Morgunblaðið - 29.09.2021, Side 16

Morgunblaðið - 29.09.2021, Side 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2021 ✝ Birna Ólafs- dóttir fæddist í Reykjavík 7. febr- úar 1939. Hún lést á heimili sínu 22. sept- ember 2021. For- eldrar Birnu voru Guðrún Brands- dóttir og Ólafur Stefánsson, systir Birnu er Svava Ólafsdóttir og hálf- systir Kristín Björg Einarsdóttir sem féll frá fyrr á þessu ári. Birna giftist 20. febrúar 1966 Gunnlaugi Birgi Daníelssyni, f. 18. maí 1931, d. 28. apríl 1998. Saman áttu þau eitt barn, Einar Viðar, f. 10. ágúst 1966. Fyrri kona Einars var Sigríður Þóra Magnúsdóttir, saman eiga þau Birki, f. 24. nóv- ember 1989, þau slitu samvistir. Ein- ar Viðar er í sam- búð með Ástu Hall- dórsdóttur. Birna ólst upp í Reykjavík og vann ýmis störf fram eftir aldri, flestir kannast við Birnu úr skóbúð- inni Rímu en hún vann þar í yfir 30 ár. Birna var síðan deildarstjóri eldri borgara í Norðurbrún og lauk sínum vinnuferli í faðmi fólks sem þótti virkilega vænt um hana fram á dánardag þótt hún hafi verið löngu hætt að vinna. Útför Birnu fer fram frá Fella- og Hólakirkju 29. september klukkan 13.00. Móðurminning Þú sem varst mér eitt og allt, þín ástúð veröld breytti, ég man að þegar mér var kalt þín mildi hlýju veitti. Þín alúð leysti öll mín mál, mitt yndi lést þú vakna. Já, hvíl í friði fagra sál, þín fæ ég sárt að sakna. Þótt fenni yfir fótspor þín, því fargi burt ég bifa, elsku hjartans mamma mín því minningarnar lifa. (Kristján Hreinsson) Þinn sonur, Einar Viðar Gunnlaugsson. Síðasta ferðalagið. Ég var það lánsöm að fá að fara í sumar með Biddý í ferðalag. En þeir sem þekktu Biddý vita að hún elskaði ferðalög og hefur komið víða við jafnt á Íslandi sem og er- lendis. Ferðinni var heitið til Mý- vatns. Sonarsonur hennar Birkir, sonur Einars bróður, var yfir- kokkur þar í sveit á hótelinu Laxá. „Hann er besti kokkurinn,“ sagði hún hreykin og spennan skein úr andlitinu. Við flugum til Akureyrar þar sem Birkir tók á móti okkur, svo var haldið til Mývatns. Þar upphófst ævintýri og gleði sem ég á aldrei eftir að gleyma. Við vorum sannarlega drottn- ingar þessa helgina. Birkir var einkakokkurinn okkar og einkabíl- stjóri. Allir vissu hver hún var og allir sýndu henni virðingu og elskulegheit og gátu ekki gert nóg fyrir hana. Við klæddum okkur upp á í kjóla og fínlegheit til að fara í mat- inn og fengum „besta borðið“ eins og Biddý orðaði það. Biddý hafði orðið mikið veik tveimur vikum áður en ekki var hægt að sjá það á henni. Hún brosti hringinn og við biðum spenntar eftir matnum. Hún hafði sagt mér að við fengjum fimm réttaðan matseðil og Birkir væri að kokka fyrir okkur prívat. Hann var nefnilega í fríi. Maturinn var sannarlega góður og við pakksaddar og hefðum ekki getað borðað meira, þó það væri í boði. Birkir góðfúslega benti okk- ur á að við hefðum ekki átt að klára alla réttina, heldur smakka á öllu. Næsta kvöld vissum við bet- ur. Hann keyrði okkur út um alla sveit og farið var á Möðruvelli. Þar var borðuð kjötsúpa, þessi fræga eins og hún sagði mér. Þar urðu á vegi okkar nokkrar geitur sem ég og Birkir reyndum að heilsa upp á. Þær héldu að við værum með mat handa þeim og hlupu til okkar á svo miklum hraða að ég næstum því datt aftur fyrir mig, en í bílnum sat Biddý og gat ekki annað en hlegið og minnt- ist geitanna oft með bros á vör. Eða hlátri þannig lagað. Á sunnudeginum þegar við átt- um flug heim stöldruðum við að- eins við á Akureyri og fengum okkur kaffi á Bláu könnunni. Við