Morgunblaðið - 29.09.2021, Page 13

Morgunblaðið - 29.09.2021, Page 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2021 Mokstur Vetur konungur er mættur af krafti og þá fara snjómoksturstækin af stað ef veður leyfir, þannig að bílarnir geti komist leiðar sinnar yfir fjallvegina. Kristinn Magnússon Hægt er að lesa margt út úr nið- urstöðum kosninganna síðastliðinn laugardag og fer sjálfsagt töluvert eftir þeim gleraugum sem viðkomandi er með. En sumt blasir við og þarf engin gler- augu. Síðasti laugardagur var ekki dagur stjórn- arandstöðunnar. Ekki einn einasti stjórnarandstöðuflokkur náði að komast yfir 10% fylgi og gamaldags hugmyndafræði sósíalista var hafn- að. Eftir stendur stjórnarandstaða sem sundurlaust safn smáflokka. Flokkur í molum Samfylkingin er í molum og draumurinn um að verða leiðandi afl í íslenskum stjórnmálum er aðeins gömul minning, litlu yngri en draum- urinn um að flokkurinn yrði samein- ingarafl vinstriflokkanna. Úrslitin staðfesta að Samfylkingin er smáflokkur, töluvert minni en Al- þýðuflokkurinn var á sínum tíma. Á árunum 1963 til 1995 (síðasta árið sem Alþýðuflokkurinn bauð fram áð- ur en hann rann inn í Samfylk- inguna) var flokkurinn að meðaltali með um 14,3% atkvæða. Fékk mest 22% árið 1978 í glæsilegum kosn- ingasigri en minnst 9% árið 1974. Í síðustu fimm alþingiskosningum hefur Samfylkingin aldrei náð með- alfylgi Alþýðuflokksins fyrir utan vorið 2009, nokkrum mánuðum eftir fall bankanna. Það sama ár fengu Vinstri- grænir sína bestu kosn- ingu eða 22%. Augljóst er að Sam- fylkingin hefur ekki að- eins glatað stórum hluta fylgismanna gamla Alþýðuflokksins heldur einnig þess hluta Alþýðu- bandalagsins sem skip- aði sér undir fána Sam- fylkingarinnar í upphafi. Dómurinn yfir Samfylkingunni er óvenjuharður, ekki síst þegar haft er í huga að flokkurinn hefur verið í stjórnarand- stöðu í átta ár. Flest bendir til að eyðimerkurgangan haldi áfram í fjögur ár hið minnsta. „Stjórnarandstaðan skíttapaði“ Í umræðum á samfélagsmiðlum er Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, skýr: „Stjórnarandstaðan skíttapaði ein- faldlega kosningabaráttunni. Sam- fylkingin var afvelta eftir vetur inn- anflokksátaka þar sem vænsta fólki var rutt úr sætum og gersamlega til- efnislaus varaformannsslagur saxaði á limina hans Björns míns.“ Eftir átta ár í stjórnarandstöðu ríða Píratar ekki feitum hesti frá kosningunum. Kannski ekki við öðru að búast þegar helstu baráttumálin eru „ný stjórnarskrá“, borgaralaun sem skulu fjármögnuð með lántök- um og veðsetningu komandi kyn- slóða, og stórkostleg útgjaldaloforð með skattahækkunum sem voru vit- laust reiknaðar og svo leiðréttar með því að „hóta“ enn frekari hækkun skatta. Viðreisn er líkt og Samfylkingin að festast sem smáflokkur og þrátt fyrir að hafa bætt lítillega við sig er fylgið töluvert frá því sem það var þegar flokkurinn bauð fyrst fram. Baráttumál flokksins eiga lítið upp á pallborðið hjá kjósendum, hvorki tenging við evru eða aðild að Evr- ópusambandinu. Sigurvegari Vinstri-grænir geta verið þokka- lega sáttir við sinn hlut – eru lítillega undir meðalfylgi frá upphafi eftir að hafa veitt ríkisstjórn forystu í fjögur ár. Ríkisstjórn sem reyndi verulega á þolrif flokksmanna með sama hætti og hún reyndi á margan sjálfstæð- ismanninn. Raunar er útkoman enn betri en virðist við fyrstu sýn, því í upphafi síðasta