Morgunblaðið - 28.09.2021, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
THERE’S A LITTLE HERO INSIDE US ALL
RYAN REYNOLDS – JODIE COMER – TAIKA WAITITI
GEGGJUÐ NÝ GRÍNMYND
FRÁBÆR NÝ MYND FRÁ MARVEL STUDIOS
MYND SEM ALLIR VERÐA AÐ SJÁ Í BÍÓ
SIMU LIU AWKWAFINA WITHMICHELLE YEOH ANDTONY LEUNG
92%
KOMIN Í BÍÓ
T H E T E L E G R A P H
T H E G U A R D I A N
E M P I R E
TOTA L F I L M
90%
Rokksveitin heimskunna Rolling Stones hóf bandarísk-
an hluta stuttrar tónleikaferðar sinnar, sem ber yfir-
skriftina No Filter, á sunnudaginn í St. Louis í Missouri.
Í upphafi tónleika var sýnt myndband til minningar um
Charlie Watts, trommara sveitarinnar sem lést fyrir
skömmu. Er þetta fyrsta tónleikaferð Rolling Stones án
Watts í 58 ár þar sem hann gekk til liðs við sveitina árið
1963. Trommusóló ómaði undir myndbandinu og tón-
leikagestir, um 60 þúsund talsins, kölluðu „Charlie,
Charlie“. Stigu þá þeir Mick Jagger, Keith Richards og
Ron Wood á svið og hófu leik með „Street Fighting
Man“ en við trommusettið sat Steve Jordan. Jagger
sagði tónleikagestum að því loknu að það snerti hans
hjartastrengi að sjá Watts á breiðtjaldinu.
AFP
Rollingar Ronnie Wood, Mick Jagger, Steve Jordan og Keith Richards í St. Louis í Missouri í fyrradag.
Fyrsta tónleikaferðin án Watts
Óskarsverðlaunahafinn Dustin
Lance Black, sem komið hefur að
gerð kvikmynda á borð við Milk, J.
Edgar og When We Rise, mun
framleiða ameríska endurgerð á
íslensku hrollvekjunni Rökkur sem
Erlingur Óttar Thoroddsen skrifaði
og leikstýrði árið 2017. Erlingur
mun einnig skrifa og leikstýra nýju
myndinni, líkt og greint var frá fyr-
ir þremur árum, sem mun bera
enska titilinn Rift. Meðal annarra
framleiðenda eru J. Todd Harris og
Marc Marcum sem m.a. framleiddi
The Trial of the Chicago 7, auk
XYZ og Wayward Entertainment.
„Rift fjallar um tvo menn sem
kljást við endalok sambands síns
undir óhugnanlegum kringumstæð-
um þegar þeir einangrast saman í
afskekktum sumarbústað um miðj-
an vetur,“ segir í tilkynningu og að
Dustin Lance Black hafi hlotið Ósk-
arsverðlaun fyrir handritið að kvik-
myndinni Milk árið 2009 og hafi
síðast skrifað handritið að Rustin
sem Barack og Michelle Obama
framleiða fyrir streymisveituna
Netflix.
Rökkur var frumsýnd hér á landi
fyrir fjórum árum og voru framleið-
endur hennar Erlingur sjálfur, Búi
Baldvinsson og Baldvin Kári Svein-
björnsson fyrir Myrkraverk Pro-
ductions ehf. Með aðalhlutverk í
myndinni fóru Björn Stefánsson og
Sigurður Þór Óskarsson. Kvik-
myndavefurinn Deadline greindi
fyrst frá aðkomu Black að Rift.
Erlingur lauk nýverið tökum á
kvikmyndinni The Piper fyrir Mill-
ennium Media með leikurunum
Charlotte Hope og Julian Sands í
aðalhlutverkum.
Óskarsverðlaunahafi framleiðir Rift
Tryllir Björn Stefánsson í Rökkri.
A
nders Roslund er einn af
þessum traustu höfundum.
Hann er frjór í skrifum
sínum og glæpasögur, sem
hann hefur sent frá sér með öðrum
eða einn og sér, hafa verið spennandi
og vel skrifaðar. Hún á afmæli í dag
er af þessum meiði og eins og svo oft
áður vakna ýmsar spurningar við
lesturinn.
Vopnasala hefur löngum þótt arð-
bær og hún er hryggjarstykki sög-
unnar, sem gerist í Stokkhólmi og
Albaníu. Viðfangsefni lögreglunnar
er fyrst og fremst að finna þá sem
standa að ólöglegri sölu vopna í Sví-
þjóð, en eftir því sem fleiri glæpa-
menn finnast myrtir því erfiðari
verður leitin.
Spennusagnahöfundar gera oft út
á græðgi enda á hún til að afvegaleiða
menn; þeir byrja smátt, en ráða ekki
við sig og áður en þeir vita af eru þeir
orðnir stór-
krimmar. „Glæpa-
mennska er eins
og vanabindandi
lyf“ er ein skýr-
ingin (bls. 458), og
í sögunni leiðir
hún viðkomandi
svo sannarlega í
ógöngur.
Hefndin er
annað vinsælt stef í glæpasögum og
hún er eitt hjól undir bílnum að þessu
sinni. Erfitt er að gera sér í hugar-
lund þjáningar fólks sem horfir upp á
ástvini myrta. Öll sund virðast lokuð
og gjarnan sér það enga leið aðra en
braut hefndarinnar. Sú stefna veldur
augljóslega meiri skaða og er ekki
vænleg til árangurs, en stundum
virðist tilgangurinn helga meðalið.
Spillingin er sjaldnast langt undan
í glæpasögum og til að sporna við
henni er heiðvirði lögreglumaðurinn,
sem oftar en ekki má ekki við
margnum. Þessi eilífa barátta góðs og
ills á sér ýmsar hliðar og Anders
Roslund kann að gera sér mat úr
þeim.
Allir þessir þættir og fleiri til verða
að þéttri frásögn, en sumt orkar þó
tvímælis. Vafaatriðin þvælast samt
ekki fyrir, ekki frekar en fólkið sem
glæpamennirnir þurfa að ryðja úr
vegi.
Ljósmynd/andersroslund.se
Frjór Anders Roslund er frjór í skrifum sínum og glæpasögur, sem hann
hefur sent frá sér með öðrum eða einn og sér, spennandi og vel skrifaðar.
Miskunnarlaust
rutt úr vegi
Glæpasaga
Hún á afmæli í dag bbbbn
Eftir Anders Roslund.
Elín Guðmundsdóttir þýddi.
Kilja. 511 bls. Ugla 2021.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR