Morgunblaðið - 28.09.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.09.2021, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2021 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Botsía kl.10. Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun kl. 13. Prjónakaffi Önnu kl. 13.30. Kaffi kl. 14.30-15.20. Nánari uppl. í s. 411-2701 & 411-2702. Velkomin. Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12. Leikfimimeð Milan kl. 10.30. Handavinna kl. 12-16. Karlakór- inn Kátir karlar kl. 12.45. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Heitt á könn- unni, kaffisala kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Sím: 411-2600. Boðinn Ganga / stafganga með leiðsögn kl. 10 frá Boðanum. Fugla- tálgun kl. 13. Brids og kanasta, munið sóttvarnir. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10. Stólaleikfimi með Silju kl. 12.30 (hvetjum fólk að koma og prufa). Opið kaffihús kl. 14.30. Qi-gong kl. 17 (frítt og opið öllum hverfisbúum). Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Súpa og brauð eftir stundina á vægu verði. Félagsstarf eldri borgara kl. 13. Söngdúett Kristín Ragnhildur og Inga Backman. Verið velkomin. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Prjónað til góðs kl. 8.30-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Myndlistar- hópurinn Kríur kl. 12.30-15.30. Aðalfundur Hollvina Hæðargarðs kl. 13.30. Leiðbeiningar á tölvu kl. 13.10-13.40. Bónusrútan kl. 13.10. Síð- degiskaffi kl. 14.30-15.30. Bókabíllinn kl. 14.45. Garðabær Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Með- læti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45-15.15. Pool-hópur í Jóns- húsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Qi-Gong í Sjálandi kl. 9. Stólajóga kl. 11 í Jónshúsi. Leikfimi í Ásgarði kl. 12.15. Botsía í Ásgarði kl. 12.55. Smíði kl. 9 og 13 í Smiðju Kirkjuhvoli. Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa og verkstæði, kl. 16-18 Nafnlausi leikhópurinn með námskeið í upplestri og framsögn, kl. 13 - 16 opin handavinnustofa og verkstæði. Gullsmári Myndlist kl. 9, botsía kl. 10, tréútskurður og kanasta kl. 13. Hraunsel Billjard kl. 9-16. Qi-gong kl. 10. Brids kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Jóga með Rakel Írisi kl. 9. Brids í handavinnustofu kl. 13. Bingó kl. 13.15. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Morgunleikfimi kl. 9.45 í Borgum. Ritlistanámskeið í lista- smiðju kl. 9.30 til 11.30 í Borgum. Botsía í Borgum kl. 10. Helgistund í Borgum kl. 10.30, og leikfimishópur Korpúlfa í Egilshöll, Margrét Eiríksdóttir leiðbeinir. Spjallhópur í listasmiðju í Borgum kl. 13 og sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 14, Brynjólfur leiðbeinir. Minn- um á hópsöng og kynningu á ljósmyndum í Borgum á morgun. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffikrókur alla morgna frá kl. 9. Pútt á flötinni við Skólabraut kl. 10.30 ef veður leyfir. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14. ATH. Í DAG verður BINGÓ í salnum á SKÓLABRAUT kl. 13.30. Örnámskeið / roð og leður á neðri hæð félagsheimilisins kl. 15.30. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bílar Audi A3 Sportback e-Tron Hybrid 8/2017, módelár 2018 Ekinn aðeins 40 þús. km. Sportsæti. Panorama glerþak. 17” álfelgur. Sjálfskiptur. LED ljós. O.fl. Lækkað verð aðeins 3.990.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga. Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com intellecta.is Nú !##u" þú það sem þú $ei%a" að á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA Vilborg Dagbjartsdóttir Hún er farin, horfin, dáin en aldrei mun hún gleymast, hún Vilborg. Hún hefur verið okkar nánasti granni síðastliðin 40 ár, þ.e. frá því við fluttum hingað á þessa litlu húsatorfu í miðborg Reykja- víkur, sem þá var orðin aldar- gömul. Þau Vilborg og Þorgeir voru reyndar líka nýflutt á svæð- ið, höfðu keypt sitt hús árið áður. Við kunnum auðvitað deili á þeim, enda bæði þekkt skáld og áberandi í róttækri þjóðfélags- umræðu og þar að auki var Vil- borg ein af hetjum Rauðsokka- hreyfingarinnar. Þau tóku á móti okkur á stígn- um milli húsanna eins og tekið er á móti vinum sem beðið hefur verið eftir. Og þar með urðum við ekki aðeins náin í rýminu heldur einnig í vináttunni. Fljótlega