Morgunblaðið - 29.09.2021, Blaðsíða 16
16 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2021
✝
Birna Ólafs-
dóttir fæddist í
Reykjavík 7. febr-
úar 1939. Hún lést á
heimili sínu 22. sept-
ember 2021. For-
eldrar Birnu voru
Guðrún Brands-
dóttir og Ólafur
Stefánsson, systir
Birnu er Svava
Ólafsdóttir og hálf-
systir Kristín Björg
Einarsdóttir sem féll frá fyrr á
þessu ári.
Birna giftist 20. febrúar 1966
Gunnlaugi Birgi Daníelssyni, f.
18. maí 1931, d. 28. apríl 1998.
Saman áttu þau eitt barn, Einar
Viðar, f. 10. ágúst 1966. Fyrri
kona Einars var Sigríður Þóra
Magnúsdóttir, saman eiga þau
Birki, f. 24. nóv-
ember 1989, þau
slitu samvistir. Ein-
ar Viðar er í sam-
búð með Ástu Hall-
dórsdóttur.
Birna ólst upp í
Reykjavík og vann
ýmis störf fram eftir
aldri, flestir kannast
við Birnu úr skóbúð-
inni Rímu en hún
vann þar í yfir 30 ár.
Birna var síðan deildarstjóri
eldri borgara í Norðurbrún og
lauk sínum vinnuferli í faðmi
fólks sem þótti virkilega vænt um
hana fram á dánardag þótt hún
hafi verið löngu hætt að vinna.
Útför Birnu fer fram frá Fella-
og Hólakirkju 29. september
klukkan 13.00.
Móðurminning
Þú sem varst mér eitt og allt,
þín ástúð veröld breytti,
ég man að þegar mér var kalt
þín mildi hlýju veitti.
Þín alúð leysti öll mín mál,
mitt yndi lést þú vakna.
Já, hvíl í friði fagra sál,
þín fæ ég sárt að sakna.
Þótt fenni yfir fótspor þín,
því fargi burt ég bifa,
elsku hjartans mamma mín
því minningarnar lifa.
(Kristján Hreinsson)
Þinn sonur,
Einar Viðar Gunnlaugsson.
Síðasta ferðalagið.
Ég var það lánsöm að fá að fara
í sumar með Biddý í ferðalag. En
þeir sem þekktu Biddý vita að hún
elskaði ferðalög og hefur komið
víða við jafnt á Íslandi sem og er-
lendis. Ferðinni var heitið til Mý-
vatns. Sonarsonur hennar Birkir,
sonur Einars bróður, var yfir-
kokkur þar í sveit á hótelinu Laxá.
„Hann er besti kokkurinn,“ sagði
hún hreykin og spennan skein úr
andlitinu.
Við flugum til Akureyrar þar
sem Birkir tók á móti okkur, svo
var haldið til Mývatns.
Þar upphófst ævintýri og gleði
sem ég á aldrei eftir að gleyma.
Við vorum sannarlega drottn-
ingar þessa helgina. Birkir var
einkakokkurinn okkar og einkabíl-
stjóri. Allir vissu hver hún var og
allir sýndu henni virðingu og
elskulegheit og gátu ekki gert nóg
fyrir hana.
Við klæddum okkur upp á í
kjóla og fínlegheit til að fara í mat-
inn og fengum „besta borðið“ eins
og Biddý orðaði það. Biddý hafði
orðið mikið veik tveimur vikum
áður en ekki var hægt að sjá það á
henni. Hún brosti hringinn og við
biðum spenntar eftir matnum.
Hún hafði sagt mér að við fengjum
fimm réttaðan matseðil og Birkir
væri að kokka fyrir okkur prívat.
Hann var nefnilega í fríi.
Maturinn var sannarlega góður
og við pakksaddar og hefðum ekki
getað borðað meira, þó það væri í
boði. Birkir góðfúslega benti okk-
ur á að við hefðum ekki átt að
klára alla réttina, heldur smakka á
öllu. Næsta kvöld vissum við bet-
ur. Hann keyrði okkur út um alla
sveit og farið var á Möðruvelli. Þar
var borðuð kjötsúpa, þessi fræga
eins og hún sagði mér.
