Morgunblaðið - 29.09.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2021
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
Sérhæfð þjónusta fyrir
544 5151
tímapantanir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna aðgerðir ríkisstjórnarinnar
ALLIR VINNA sem felur í sér endurgreiðslu á VSK
af vinnulið einkabifreiða
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Aftakaveður reið yfir landið norðan-
og vestanvert í gær. Vindhviður fóru
yfir 45 metra á sekúndu og mikil
slydda og úrkoma var fyrir norðan.
Krapastífla myndaðist í Sauðá
stuttu eftir hádegi svo enginn
straumur var í ánni um margra
klukkutíma skeið. Götum var lokað
og nokkrar íbúðir rýmdar á svæðinu.
Hafdís Einarsdóttir, formaður
Björgunarsveitar Skagfirðinga-
sveitar, segir daginn annars hafa
verið nokkuð rólegan hjá björg-
unarsveitinni. „Við fengum ekki
mörg verkefni en þurftum að losa
tvo bíla. Fólk fylgdi að mestu leyti
fyrirmælum og hélt sig heima.“
Í Hrútafirði fauk rúta út af vegi
við Heggstaðanessafleggjara. 37
ferðamenn voru í rútunni en þeim
var fljótlega komið í öruggt skjól á
hóteli í grenndinni. Guðrún Gróa,
lögreglumaður á Blönduósi, segir
daginn hafa verið annasaman hjá
lögregluembættinu en þó í jafnvægi.
„En það er hundleiðinlegt veður,“
bætti Guðrún við.
Óvenjulegur stormur
Þrjár rafmagnslínur slógu út
snemma í gær vegna veðurs en það
voru Húsavíkurlína, Laxárlína og
Mjólkárlína. Húsvíkingar voru raf-
magnslausir vegna þessa um tíu
mínútna skeið klukkan 8 í gærmorg-
un. Steinunn Þorkelsdóttir upplýs-
ingafulltrúi Landsnets segir fólk þar
hafa búið sig vel undir veðrið: „Mað-
ur veit aldrei hvernig veðrið verður
svo á endanum en við erum eins vel
undirbúin og við mögulega getum.
Svo fylgjumst við auðvitað vel með
framvindunni og þróuninni á veðrinu
og bregðumst við eftir þörfum.“
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræð-
ingur hjá Veðurvaktinni, segir veðr-
ið um margt sérstakt: „Það sem er
sérstakt og óvenjulegt er það að
lægðin fer frá austri til vesturs, það
er svo sem ekkert einsdæmi en það
er miklu algengara að þær fari hina
leiðina, komi úr suðvestri yfir landið.
Þetta er vegna þess að háloftavind-
arnir eru dálítið snúnir,“ segir Ein-
ar. Honum þykir það sömuleiðis
óvenjulegt að óveður sem þetta
skelli á landið svo snemma hausts-
ins.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Útkall Það var nóg að gera hjá björgunarsveitunum á Ísafirði í gær. Fuku meðal annars þakplötur af sjúkrahúsinu.
Hríð og hret að hausti
fyrir norðan og vestan
- Rútur fuku og húsnæði rýmd á Norður- og Vesturlandi
Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson
Hvasst Það blés rækilega á Tálknafirði og fuku tré upp með rótum.
Formennirnir eru sagðir ásáttir
um að Katrín leiði endurnýjað rík-
isstjórnarsamstarf ef af verður, en
sjálfir undirstrika þeir að samtalið
sé óformlegt, verið sé að leita grund-
vallarins áður en lengra er haldið.
Sagt er að Sigurður Ingi Jó-
hannsson, formaður Framsóknar-
flokksins, telji að sér og sínum
flokki beri aukið vægi í ríkisstjórn-
arsamstarfi í samræmi við fylgis-
aukninguna. Í því samhengi hefur
fjármálaráðuneytið sérstaklega
verið nefnt. Þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins, sem blaðið ræddi við,
sagði að það væri ekkert trúarat-
riði fyrir sjálfstæðismenn að vera í
fjármálaráðuneytinu. En ef tveir
minni flokkarnir í samstarfinu ætl-
uðu sér valdamestu embætti rík-
isstjórnarinnar, þá hlytu þeir að
eftirláta stærsta flokknum ekki
minna en helming annarra ráðu-
neyta.
