Morgunblaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2021 60 ÁRA Einar fæddist í Reykjavík og ólst upp í Vogahverfinu. Hann varð stúdent utanskóla frá Menntaskólanum við Sund og fór í Háskóla Íslands. Veturinn 1983-1984 var hann ritstjóri Stúdenta- blaðsins og eftir það fór hann að gefa út blöð og tímarit. „Ég gaf m.a. út vikublaðið Á skjánum sem var dreift á heimili í Breið- holti, og Kvikmyndablað- ið. Upp úr því stofnaði ég ásamt fleirum Bókakaffi í Garðastræti og fór að flytja inn bækur og tíma- rit, var með dreifingar- fyrirtækið Boðfélagið, sem flutti inn erlend tímarit og blöð á útgáfudegi sem hafði ekki verið í boði hér. Ég rak það fram yfir árið 2000 og má segja að netið hafi drepið það.“ Samhliða þessu flutti Einar inn espresso-kaffivélar og espresso-kaffi- blöndur og opnaði verslun á Barónsstíg og var þar í samstarfi við verslunina 12 tóna sem var opnuð sama ár. Einar hefur komið að rekstri Kaffifélagsins á Skólavörðustíg frá opnun árið 2007, en breið flóra fólks sækir kaffihúsið þar sem þjóðmálin eru krufin til mergjar. „Við leggjum áherslu á ítalska kaffi- lögun og flytjum inn kaffi beint frá Ítalíu.“ Einar hefur svo í gegnum tíðina gert upp tvö gömul timburhús. FJÖLSKYLDA Sonur Einars er Jóhann Páll, f. 1998, háskólanemi og knatt- spyrnuþjálfari yngri flokka. Kærasta hans er Kristín Klara Birgisdóttir, f. 2000, háskólanemi. Foreldrar Einars eru Ágústa Einarsdóttir, f. 1935, kennari, og Guðjón Styrkársson, f. 1931. hrl. og kaupsýslumaður. Einar Guðjónsson Ljósmynd/Davíð Þorsteinsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Allt hefur sinn tíma svo þú skalt ekki beita þrýstingi. Hafðu ekki áhyggjur því tíminn vinnur með þér. 20. apríl - 20. maí + Naut Farðu fram á við og þú munt afreka. Dragðu þig í hlé með vinnuna ef þú átt kost á því eða taktu þér smápásu, jafnvel úti í náttúrunni. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú hefur mikinn áhuga á fram- andi löndum og mikla þörf til þess að ferðast. Ef þú æðir áfram án þess að skeyta um áhrif þess á fólkið í kringum gæti það ógnað vináttu þinni við einhvern. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þér er það mikið í mun að hafa bet- ur í rökræðum í dag. Leystu því eigin vandamál áður en þú fæst við vanda ann- arra. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Það er eins og alheimurinn viti að þú þarnist smá frís, áður en þú biður um það. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Sjálfsöryggi þitt hjálpar þér til að vinna fólk á þitt band. Byrjaðu á því að rýma til í kringum þig með því að henda því sem þú notar ekki og þarft ekki á að halda. 23. sept. - 22. okt. k Vog Yfirleitt getur maður skilið margt af fyrstu kynnum. Hann sækist eftir betri nýt- ingu og meiri framleiðni, sem og öryggi og þægindum. Allt lagast með tímanum. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Það er eins gott að lesa smáa letrið í öllum samningum áður en þeir eru undirritaðir. Kynntu þér vandlega þá kosti sem í boði eru og láttu öll gylliboð lönd og leið. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú þarft ekki að gleypa allan heiminn fyrir hádegi. Ef þú horfist í augu við þá reynast þeir ekki eins hræðilegir og þér fannst í fyrstu. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Næsta ár gæti orðið ár mikillar grósku. Gefðu þér tíma til að íhuga hvernig þú getur bætt samskiptin innan fjölskyldu þinnar. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þrátt fyrir að góðmennskan sé rík í þér verður þú að setja sjálfan þig í fyrsta sæti. Ekki láta hugfallast, það rætist úr þessu öllu. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Peningar eru ekki leiðin til þess að gera drauma þína að veruleika en hjálpa svo sannarlega til. Fóstbræðrum og fyrsta kvikmynd hans var Fíaskó. Hún hlaut sérstök dómnefndarverðlaun á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Kaíró 2000. Næsta mynd Ragnars, Börn, hlaut m.a. Gyllta svaninn fyrir bestu mynd En upp úr 2000 gat ég haft fulla at- vinnu af mínum hugðarefnum.