Morgunblaðið - 28.09.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.09.2021, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2021 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Nokkur tími kann að líða áður en nýtt þing kemur saman. Þing skal koma saman eigi síðar en 10 vikum eftir almennar alþingiskosningar. Skv. 22. gr. stjórnarskrárinnar stefnir forseti Íslands saman Al- þingi, en í raun er það forsætisráð- herra með atbeina forseta sem stefnir þinginu saman í forsetabréfi. Almennt líða 32 dagar Kosið var til Alþingis 28. október 2017 en nýtt löggjafarþing, 148. þing, kom fyrst saman 14. desember, eða 47 dögum eftir kjördag. Haustið 2016 liðu 38 dagar frá kosningum þar til þing kom saman. Vorið 2013 liðu 39 dagar frá kosningum þar til þingið kom saman. Almennt í gegn- um tíðina hafa liðið 32 dagar. Gangi það eftir nú kæmi nýtt Alþingi sam- an nálægt mánaðamótunum októ- ber/nóvember. Að þessu sinni hverfa 25 þing- menn af Alþingi og eiga þeir rétt á biðlaunum. Á vef Alþingis kemur fram að alþingismaður, sem hefur setið á Alþingi eitt kjörtímabil eða lengur, á rétt á biðlaunum er hann hættir þingmennsku. Biðlaun eru jafnhá þingfararkaupi, krónur 1.285.411, og hefst biðlaunaréttur frá næstu mánaðamótum eftir kjör- dag. Biðlaun greiðast í þrjá mánuði en í sex mánuði eftir þingsetu í tvö kjör- tímabil eða lengur. Samkvæmt orðanna hljóðan eiga því þingmenn, sem setið hafa á Alþingi frá hausti 2016, rétt á sex mánaða launum, þótt fyrra kjörtímabilið hafi aðeins staðið í eitt ár. Taki þingmaður, sem fær biðlaun, við starfi meðan þeirra nýtur falla þau niður ef launin er starfinu fylgja eru jafnhá en ella skerðast biðlaunin sem laununum nemur. Undirbúningur er löngu hafinn fyrir nýtt kjörtímabil, segir Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri Alþingis. „Við höfum verið að endurskoða handbókina Háttvirtur þingmaður, kortleggja húsakynni, þ.e. skrif- stofur þingmanna og þingflokks- herbergi með tilliti til fjölda þing- manna og fleira,“ segir Ragna. Þingflokksherbergin eru öll í Al- þingishúsinu eða skálanum svokall- aða. Ragna segir að ekki sé komið í ljós enn þá hvort þingflokkarnir haldi sínum herbergjum. „Það fer eftir þörfum þingflokka miðað við samsetningu þeirra og fjölda. Einungis nauðsynlegar breytingar verða gerðar ef út í þær er farið,“ segir Ragna. Morgunblaðið/Eggert Rúmt Sjálfstæðisflokkurinn er enn með stærsta þingflokkinn og stærsta þingflokksherbergið. Þingmenn eiga rétt á bið- launum í allt að sex mánuði - Nýtt þing á að koma saman innan 10 vikna frá kjördegi Morgunblaðið/Eggert Þröngt Þétt er á þingi. Þingflokksherbergi Framsóknar reynist of lítið. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Að venju verður haldið námskeið fyrir þingmenn sem eru að setjast á Alþingi í fyrsta skipti. Slík námskeið eru jafnan haldin við upphaf nýs kjörtímabils, nokkrum dögum eftir kjördag. Eftir kosningarnar 2017 kom „þingmannaskólinn“ saman 11 dögum eftir kjördag. Á laugardaginn voru kjörnir 25 nýir þingmenn til setu á Alþingi. A.m.k. fjórir þeirra hafa áður setið á Alþingi sem aðal- eða varamenn að ógleymdum Guðmundi Inga Guð- brandssyni umhverfisráðherra, sem sat allt síðasta kjörtímabil í þingsal sem utanþingsráðherra. Að þessu sinni verður bekkurinn í „þingmannaskólanum“ fjölmennari