sátum úti í sólinni og fórum yfir allt sem við höfðum gert þarna í sveitinni og minntumst sérstak- lega mýsins sem angraði hana ekkert en ég fékk sannarlega að kenna á því. Elsku Biddý, kveðjustundin er sár og erfitt að hugsa sér að ég eigi ekki eftir að koma í kaffi og hlusta á hvað drifið hafði á daginn. Fara í Costco og svo Ikea í kaffi á eftir. Sögurnar sem við systkinin kunnum utan að eigum við eftir að geyma í hjartastað. Ferðalögin með pabba og hvað dreif á daga ykkar alla ykkar sambúð. Þú hjálpaðir mér að þekkja og skilja pabba. Allt sem þú gerðir í þessu lífi og sporin sem þú skilur eftir hjá öll- um sem þekktu þig eru ómetan- leg. Þú sagðir mér um daginn að flestar vinkonurnar væru farnar og það var hægt að sjá söknuð í augum þínum. Þið höfðuð fylgst að í gegnum lífið. Laxveiðar, golfferðir, matarboð og sumarbústaðaferðir. Ég hugga mig við að þær hafa nú endur- heimt vinkonu sína og tekið á móti þér. Eflaust mikið skrafað og hlegið, sem einkenndi þig alla tíð. Þú reyndist mér sem móðir og amma stráksins míns eftir að mamma dó og þakka ég þér af öllu hjarta fyrir hvað þú varst góð við okkur. Hvíldu nú í friði þar til við hitt- umst aftur. Þín stjúpdóttir, dóttir og vin- kona, Fanney. Birna S. Ólafsdóttir ✝ Kristján Sveinsson skip- stjóri var fæddur 11. desember 1933 í Reykjavík. Hann lést 15. september 2021 á Hrafnistu í Reykjavík. Foreldrar hans voru Þorbjörg Samúelsdóttir, f. 8. október 1905, d. 7. júní 1978 og Sveinn Kristjánsson, f. 2. september 1906, d. 6. maí 1939. Sammæðra var Gísli Sigurjón Borgfjörð Jónsson, f. 20. október 1928, d. 11. október 1996. Alsystkini voru Benedikt Helgi Sveinsson, f. 26. maí 1931, d. 8. febrúar 1959. Karítas Þórunn Sveins- dóttir, f. 11. desember 1933, d. í apríl 1934. Sonja Sveinsdóttir, f. 9. júlí 1938, d. 26. maí 2018. Kristján kvæntist Valgerði Hjartardóttur, eftirlifandi eig- inkonu sinni, 16. febrúar 1957. Valgerður er fædd 17. apríl 1936. Foreldrar hennar voru Hjörtur Kristjánsson, f. 1. júní 1905, d. 4. mars 1979 og Sigríð- ur G. Hjartardóttir, f. 7. ágúst 1908, d. 3. júlí 1980. Kristján og Valgerður eiga fjórar dætur: 1) Sigríður, f. 22. á strandferða- og varðskipum ríkisins. Kristján lauk fram- annaprófi frá Stýrimannaskól- anum í Reykjavík árið 1958. Einnig lærði hann köfun og var prófdómari til margra ára hjá köfunarnemum. Hann var fast- ráðinn stýrimaður á varðskipum ríkisins frá 1959-1966. Hinn 15. mars 1966 tók hann við skipstjórn á björgunarskip- inu Goðanum og var skipstjóri á Goðanum þar til skipið fórst við Vöðlavík 10. janúar 1994 þar sem skipið var við björgunar- aðgerðir. Kristján gekk í Skipstjóra- félag Íslands árið 1966 og starf- aði hann í ýmsum nefndum fyrir félagið og sat í stjórn þess sem meðstjórnandi frá árinu 1985, ritari frá 1989 og gjaldkeri fé- lagsins frá árinu 1992 til ársins 1994. Hann var félagi í Kiwanis- klúbbnum Esju frá árinu 1976 og gegndi þar ýmsum trún- aðarstörfum. Kristján var ritari Sjómannadagsráðs þar til hann var áttræður. Kristján var sæmdur heiðursmerki sjó- mannadagsins árið 1994. Eftir að Kristján lét af störf- um sem sjómaður starfaði hann sem vaktmaður hjá Pósti og síma þar til hann lét af störfum vegna aldurs. Útför hans fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 29. september 2021, kl. 13. ágúst 1957. Hennar maður er Friðrik Björgvinsson, f. 25. desember 1957. Þau eiga þrjú börn og sex barnabörn. 