Morgunblaðið - 29.09.2021, Síða 11

Morgunblaðið - 29.09.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2021 Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is Opið virka daga: 11.00-18:00 Laugardagar 11:00-15:00 S-XXL Verð 6.990 kr. Margot NÁTTSETT frá Létt, mjúkt og teygjanlegt viscose Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Forsvarsmenn CSU, flokks kristi- legra demókrata í Bæjaralandi, sögðu í gær að Sósíaldemókratar ættu að fá fyrsta tækifærið til þess að mynda nýja ríkisstjórn í Þýska- landi í ljósi kosningaósigurs kristi- legu flokkanna tveggja. „Forskot SPD er ekki mikið, en hann er þó með meira fylgi,“ sagði Alexander Dobrindt, þingflokks- formaður CSU, eftir að þingflokkur þeirra kom saman í fyrsta sinn eftir kosningarnar í gær. Það væri því eðlilegt að gera ráð fyrir að hinir flokkarnir á þingi myndu ræða fyrst við Sósíaldemókrata. Markus Söder, formaður CSU og forsætisráðherra Bæjaralands, sagði að Olaf Scholz, fjármálaráð- herra og kanslaraefni SPD, ætti aug- ljóslega betri líkur á að fá embættið á þessari stundu. Sagði Söder að virða þyrfti niðurstöðu kosninganna, það væri „grunnregla“ lýðræðisins. Óskaði Söder Scholz til hamingju með úrslitin, en SPD fengu 25,7% at- kvæða og 206 þingmenn, tíu fleiri en kristilegu flokkarnir fengu. Sagði Söder sjálfsagt að óska Scholz til hamingju, en Armin Laschet, for- maður CDU og kanslaraefni kristi- legu flokkanna, hefur enn ekki gert það og uppskorið nokkra gagnrýni fyrir bæði innan flokks og utan. Vill enn mynda stjórn Laschet segist enn hafa trú á því að hann geti myndað ríkisstjórn með Græningjum og Frjálslyndum demókrötum, þrátt fyrir að hann hafi leitt bandalag kristilegu flokk- anna til sinnar verstu kosningar frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Fengu CDU/CSU samtals 24,1% atkvæða og 196 þingmenn, en þetta er í fyrsta sinn sem flokkarnir eru með minna en 30% fylgi í kosningum. Kalla sífellt háværari raddir innan CDU nú eftir afsögn Laschets, og benti könnun á mánudaginn til þess að um 51% kjósenda flokksins væri á þeirri skoðun. Ellen Demuth, þing- maður CDU á þingi Rínarlands- Pfalz, sagði á twittersíðu sinni að Laschet hefði tapað og að hann ætti að segja af sér áður en hann ylli CDU frekari skaða. Tilman Kuban, formaður ungliða- hreyfingar CDU, sagði ljóst að kristilegu flokkarnir hefðu tapað og Marcus Mündlein, formaður ung- liðahreyfingar CDU í Saxlandi, sagði þörf á „alvöru nýju upphafi“, sem einungis væri möguleg ef Laschet segði af sér. Þungavigtarfólk utan þings Á meðal þeirra þungavigtarmanna í kristilegu flokkunum sem misstu þingsæti sín eða náðu ekki kjöri voru Peter Altmeier efnahagsráðherra, Annegret Kramp-Karrenbauer varnarmálaráðherra og Julia Klöckner landbúnaðarráðherra. Þá féll þingsæti Angelu Merkel, fráfarandi kanslara, í skaut Önnu Kassautzki, áður óþekkts nýliða frá SPD. Hafði Merkel setið í þingsæt- inu frá árinu 1990. AFP Ósigur Markus Söder, formaður CSU, var þungur á brún í gær. Þrýst á Laschet að segja af sér - Forkólfar CSU segja að SPD eigi að fá fyrsta tækifærið til að mynda næstu ríkisstjórn - Óánægja með úrslitin magnast innan CDU - Annegret Kramp-Karrenbauer meðal þeirra sem féllu af þingi Bandaríkjamenn og Bretar for- dæmdu í gær stjórnvöld í Norður- Kóreu fyrir tilraunaskot með skammdræga eldflaug