Morgunblaðið - 28.09.2021, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2021
Akrýlsteinn
• Yfirborðsefni sem endist og upplitast ekki
• Viðhaldsfrítt, slitsterkt og hitaþolið
- endalausir möguleikar
• Auðvelt að þrífa og gera við
Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Nú er kosningunum lokið og
jafnvel búið að telja atkvæðin
og sum þeirra tvisvar. Það er betra
að hafa niðurstöðu kosninganna á
hreinu. Þetta segir Halldór í Kópa-
vogi að séu skilaboðin þaðan:
- - -
Aðild að Evrópusambandinu er
hafnað.
- - -
Loftslagsmál hafa
lítið vægi.
Hálendisþjóðgarð-
ur er ekki áhuga-
mál.
- - -
Innflytjendamál
hafa lítið vægi.
- - -
V.G. eru aðeins að tapa 1 þing-
manni.
- - -
Aukinni fíkniefnanotkun er
hafnað.
- - -
Stjórnarskráráhugi er lítill.
- - -
Fólk vill færri og stærri stjórn-
málaflokka.
- - -
Fólk vill kjósa til Alþingis.
- - -
Fólk vill aðstoð við fátæka.
- - -
Óánægja með kvótakerfið er
ekki almenn.
- - -
Fólk trúir ekki hverju sem er.“
- - -
Þá liggur það fyrir. Sem sagt
gott.
Halldór Jónsson
Þá er það afgreitt
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróun-
arsamvinnuráðherra, sagði í ávarpi, sem hann
flutti á 76. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í
New York í gær, að loftslagsbreytingar, yfirstand-
andi heimsfaraldur og vaxandi spenna í alþjóða-
samskiptum gerðu kröfu um aukið traust og sam-
starf, ekki síst á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Guðlaugur Þór flutti ávarp sitt á skjá en þingið
er blanda af fjarfundum og beinni þátttöku.
Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að
Guðlaugur Þór hafi lýst því yfir að brýnt sé að
standa við Parísarsamkomulagið um loftslagsmál.
Hann reifaði áherslur og stefnu Íslands, bæði að-
gerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda
innanlands og vaxandi stuðning við loftslags-
aðgerðir í þróunarsamvinnu. Ísland væri tilbúið að
vinna með öðrum ríkjum að orkuskiptum, sérstak-
lega í tengslum við nýtingu jarðhita.
Þá sagði Guðlaugur Þór mikilvægt að ríki stuðl-
uðu að úrbótum í mannréttinda- og jafnréttismál-
um sem skiluðu sér í bættum samfélögum og auk-
inni velmegun, þar sem allir hefðu tækifæri til að
leggja sitt af mörkum.
Krafa um aukið traust og samstarf
- Guðlaugur Þór Þórðar-
son ávarpaði þing SÞ
Ávarp Guðlaugur Þór Þórðarson ávarpaði alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna af skjá.
Alls greindust 44 kórónuveirusmit
innanlands um nýliðna helgi, 24 á
sunnudag og 20 á laugardag. Þá
greindust 39 smit á sl. föstudag. Níu
eru á sjúkrahúsi veikir af Covid-19,
þar af þrír á gjörgæslu.
Alls voru 24 utan sóttkvíar við
greiningu um helgina og 16 á föstu-
dag.
Bólusetningarstaða hinna smituðu
hefur ekki verið gefin út.
Fimm kórónuveirusmit greindust
á landamærunum um helgina og sex
á föstudag. Mótefnamælingar er
beðið í tveimur tilvikum.
14 daga nýgengi innanlands á
hverja 100.000 íbúa stendur nú í
114,3. 908 einstaklingar eru nú í
sóttkví, 341 í einangrun og 454 í
skimunarsóttkví.
Tekin voru tæplega 4.000 sýni um
helgina og tæplega 3.000 á föstudag.
Hlutfall jákvæðra einkennasýna
var í hærra lagi á laugardag eða
4,72% en það var lægra á sunnudag
og föstudag og var þá rúm 2%.
44 kórónuveirusmit
greindust um helgina
150
125
100
75
50
25
0
júlí ágúst september
Staðfest smit
7 daga meðaltal
H
ei
m
ild
:c
ov
id
.is
kl
.1
1.
0
0
íg
æ
r
44 ný innanlandssmit
greindust sl. helgi
(lau. 25. og sun. 26. sept.)
908 einstaklingar
eru í sóttkví
Fjöldi innanlands-
smita frá 12. júlí
454 eru í
skimunarsóttkví341 eru með virkt smit
og í einangrun
9 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
þar af þrír á gjörgæslu