kom í ljós að Vilborg var frá Seyðis- firði eins og Villi, bæði fædd þar og alin upp, en Vilborg átta árum eldri. Umræðan leiddist því iðu- lega yfir í sögur og minningar frá Seyðisfirði, þar sem sagnagleðin fékk að njóta sín til fullnustu. Vilborg var ævinlega glöð og kát og skemmtileg og hún hló svo fallega. Ekkert var ljúfara en þegar hlátur hennar barst okkur inn um opinn svefnherbergisgluggann og inn í draumana. Borghildur Óskarsdóttir. ✝ Friðrika Björnsdóttir fæddist á Eskifirði 19. september 1941. Hún lést á Landspít- alanum 20. sept- ember 2021. For- eldrar hennar voru Björn Kristjánsson, f. 14. nóvember 1917, d. 23. maí 1983, og Borghildur Einarsdóttir, f. 23. júlí 1916, d. 20. apríl 1942. Friðrika átti þrjú hálfsystkini; Hrafnhildi Björnsdóttur, f. 17. júní 1947; Kristján Björnsson, f. 31. desember 1951; og Guðrúnu Björnsdóttur, f. 6. mars 1956. Hinn 22. október 1961 giftist Friðrika eftirlifandi eiginmanni sínum, Þorvaldi Einarssyni frá Ísafirði, f. 22. febrúar 1937. For- eldrar Þorvaldar voru Einar Ólafur Eyjólfsson, f. 8. sept- ember 1900, d. 6. mars 1939, og Guðrún Friðrika Pétursdóttir, f. 7. september 1908, d. 20. desem- ber 1982. Friðrika og Þorvaldur bjuggu allan sinn búskap á Eskifirði. Börn Friðriku og Þorvaldar eru: 1) Kristín Lukka, f. 11. ágúst 1962, maki Agnar Bóasson, f. 19. ágúst 1963. Þau eru búsett á Reyðarfirði. Börn þeirra eru Ólafur Kristinn og Karitas Ósk. Ólafur Kristinn á tvær dæt- ur, Matthildi Emmu og Friðriku Völu. Karitas Ósk á tvö börn, Dögun Rós og Björn Jörfa. 2) Ein- ar Guðmundur, f. 19. júlí 1964, maki Guðbjörg Linda Bragadóttir, f. 1. mars 1968. Þau eru búsett á Eskifirði. Börn þeirra eru Aníta, Telma Ósk og Þor- valdur. Telma Ósk á einn son, Aron Einar. 3) Borghildur Birna, f. 7. júní 1970. Börn hennar eru Hekla Rán og Jón Þorleifur. 4) Björgvin Rúnar, f. 2. mars 1972, maki Hugrún Hjálmarsdóttir, f. 16. október 1975. Börn þeirra eru Bjartmar Pálmi, Rósey og Ásdís Erla. Útför Friðriku verður gerð frá Eskifjarðarkirkju í dag, 28. sept- ember 2021, og hefst athöfnin klukkan 14. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins nán- ustu aðstandendur viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á facebooksíðu Eskifjarð- arkirkju: www.facebook.com/eskifjardarkirkja/ Hlekk á streymi má finna á: www.mbl.is/andlat Með þakklæti og virðingu kveð ég kæra vinkonu. Vinkonu berns- kuára minna á Eskifirði. Frið- rikka missti móður sína ung. Hún ólst upp hjá ömmu sinni og afa, Lukku og Kristjáni. Í Lukku-Húsi voru ekki bara amma og afi, þar voru líka Beggi og Tóta, fulltrúar aldurs og visku. Efalaust hefur allt þetta góða fólk mótað Frið- rikku til góðs lífs. Við ólumst upp í húsum sem stóðu hlið við hlið og á milli heim- ilanna var vinátta og kærleikur. Kvistgluggar okkar Friðrikku lágu saman. Við áttum okkar eigið Mors-kerfi og flest kvöld sendum við hvor annarri skilaboð hvort sem það var hræðsla í Kapitólu- lestri eða bara segja góða nótt. Friðrikka var bókelsk og las mikið alla tíð. Hún vann í bóka- búðinni heima á Eskifirði þar sem ég dvaldi löngum stundum í skjóli hennar og hún leiðbeindi mér inn í ævintýraheim bókanna. Á Ísafirði urðu kaflaskil í lífi Friðrikku, þar kynntist hún Valda sínum sem varð lífsförunautur hennar. Saman byggðu þau fallegt hús í fjallshlíðinni á Eskifirði. Þar var hugsað fyrir öllu og pláss fyrir alla unga sem aldna. Þar nutum við Kjartan gestrisni þeirra hjóna á ferðum okkar um Austurland. „Vík milli vina.“ Oftast var vík milli okkar Friðrikku á seinni ár- um. En fjarlægðin truflaði ekki vináttu okkar. Fyrir tryggð henn- ar og kærleiksríka vináttu er ég þakklát. Kæri Valdi, við Kjartan send- um þér og fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. Katrín Þórlindsdóttir (Bubba). Friðrika Björnsdóttir Elsku vinur minn. Mig langar að skrifa nokkur orð til þín og ég lofa þér því að þetta verður bara stutt af því að ég þekki þig það vel og veit að það þurfa ekki að vera mörg orð til að segja það sem býr í hjarta okkar. Elsku Hjalli minn, takk fyrir öll dýrmætu árin sem við áttum saman. Ég elska þig. Þín tengdadóttir, Brynja. Hjálmar Jóhannesson ✝ Hjálmar Jóhannesson fæddist 31. júlí 1948. Hann lést 15. sept- ember 2021. Útför hefur farið fram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.