“ Höfundarverkið Fyrsta stóra leikstjórnarverkefni Ragnars var í sjónvarpsþáttunum R agnar Bragason fædd- ist 15. september 1971 í Reykjavík en ólst upp á Súðavík. „Þar á fjölskyldan hús og þar dvel ég öll sumur.“ Listataugin gerði snemma vart við sig hjá Ragn- ari. „Ég ákvað að verða rithöfundur þegar ég las mína fyrstu skáldsögu 7-8 ára, en það var Oliver Twist eftir Charles Dickens. Það var fyrsta hugljómunin. Á þeim tíma voru eng- ar fyrirmyndir í kvikmyndagerð. Það var ekki fyrr en ég nálgaðist tvítugt að maður áttaði sig á því að fólk starfaði við kvikmyndir. Á ung- lingsárunum var ég síðan í hljóm- sveitum og áhugaleikfélögum svo ég var alltaf viðriðinn listir frá barn- æsku.“ Ragnar gekk í Súðavíkurskóla og svo síðar Varmárskóla og Gagn- fræðaskóla Mosfellssveitar. Hann lauk verslunarprófi frá Verzlunar- skóla Íslands og stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla. „Þar tók ég valáfanga í kvikmynd- um hjá Önnu G. Magnúsdóttur og vissi ekki betur en ég ætti að horfa á kvikmyndir sem yrði þægilegt til að sofna yfir. En hún setti okkur fyrir verkefni, lét okkur gera mynd og þegar upp var staðið hvatti hún mig til að gera meira. Þá varð ekki aftur snúið.“ Ragnar stundaði sjó- mennsku tímabundið á árunum 1989-2000 á Eldeyjar-Hjalta, Snorra Sturlusyni og Hrafni Svein- bjarnarsyni. Ragnar hefur að mestu unnið sem kvikmyndaleikstjóri og -höfundur frá árinu 1995. Hann hefur einnig unnið reglulega sem leikskáld og leikstjóri í leikhúsum frá 2013. Verk Ragnars hafa hlotið tugi verðlauna og viðurkenninga á þessari öld, þar á meðal 99 tilnefningar til Eddu- verðlauna, 10 tilnefningar til Grímu- verðlauna og tekið þátt í mörgum virtustu kvikmyndahátíðum heims, þ.á m Toronto, Rotterdam og San Sebastián. Hann viðurkennir þó að fyrstu árin hafi verið ströggl. „Ég fór ekki í formlegt kvikmyndanám, mín menntun var þær bækur sem ég náði í og ég var daglegur gestur á Aðalvídeóleigunni á Klapparstíg. á Copenhagen International Film Festival og var tilnefnd til fjölda Edduverðlauna sama ár og verð- launuð fyrir handrit ársins. Börn var valin ein af 10 bestu evrópsku kvik- myndunum 2006 af European- films.net og tilnefnd til Kvikmynda- verðlauna Norðurlandaráðs. Þriðja mynd Ragnars, Foreldrar, hlaut Edduverðlaun 2007 m.a. sem kvik- mynd, handrit og leikstjóri ársins. Fjórða mynd Ragnars, Bjarnfreð- arson, er ein vinsælasta kvikmynd Íslandssögunnar og hlaut verðlaun m.a. sem kvikmynd ársins, leikstjóri ársins og handrit ársins á Edduverð- launum 2009. Fimmta mynd Ragn- ars, Málmhaus, hlaut met í tilnefn- ingum til Edduverðlauna 2013, alls 16 og af þeim hlaut hún átta verð- laun. Af kvikmyndum Ragnars er hún mest seld og er enn sýnd víða um heim. Nýjasta kvikmynd Ragnars er Gullregn sem var frumsýnd í janúar 2020 og var einnig gerð sjónvarps- útgáfa af henni í þremur hlutum, og er hún aðgengileg í sarpinum á Rúv. Myndin var gerð eftir samnefndu leikriti Ragnars sem var frumraun hans á sviði. Það sló í gegn í Borgar- leikhúsinu leikárið 2012-13 og hætti fyrir fullu húsi. Verkið hlaut átta til- nefningar til Grímuverðlauna 2013, þar á meðal fyrir leikrit ársins og verðlaun fyrir leikstjórn ársins og leikkonu í aukahlutverki. Næsta leikverk Ragnars, Óskasteinar, var frumsýnt 2014 Borgarleikhúsinu og hlaut tvær tilnefningar til Grímu- verðlauna 2014, þar af verðlaun fyrir leikkonu í aukahlutverki. Nýjasta verk Ragnars, Risaeðlurnar, var frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhúss- ins 2017. Ragnar leikstýrði einnig og var meðhöfundur að sjónvarpsþáttaröð- unum Næturvaktinni, Dagvaktinni, Fangavaktinni og Föngum. Þær eru meðal allra vinsælasta sjónvarps- efnis sem framleitt hefur verið á Ís- landi og hafa verið sýndar víða um heim, m.a. á BBC og Netflix. Allar þáttaraðirnar hlutu Edduverðlaun sem Besta leikna sjónvarpsefnið. „Ég vinn núna við handritaskrif, ég er alltaf með tvö til þrjú verkefni í Ragnar Bragason kvikmyndahöfundur – 50 ára Við tökur Ragnar að vinna að kvikmynd sinni, Gullregn, árið 2019. Valáfangi varð að lífsstarfinu Fjölskyldan Bjartur, Ragnar, Helga Rós og Alvin stödd í Feneyjum 2019. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.