Morgunblaðið - 28.09.2021, Síða 16

Morgunblaðið - 28.09.2021, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2021 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is Eigum úrval af miðstöðvar- og handklæðaofnum Öldum saman hafa menn talið fjölskylduna hornstein samfélagsins. Nokkuð hefur borið á því undanfarið að menn hafi reynt að hnekkja þessari fullyrðingu og oftast með afar fálm- kenndum hætti. Ekki þarf að fara mörgum orðum um marg- víslegar raunir manna og samfélags- ins þegar fjölskyldulíf er ekki í þokkalegu lagi eða jafnvel í molum. Virðing, kærleikur og ábyrgð eru hornsteinar heimilislífs sem skapar ungmennum skjól á uppvaxtarár- unum. Skólarnir gegna mikilvægu hlutverki til að styrkja og efla vellíð- an barna og ungmenna. Þetta verk- efni í skólunum er svo mikilvægt og brýnt að ekki má skera fjárveitingar við nögl í þessu skyni heldur auka verulega. Umsjónarkennarar og námsráðgjafar í hverjum skóla gegna lykilhlutverki í að auka og efla vellíð- an barna og ungmenna. Styrkja þarf stöðu þessara starfsmanna skólanna og það sérstaklega núna á óvenju- legum tímum. Námsráðgjafar Námsráðgjafar eru mikilvægustu samstarfsmenn nemenda og geta haft úrslitaáhrif á vellíðan þeirra í námi og síðar í starfi. Námsráðgjafar vinna náið með stjórnendum hvers skóla svo og öllum kennurum og öðrum starfsmönnum. Þeir gefa góð ráð og leiðbeina þegar eftir er leitað og oftar ef þeim sýnist svo. Þeir eru ávallt talsmenn nemenda í hverju máli sem upp kemur og nemendur verða að geta treyst því. Margir telja að einn námsráðgjafa þurfi fyrir hverja um það bil 300 nemendur. Á þessum erf- iðu tímum er mjög mikilvægt að auka og efla störf námsráðgjafa til þess að draga sem mest úr kvíða og óöryggi nemenda. Þetta gildir um alla grunn- og framhaldsskóla landsins. Góður námsráðgjafi getur leyst mörg mál nemenda og starfsmanna ef það er gert fljótt og fagmannlega eða áður en þau verða vandamál ef þeim er ekki sinnt strax í byrjun. Mörg dæmi eru um að námsráðgjafar leysi mál og gefi góð ráð og nem- endur þurfi því síður að leita til sér- fræðinga utan skólanna með tilheyr- andi löngum og erfiðum biðlistum. Margir nemendur telja sig standa í þakkarskuld við námsráðgjafa sinn löngu eftir að skólagöngu lýkur. Umsjónarkennarar Á öllum skólastigum þarf að gera stjórnendum kleift að fjölga verulega umsjónarkennurum úr hópi góðra kennara. Þeim verði síðan boðið að fara á námskeið og fá góða þjálfun í að ræða einslega við nemendur um vellíðan, samskipti, tómstundir, nám- ið o.fl. Þá verði þeim greitt vel fyrir þessa vinnu. Miklu máli skiptir að kennarar líti ekki á það sem kvöð að gegna starfi umsjónarkennara. Um- sjónarkennarastarfið er að mati flestra eitt mikilvægasta starf í hverj- um skóla og því ber að launa það vel. Félagslíf Efla þarf heilbrigt og gott félagslíf í hverjum skóla. Til þess að efla fé- lagslífið verði einn til tveir kennarar til aðstoðar og eftirlits. Ungt fólk get- ur lært margt gagnlegt með þátttöku í félagslífinu í skóla sínum. Mjög margt af því gagnast vel í nútíma- þjóðfélagi þar sem miklir möguleikar eru fyrir hæfileikaríkt fólk. Nem- endum er nauðsynlegt að upplifa ánægjulega tilbreytingu og skemmt- anir öðru hverju. Það er hluti af eðli- legu og heilbrigðu líferni hvers manns. Hugmyndir um góðar skemmtanir og ýmiss konar