Morgunblaðið - 28.09.2021, Side 4

Morgunblaðið - 28.09.2021, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2021 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Oddur Þórðarson Skúli Halldórsson Þóra Birna Ingvarsdóttir Endurtalning fór fram í Suðurkjör- dæmi í gær. Fimm stjórnmálaflokkar höfðu óskað eftir endurtalningu en hún fór fram fyrir opnum tjöldum í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Sel- fossi. Hófst endurtalningin klukkan sjö en niðurstöður hennar lágu ekki fyrir þegar Morgunblaðið fór í prent- un. Segja má að algjör óvissa sé uppi um endanlegar niðurstöður kosning- anna, sérstaklega vegna endurtaln- ingar í Norðvesturkjördæmi sem hafði þær afleiðingar að jöfnunar- þingsæti á landsvísu skoluðust til. Landskjörstjórn óskaði í gær eftir skýrslum frá öllum yfirkjörstjórnum. Norðvesturkjördæmi og Suðurkjör- dæmi fengu frest til að skila sínum skýrslum í dag en þegar öll gögn liggja fyrir mun Kristín Edwald, for- maður landskjörstjórnar, kalla stjórnina saman og fara yfir stöðuna. Ekki er hægt að segja til um hve langan tíma landskjörstjórn mun taka sér í það mat. Mikilvægt að komast til botns í framkvæmdinni Formenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja voru allir á sama máli um að sú ringulreið sem að því er virðist lé- leg talning atkvæða í Norðvestur- kjördæmi hefur valdið, sé afar óheppileg. Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra sagðist leggja áherslu á að framkvæmd kosninganna sé haf- in yfir vafa og að mjög mikilvægt sé að komast til botns í framkvæmdinni í Norðvesturkjördæmi. „Þetta er óheppilegt, það sjá það allir,“ sagði Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, við fjöl- miðla eftir fund formanna ríkisstjórn- arflokkanna í gær. Hvorki Katrín, né þeir Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Fram- sóknarflokksins, og Bjarni telja að óvissan í tengslum við niðurstöðu kosninganna eigi að þurfa að hafa áhrif á stjórnarmyndunarviðræður. Það er þó fræðilegur möguleiki að kjósa þurfi aftur, að sögn Katrínar, en hún vildi þó ekki tjá sig um það fyrr en niðurstaða landskjörstjórnar væri ljós. Vonast eftir sönnun Kristín segist vona að í skýrslu yfirkjörstjórnar Norðvesturkjör- dæmis sannist að ekki hafi með neinu móti verið hægt að eiga við kjörgögn- in, hvort sem er á meðan eða skömmu eftir að talningu lauk aðfaranótt sunnudagsins síðasta. Öryggis- myndavélar eru staðsettar við dyrnar að rýminu sem kjörkassarnir voru í. Ef þær voru í gangi og upptökur sýna engar mannaferðir, má telja ólíklegt að átt hafi verið við kjörseðlana. Endurtalning í Suðurkjördæmi - Formenn stjórnarflokkanna sammála um að staðan sé óheppileg en hafi ekki áhrif á stjórnarmyndun Ljósmynd/Guðmundur Karl Sigurdórsson Nákvæmni Kjörgögn bárust í hús klukkan hálfsjö og talning stóð yfir fram eftir kvöldi enda nákvæmnisverk þar sem atkvæði eru tvíflokkuð og tvítalin. Þóra Birna Ingvarsdóttir Oddur Þórðarson Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, segir það koma í hlut Alþingis að skera úr um hvort kosning hafi verið lögleg og hvort tilefni sé til ógildingar. „Ég fæ ekki betur séð af fréttaflutningi en að það liggi bein- línis fyrir að brot- ið hafi verið gegn bókstaf kosn- ingalöggjaf- arinnar. Það hvort þau brot eigi að leiða til ógildingar kosning- anna treysti ég mér ekki til að meta á þessari stundu.“ Misbrestur við framkvæmd taln- ingar þýðir ekki sjálfkrafa að kosn- ing sé ógildanleg og kjósa þurfi að nýju. Gallar sem kunna að hafa verið á kosningu þurfa að hafa haft áhrif á úrslit hennar til að hún verði ógilt, að sögn Hafsteins. Kröfur um uppkosningu Þung orð hafa fallið í kjölfar þess að endurtalning í Norðvest- urkjördæmi leiddi í ljós talsverðar breytingar á úthlutun jöfnunarsæta. Karl Gauti Hjaltason, sem var í framboði fyrir Miðflokkinn í Suð- vesturkjördæmi, hefur kært fram- kvæmd endurtalningarinnar til lög- reglu. Þá hefur Magnús Davíð Norðdahl, oddviti Pírata í Norðvesturkjör- dæmi, ákveðið að kæra kosningarnar í kjördæminu til yfirkjörbréfanefnd- ar