2) Þorbjörg Ísafold Kristjánsdóttir, f. 4. desember 1958. Fyrri maður henn- ar er Kristján Þver- dal Kristjánsson, f. 29. desember 1957, þau skildu. Seinni eiginmaður hennar Staale Anda, f. 26. jan- úar 1959, þau skildu. Hún á þrjú börn og eitt barnabarn. 3) Elína Hrund Kristjánsdóttir, f. 30. maí 1962. Hennar maður var Geir Jónsson, d. 10. janúar 1994. Þau eiga tvö börn og þrjú barna- börn. 4) Karítas Kristjánsdóttir, f. 24. október 1972. Hennar maður er Ingólfur Hartvigsson, f. 29. október 1972. Þau eiga þrjú börn. Kristján lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Austur- bæjar í Reykjavík 1950. Það ár hóf hann sjómennsku og var há- seti á togurunum Bjarnarey og Vilborgu Herjólfsdóttur frá Vestmannaeyjum. Hann var há- seti og bátsmaður á norskum skipum í þrjú ár, en síðar háseti Pabbi var sjómaðurinn sem sigldi um heimsins höf og bauð upp á sögur um framandi heima sem heilluðu áheyrendur. En mest af öllu var hann bara pabbi sem okkur þótti svo undur vænt um og sökn- uðum sárt þegar hann var úti á sjó. Nú kveðjum við systur og mamma hann pabba í síðasta sinn, og að þessu sinni snýr hann ekki aftur eins og forðum daga, enda farinn í sína síðustu siglingu. Sökn- uðurinn er sár, en við dætur hans fjórar og eftirlifandi eiginkona ylj- um okkur við góðar minningar um yndislegan föður og elskulegan eig- inmann. Sigríður, Þorbjörg Ísafold, Elína Hrund og Karítas. Kristján Sveinsson, tengdafað- ir minn, er látinn og verður jarð- sunginn í dag. Hugur minn hefur farið síðustu daga um heima góðra minninga og vináttu sem varði í ein 27 ár. Það var gott að eiga Kristján sem vin og tengda- föður. Hann var alltaf boðinn og búinn til að hjálpa og trygglyndi er eitt orð sem kemur upp í huga minn þegar ég minnist Kristjáns. Það var magnað að hlusta á frá- sagnir hans af sjómennsku, sigl- ingum og björgunarstörfum. Kristján var fróður, víðlesinn og gríðarlega víðförull. Hann var fyrst og fremst sjómaður alla sína tíð og skipstjóri að eðlisfari. Sigldi um höfin sjö og var einn af fáum, ef ekki sá eini sem bókstaflega gekk á milli lands og Eyja, þ.e.a.s. í kafarabúningi eftir hafsbotnin- um. Frásagnir hans báru ævin- týraljóma og börnin mín nutu þess að hlusta á ferðasögur afa og dáðust að flottum húðflúrum sem hann bar með stolti. Kristján hafði ánægju af því að ferðast en ferðalagið varð að hafa einhvern tilgang. Til dæmis var stangveiði mikil ástríða og einnig ljósmynd- un. Hann hafði gaman af staf- rænu ljósmyndabyltingunni þeg- ar hún byrjaði og var á tímabili með stórtæka ljósmyndaprentun heima hjá sér. Við fjölskyldan nutum góðs af því en hann var duglegur að mynda barnabörnin. Þegar ég varð hluti af fjölskyldu Kristjáns var hann að mestu leyti hættur á sjó en taugin til sjávar og sjómennskunnar var alltaf sterk, alla hans ævi. Það var ávallt gott að heim- sækja tengdaföður minn og eft- irlifandi eiginkonu hans og tengdamóður mína Valgerði „Völu“ Hjartardóttur sem nú syrgir eiginmann sinn. Þau hafa ávallt reynst mér og fjölskyldu minni vel á svo margan máta og er ég þeim ævinlega þakklátur fyrir það. Það má svo ekki gleyma einni ástríðu hjá Kristjáni en það var golf. Hann stundaði þá íþrótt í mörg ár og átti hún hug hans allan síðustu árin og hélt í honum lífinu. Hann fór á hverjum degi á golf- völlinn, hitti þar góða félaga og gekk með þeim marga kílómetra. Það eru ekki nema um tvö ár síð- an hann treysti sér ekki lengur á golfvöllinn. Að lokum þakka ég fyrir vin- áttu og velgjörðir tengdaföður míns í minn garð og fjölskyldu minnar. Ég bið Guð, sem er kær- leikur, að blessa minningu