Morgunblaðið - 28.09.2021, Page 13

Morgunblaðið - 28.09.2021, Page 13
0 10 20 30 40 50 Niðurstöður þingkosninga frá sameiningu þýsku ríkjanna 1990, í % Kosningaúrslit í Þýskalandi Heimild: Landskjörstjórn Þýskalands **bráðabirgðatölur aðmorgni 27. september *Hafa heitið Die Linke frá 2005 24,1 32,9 20,5 8,9 43,8 25,7 33,5 14,8 5,1 1990 **Aðrir flokkar fengu 8,7% atkvæða 2021 19981994 2002 2005 2009 2013 2017 2021** 10,3 4,9 11,5 Die Linke* (yst til vinstri) SPD (Sósíal- demókratar) Græningjar CDU/CSU (kristilegu flokkarnir) FDP (Frjálslyndir demókratar) AfD (Yst til hægri) Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Engar skýrar línur um stjórnar- myndun lágu fyrir í Þýskalandi eftir þingkosningarnar í fyrradag, en Sósíaldemókrataflokkurinn náði þar mestu fylgi, eða um 25,7%, og flest- um þingmönnum. Munaði þó einung- is um einu og hálfu prósentustigi á þeim og bandalagi kristilegu flokk- anna CDU/CSU, en þeir fengu 24,1% eftir að hafa mælst með allt að 21% fylgi í skoðanakönnunum síð- ustu vikurnar. Armin Laschet, kanslaraefni CDU/CSU, sagði í gær að hann væri reiðubúinn til þess að leiða næstu ríkisstjórn, þrátt fyrir að flokkarnir hefðu fengið sína verstu útkomu í kosningum frá lokum síðari heims- styrjaldar. Sagði Laschet að enginn flokkur gæti sagst hafa skýrt umboð kjósenda til þess að mynda næstu stjórn, og væri hann því reiðubúinn til að ræða við Græningja og Frjáls- lynda demókrata um myndun svo- nefndrar „Jamaíku“-stjórnar. Olaf Scholz, kanslaraefni SPD, sagði hins vegar að skilaboð kjós- enda væru þau að kristilegu flokk- arnir ættu heima í stjórnarandstöðu, þar sem þeir hefðu tapað umtals- verðu fylgi frá síðustu kosningum, en þá leiddi Angela Merkel, fráfar- andi kanslari, flokkinn til mikils sig- urs og 32,9% fylgis. Fylgiskönnun sem þýska ríkis- sjónvarpið ARD stóð fyrir benti hins vegar til að um 13% þeirra sem kusu kristilegu flokkana þá hefðu ákveðið að kjósa SPD nú. Þá má líta á það sem ákveðið merki um þau tímamót sem urðu um helgina að þingsæti Merkel féll til Sósíaldemókrata í kosningunum. Minni flokkarnir ræða saman Sagði Scholz að hann vildi mynda „umferðarljósastjórn“ sem fyrst með Græningjum og Frjálslyndum demókrötum, og var hann þess full- viss að flokkarnir þrír gætu náð sam- an um myndun ríkisstjórnar í síðasta lagi fyrir jól. Christian Lindner, formaður frjálslyndra demókrata, sem fengu um 11,5% í kosningunum, sagði hins vegar á kosninganótt að hyggilegast væri að hann myndi ræða við Græn- ingja um málefnasamstarf áður en hann heyrði í kristilegum demókröt- um eða SPD, en Græningjar fengu 14,8% atkvæða. Flokkarnir tveir eru því líklega ómissandi, sama hvernig stjórn verður mynduð, en það þykir vera heldur langt á milli frjálslyndra og græningja í skatta- og efnahagsmál- um. Hugur Lindners stendur nær kristilegum demókrötum, en Anna- lena Baerbock, kanslaraefni Græn- ingja, sagði einungis að úrslitin væru ákall kjósenda um „nýtt upphaf“. Vinstri hangir inni Kjósendur slógu hins vegar af borðinu einn stjórnarmyndunar- möguleika, sem ræddur hafði verið fyrir kosningar, þar sem Die Linke, eða Vinstrið á íslensku, fékk einung- is um 4,9% atkvæða, sem er undir þröskuldi Þjóðverja fyrir lands- kjörna þingmenn. Fékk flokkurinn, sem er arftaki austurþýska komm- únistaflokksins, engu að síður 39 þingmenn í heildina þar sem hann náði að tryggja sér sæti í þremur kjördæmum, og sluppu vinstrimenn því fyrir horn við að detta út af þingi. Var sú niðurstaða nokkuð undir væntingum manna þar á bæ, þar sem möguleg stjórnarseta með SPD og Græningjum hafði verið rædd í hillingum, en Vinstri hefur aldrei áð- ur verið með í ríkisstjórn. Þá náði Stefan Seidler kjöri fyrir hönd flokks danska minnihlutans í Suður-Slésvík, SSW. Var þetta í fyrsta sinn sem flokkurinn bauð fram frá árinu 1961, en þar sem SSW er fulltrúi minnihlutahóps var hann undanþeginn reglum um 5% þrösk- uldinn. Sagði Seidler niðurstöðuna sögu- lega, og kalla á að þýsk stjórnvöld horfðu ekki fram hjá málefnum Suð- ur-Slésvíkur. Þetta skipti því veru- legu máli fyrir danska minnihlutann. AFP Ósigur Armin Laschet, leiðtogi CDU, var vongóður um að geta myndað rík- isstjórn þrátt fyrir að bandalag kristilegu flokkanna hefði tapað miklu fylgi. Stjórnarmyndun enn í óvissu - Engar skýrar línur fengust í þýsku kosningunum á sunnudaginn - Bæði Laschet og Scholz gera til- kall til kanslaraembættisins - Frjálslyndir vilja ræða fyrst við Græningja um áherslur nýrrar stjórnar Skipting þingsæta á sambandsþinginu eftir kosningarnar m.v. bráðabirgðaniðurstöður að morgni 27. september Þýska þingið eftir kosningar Heimild: Landskjörstjórn Þýskalands Die Linke (yst til vinstri) SPD (Sósíal- demókratar) Græningjar CDU/CSU (kristilegu flokkarnir) FDP (Frjálslyndir demókratar) AfD (yst til hægri) Aðrir 735 þingsæti39 206 118 92 196 83 1 FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2021 Eldfjallið La Cumbre Vieja á Kan- aríeyjum hóf aftur í gær að spúa út ösku eftir nokkurra klukkustunda goshlé. Eru um 300 íbúar á eyjunum, sem ekki hafa þurft að flýja heimili sín, nú fastir á þeim vegna ótta við að eiturgufur muni menga loftið þegar hraunrennslið streymir út í sjó. Er hraunið nú tæpan kílómetra frá ströndinni. Fjallið hefur verið að senda út gosösku og hraun til skiptis í nokk- urn tíma, en í gærmorgun hætti öll eldvirkni í fjallinu, og fylgdust spænskir náttúruvársérfræðingar grannt með framvindu mála. Eldgosið hefur nú lagt um 235 hektara lands í eyði, en þar á meðal eru 513 fasteignir, nærri 20 kíló- metrar af bundnu slitlagi og mikið af bananaekrum. Þá hafa rúmlega 6.000 manns neyðst til að flýja heim- ili sín síðan gosið hófst 19. septem- ber. Fjallið aftur far- ið að spúa ösku AFP Öskufall Eldfjallið sendi háan skýstrók upp í loft í gær eftir stutt goshlé.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.