Morgunblaðið - 28.09.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.09.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2021 Sími 555 2992 / 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu ogMelabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustaðmínum sem ég hafði ekki getað áður.“ innan trausts umhverfis hjá fag- mönnum. Markmiðið sé að bjóða upp á blandaðar bardagaíþróttir fyrir alla í öruggu umhverfi á samkeppn- ishæfu verði. Boðið verði upp á jiu-jitsu, hnefa- leika og búr fyrir blandaðar bar- dagaíþróttir. En hvernig metur Björn eftirspurnina og áhugann? Horft til erlendra markaða „Hér á landi eru litlir og vinsælir boxklúbbar. Þá má nefna að jiu-jitsu er á mikilli uppleið í Evrópu. Við horfum fyrst og fremst á það sem er að gerast erlendis. Ég hef persónu- lega ekkert vit á þessu,“ segir Björn og hlær við. Það sé í höndum Arnars og Árna að útfæra þjónustuna. Bardagaklúbburinn Mjölnir er í Öskjuhlíð en Tjarnarvellir eru syðst á höfuðborgarsvæðinu. Björn segir aðspurður að horft hafi verið til þessa. Það sé enginn bardagaklúbbur í Vallahverfinu. Þar fjölgi íbúum ár frá ári, ekki síst yngra fólki, ásamt því sem íbúar annarra hverfa sæki stöðina. „Vellirnir eru mjög öflugir. Þessi stöð er á frábærum stað með tilliti til íbúabyggðar og samgangna,“ segir Björn. Samhliða þessum framkvæmdum eru starfsmenn World Class að inn- rétta nýjan 200 fermetra sal á efri hæðinni á World Fit-stöðinni í Kringlunni, en til upprifjunar var ný World Class-stöð opnuð við bíógang- inn í Kringlunni í apríl sl. Hún er 2.000 m2 og á tveimur hæðum. Sveiflur í fjölda korthafa Korthafar hjá World Class voru um 49.300 talsins þegar faraldurinn hófst í mars í fyrra, um 46.500 í júlí í fyrra og um 38 þúsund í desember síðastliðnum. Að sögn Björns hefur korthöfum fjölgað hratt í haust. Þeim hafi fækkað í 31.500 í ágúst en séu nú orðnir ríflega 36 þúsund. Varðandi afkomuna í ár áætlar Björn að tekjurnar verði þrír og hálfur milljarður og að félagið skili hagnaði. Til samanburðar hafi bók- haldslegt tap í fyrra numið um 90 milljónum króna. Hvað snertir langtímaáhrif farald- ursins á reksturinn beri að hafa í huga að félagið hafi frestað afborg- unum af lánum og gripið til annarra aðgerða vegna tekjufalls. Árið 2019 hafi World Class skilað um 820 millj- óna króna hagnaði fyrir vexti og af- skriftir. Setja upp boxhanskana Morgunblaðið/Unnur Karen Í Hafnarfirði Klúbburinn verður á efri hæðinni á Tjarnarvöllum. - World Class-keðjan stofnar bardagaklúbb - Verður til húsa á Tjarnarvöllum - Korthöfum er tekið að fjölga á ný eftir mikla fækkun í kórónuveirufaraldrinum BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Eigendur heilsuræktarkeðjunnar World Class hyggjast færa út kví- arnar og opna einn stærsta bardaga- klúbb landsins um áramótin. Verður hann á efri hæð World Class-stöðvarinn- ar á Tjarnarvöll- um í Hafnarfirði. Staðurinn verður rekinn undir sömu kennitölu og keðj- an en með eigin vörumerki sem er í þróun. Verður í 800 fermetra rými Björn Leifsson, stofnandi og einn eigenda World Class, segir klúbbinn verða í 800 fermetra sal á efri hæð- inni. Rýminu verði skipt upp með tjöldum og búningsklefar innréttaðir fyrir félaga klúbbsins. „Við höfum fengið þá Arnar Frey Vigfússon og Árna Ísaksson – Árna úr járni – til liðs við okkur,“ segir Björn. Þeir félagar hyggist höfða til sem flestra og bjóða upp á þjálfun