Krist- jáns Sveinssonar og styrkja Völu tengdamóður mína í hennar miklu sorg. Samúðarkveðjur til allra vina og vandamanna Kristjáns. Lækkar lífdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól, Fegin hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, Gleddu og blessaðu þá, Sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (Sálmur 427, Herdís Andr- ésdóttir.) Ingólfur Hartvigsson. Elsku besti afi Kristján, við er- um svo þakklát fyrir að hafa feng- ið að kynnast þér. Við eigum svo margar góðar og skemmtilegar minningar tengdar þér. Allar bíó- ferðirnar sem við fórum í saman, þar sem þú slökktir á heyrnar- tækjunum því hljóðið var svo hátt stillt í bíó. Öll gamlárskvöldin þar sem þú sprengdir upp að okkur fannst mörg þúsund rakettum. Í hvert skipti sem eitthvert okkar fór til útlanda flettir þú upp á staðnum í stóra Atlasinum og sýndir okkur hvert við vorum að fara og sagðir sögur frá landinu ef þú hafðir komið þangað. Frábæri dagurinn í fyrrasumar þar sem þú varst enn nógu hress til að fara með okkur að pútta úti á velli, öll fótboltaspjöldin sem þú komst með þegar þú komst í heimsókn til okkar austur á Kirkjubæjar- klaustur. Þú elskaðir vínarbrauð og önnur sætindi. Við munum sakna þess að koma til þín á Brúnaveginn með bakkelsi og sitja við borðstofuborðið og eiga með þér huggulega stund. Við munum sakna þess að sjá þig sitja í hægindastólnum þínum að lesa bók, hlæja að okkur barnabörnun- um eða segja magnaðar sögur af ævi þinni. Þú ert mesti töffari sem við höfum kynnst og rólegasti maður á jörðinni. Þín barnabörn, Naómí Alda, Sveinn Hartvig og Kristján Pétur Ingólfsbörn. Í dag kveðjum við fjölskyldan og vandamenn hann afa Kristján. Afi Kristján var töffari í orðsins fyllstu merkingu. Ekki af því að hann leit stórt á sig heldur einmitt vegna þess að hann gerði það ekki. Þegar ég var krakki átti ég til að segja sögur af fjölskyldu minni sem myndu hreint út sagt teljast lygar. En þegar kom að sögum um hann afa minn þá voru þær tölu- vert nærri sannleikanum. Afi var hörkukarl sem átti ótrúlega en á köflum harmi þrungna ævi. Afi var boxari, heimshornaflakkari, kafari, skipstjóri, golfari, veiði- maður, húmoristi, ljúflingur, barngóður, hlýr og dásamlegur maður. Það er margt sem ég mun alltaf tengja við hann afa minn og allt er það af hinu góða. Hann hafði dálæti á íslenskum pönnu- kökum, góðu kaffi og að sjálfsögðu hinni ástinni í lífi hans, íslensku neftóbaki. Afi var alltaf klæddur eftir tilefni, snyrtilegur með six- pensarana sína og flotta gömlu- karlastafinn sinn sem ég gerði oft grín að og þóttist einu sinni nota sem sverð. Afi þóttist þá líka vera með sverð. Þetta var ekki þegar ég var barn heldur var þessi „bar- dagi“ okkar bara í fyrra. Þessi minning finnst mér svo dýrmæt af því hún lýsir afa svo vel, alltaf stutt í krakkann Kristján. Afi var sköllóttur mest sitt líf. Ég veit ekki hvort hann afi hafi í raun og veru verið viðkvæmur fyr- ir því að vera sköllóttur en tel mig hafa einu sinni móðgað hann fyrir að reyna að kyssa hann á skallann. Honum fannst það fyrir neðan mína virðingu að kyssa skítugan beran koll á gömlum karli, eins og hann sjálfur orðaði það. Afi var ekki oft sá sem orðið hafði í okkar fjölskyldu en þegar hann talaði þá hlustaði fólk. Sögur hans voru æv- intýrum líkar og gerðu mig oft agndofa, þakkláta og kjaftstopp. Sögur af skútusiglingu um heim- inn rétt 17 ára, sögur af lífshættu- legum prakkarastrikum á stríðs- árum og harmsögur úr æsku eða af sjónum. Það er nefnilega