Morgunblaðið - 28.09.2021, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 28.09.2021, Qupperneq 27
rétt eins og Höskuldur fékk hann þrisvar tvö M og þrettán sinnum eitt M í leikjum Vesturbæjarliðsins. Hann skoraði sjálfur tvö mörk, bæði í sama leiknum, í 2:1 sigri gegn Leiknismönnum. Litlu munaði að Kristinn yrði sigurvegari í einkunnagjöfinni í ann- að sinn á þremur árum en hann varð efstur í M-gjöfinni árið 2019. Endasprettur hjá Jónatan Jónatan Ingi Jónsson, hægri kantmaður FH-inga, varð í þriðja sæti í M-gjöfinni. Hann fékk 17 M samtals og átti frábæran endasprett en Jónatan fékk ellefu M í síðustu átta leikjum Hafnarfjarðarliðsins, þar af þrisvar tvö M. Fram að því hafði hann fengið sex M í fjórtán leikjum FH-inga. Það var í takti við FH-liðið sem olli miklum vonbrigðum lengi vel en tapaði síðan aðeins einu sinni í síð- ustu átta umferðunum, gegn Ís- landsmeisturum Víkings. Jónatan skoraði sex mörk, fjögur þeirra í síð- ustu sex leikjunum. Markakóngurinn fjórði Fremstur í flokki hjá meistaraliði Víkings var markakóngur deild- arinnar, Nikolaj Hansen. Danski framherjinn átti sitt besta tímabil hér á landi og varð langmarkahæst- ur í deildinni með 16 mörk. Hansen, sem hefur leikið hér á landi frá árinu 2016 og með Víkingum frá 2017, var líka bestur Íslandsmeistaranna samkvæmt einkunnagjöfinni og fékk 15 M samtals á tímabilinu, sem skil- aði honum fjórða sætinu. Hansen fékk níu M í fyrri umferð deildarinnar en sex í þeirri síðari og það var í takt við markaskorið en Daninn skoraði tíu mörk á fyrri hluta tímabilsins og sex á þeim síð- ari. Besti ungi leikmaðurinn féll Þótt Fylkismenn hafi endað tíma- bilið illa, hafnað í botnsæti deild- arinnar og fallið, áttu þeir besta unga leikmanninn samkvæmt ein- kunnagjöfinni, ef miðað er við þá sem eru fæddir á þessari öld. Hinn 19 ára gamli Orri Hrafn Kjart- ansson stóð algjörlega upp úr hjá Árbæjarliðinu á sínu fyrsta heila keppnistímabili í deildinni en hann fékk samtals 15 M í einkunnagjöf- inni. Orri var lengi vel í baráttu um efsta sætið en rétt eins og Fylk- isliðið gaf hann eftir og fékk aðeins tvö M í síðustu sex umferðum deild- arinnar. Höskuldur oftast valinn Þessir leikmenn eru að sjálfsögðu allir í ellefu manna úrvalsliði keppn- istímabilsins 2021 sem sjá má hér fyrir ofan. Breiðablik, Víkingur og KA eiga tvo leikmenn hvert félag í liðinu en KR, FH, Leiknir, Keflavík og Fylkir einn leikmann hvert. Níu varamenn má svo sjá til hliðar. Ell- efu af tólf liðum deildarinnar eiga fulltrúa í þessum tuttugu manna hópi, öll nema HK. Þá má efst á síðunni sjá hvaða fimm leikmenn í hverju liði fyrir sig fengu flest M á tímabilinu. Höskuldur Gunnlaugsson var oft- ast allra valinn í lið umferðarinnar, átta sinnum í 22 umferðum deild- arinnar. Pablo Punyed hjá Víkingi og Matthías Vilhjálmsson hjá FH komu næstir en þeir voru valdir sex sinnum hvor í lið umferðarinnar hjá blaðinu. Viktor Karl Einarsson og Kristinn Steindórsson úr Breiða- bliki voru valdir fimm sinnum hvor í lið umferðarinnar. Breiðablik með flest M Breiðablik fékk flest M samanlagt í einkunnagjöf