Morgunblaðið - 28.09.2021, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 8. S E P T E M B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 227. tölublað . 109. árgangur .
HÖSKULDUR
BESTUR Í
DEILDINNI
OPNA FYRSTA
KETÓMARK-
AÐINN
STYRKJA ÞARF
ÓPERUSENUNA
HÉRLENDIS
67 VÖRUTEGUNDIR 11 STEINUNN BIRNA ÓPERUSTJÓRI 28FYRIRLIÐI BLIKA 26
Atkvæði í Suðurkjördæmi voru end-
urtalin í gærkvöldi. Yfirkjörstjórn
kjördæmisins tók ákvörðun um að
láta verða af því, í ljósi þess hve
mjótt var á munum milli Miðflokks-
ins og Vinstri grænna. Lítill munur
var einnig ástæða þess að Norðvest-
urkjördæmi greip til þess ráðs að
endurtelja sín atkvæði daginn eftir
kosningar. Sú endurtalning olli tals-
verðum sviptingum á jöfnunarsæt-
um milli flokka og hafði þær afleið-
ingar í för með sér að fimm
þingmenn duttu út af þingi og aðrir
fimm komu inn í þeirra stað.
Landskjörstjórn
mun funda í dag
Mikil óvissa hefur ríkt um niður-
stöðu kosninganna í ljósi þessa.
Landskjörstjórn taldi sig því ekki
geta sinnt skyldu sinni og úthlutað
þingsætum til kjörinna fulltrúa,
enda lægi endanleg niðurstaða ekki
fyrir. Kallaði hún eftir skýrslum frá
yfirkjörstjórnum allra kjördæm-
anna. Aðeins tvö kjördæmi voru búin
að skila skýrslunum á tilsettum tíma
í gærkvöldi. Kristín Edwald, for-
maður landskjörstjórnar, sagðist
vera búin að líta yfir skýrsluna frá
Suðvesturkjördæmi og að hún væri
til fyrirmyndar. Landskjörstjórn
mun koma saman í dag og fara yfir
stöðu mála í ljósi fram kominna
gagna og niðurstöðu endurtalningar-
innar.
Misbrestur í framkvæmd leiðir
ekki sjálfkrafa til ógildingar
Þung orð hafa fallið í kjölfar þess
að endurtalning í Norðvesturkjör-
dæmi leiddi í ljós talsverðar breyt-
ingar á úthlutun jöfnunarsæta.
Karl Gauti Hjaltason, sem var í
framboði fyrir Miðflokkinn í Suð-
vesturkjördæmi, hefur kært fram-
kvæmd endurtalningarinnar til lög-
reglu. Þá hefur Magnús Davíð
Norðdahl, oddviti Pírata í Norðvest-
urkjördæmi, ákveðið að kæra kosn-
ingarnar í kjördæminu til yfirkjör-
bréfanefndar Alþingis. Mun hann
fara fram á uppkosningu í kjördæm-
inu.
Hafsteinn Þór Hauksson, dósent
við lagadeild Háskóla Íslands, bend-
ir á að það komi í hlut Alþingis að
skera úr um hvort kosning hafi verið
lögleg og hvort tilefni sé til ógild-
ingar. Misbrestur við framkvæmd
talningar þýði ekki sjálfkrafa að
kosning sé ógildanleg og kjósa þurfi
að nýju. Gallar sem kunna að hafa
verið á kosningu þurfa að hafa haft
áhrif á úrslit hennar til að hún verði
ógilt, að sögn Hafsteins.
Talning atkvæða endur-
tekin í Suðurkjördæmi
- Fara yfir skýrslur og niðurstöður endurtalningar á fundi landskjörstjórnar í dag
Ljósmynd/Guðmundur Karl Sigurdórsson
Talið Að telja atkvæði er vandasamt
verk sem tekur fleiri klukkustundir. MEndurtalning … »4
Það var létt yfir Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Fram-
sóknarflokksins, er hann kom af fundi með Katrínu Jak-
obsdóttur, forsætisráðherra og formanni VG, og Bjarna
Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, í gær.
Framsóknarflokkurinn vann mestu fylgisaukninguna í
kosningunum og hefur sprengt af sér þingflokksherbergi sitt
í Alþingishúsinu. Þingmenn flokksins eru nú 13 en voru átta,
að því gefnu að endurtalningar breyti engu þar um.
Ríkisstjórnin hélt velli en óljóst er hvernig samstarf flokk-
anna mun verða í framhaldinu en líklegt er að uppstokkun
verði í ráðherraliðinu, hið minnsta. Þá munu formennirnir
funda áfram næstu daga. »2
Morgunblaðið/Eggert
Formenn ríkisstjórnarflokkanna upplýstu ekkert um framhaldið
„Mér sýnist ljóst
að allir flokkar
hafi eytt tugum
milljóna,“ segir
Andrés Jónsson
almannatengill
um nýafstaðna
kosningabaráttu.
Mikið var auglýst
síðustu vikurnar
og sýnir greining
sérfræðinga hjá Sahara að Flokkur
fólksins var stórtækastur í auglýs-
ingakaupum á samfélagsmiðlum.
Miðflokkurinn eyddi litlu minna.
Alls eyddi Flokkur fólksins um
4,6 milljónum í auglýsingar á
Facebook og Instagram á mán-
aðartímabili fyrir kosningar. Þá er
vitaskuld ekki horft til umtalsverðra
auglýsingakaupa í dagblöðum, á
vefsíðum og í útvarpi og sjónvarpi.
»14
Flokkur
fólksins
eyddi mest
- Stórtækur á sam-
félagsmiðlunum
Inga Sæland