Morgunblaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2021 Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Það voruð þið sem gerðuð það. Kjós- endurnir sýndu okkur traust. Við mun- um breyta Noregi … og heiminum,“ sagði Jonas Gahr Støre, leiðtogi norska Verkamannaflokksins, í sigurræðu sinni eftir hreinan stórsigur flokksins í norsku stórþingskosningunum um helgina. Hægriflokkur Ernu Solberg sá vart til sólar í þessum kosningum miðað við fyrri árangur og lauk keppni með 20,37 prósentum atkvæða á móti 26,26 pró- sentum Støre og Verkamannaflokksins eftir átta ár Solberg og Hægriflokks hennar við kjötkatlana. Nokkuð sem telja má óvenjulegt í Noregi þar sem vindarnir hafa löngum blásið til vinstri. Hvað táknar þá ný vinstristjórn fyrir norskan almenning, nokkuð sem síðast sást þegar Jens Stoltenberg stjórnaði landinu? Fólk fastráðið Eitt af því sem Støre og Verka- mannaflokkurinn leggja mikla áherslu á er að horfið verði frá tímabundnum ráðningum á vinnumarkaði, fólk skuli einfaldlega fastráðið þegar sýnt sé fram á að þörf sé fyrir fastar stöður, at- riði sem hefur til dæmis verið umdeilt við olíuvinnslu í Vestur-Noregi þar sem svokallaðar innleigustöður hafa tíðkast um árabil, en með þeim er hægt að „skila“ starfsfólki til starfsmannaleiga eða fasts vinnuveitanda með engum fyrirvara og tilheyrandi tapi á yfirvinnu og öðrum hlunnindum. Fyrsta janúar 2020 fækkaði norsk- um fylkjum úr 19 í 11. Þetta gæti breyst í stjórnartíð Verkamanna- flokksins, sem líkast til mun mynda stjórn með Miðflokknum og Sósíalíska vinstriflokknum. Afstaða flokkanna þriggja er að íbúarnir skuli ráða um sameiningarmál og hefur þar samein- ing norðurnorsku fylkjanna Troms og Finnmerkur verið nefnd sem dæmi, en henni var mótmælt harðlega og var í raun þröngvað upp á íbúana í stjórnar- tíð Ernu Solberg. Útkallstími styttur Íslenskir fjölmiðlaneytendur minn- ast margir hverjir hörmulegs máls í Mehamn vorið 2019 þegar íslenskur sjómaður skaut hálfbróður sinn til bana, ef til vill fyrir slysni, þannig var málið dæmt, sökunautur var þar einn til frásagnar. Var lögregla fylkisins harðlega gagnrýnd fyrir að vera rúmar 40 mínútur á staðinn vegna þess hve langt er milli lögreglustöðva nyrsta fylkis Noregs. Støre hyggst fjölga lög- reglustöðvum og stytta útkallstíma lög- reglu. Hvorir tveggju, Sósíalíski vinstri- flokkurinn og Verkamannaflokkurinn, vilja bæta tannheilsu Norðmanna og láta Tryggingastofnun Noregs, Folket- rygden, greiða stærri hluta nauðsyn- legra tannviðgerða en tíðkast hefur. Flokkarnir eru þó ekki á eitt sáttir um greiðsluhlutfall hér. Hvað með fóstureyðingar? Foreldrar, sem hafa sótt um leik- skólapláss og eru á biðlista eftir því, eiga að sögn Miðflokksins að fá styrk til að greiða dagmæðrum meðan beðið er, þessu er Verkamannaflokkurinn hins vegar ekki sammála. Sósíalíski vinstriflokkurinn og Verkamannaflokkurinn deila enn frem- ur um fóstureyðingar. Flokkarnir eru sammála um að leggja niður nefnd sem úrskurðar um réttmæti fóstureyðinga allt fram að 18. til 22. viku meðgöngu, Miðflokkurinn vill hins vegar að konur taki sjálfar ákvörðun til og með 12. viku, en vill halda nefndinni, þó þannig að farið sé yfir verklagsreglur og nafn hennar. Eins vilja nýju stjórnarflokkarnir lækka rafmagnsverð til almennings, banna sölu bifreiða sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti í síðasta lagi 2025 og hækka fjármagnstekjuskatt þannig að þeir efnamestu borgi mest. Þetta eru stóru línurnar hjá nýrri norskri ríkis- stjórn Støre. AFP Sigur Jonas Gahr Støre virðir fyrir sér fallegan vönd af kratarósum eftir stórsigur