosninga- mál,“ segir Helgi Kjartansson, odd- viti Bláskógabyggðar. „Stjórnmálamenn þurfa að vinna með okkur að endurreisn ferðaþjón- ustu. Í Covid misstum við hér í sveit út marga tugir starfa í þeirri grein sem nú þarf að endurheimta. Þá eru góðar samgöngur mikilvæg und- irstaða ferðaþjónustu og margs fleira úti í dreifbýlinu. Eru æðakerfi samfélagsins, eins og frambjóð- endur sem við sveitarstjórnarfólk ræðum við skilja vel,“ segir Helgi um viðhorf og áherslur sem heyra má víða annars staðar. Þannig tala Suðurnesjamenn nú um mikilvægi þess að ljúka breikkun Reykjanes- brautar, á Árborgarsvæðinu er kall- að eftir að framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú hefjist sem fyrst og aust- ur á Hornarfirði greindi bæjarstjóri nýlega frá því að grafa þyrfti út sandfyllta innsiglingu. Í Eyjum hafa margir áhyggjur af heilbrigðisþjón- ustu þar, sem þarf að vera sjálfbær, aðstæðna vegna á eylandi. Hags- munir landbúnaðar koma einnig oft til tals í pólitík í Suðurkjördæmi. Úrslit kosninga í okt. 2017 Þingmenn og fylgi nú skv. könnunum MMR 18. ágúst til 10. sept. 5.230 atkv. 18,6% 2 þingm. B – Framsókn 16,7% 2 þingm. 871 atkv. 3,1% C – Viðreisn 7,9% 1 þingm. 7.056 atkv. 25,2% 3 þingm. D – Sjálfstæðisflokkur 24,5% 3 þingm. 2.509 atkv. 8,9% 1 þingm. F – Flokkur fólksins 7,7% J – Sósíalistaflokkur 7,9% 3.999 atkv. 14,3% 1 þingm. M – Miðflokkur 13,0% 2 þingm. 1.985 atkv. 7,1% 1 þingm. P – Píratar 5,9% 2.689 atkv. 9,6% 1 þingm. S – Samfylking 8,5% 1 þingm. 3.321 atkv. 11,8% 1 þingm. V – Vinstri-græn 7,9% 1 þingm. Sveitarfélag Fjöldi á kjörskrá Árborg 7.511 Ásahreppur 152 Bláskógabyggð 652 Flóahreppur 483 Grímsnes- og Grafningshr. 2.138 Grindavíkurbær 365 Hornafjörður 870 Hrunamannahreppur 302 Hveragerði 538 Mýrdalshreppur 325 Sveitarfélag Fjöldi á kjörskrá Ölfus 1.542 Rangárþing eystra 1.202 Rangárþing ytra 1.180 Reykjanesbær 11.706 Skaftárhreppur 351 Skeiða- og Gnúpverjahr. 413 Suðurnesjabær 133 Vestmannaeyjar 3.067 Vogar 351 Samtals 38.424 Sigurður Ingi Jóhannsson B Jóhann Friðrik Friðriksson B Guðbrandur Einarsson C Ásmundur Friðriksson D Guðrún Hafsteinsdóttir D Vilhjálmur Árnason D Oddný Harðardóttir S Hólmfríður Árnadóttir V Birgir Þórarinsson M Erna Bjarnadóttir M Talning atkvæða verður á Selfossi Suðurnes Suðurland ogVestmannaeyjar Skaftafellssýslur Íbúafjöldi: 59.583 Fjöldi á kjörskrá: 38.424 Suðurkjördæmi Fjöldi sveitarfélaga: 19 sem er fjölgun um 2.270 frá kosningunum í okt. 2017 Fjöldi þingsæta: 10 (þar af eitt jöfnunarþingsæti) Kjörsókn í okt. 2017: 80,0% Stöðugleiki mikilvægt kosningamál Frá Suðurnesjum til Horna- fjarðar. 15% kjósenda á landinu eru í Suðurkjör- dæmi. Aðstæður milli svæða afar ólíkar. Atvinnu- líf eftir veiru og vegamál víða rædd fyrir kosningar. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Árborg Mörg spennandi verkefni til vaxtar og viðgangs, svo sem í ferða- þjónustu, í Suðurkjördæmi. Bygging nýs miðbæjar á Selfossi er eitt þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.