en eftir kosningarnar haustið 2017. Þá tóku 11 þingmenn sæti sem ekki höfðu áður setið þingfund. Eftir haustkosningarnar 2016 var bekk- urinn í „þingmannskólanum“ einnig fjölmennur, en námskeiðið sóttu þá 26 nýkjörnir þingmenn. Eins og með- fylgjandi mynd sýnir munu aðeins 10 af þessum hópi sitja áfram á Alþingi eftir kosningarnar um helgina. Árið 2013 komu 28 nýliðar á þing. Í námskeiðinu verður nýjum þing- mönnum kynnt hvernig Alþingi starfar, hvaða þjónusta stendur þingmönnum til boða, starfskjör og svo framvegis. Þessar upplýsingar er að finna í ritinu Háttvirtur þing- maður, sem er handbók um þing- störfin. Ritið er einkum hugsað sem leiðbeiningarrit fyrir nýkjörna al- þingismenn, svo og varaþingmenn sem setjast á Alþingi á kjör- tímabilinu. Meginmarkmiðið er því að hafa á einum stað allar helstu upplýsingar sem geta komið nýjum alþingismönnum að gagni og létt þeim störfin. „Þingmannaskólinn“ fjölsóttur í ár - Að venju verður haldið námskeið fyrir nýliðana Morgunblaðið/Golli Árgangur 2016 Haldinn var kynningarfundur þar sem 26 nýir þingmenn fengu hagnýtar upplýsingar um Alþingi. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Næsta mál á dagskrá er að kanna hvaða verkefni liggja fyrir, hvað bíð- ur manns,“ segir Willum Þór Þórs- son alþingismaður. Willum er starfandi forseti Alþingis og mun gegna því hlut- verki þar til þing kemur saman á ný. Í reglum um forseta þingsins segir að ef hann er ekki endur- kjörinn skuli sá varaforseti sem næst honum gengur í röð endurkjör- inna varaforseta gegna embættinu, og þar með vera handhafi forseta- valds ásamt forsætisráðherra og for- seta Hæstaréttar, frá kjördegi og fram til þingsetningar. Sem kunnugt er ákvað Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi þingsetu. Hið sama gerði Guðjón S. Brjánsson sem var 1. varaforseti. Brynjar Níelsson, 2. varaforseti, náði ekki kjöri og Þor- steinn Sæmundsson, 3. varaforseti, var ekki í kjöri. Því fellur það í hlut Willums, sem var 4. varaforseti, að gegna embættinu. Willum sagði í samtali við Morgunblaðið að hann tæki því sem að höndum bæri. „Ég held að þetta snúist fyrst og fremst um að klára það sem kann að hafa verið ákveðið og vera til staðar ef sinna þarf einhverjum verkefnum.“ Sem kunnugt er fékk Framsókn- arflokkurinn góða kosningu á laug- ardaginn, ekki síst í Suðvesturkjör- dæmi þar sem Willum er oddviti. „Ég er auðvitað mjög ánægður með kosningarnar fyrir flokkinn í heild sinni. Við erum alls staðar að bæta við. Ég var líka hæstánægður með að ná inn öðrum manni í Suðvest- urkjördæmi, það gerbreytir stöð- unni.“ Hann segist bæði vera fullur auð- mýktar og þakklætis eftir niðurstöð- una. „Við einsettum okkur að reka jákvæða og málefnalega baráttu, að skapa leikgleði, og ég held að okkur hafi tekist það.“ Willum var að endingu spar á yfir- lýsingarnar þegar hann var inntur eftir eigin stöðu. Hann fékkst ekki til að upplýsa um það hvort hugur hans stæði til ráðherraembættis eða jafnvel forseta Alþingis. „Ég ætla að vinna vel fyrir land og þjóð. Ég held að það sé óráðlegt að gera sér vænt- ingar um eitthvað sem maður hefur ekki stjórn á sjálfur.“ Willum starfandi forseti Alþingis - Var fjórði varaforseti á liðnu þingi Willum Þór Þórsson 2021 ALÞINGISKOSNINGAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.