Morgunblaðið - 29.09.2021, Síða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2021
Mokstur Vetur konungur er mættur af krafti og þá fara snjómoksturstækin af stað ef veður leyfir, þannig að bílarnir geti komist leiðar sinnar yfir fjallvegina.
Kristinn Magnússon
Hægt er að lesa
margt út úr nið-
urstöðum kosninganna
síðastliðinn laugardag
og fer sjálfsagt töluvert
eftir þeim gleraugum
sem viðkomandi er
með. En sumt blasir
við og þarf engin gler-
augu.
Síðasti laugardagur
var ekki dagur stjórn-
arandstöðunnar. Ekki einn einasti
stjórnarandstöðuflokkur náði að
komast yfir 10% fylgi og gamaldags
hugmyndafræði sósíalista var hafn-
að. Eftir stendur stjórnarandstaða
sem sundurlaust safn smáflokka.
Flokkur í molum
Samfylkingin er í molum og
draumurinn um að verða leiðandi afl
í íslenskum stjórnmálum er aðeins
gömul minning, litlu yngri en draum-
urinn um að flokkurinn yrði samein-
ingarafl vinstriflokkanna.
Úrslitin staðfesta að Samfylkingin
er smáflokkur, töluvert minni en Al-
þýðuflokkurinn var á sínum tíma. Á
árunum 1963 til 1995 (síðasta árið
sem Alþýðuflokkurinn bauð fram áð-
ur en hann rann inn í Samfylk-
inguna) var flokkurinn að meðaltali
með um 14,3% atkvæða. Fékk mest
22% árið 1978 í glæsilegum kosn-
ingasigri en minnst 9% árið 1974.
Í síðustu fimm alþingiskosningum
hefur Samfylkingin aldrei náð með-
alfylgi Alþýðuflokksins fyrir utan
vorið 2009, nokkrum mánuðum eftir
fall bankanna. Það
sama ár fengu Vinstri-
grænir sína bestu kosn-
ingu eða 22%.
Augljóst er að Sam-
fylkingin hefur ekki að-
eins glatað stórum
hluta fylgismanna
gamla Alþýðuflokksins
heldur einnig þess
hluta Alþýðu-
bandalagsins sem skip-
aði sér undir fána Sam-
fylkingarinnar í
upphafi. Dómurinn yfir
Samfylkingunni er óvenjuharður,
ekki síst þegar haft er í huga að
flokkurinn hefur verið í stjórnarand-
stöðu í átta ár. Flest bendir til að
eyðimerkurgangan haldi áfram í
fjögur ár hið minnsta.
„Stjórnarandstaðan skíttapaði“
Í umræðum á samfélagsmiðlum er
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi
formaður Samfylkingarinnar, skýr:
„Stjórnarandstaðan skíttapaði ein-
faldlega kosningabaráttunni. Sam-
fylkingin var afvelta eftir vetur inn-
anflokksátaka þar sem vænsta fólki
var rutt úr sætum og gersamlega til-
efnislaus varaformannsslagur saxaði
á limina hans Björns míns.“
Eftir átta ár í stjórnarandstöðu
ríða Píratar ekki feitum hesti frá
kosningunum. Kannski ekki við öðru
að búast þegar helstu baráttumálin
eru „ný stjórnarskrá“, borgaralaun
sem skulu fjármögnuð með lántök-
um og veðsetningu komandi kyn-
slóða, og stórkostleg útgjaldaloforð
með skattahækkunum sem voru vit-
laust reiknaðar og svo leiðréttar með
því að „hóta“ enn frekari hækkun
skatta.
Viðreisn er líkt og Samfylkingin
að festast sem smáflokkur og þrátt
fyrir að hafa bætt lítillega við sig er
fylgið töluvert frá því sem það var
þegar flokkurinn bauð fyrst fram.
Baráttumál flokksins eiga lítið upp á
pallborðið hjá kjósendum, hvorki
tenging við evru eða aðild að Evr-
ópusambandinu.