sem þau framkvæmdu í fyrrinótt. Sagði í til- kynningu frá suðurkóreska hernum að flauginni hefði verið skotið frá héraðinu Jagang í norðurhluta Norður-Kóreu, áður en hún lenti í hafinu undan austurströnd Kóreu- skagans. Sagði bandaríska utanríkisráðu- neytið að tilraunin væri ógn við ná- granna Norður-Kóreu og alþjóða- samfélagið allt, auk þess sem hún bryti í bága við fjölmargar ályktanir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Breska utanríkisráðuneytið tók í sama streng og kallaði jafnframt eft- ir því að Norður-Kóreumenn hæfu aftur viðræður um kjarnorkuafvopn- un á Kóreuskaga. Kom Song, sendiherra Norður- Kóreu hjá Sameinuðu þjóðunum, lýsti því hins vegar yfir á allsherj- arþingi þeirra að enginn gæti fjar- lægt rétt Norður-Kóreumanna til sjálfsvarnar, og að þeir hefðu fullan rétt á að prófa vopn sín. „Við erum einungis að byggja upp landvarnir okkar til þess að verja okkur og tryggja frið og öryggi ríkisins,“ sagði Song í ávarpi sínu á þinginu. Lagði til leiðtogafund Sérfræðingar í málefnum Norður- Kóreu töldu tilraunina vera ætlaða til að reyna á viðbrögð Moon Jae-in, forseta Suður-Kóreu, í kjölfar þess að Kim Yo-jong, systir einræðisherr- ans Kim Jong-il, opnaði á þann möguleika á laugardaginn að halda leiðtogafund milli Kóreuríkjanna. Hafði Moon Jae-in lagt þann fund til, en á dagskrá hans yrði meðal annars að undirrita formlegan frið- arsamning milli Kóreuríkjanna og binda þannig opinberan enda á Kór- eustríðið, sem geisaði frá 1950 til 1953. Fordæmdu eld- flaugatilraunina - Segjast hafa rétt til að prófa vopn sín AFP Kórea Ferðalangar á lestarstöð í Seúl horfa á fréttir af skotinu. Janet Yellen, fjármálaráð- herra Bandaríkj- anna, varaði bankanefnd öld- ungadeildar Bandaríkjaþings við því í gær að sjóðir banda- ríska alríkisins muni klárast 18. október næstkomandi, samþykki Bandaríkjaþing ekki að hækka skuldaþak þess fyrir þann tíma. Sagði Yellen óvíst að hægt yrði að standa við allar skuldir Banda- ríkjanna eftir þann dag, en hart er nú deilt í öldungadeild þingsins um hvort hækka eigi þakið. Greiddu allir repúblikanar í deildinni gegn tillögu þess efnis í fyrradag, og sagði Mitch McCon- nell, leiðtogi þeirra í öldungadeild, að demókratar yrðu að leysa þenn- an vanda á eigin spýtur. Sagði Yel- len vandann hins vegar vera þver- pólitískan og á ábyrgð beggja flokka. BANDARÍKIN Varar við gjaldþroti alríkisins í október Janet Yellen Hljóðsnælda með áður óþekktu lagi, „Radio Peace“ eftir Bítilinn John Lennon, var boðin upp í gær í Kaup- mannahöfn og seldist hún á 370.000 danskar krónur, eða sem nemur tæpri sjö og hálfri milljón ísl. kr. Upptakan af Lennon var gerð 5. janúar 1970, en þá var hann staddur ásamt eiginkonu sinni Yoko Ono á Jótlandi, þar sem fyrrverandi maður hennar hafði flust þangað ásamt Kyoko, dóttur þeirra. Fjórir tánings- strákar sóttust þá eftir viðtali við Lennon fyrir skólablaðið sitt og fengu. Tóku þeir upp um 33 mínútur af efni, þar sem Lennon ræddi m.a. ímynd sína í Bítlunum, hár sitt og friðarherferð hans og Yoko. Kar- sten Hojen, einn af eigendum snæld- unnar, sagði að allt við viðtalið hefði verið voða heimilislegt, þar sem Lennon hefði verið með fæturna í ullarsokkum uppi á borði meðan hann talaði. Óþekkt lag eftir Lennon á uppboði AFP

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.