Morgunblaðið - 28.09.2021, Side 10

Morgunblaðið - 28.09.2021, Side 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2021 HÁDEGISMATUR alla daga ársins Bakkamatur fyrir fyrirtæki og mötuneyti Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum, sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt, einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum. Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is SKÚTAN Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is Guðni Einarsson gudni@mbl.is Djúpt í iðrum gamallar kolanámu á Svalbarða eru ýmsir dýrgripir mannkyns geymdir til eilífðarnóns. Þeirra á meðal er stafrænt afrit af norskri þýðingu á Flateyjarbók, sem er stærst allra íslenskra skinnbóka. Hún er alls 202 blöð sem voru skrif- uð undir lok 14. aldar og 23 blöð sem bætt var við bókina á síðari hluta 15. aldar. Það var The Saga Heritage Foundation sem afhenti bókina til geymslu. Stofnunin vinnur að rann- sóknum í norrænum fræðum. Safnið heitir Arctic World Archive (arcticworldarchive.org) – AWA. Samkvæmt heimasíðu AWA er geymslan hönnuð til að standa af sér flestar hörmungar af völdum náttúr- unnar eða manna. Gögnin sem þar eru geymd eiga að varðveitast öld- um saman. Megnið af efninu er varð- veitt á stafrænu formi. Geymslu- aðferðin og öryggi geymslunnar eru sögð tryggja geymslu gagnanna til langrar framtíðar. Safnið var stofn- að árið 2017 af norska fyrirtækinu Piql AS (piql.com) sem þróaði geymslutæknina. Með henni eiga safngripirnir að varðveitast öldum saman og vera aðgengilegir í fjar- lægri framtíð. Nú þegar hafa safngripir borist frá meira en 15 löndum. Geymslan er um 300 metra inni í göngum gam- allar kolanámu í fjöllum Svalbarða. Nú hafa 42 þjóðir lýst því yfir að Svalbarði sé hernaðarlega hlutlaust svæði. Það hvað Svalbarði er fjarrri skarkala heimsins og kuldinn á þessum slóðum þykir auka á geymsluöryggið. Safnið geymir meðal annars staf- ræn afrit af málverkum Rem- brandts og Munchs. Þá er þar að finna ýmsa dýrgripi úr bókasafni Vatíkansins í Róm og fornar myndir úr Ajanta-hellunum í Indlandi, upp- lýsingar um ýmis vísindaleg afrek og menningararfleifð samtíma okk- ar. Einnig eru þar geymdar miklar upplýsingar um þróun tækni og hugbúnaðar. Þar á meðal grundvall- arupplýsingar um stýrikerfi Linux og Android, ýmis þekkt forrit- unarmál, upplýsingar um rafmynt- irnar bitcoin og ethereum, gervi- greind og margt fleira. Evrópska geimvísindastofnunin (ESA) hefur sett þar í geymslu margvíslegar upplýsingar um geim- rannsóknir stofnunarinnar og myndasafn norska hersins sent stór myndasöfn til geymslu. Að sögn AWA hafa safngripir þegar borist frá Bandaríkjunum, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Ítalíu, Spáni, Mexíkó, Brasilíu, Ungverja- landi, Malasíu, Taílandi, Indlandi, Kanada, Slóvakíu, Kasakstan, Hol- landi og Stóra-Bretlandi. Gersemar geymdar til eilífðarnóns - Margvíslegum menningarverðmætum er nú safnað til geymslu í aflagðri kolanámu á Svalbarða Geymslan AWA-safnið er í aflagðri kolanámu rétt fyrir utan Longyearbyen á Svalbarða. Náman er eign kolanámafélags í eigu norska ríkisins. Geymslan er um 300 metra inni í námagöngunum. Ljósmyndir/AWA Tæknin Piql AS þróaði piqlFilm-geymslumiðilinn sem þolir rafsegulgeislun og er endingargóður. Lífskjarasamningurinn á almenna vinnumarkaðinum heldur gildi sínu þrátt fyrir að forsendur hans séu að hluta til taldar brostnar og mun hann því gilda út gildistímann til loka október á næsta ári. Samninganefnd Alþýðusam- bands Íslands og framkvæmda- stjórn Samtaka atvinnulífsins komu saman á fundi í gær þar sem fjallað var um framhald lífskjara- samningsins. Eins og fram hefur komið komst forsendunefnd við- semjenda að þeirri niðurstöðu í seinustu viku að hluti af forsend- um samningsins héldi ekki, þ.e.a.s. sú forsenda sem byggðist á yf- irlýsingum sem stjórnvöld gáfu við gerð samninganna vorið 2019. Vilji af beggja hálfu Í sameiginlegri fréttatilkynn- ingu ASÍ og SA síðdegis í gær segir: „Lífskjarasamningur SA og aðildarfélaga ASÍ hvílir á forsend- um sem ekki stóðust fullkomlega þar sem stjórnvöld efndu ekki öll fyrirheit í yfirlýsingu sinni dags. 4. apríl 2019. Samninganefnd Alþýðusam- bands Íslands og framkvæmda- stjórn Samtaka atvinnulífsins hitt- ust á fundi í dag um framhald lífskjarasamningsins, en bregðist forsendur getur hvor aðili sagt honum upp fyrir kl. 16 hinn 30. september. Á fundi aðila kom fram vilji af beggja hálfu til þess að samningar standi og halda þeir því gildi sínu þar til þeir renna út hinn 1. nóv- ember 2022,“ segir í fréttatilkynn- ingu ASÍ og SA. Lífskjarasamn- ingurinn heldur - Samninganefndir SA og ASÍ funduðu Morgunblaðið/Hari Undirritun Lífskjarasamningurinn var undirritaður í aprílbyrjun 2019.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.