Sigurvegari
Vinstri-grænir geta verið þokka-
lega sáttir við sinn hlut – eru lítillega
undir meðalfylgi frá upphafi eftir að
hafa veitt ríkisstjórn forystu í fjögur
ár. Ríkisstjórn sem reyndi verulega
á þolrif flokksmanna með sama hætti
og hún reyndi á margan sjálfstæð-
ismanninn. Raunar er útkoman enn
betri en virðist við fyrstu sýn, því í
upphafi síðasta kjörtímabils sögðu
tveir þingmenn VG skilið við flokk-
inn – fyrst óformlega með því að
styðja ekki ríkisstjórn Katrínar Jak-
obsdóttur og síðar formlega með því
að ganga til liðs við aðra flokka – Pí-
rata og Samfylkinguna. Hvorugur
flokkurinn naut þess í kosningum –
þvert á móti.
Framsóknarflokkurinn styrkti
stöðu sína verulega í kosningunum
og hefur verið krýndur sigurvegari
kosninganna. Fyrir fjórum árum
fékk flokkurinn sína verstu útreið í
yfir 100 ára sögu eða 10,7% atkvæða.
Þá var glímt við fyrrverandi for-
mann flokksins sem horfði hins veg-
ar upp á hreint hrun síðasta laug-
ardag. Eftir fjögur ár í
stjórnarandstöðu missti Miðflokk-
urinn helming atkvæða sinna.
Á margan hátt rak Framsókn-
arflokkurinn forvitnilega og góða
kosningabaráttu sem skilaði árangri.
Þar var engin hugmyndafræði. Póli-
tísk stefnumál voru í aukahlutverki
en fremur höfðað til fólks sem hefur
ekkert á móti Framsókn án þess að
hafa mikla sannfæringu. Með sama
hætti var kosningabarátta Flokks
fólksins árangursrík og oft á tíðum
snjöll. Óháð því hvaða flokkar standa
að baki nýrri ríkisstjórn er augljóst
að þeir komast illa hjá því að horfa til
þess árangurs sem Inga Sæland og
samstarfsfólk hennar náðu.
Því er ekki að neita að sá er þetta
skrifar gerði sér vonir um að Sjálf-
stæðisflokknum tækist að styrkja
stöðu sína í kosningunum. Það kann
að vera að slíkar vonir hafi verið
óraunsæjar eftir átta ár í ríkisstjórn.
Sjálfstæðisflokkurinn er leiðandi afl í
stjórnmálum hér eftir sem hingað til
og án hans verður aðeins fjölflokka
glundroðastjórn mynduð.
Skýrt umboð
Með hliðsjón af úrslitum kosning-
anna væri fráleitt annað en að for-
ystumenn stjórnarflokkanna létu
reyna á það hvort ekki séu forsendur
til að halda samstarfinu áfram. En
það verður langt í frá einfalt. Þrátt
fyrir allt er hugmyndafræðilegur
ágreiningur verulegur, allt frá skipu-
lagi heilbrigðiskerfisins til orkunýt-
ingar og orkuöflunar, frá sköttum til
ríkisrekstrar, frá þjóðgörðum til
skipulagsmála, frá refsingum og
þvingunum í loftslagsmálum til já-
kvæðra hvata og nýtingar tækifæra í
orkuskiptum. Forystumenn stjórn-
arflokkanna þurfa að leiða ágreining
í þessum málum og fleirum „í jörð“
ef ákveðið verður að endurnýja sam-
starfið. Niðurstöður kosninganna
verða illa túlkaðar með öðrum hætti
en þeim að til þess hafi formenn
stjórnarflokkanna skýrt umboð
meirihluta kjósenda.
Hvorki Sjálfstæðisflokkurinn né
Framsóknarflokkurinn geta hins
vegar horft fram hjá þeirri stað-
reynd að sameiginlega eiga þeir kost
á að mynda þriggja flokka stjórn
með fleirum en Vinstri-grænum;
annaðhvort með Flokki fólksins eða
Viðreisn. Og raunar einnig með Mið-
flokki en slík stjórn yrði með
minnsta mögulega meirihluta. Sé lit-
ið til málefna er það einfaldara fyrir
Sjálfstæðisflokk og Framsókn-
arflokk að mynda ríkisstjórn með
Viðreisn eða Miðflokki en að halda
góðu samstarfi við Vinstri-græna
áfram. En svo getur Framsókn alltaf
snúið sér til vinstri og tekið höndum
saman við flokka sem eru „afvelta“
eftir kosningarnar.
Eftir Óla Björn
Kárason » Laugardagurinn
var ekki dagur
stjórnarandstöðunnar.
Enginn stjórnarand-
stöðuflokkur komst
yfir 10% fylgi. Eftir
stendur sundurlaust
safn smáflokka.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Lesið í úrslit kosninga