tilbreyt- ingu má fá víða, m.a. frá öðrum skól- um, s.s. glæsilegar árshátíðir með borðhaldi, galakvöld, leikrit/ söngleiki, dimission-útskriftarferðir, haustferðir, skíðaferðir o.fl. Allt kost- ar þetta nokkra fjármuni en hjá því verður ekki komist ef við ætlum að mennta vel ungt fólk sem á að búa í þessu fagra landi og byggja upp gott samfélag í náinni framtíð enda erum við ekki fátæk þjóð. Eftir Þorstein Þorsteinsson og Gunnlaug Sigurðsson » Skólarnir gegna mikilvægu hlutverki til að styrkja vellíðan barna og ungmenna. Umsjónarkennarar og námsráðgjafar eru þar í lykilhlutverki. Þorsteinn Þorsteinsson Höfundar eru fyrrverandi skólameistarar. thorsteinn2212@gmail.com Sóknarfæri í skólamálum: Markvissar leiðir til að efla vellíðan barna og ungmenna Gunnlaugur Sigurðsson Í Kastljósi sjón- varpsins þ. 7. sept- ember sl. var rætt við Gunnar Þór Bjarna- son sagnfræðing um spænsku veikina 1918 og bók hans útgefna árið 2020 um sama efni. Þar fá þáverandi starfandi læknar, landlæknir og annað hjúkrunarfólk ekki háa einkunn; bæði virðist það hafa verið skoðun íbúanna í höfuð- staðnum sem og þeirra sem um málið hafa fjallað, allt fram á þenn- an dag. Ekki veit ég hvort þessir dómar eiga við rök að styðjast, en ekki eiga þeir við um ástandið á Akra- nesi, þ.e. í nóv.-des. 1918. Héraðs- læknir á Akranesi var Ólafur Fin- sen (1867-1958), sem starfaði sem læknir þar frá 1894 til 1937 og hér- aðslæknir í Skipaskagahéraði frá 1900-1937. Auk þess sat Ólafur í hreppsnefnd, í skólanefnd og var stöðvarstjóri Landsímans á Akra- nesi um 10 ára skeið. Hann var í stjórn Hjúkrunarfélagsins frá stofn- un 1922-1939. Ólafur var kjörinn heiðursborgari Akraness 1947, heið- ursfélagi Rauða kross Íslands 1949 og heiðursfélagi ÍA. Minning- arsjóður um hann og konu hans var stofnaður 1939. Forseti bæjarstjórnar Akraness flutti ræðu við heiðursborgarakjörið 1. mars 1947; þar sagði hann m.a.: „Þessi heiður fellur þér í skaut sem viðurkenning fyrir langa þjónustu í erfiðu héraði, við að líkna sjúkum með læknavísindum og tækjum þess tíma. En líka – og eigi síður – fyrir ástúð þína og umhyggju, glað- lyndi þitt við þá sem þurftu, hug- hreystingar og uppörfunar hins hjartahreina manns, sem í engu má vamm sitt vita.“ Upp á Skaga kom veikin 31. októ- ber og gengur eins og eldur í sinu um bæinn. Ólafur Finsen læknir fullyrðir að allt að 90% fólks í lækn- ishéraði sínu hafi veikst og skráin hann hjá sér 620 sjúklinga frá nóv- emberbyrjun og fram í miðjan des- ember. Einungis sex heimili á Akra- nesi sleppa alveg. Í bænum búa 897 manns en um 1.650 í læknishér- aðinu öllu. Talið er að 28 hafi látist úr spænsku veikinni á Akranesi eða 3,1% íbúanna. Samsvarandi tölur í dag væru að 240 manns létust af hennar völdum, en íbúar eru um 7.800. Ólafur lýsir einkennum veikinnar svo: „Ákafur hiti (mestur 41,8), höf- uðverkur, óráð stundum svo mikið að sjúklingar æddu um sem óðir menn og varð eigi linað nema með skópólamín-morfíninnspýtingu, kvef, ákafur þurrbelgingshósti, einkum í byrjun, síðar með upp- gangi, ýmist gulleitum eða blóðlit- uðum. Uppköst voru mjög tíð í byrjun, sömuleiðis niðurgangur. Svefnleysi í mörgum, sumir lágu í móki. Blóðnasir ákaflega tíðar, einkum á unglingum, á sumum nær óstöðvandi. Eins og fram kemur í bók Gunn- ars Þórs Bjarnasonar segir Ólafur ástandið