tímabilsins hjá blaðinu og var rétt á undan keppi- nautum sínum um Íslandsmeistara- titilinn, Víkingum. Blikar fengu samtals 126 M í 22 leikjum, eða 5,72 M að meðaltali í leik, en Víkingar fengu 121 M, eða 5,5 að meðaltali í leik. KR-ingar voru ekki langt und- an með 117 M. Botnlið Fylkis fékk fæst M, sam- tals 76, eða 3,45 að meðaltali í leik. ÍA var með næstfæst M, 81, og síðan kom HK með 84 M samtals en heild- artölu hvers liðs má sjá efst í opn- unni. Einkunnagjöf Morgunblaðsins Íþróttafréttamenn Morgunblaðs- ins voru á öllum 132 leikjum deild- arinnar á árinu 2021, lýstu þeim á mbl.is og gáfu leikmönnum einkunn- ir sem birtust í blaðinu. Til að fá eitt M þarf leikmaður að eiga góðan leik, til að fá tvö M þarf mjög góðan leik og til að fá þrjú M, sem er nokkurs konar sparieinkunn, þarf að eiga al- gjöran toppleik á íslenskan mæli- kvarða. Enginn leikmaður í úrvals- deild karla fékk þrjú M í einum leik á þessu ári. 4-3-3 Hversu oft leikmaður var valinn í lið umferðarinnar2 Varamannabekkur Fjöldi sem leikmaður fékk á leiktíð2 14 Rasmus Christiansen Valur Haraldur Björnsson Stjarnan Ísak Snær Þorvaldsson ÍA Kristall Máni Ingason Víkingur Kennie Chopart KR Ástbjörn Þórðarson Keflavík 11 14 11 13 13 3 4 4 2 1 4 Lið ársins 2021 hjá Morgunblaðinu Gísli Eyjólfsson Breiðablik 12 2 12 Kristinn Steindórsson Breiðablik 5 Matthías Vilhjálmsson FH 11 6 Steinþór Már Auðunsson KA 13 Jónatan Ingi Jónsson FH 17 Hallgrímur Mar Steingrímsson KA 14 Nikolaj Hansen Víkingur 15 2 4 34 Brynjar Hlöðversson Leiknir R. 13 Frans Elvarsson Keflavík 13 Höskuldur Gunnlaugsson Breiðablik 19 Kristinn Jónsson KR 19 8 3 3 3 Pablo Punyed Víkingur 13 Orri Hrafn Kjartansson Fylkir 15 Viktor Karl Einarsson Breiðablik 14 64 5 Jónatan Ingi Jónsson (22) 17 Matthías Vilhjálmsson (22) 11 Guðmundur Kristjánsson (20) 10 Ágúst Eðvald Hlynsson (10) 8 Steven Lennon (17) 7 FH 106 Birnir Snær Ingason (21) 10 Birkir Valur Jónsson (18) 9 Martin Rauschenberg (20) 8 Guðmundur Þór Júlíusson (17) 7 Atli Arnarson (20) 7 HK 84 Birkir Heimisson (20) 11 M Rasmus Christiansen (20) 11 M Hannes Þór Halldórsson (21) 11 M Patrick Pedersen (21) 10 M Birkir Már Sævarsson (22) 10 M Valur 107 Orri Hrafn Kjartansson (20) 15 Orri Sveinn Stefánsson (21) 9 Djair Parfitt-Williams (13) 7 Helgi Valur Daníelsson (18) 7 Aron Snær Friðriksson (18) 7 Fylkir 76 Ástbjörn Þórðarson (22) 14 Frans Elvarsson (22) 13 Joey Gibbs (22) 12 Sindri Kristinn Ólafsson (22) 12 Magnús Þór Magnússon (17) 7 Keflavík 95 Hallgrímur Mar Steingrímsson (22) 14 Steinþór Már Auðunsson (22) 13 Rodrigo Gómez (20) 10 Þorri Mar Þórisson (21) 8 Brynjar Ingi Bjarnason (10) 7 KA 102 ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2021 Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, mun í vikunni til- kynna landsliðshóp sinn fyrir leikina tvo gegn Armeníu og Liechtenstein í undankeppni HM en báðir leikirnir fara fram á Laugardalsvelli. Það verður afar áhugavert að sjá hvaða leikmenn verða valdir í hópinn að þessu sinni en eins og flestir vita var mikið fjölmiðlafár í kringum síðasta leikmannahóp