Alþingis. Mun hann fara fram á uppkosningu í kjördæminu. Talað er um uppkosningu þegar endurtaka þarf kosningu í einu kjör- dæmi eða fleirum vegna þess að kosningar misfarast eða þegar ágall- ar eru á framkvæmd kosninga. Hafsteinn telur að í umræddu til- felli Norðvesturkjördæmis væri mögulegt að grípa til uppkosningar í kjördæminu. Þó verði að hafa í huga að niðurstaðan í þeim kosningum gæti leitt til breyttrar útdeilingar á jöfnunarþingsætum um landið allt. Hið nýkjörna Alþingi sjálft hefur það verkefni að kanna hvort einstaka þingmenn séu löglega kosnir, en mælt er fyrr um það í stjórn- arskránni. Sýnist Hafsteini að álita- efnin sem rædd hafa verið í sam- bandi við framkvæmd nýafstaðinna kosninga, heyri því frekar undir þingið. Kosningalagabrot ekki kært til lögreglu Spurður hvort yfirkjörstjórn geti, lögum samkvæmt, talið atkvæði kjördæmis aftur að eigin frumkvæði, segir Hafsteinn að það sé einmitt eitt þeirra atriða sem Alþingi kynni að skoða við mat sitt á því hvort þing- menn séu réttilega kjörnir. Hafsteinn Þór bendir jafnframt á að þar sem brot á kosningalögum heyri undir Alþingi, sé ekki hægt að beina kærum vegna þeirra til lög- reglu. „Hins vegar er hægt að beina þangað kærum með það í huga að sakamál verði höfðað vegna brota á kosningalöggjöfinni. Slík mál lúta ekki að því hvort ógilda skuli kosn- ingar.“ Þau gögn sem lögreglan kynni að afla um framkvæmd kosninga gætu þó hugsanlega nýst Alþingi. Hafsteinn segir að það ríki ekki stjórnskipuleg óvissa um farveg málsins. Aftur á móti blasi við að það fyrirkomulag að láta Alþingi sjálft skera úr um álitaefni sem þessi, í stað þess að fela það dómstólum, setji málið í viðkvæma stöðu. Til ráðherra Þegar landskjörstjórn hefur birt niðurstöður kosninga og gefið út kjörbréf til þingmanna, hefst fjög- urra vikna kærufrestur. Hann er þó styttri ef þing kemur saman innan þess tíma. Kærum skal beint til dóms- málaráðuneytisins sem sendir þinginu svo framkomnar kærur og gögn. Þetta kemur fram í svari for- stöðumanns lagaskrifstofu Alþingis, við skriflegri fyrirspurn blaða- manns. Forseti Alþingis óskar fyrst eftir því að þingflokkarnir tilnefni menn í bráðabirgðakjörbréfanefnd, til und- irbúnings störfum kjörbréfanefndar. Á fyrsta fundi þingsins er svo kosin kjörbréfanefnd níu þingmanna. Nefndin fer þá yfir kærurnar og kjörseðlana sem ágreiningur hefur verið um og skrifar um það álit og undirbýr tillögur. Í áliti kjörbréfanefndar er fjallað um framkomnar kosningakærur og ágreiningsseðla. Það álit er lagt fram á þingfundi og greiða þingmenn þá atkvæði um tillögur kjörbréfanefnd- ar. - Ekki útilokað að kjósa þurfi aftur í Norðvesturkjördæmi Ekki lögreglu að ógilda kosningu heldur Alþingis Hafsteinn Þór Hauksson 2021 ALÞINGISKOSNINGAR Landskjörstjórn hafði einungis fengið skýrslur frá tveimur kjör- dæmum, um fram- kvæmd talningar í alþingiskosning- unum sem fram fóru á laugardag, þegar skilafrestur rann út klukkan átta í gærkvöldi. Þá var yfirkjör- stjórn í Suðvesturkjördæmi búin að skila skýrslu og gögn höfðu borist frá Reykjavíkurkjördæmi norður. Samkvæmt upplýsingum frá lands- kjörstjórn í gærkvöldi var gert ráð fyrir að fá skýrslur frá öllum kjör- dæmum nema tveimur eftir að frest- urinn rann út. Er áætlað að yfirkjörstjórn í Suð- urkjördæmi skili skýrslu sinni í dag, en endurtalning atkvæða fór fram á Selfossi í gærkvöldi. Þá mun skýrsla yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjör- dæmi einnig berast í dag en afhend- ing skýrslunnar tafðist vegna per- sónulegra ástæðna hjá formanni stjórnarinnar. Kristín Edwald, formaður lands- kjörstjórnar, kvaðst vera búin að renna yfir skýrsluna frá Suðvest- urkjördæmi og að hún hafi verið til fyrirmyndar. Þegar allar skýrslurnar liggja fyrir mun hún boða til fundar þar sem landskjörstjórn mun fara yfir gögnin og ættu þá að liggja fyrir nægar upplýsingar til að taka ákvörðun um næstu skref. Aðeins skýrslur tveggja kjördæma komu á tilskildum tíma til landskjörstjórnar Kristín Edwald

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.