Björn Leifsson milljónir í fyrra, alls 324 milljónir króna. Einstök byggingaraðferð Deshús hafa meðal annars byggt og selt parhús við Uglugötu í Mos- fellsbæ. Við kynningu á verkefninu kom fram að húsin væru „afrakstur áratuga rannsókna við Konunglega sænska tækniháskólann í Stokk- hólmi sem miðuðu að því að þróa hús sem hentuðu sérstaklega nor- rænni veðráttu“. Meginmarkmið hennar væri að koma í veg fyrir raka og myglu, tryggja góða hljóð- vist og orkusparnað. Vegna þess- ara eiginleika svöruðu húsin vel kröfum nútímans en á Norður- löndum sé aðferðin þekkt sem Casabona. baldura@mbl.is Deshús byggingafélag var með ríf- lega 165 milljónir króna í tekjur í fyrra, að því er lesa má úr ársreikn- ingi sem hefur verið birtur hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra. Félagið er í eigu þriggja fjár- festa. Þórarinn Magnússon á 50% hlut og Ein- ar Karl Haralds- son og Össur Skarphéðinsson eiga báðir 50% hlut í félaginu. Félagið var ekki með rekstrar- tekjur árin 2017 og 2018, sam- kvæmt ársreikningum, en hafði 159 milljónir í tekjur árið 2019 og 165 Tekjur Deshúsa 165 milljónir 2020 - Óverulegur hagnaður varð af rekstri byggingafélagsins árin 2019 og 2020 Deshús byggingafélag Þús. kr. 2017 2018 2019 2020 Rekstrartekjur 0 0 158.987 165.025 Eignir 45.457 205.090 127.057 3 Skuldir 45.809 206.522 128.007 734 Hagnaður/tap -852 -1.080 482 218 under construction 159 m.kr. 165 m.kr. H ei m ild :Á rs re ik ni ng ar Össur Skarphéðinsson 28. september 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 128.76 Sterlingspund 176.08 Kanadadalur 101.31 Dönsk króna 20.293 Norsk króna 14.956 Sænsk króna 14.883 Svissn. franki 139.32 Japanskt jen 1.1652 SDR 182.61 Evra 150.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.69 « Úrvalsvísitala aðallista Kaup- hallar Íslands hækkaði í gær um 2,55% í líflegum viðskiptum þar sem öll félögin í kauphöllinni hækk- uðu í verði. Hlutabréfagrein- endurnir Snorri Jakobsson hjá Jakobsson Capital og Stefán Már Bogason hjá IFS ráðgjöf voru sammála um það í samtali við mbl.is í gær að ástæður hækkananna væru meðal ann- ars þær að dregið hefði úr óvissu eftir að niðurstöður alþingiskosninga lágu fyrir um helgina. Brim hækkaði mest Mest hækkuðu bréf í sjávarútvegs- fyrirtækinu Brimi, eða um 8,18% í 346 milljóna króna viðskiptum. Gengi fé- lagsins í lok dags var 59,5 hver hlutur. Næstmest hækkuðu bréf í upplýs- ingatæknifyrirtækinu Origo, eða um 5,93% í 29 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa félagsins er nú 62,5 krónur hver hlutur. Þriðja mesta hækkunin í gær varð á bréfum Kviku banka. Þau hækkuðu um 5,63% í 667 milljóna króna viðskiptum. Gengi Kviku á markaðnum er nú 24,4 krónur hver hlutur, en hæst hefur geng- ið farið í 25,2 krónur. Mestu viðskipti með Arion Mestu viðskiptin í gær voru með bréf Arion banka, tæplega 2,9 milljarða króna viðskipti og hækkuðu bréf bank- ans um 3,63%. Gengi bréfanna er nú 171,5 og nálgast Arion banki nú aftur sitt hæsta gildi, sem er 175,5 krónur hver hlutur. Næstmestu viðskiptin í gær voru með bréf tæknifyrirtækisins Marels, eða 1.360 milljónir króna. Gengi Marels er nú 914 krónur hver hlutur og hækkaði gengi félagsins um 1,56% í gær. Hæsta sögulega gengi Marels er 973 krónur hvert hlutabréf. Öll kauphallarfélögin hækkuðu í verði í gær Hækkun Bréf Brims tóku stökk. STUTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.