karlalandsliðsins. Guðni Bergs- son sagði af sér sem formaður KSÍ fljótlega eftir að sá hópur var tilkynntur og stjórn KSÍ fylgdi svo í kjölfarið. Þá var Kolbeini Sigþórssyni meinað að mæta í verkefnið af stjórn KSÍ og Rúnar Már Sig- urjónsson ákvað að draga sig úr hópnum. Kolbeinn er ekki til taks fyrir næsta verkefni vegna meiðsla en hefði hann gefið kost á sér núna yfir höfuð ef hann væri heill heilsu? Sátt náðist í hans mál árið 2018 og því spyr maður sig eðli- lega hvort þetta hafi ekki bara verið einn stór leikþáttur og hrein og klár mistök hjá stjórn KSÍ að banna honum að mæta í leikina gegn Rúmeníu, Norður- Makedóníu og Þýskalandi enda stjórnin meira en meðvituð um meint brot hans fyrir fjórum ár- um. Maðurinn baðst afsökunar og greiddi himinháar bætur. Var nauðsynlegt að refsa honum enn frekar og þá hversu lengi? Dómstöll götunnar Twitter er vægðarlaus, svo mikið er víst, en eins og nýliðnar alþingiskosn- ingar sýndu fram á endurspeglar bergmálshellirinn á Twitter ekki alltaf vilja þjóðarinnar. Ég óska þess að ný stjórn KSÍ taki á öll- um kynferðis- og ofbeldismálum af mikilli festu en það þarf líka að anda inn, og svo út, þegar svona mál eru til umræðu. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Júlíus Magnússon miðjumaður Víkings var besti leikmaðurinn í 22. og síð- ustu umferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu síðasta laugardag, að mati Morgunblaðsins. Júlíus fékk tvö M fyrir frammistöðu sína í sigri Víkinga á Leikni, 2:0, þegar þeir tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn. Aðeins einn annar leikmaður fékk tvö M í lokaumferðinni en það var Patrick Pedersen sem skoraði þrennu fyrir Val í 6:0 sigri á Fylki. Síðasta úrvalslið umferðar er hér fyrir ofan og þar er Höskuldur Gunn- laugsson úr Breiðabliki valinn í áttunda skipti en enginn var jafnoft í úr- valsliðinu á tímabilinu. Þá er Pablo Punyed, miðjumaður Víkings, í liðinu í sjötta skipti. 22 . umferð í Pepsi Max-deild karla 2021 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 23-4-3 Gunnar Nielsen FH Ísak Snær Þorvaldsson ÍA Patrick Pedersen Valur Júlíus Magnússon VíkingurSindri Snær Magnússon ÍA Pablo Punyed Víkingur Nikolaj Hansen Víkingur Höskuldur Gunnlaugsson Breiðablik Viktor Örn Margeirsson Breiðablik Óskar Örn Hauksson KR Mikkel Qvist KA 3 3 4 2 6 4 8 4 4 Júlíus bestur í 22. umferð Neal Maupay reyndist hetja Brigh- ton þegar liðið heimsótti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Maupay skoraði jöfnunarmark Brighton með loka- spyrnu leiksins eftir að Wilfried Zaha hafði komið Crystal Palace yfir með marki úr vítaspyrnu á 45. mínútu. Þetta var fjórða deild- armark Maupay í sex leikjum en Brighton, sem hefði með sigri getað tyllt sér á topp deildarinnar í fyrsta sinn í sögu félagsins, er með 13 stig í sjötta sæti deildarinnar, stigi minna en topplið Liverpool. Jöfnunarmark í blálokin AFP Mark Frakkinn Neal Maupay fagnaði jöfnunarmarki sínu vel og innilega á Selhurst Park í London við lítinn fögnuð stuðningsmanna Crystal Palace.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.