Verkamannaflokksins í norsku þingkosningunum um helgina. „Við munum breyta Noregi“ - Verkamannaflokkur Støre vann stórsigur - Fylkjum í Noregi gæti fjölgað á ný - Styttri útkallstími lögreglu - Ríkið taki aukinn þátt í tannlækningum - Fóstureyðingar, leikskólabið og járnbrautir breytast Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Hinn 23 ára gamli Raul Hernandez Perez, sérfræðingur (Spc.) í Banda- ríkjaher, hefur játað að hafa myrt eiginkonu sína með hrottalegum hætti. Ódæðið var framið í janúar síðastliðnum og viðurkenndi hann verknaðinn nýliðinn mánudag. Á hann nú yfir höfði sér minnst 50 ára fangelsi. Hin látna hét Selena Roth, 25 ára gömul. Réttarhöldin fara fram á herstöð- inni Schofield á Havaí. Hefur Perez þegar lýst fyrir dómi hvernig hann braut höfuðkúpu eiginkonu sinnar með hafnaboltakylfu á meðan hún svaf. Veitti hann henni fjögur öflug högg. Greint er frá þessu í hermiðl- inum Stars and Stripes, sem starfar með heimild bandaríska varnarmála- ráðuneytisins. Í umfjölluninni lýsir Perez því hvernig hann virti eiginkonu sína fyrir sér eftir að hafa veitt henni fjögur þung högg í höfuðið. „Ég fylltist skelfingu því ég hélt hún væri enn á lífi,“ sagði hann. En því næst fór Perez inn í eldhús, sótti þangað hníf og stakk eiginkonu sína fjórum sinnum. Kom hann svo líki hennar fyrir í stórum poka og blandaði rusli saman við. Her- lögreglan fann svo jarðneskar leifar Selenu Roth þremur dögum síðar. Hafði hennar þá verið leitað. Ættingjar beggja segjast vera harmi slegnir yfir verknaðinum. „Að vera myrtur af ókunnugum eru döpur örlög en að vera myrtur af einhverjum sem maður elskar er hreinn harmleikur,“ hefur miðillinn eftir ættingja hinnar látnu. Myrt á árs afmælinu Perez og Roth giftu sig 9. janúar árið 2020 og bendir allt til að hjóna- bandið hafi verið stormasamt frá fyrstu stundu. Sótti Perez um skiln- að í október sama ár og nálgunar- bann í kjölfarið. Þrátt fyrir þetta hittust þau á eins árs brúðkaupsaf- mælinu, héldu upp á daginn og gistu saman. Var það þá sem Perez lét verða af ódæðinu. Gekkst við morði á eiginkonu sinni - Fær minnst 50 ára fangelsisdóm Raul H. Perez Vígahópur íslamista var leystur upp í Marokkó ný- verið þegar löggæslusveitir handsömuðu þrjá karl- menn. Eru þeir sagðir hafa lagt á ráðin um hryðjuverk og opinbera aftöku á emb- ættismanni þar í landi. Handtökurnar fóru fram í borginni Errachidia í suð- urhluta landsins, að því er fram kemur í umfjöllun fréttaveitu AFP. Í húsleit lögreglu fundust meðal annars vopn, feluklæðnaður og trúar- og áróðursrit íslamista. Hinir handteknu eru á aldrinum 21 til 37 ára. Meðal þess sem rannsókn lögreglu beinist að eru tengsl þessa hóps við hópa ann- ars staðar í heiminum. MAROKKÓ Komið í veg fyrir ódæði vígamanna íslamista Bænir Íslamskir vígamenn. Þessi órangútan virtist heldur ósáttur við læknisskoðunina sem hann fékk á dögunum, en hann er einn margra apa sem þurftu að þola sýnatöku við Covid-19 í Malasíu. Voru aparnir sendir í próf eftir að starfsmaður dýragarðs greindist jákvæður fyrir veirunni. Að sögn fréttamiðla í Malasíu greindust órangútanaparnir þó neikvæðir. „Að skima fyrir Covid-19 hefur reynst mikilvægt verkfæri í barátt- unni við faraldurinn og er það einn- ig mikilvægt fyrir samfélag óran- gútana,“ sagði dýragarðsmaður. Samfélag órangútana var skimað AFP STÆRÐIR 1428 Sundkjóll 15.990 kr Stærðir 42-56 Bikiní haldari 8.990 kr C-H skálar Bikiní haldari 8.990 kr Stærðir 42-54 Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is YFIRHAFNIR FYRIR HAUSTIÐ Stærðir 14-30 eða 42-58

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.