kjörtímabils sögðu tveir þingmenn VG skilið við flokk- inn – fyrst óformlega með því að styðja ekki ríkisstjórn Katrínar Jak- obsdóttur og síðar formlega með því að ganga til liðs við aðra flokka – Pí- rata og Samfylkinguna. Hvorugur flokkurinn naut þess í kosningum – þvert á móti. Framsóknarflokkurinn styrkti stöðu sína verulega í kosningunum og hefur verið krýndur sigurvegari kosninganna. Fyrir fjórum árum fékk flokkurinn sína verstu útreið í yfir 100 ára sögu eða 10,7% atkvæða. Þá var glímt við fyrrverandi for- mann flokksins sem horfði hins veg- ar upp á hreint hrun síðasta laug- ardag. Eftir fjögur ár í stjórnarandstöðu missti Miðflokk- urinn helming atkvæða sinna. Á margan hátt rak Framsókn- arflokkurinn forvitnilega og góða kosningabaráttu sem skilaði árangri. Þar var engin hugmyndafræði. Póli- tísk stefnumál voru í aukahlutverki en fremur höfðað til fólks sem hefur ekkert á móti Framsókn án þess að hafa mikla sannfæringu. Með sama hætti var kosningabarátta Flokks fólksins árangursrík og oft á tíðum snjöll. Óháð því hvaða flokkar standa að baki nýrri ríkisstjórn er augljóst að þeir komast illa hjá því að horfa til þess árangurs sem Inga Sæland og samstarfsfólk hennar náðu. Því er ekki að neita að sá er þetta skrifar gerði sér vonir um að Sjálf- stæðisflokknum tækist að styrkja stöðu sína í kosningunum. Það kann að vera að slíkar vonir hafi verið óraunsæjar eftir átta ár í ríkisstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn er leiðandi afl í stjórnmálum hér eftir sem hingað til og án hans verður aðeins fjölflokka glundroðastjórn mynduð. Skýrt umboð Með hliðsjón af úrslitum kosning- anna væri fráleitt annað en að for- ystumenn stjórnarflokkanna létu reyna á það hvort ekki séu forsendur til að halda samstarfinu áfram. En það verður langt í frá einfalt. Þrátt fyrir allt er hugmyndafræðilegur ágreiningur verulegur, allt frá skipu- lagi heilbrigðiskerfisins til orkunýt- ingar og orkuöflunar, frá sköttum til ríkisrekstrar, frá þjóðgörðum til skipulagsmála, frá refsingum og þvingunum í loftslagsmálum til já- kvæðra hvata og nýtingar tækifæra í orkuskiptum. Forystumenn stjórn- arflokkanna þurfa að leiða ágreining í þessum málum og fleirum „í jörð“ ef ákveðið verður að endurnýja sam- starfið. Niðurstöður kosninganna verða illa túlkaðar með öðrum hætti en þeim að til þess hafi formenn stjórnarflokkanna skýrt umboð meirihluta kjósenda. Hvorki Sjálfstæðisflokkurinn né Framsóknarflokkurinn geta hins vegar horft fram hjá þeirri stað- reynd að sameiginlega eiga þeir kost á að mynda þriggja flokka stjórn með fleirum en Vinstri-grænum; annaðhvort með Flokki fólksins eða Viðreisn. Og raunar einnig með Mið- flokki en slík stjórn yrði með minnsta mögulega meirihluta. Sé lit- ið til málefna er það einfaldara fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn- arflokk að mynda ríkisstjórn með Viðreisn eða Miðflokki en að halda góðu samstarfi við Vinstri-græna áfram. En svo getur Framsókn alltaf snúið sér til vinstri og tekið höndum saman við flokka sem eru „afvelta“ eftir kosningarnar. Eftir Óla Björn Kárason » Laugardagurinn var ekki dagur stjórnarandstöðunnar. Enginn stjórnarand- stöðuflokkur komst yfir 10% fylgi. Eftir stendur sundurlaust safn smáflokka. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Lesið í úrslit kosninga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.