Morgunblaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 36
Wolka, síðasta kvikmynd leik-
stjórans Árna Ólafs Ásgeirs-
sonar, sem lést fyrr á þessu ári,
verður frumsýnd sem opn-
unarmynd flokksins Icelandic
Panorama á Alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Reykjavík, RIFF, 6.
október í Bíó Paradís. Þetta er
fyrsta leikna íslenska kvikmynd-
in sem veitir innsýn í pólskt
samfélag á Íslandi og er aðal-
hlutverk myndarinnar í höndum
Olgu Boladz sem er virt leikkona
í Póllandi. Handritið er eftir Árna og Michal Godzic.
Wolka er íslensk-pólskt samstarfsverkefni og er tungu-
mál myndarinnar pólska þar sem flest hlutverk eru í
höndum pólskra leikara. Margir Íslendingar koma að
framleiðslu hennar og sér Atli Örvarsson um tónlistina,
Brynja Skjaldardóttir um búningana og Marta Luiza
Macuga, ekkja Árna Ólafs, er leikmyndahönnuður.
Sögusvið myndarinnar er Vestmannaeyjar.
Wolka Árna Ólafs verður opn-
unarmynd Icelandic Panorama
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Rokkhljómsveitin Nykur verður
með tónleika í Kaldalóni, Hörpu, nk.
föstudag. Um fimm ár eru frá því
sveitin var síðast á sviði, en núver-
andi liðsmenn hafa æft vel undan-
farna mánuði og lofa kröftugri
frammistöðu. „Við læðumst ekki
með veggjum,“ segir Guðmundur
Jónsson gítarleikari.
Félagarnir Guðmundur og Davíð
Þór Hlinason, gítarleikari og söngv-
ari, stofnuðu bandið sumarið 2013.
„Okkur langaði til þess að spila heið-
arlegt, klassískt rokk,“ rifjar Guð-
mundur upp en með þeim voru
trommuleikarinn Birgir Jónsson og
bassaleikarinn Jón Ómar Erlings-
son. Markmiðið var að gefa út þrjár
plötur og sú fyrsta, Nykur I, fékk
góða dóma. Í tengslum við tónleika í
Kaldalóni 2016 kom út platan Nykur
II, sem féll líka vel í kramið, en síð-
an hefur ekkert verið að frétta af
bandinu þar til nú.
„Við eigum eina plötu eftir og
okkur langar til þess að klára hana.
Við viljum búa til tónlist og spila fyr-
ir fólk sem hefur gaman af henni.“
Nokkrar breytingar hafa orðið á
liðsskipan. Jón Svanur Sveinsson og
Kristján B. Einarsson leystu fljót-
lega Jón Ómar og Birgi af hólmi.
Kristján hætti þegar langa fríið
byrjaði og þegar ákveðið var að hóa
mönnum saman á ný bættist tromm-
arinn Magnús Stefánsson, sem áður
gerði garðinn frægan meðal annars
með Utangarðsmönnum og Egó, í
hópinn. „Við Magnús spiluðum sam-
an í Sálinni hans Jóns míns á sínum
tíma, meðal annars á plötunni „Hvar
er draumurinn“, og honum fylgir
alltaf mikill kraftur.“
„Rokkið ódrepandi“
Guðmundur segir að vel hafi verið
lagt í tónleikana fyrir fimm árum og
í vor hafi verið ákveðið að taka upp
þráðinn þar sem frá var horfið.
„Við eigum mikið efni og fannst
blóðugt að geta ekki spilað það
meira. Það er alltaf gaman að spila
rokkmúsík og maður losnar aldrei
við þessa frumþörf enda er rokkið
ódrepandi. Við höfum æft grimmt
frá páskum með þessa tónleika í
huga.“
Sviðslistafólk hefur orðið illilega
fyrir barðinu á afleiðingum kórónu-
veirufaraldursins. Útlitið var bjart í
júní og þá pöntuðu Guðmundur og
félagar tíma í Kaldalóni föstudaginn
17. september. Óvissan hefur verið
mikil undanfarnar vikur en staðan
er allt önnur og betri nú og því virð-
ist sem bandið hafi veðjað á réttan
hest. „Miðasala hjá Tix hefur gengið
vel,“ segir Guðmundur, en meðal
annars verður úrval laga af plötum
sveitarinnar á efnisskránni auk
þekktra íslenskra rokkslagara, sem
meðlimir sveitarinnar hafa komið
að. „Við tökum íslenskar ábreiður
sem við höfum komið nálægt.“ Hann
bætir við að Kaldalón hafi orðið fyr-
ir valinu vegna þess að plöturnar
tvær hafi verið þemakenndar og
samfara tónlistinni verði öflug
mynda- og ljósasýning í salnum.
„Það er staður og stund fyrir
skemmtilegt rokk í ljósum og
mynd.“
Rokkbandið Nykur læð-
ist ekki með veggjum
- Býr til tónlist fyrir áhugasama - Tónleikar á föstudag
Nykur Meðlimirnir á samsettri mynd frá vinstri: Magnús Stefánsson, Davíð
Þór Hlinason, Guðmundur Jónsson og Jón Svanur Sveinsson.
Í Kaldalóni í Hörpu Rokkbandið Nykur á tónleikunum 2016.
BÍLAVARAHLUTIR
Þú færð bílavarahluti frá Bosch í Kemi, Tunguháls 10.
Pantanir í síma 519 1519 og 415 4000.
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 258. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Stórliðin Valur og Fram mætast í undanúrslitum Coca
Cola-bikars kvenna í handknattleik. 1. deildar lið FH og
Íslandsmeistararnir í KA/Þór mætast einnig en dregið
var seint í gær. Leikið verður 29. september á Ásvöllum
og undanúrslitin hjá körlunum fara fram 30. septem-
ber. Þar eigast við Afturelding og Valur annars vegar og
Fram og Stjarnan hins vegar. Undanúrslitin og úrslita-
leikirnir verða á Ásvöllum en bikararnir munu fara á
loft 2. október. Laugardalshöllin er ekki í notkun um
þessar mundir en þar er alla jafna leikið til úrslita. »30
Fyrir liggur hvaða lið mætast í und-
anúrslitum bikarkeppninnar 2021
ÍÞRÓTTIR MENNING