ótrú- lega skrítið hvað manns eigið líf veltur oft á litlum tilviljunum og heppilegum lífsbjörgum annarra. Einhvern veginn kom hann afi alltaf á óvart. Sérstaklega verð ég að nefna þegar ég rakst á viðtal við afa á forsíðu Morgunblaðsins fyrir tveimur árum þar sem fjallað var um köfunarafrek hans frá Vestmannaeyjum til Landeyja- hafnar sem enginn hefur leikið eftir. Afi var töffari. Hann og amma Vala eiga nú orðið stóran hóp af afleggjurum, um allt land og úti í Noregi. Afi var umkringdur konum bróður- part lífsins en hann var það vin- sæll karlinn meðal dætra sinna að þrjár af fjórum þeirra eiga drengi með hans nafni. Þetta getur orðið smá fyndið í fjölskylduboðum eða þegar verið er að ræða afabörnin: „Er það Kristján Geirsson? Nei Kristján Þverdal. Nei ég meina Kristján Pétur.“ Ég mun sakna þess að geta ekki boðið afa aftur upp á pönnukökur í afmælum, að geta ekki reynt að kyssa hann á skallann, að bregða fyrir okkur sverðum eða sitja í óþægilega gullsófanum, þegja og drekka heimsins besta ömmuafakaffi. Sonur minn mun alltaf fá að heyra um töffarann afa Kristján þegar hann vill og munum við hugsa vel um langömmu þar til þau afi sam- einast. Ágústa. 15. september sl. andaðist á Hrafnistu í Reykjavík Kristján Sveinsson skipstjóri, góður vinur og samstarfsmaður til margra ára. Kristján hóf sjómennsku ung- ur að árum sem háseti á togurum frá Vestmannaeyjum. Háseti og bátsmaður á norskum kaupskip- um í nokkur ár, síðar háseti á strandferða- og varðskipum ríkis- ins. Kristján lauk farmannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1958, stýrimaður á varðskipum ríkisins til ársins 1962, þá stýrimaður á nýju vita- skipi, Árvakri, sem kom til lands- ins í júnímánuði 1962. Ég var að ljúka 2. bekk í farmannadeild Stýrimannaskólans í byrjun apríl 1965 þegar Kristján Sveinsson hafði samband við mig, það vant- aði stýrimann á vitaskipið. Ég sló til og sá ekki eftir þeirri ákvörðun því siglt var nánast inn á alla firði, voga og víkur landsins. Það var gott og farsælt samstarfið við Kristján, hann var ákveðinn og öruggur í sínu starfi sem gat ástundum verið við vosbúð og kulda þegar farið var í land vegna lagfæringa á vitum og öðru þeim tilheyrandi. Kristján tók við skip- stjórn á björgunarskipinu Goðan- um 1966 og til þess tíma er skipið strandaði í Vöðlavík í janúar 1994. Kristján var fulltrúi skipstjór- afélagsins í Sjómannadagsráði, var í stjórn ráðsins og Hrafnistu- heimilanna í 15 ár. Kristján Sveinsson var heiðrað- ur á sjómannadaginn 1994. Við hjónin sendum Valgerði, dætrum og öðrum ættingjum samúðarkveðjur vegna fráfalls Kristjáns Sveinssonar. Guðmundur Hallvarðsson. Kristján Sveinsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, JENS OLSEN frá Dynjanda, Hornafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði föstudaginn 24. september. Útförin fer fram frá Hafnarkirkju mánudaginn 4. október klukkan 11. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs. Sigurbergur Olsen Jóhanna G. Einarsdóttir Þorleifur Olsen Katrín Steindórsdóttir og barnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, FINNBOGI JÓNSSON verkfræðingur og fv. framkvæmdastjóri, Helgamagrastræti 23, Akureyri, lést í Vancouver í Kanada 9. september. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 8. október klukkan 15. Berglind Ásgeirsdóttir Esther Finnbogadóttir Ólafur Georgsson Ragna Finnbogadóttir Roberto Gonzalez Martinez barnabörn og aðrir aðstandendur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.