hafa verið „voðalegt“ þeg- ar verst gegndi, fólk hafi legið „í einni þvögu“, enginn til að kynda upp húsin og „enginn til að elda mat, enginn til að hjúkra eða lið- sinna þeim sjúku“ og þeir sem uppi stóðu átt nóg með að sinna sínum nánustu. Fólk „engdist sundur og saman af hósta, þrautum og þorsta“ og hafði varla rænu á að ná sér í vatn handa sjúklingum og gefa þeim lyfin. Síðan lýsir Ólafur eft- irköstum veikinnar þar sem fram kemur að margir hafa verið lengi að ná sér. Héraðslæknirinn kveðst að jafnaði varla hafa sofið nema tvær eða þrjár klukkustund- ir á nóttunni allan nóv- ember. „Eitt sinn fór ég tæpast úr fötum í fjóra sólarhringa,“ seg- ir hann. Upp úr því fær hann „aðkenningu af sóttinni“ en liggur bara einn dag. Á meðan afgreiðir hann lyf til sjúk- linga úr rúmi sínu með aðstoð dótt- ur sinnar því hann er í senn lyfsali bæjarins og héraðslæknir. Ég skrifaði grein í blaðið Vestur- land þ. 30. ágúst 2018 vegna þess að 100 ár voru liðin frá komu spænsku veikinnar. Þar er gerð grein fyrir þeim sem létust af veikinni á Akra- nesi og mynd fylgdi af viðkomandi ef hún var fyrir hendi. Varla þarf að taka fram að á Akranesi var á þess- um árum hvorki sjúkrahús né al- mennt hjúkrunarfólk, aðeins hér- aðslæknirinn Ólafur Finsen og ljósmóðirin Guðrún Gísladóttir (Guðrún ljósa), en hún starfaði sem ljósmóðir á Akranesi og nær- sveitum í 46 ár, frá 1892 til 1938. Auk þess að taka á móti 1.166 börn- um var hún hjúkrunarkona og ann- áluð voru störf hennar haustið 1918, þegar spænska veikin gekk. Í við- tali við Guðrúnu í Framtaki, blaði Sjálfstæðismanna á Akranesi í októ- ber 1948, 30 árum eftir að spænska veikin gekk á Akranesi, var hún m.a. spurð: „Hvenær var þér mest íþyngt í starfi ?“ Guðrún svarar: „Þó merkilegt megi heita, þá voru það ekki ljósmóðurstörfin sem mest hafa reynt á getu mína, heldur hjúkrunarstarfið í spönsku veikinni árið 1918. Það voru fullar þrjár vik- ur, sem ég naut ekki hvíldar í þann tíma, en það vildi til að ég þoldi vel að vaka. Á þessu tímabili var það í mesta lagi aðra hverja nótt, sem ég gat lagt mig, annars var ég alltaf þar sem erfiðleikarnir voru mestir og dauðsföll verandi og verðandi. Þetta voru óhugnananlegir tímar. Það bjargaði mér, hvað heilsu- hraust ég var sjálf, því þrátt fyrir það að ég var svo að segja hjá hverjum þeim sjúkling sem veik- astur var, þá fékk ég ekki svo mikið sem smákvilla af þessari veiki. – En fyrst verið er að ræða um þessa hluti á annað borð, þá get ég ekki látið hjá líða að minnnast á elju og fórnfýsi vinar míns Ólafs Finsen, héraðslæknis, sem var alla tíð ein- lægasti samherji minn í baráttunni við þennan sjúkdóm og annan fyrr og síðar.“ Guðrún Gísladóttir lærði ljósmóð- urfræði hjá Schierbeck landlækni 1892. Hún var greind, glaðvær, fróðleiksfús og hagmælt. Hún var sæmd riddarakrossi fálkaorðunnar 1945, heiðursborgari Akraness 1948 og heiðursfélagi Kvenfélags Akra- ness og Slysavarnadeildarinnar á Akranesi. Eftir Ásmund Ólafsson Ásmundur Ólafsson » Ólafur Finsen læknir fullyrðir að allt að 90% fólks í læknishéraði sínu hafi veikst og skráir hann hjá sér 620 sjúklinga frá nóv- emberbyrjun og fram í miðjan desember 2018. Höfundur er fv. framkvæmdastjóri Dvalarheimilisins Höfða, Akranesi. Spænska veikin á Akranesi Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.