Skipting ráðuneyta
Ýmsar bollaleggingar eru uppi
um skiptingu ráðuneyta í endur-
nýjuðu ríkisstjórnarsamstarfi, en
eftir því sem blaðið kemst næst
hefur það lítið verið rætt af for-
mönnunum. Margir viðmælenda
gengu út frá því að í stórum dráttum
yrði verkaskipting flokkanna sú
sama, nema sérstaklega væri rætt
um annað. Bjarni Benediktsson
sagði hins vegar að fundi loknum
síðdegis í gær að hann teldi ólíklegt
að ráðherrastólar yrðu óbreyttir í
endurnýjuðu stjórnmálastarfi. Af
orðum hans var þó ekki ljóst hvort
hann ætti við skiptingu ráðuneyta
eða hverjir veldust til þess að gegna
ráðherradómi.
Rætt er um að framsóknarmenn
vilji ekki aðeins fá fjármálaráðu-
neytið, heldur fleiri ráðherra. Á hinn
bóginn mun hvorugur samstarfs-
flokkanna viljugur til þess að gefa
eftir ráðherrastól. Lausnin kynni að
vera að fjölga stólunum, ráðherrar
hafa almennt ekki tekið illa í hug-
myndir um flutning verkefna og
stofnun nýrra ráðuneyta.
Formenn ræða grundvöll samstarfs
- Reynt að finna nýtt valdajafnvægi í ríkisstjórninni - Samstarfsflokkar sáttir við að Katrín leiði áfram
- Sigurður Ingi áhugasamur um fjármálaráðuneyti - Sjálfstæðismenn segja mikið þurfa að koma á móti
Morgunblaðið/Eggert
Viðræður Bjarni Benediktsson kemur til fundar í Ráðherrabústaðinn í gær.
BAKSVIÐ
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Formenn ríkisstjórnarflokkanna
héldu í gær áfram samræðum sínum
um endurnýjað stjórnarsamstarf og
notuðu Ráðherrabústaðinn í Tjarn-
argötu til þess. Viðræðurnar hafa að
sögn gengið vel, en af samtölum við
þingmenn blasir við að innan stjórn-
arflokkanna eru uppi ólík viðhorf um
þýðingu kosningaúrslitanna fyrir
frekara samstarf þeirra.
„Þetta er fínasta samtal og það
kemur svo sem ekkert á óvart í þess-
um hópi með það. Það breytir því
ekki að kosningar marka nýtt upp-
haf. Þetta er nýtt verkefni og við
þurfum aðeins að gefa okkur tíma í
það,“ segir Katrín Jakobsdóttir, for-
sætisráðherra og formaður Vinstri
grænna.
Ekki barst staðfesting frá yfirkjör-
stjórn Norðvesturkjördæmis um að
meðferð kjörgagna hefði verið full-
nægjandi. Þetta las Kristín Edwald,
formaður landskjörstjórnar, upp í
bókun að loknum fundi hennar í gær.
Mun þetta vera í fyrsta skipti sem
landskjörstjórn gefur út slíka yfir-
lýsingu eftir þingkosningar. Það er
nú í höndum Alþingis að skera úr um
það hvort þingmenn kjördæmisins
séu löglega kosnir eða hvort skortur
á staðfestingunni sé næg ástæða til
þess að ógilda kosninguna.
Ekki annað í stöðunni
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir,
talsmaður Pírata, segir ekkert ann-
að í stöðunni en að boðið verði til svo-
kallaðrar uppkosningar, það er að
kosið verði aftur í kjördæminu.
-Teljið þið í Pírötum að ógilda ætti
kosninguna?
„Já, okkar oddviti er náttúrulega
búinn að kæra þessa framkvæmd og
fer fram á endurtalningu. Við erum
sammála honum,“ segir Þórhildur
Sunna. Í kjölfarið finnst þeim að
boða skuli til uppkosningar.
„Við sjáum ekki hvað er annað í
stöðunni og mér sýnist landskjör-
stjórn vera að segja það sama.“
Karl Gauti Hjaltason, oddviti Mið-
flokksins í Suðurkjördæmi, tekur í
sama streng en hann datt út af þingi
í kjölfar endurtalningar í kjördæm-
inu. „Ég er ekki að sjá, í lýðræð-
isþjóðfélaginu lýðveldi Íslands, að
það sé að fara að gefa út kjörbréf á
þingmenn sem byggja setu sína á
þessari gölluðu talningu,“ segir Karl
Gauti.
Traust Alþingis sé í húfi ef ákveðið
verði að „vaða í gegnum skaflinn“ og
láta sem ekkert sé. ari@mbl.is
Krefjast að kosið
verði í NV á ný
- Fyrsta yfirlýsing sinnar tegundar
Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir
Karl Gauti
Hjaltason