Þar urðu á vegi okkar nokkrar
geitur sem ég og Birkir reyndum
að heilsa upp á. Þær héldu að við
værum með mat handa þeim og
hlupu til okkar á svo miklum
hraða að ég næstum því datt aftur
fyrir mig, en í bílnum sat Biddý og
gat ekki annað en hlegið og minnt-
ist geitanna oft með bros á vör.
Eða hlátri þannig lagað.
Á sunnudeginum þegar við átt-
um flug heim stöldruðum við að-
eins við á Akureyri og fengum
okkur kaffi á Bláu könnunni. Við
sátum úti í sólinni og fórum yfir
allt sem við höfðum gert þarna í
sveitinni og minntumst sérstak-
lega mýsins sem angraði hana
ekkert en ég fékk sannarlega að
kenna á því.
Elsku Biddý, kveðjustundin er
sár og erfitt að hugsa sér að ég
eigi ekki eftir að koma í kaffi og
hlusta á hvað drifið hafði á daginn.
Fara í Costco og svo Ikea í kaffi á
eftir. Sögurnar sem við systkinin
kunnum utan að eigum við eftir að
geyma í hjartastað. Ferðalögin
með pabba og hvað dreif á daga
ykkar alla ykkar sambúð. Þú
hjálpaðir mér að þekkja og skilja
pabba.
Allt sem þú gerðir í þessu lífi og
sporin sem þú skilur eftir hjá öll-
um sem þekktu þig eru ómetan-
leg.
Þú sagðir mér um daginn að
flestar vinkonurnar væru farnar
og það var hægt að sjá söknuð í
augum þínum. Þið höfðuð fylgst að
í gegnum lífið.
Laxveiðar, golfferðir, matarboð
og sumarbústaðaferðir. Ég hugga
mig við að þær hafa nú endur-
heimt vinkonu sína og tekið á móti
þér. Eflaust mikið skrafað og
hlegið, sem einkenndi þig alla tíð.
Þú reyndist mér sem móðir og
amma stráksins míns eftir að
mamma dó og þakka ég þér af öllu
hjarta fyrir hvað þú varst góð við
okkur.
Hvíldu nú í friði þar til við hitt-
umst aftur.
Þín stjúpdóttir, dóttir og vin-
kona,
Fanney.
Birna S.
Ólafsdóttir ✝
Kristján
Sveinsson skip-
stjóri var fæddur
11. desember 1933 í
Reykjavík. Hann
lést 15. september
2021 á Hrafnistu í
Reykjavík.
Foreldrar hans
voru Þorbjörg
Samúelsdóttir, f. 8.
október 1905, d. 7.
júní 1978 og Sveinn
Kristjánsson, f. 2. september
1906, d. 6. maí 1939. Sammæðra
var Gísli Sigurjón Borgfjörð
Jónsson, f. 20. október 1928, d.
11. október 1996. Alsystkini
voru Benedikt Helgi Sveinsson,
f. 26. maí 1931, d. 8. febrúar
1959. Karítas Þórunn Sveins-
dóttir, f. 11. desember 1933, d. í
apríl 1934. Sonja Sveinsdóttir, f.
9. júlí 1938, d. 26. maí 2018.
Kristján kvæntist Valgerði
Hjartardóttur, eftirlifandi eig-
inkonu sinni, 16. febrúar 1957.
Valgerður er fædd 17. apríl
1936. Foreldrar hennar voru
Hjörtur Kristjánsson, f. 1. júní
1905, d. 4. mars 1979 og Sigríð-
ur G. Hjartardóttir, f. 7. ágúst
1908, d. 3. júlí 1980.
Kristján og Valgerður eiga
fjórar dætur: 1) Sigríður, f. 22.
á strandferða- og varðskipum
ríkisins. Kristján lauk fram-
annaprófi frá Stýrimannaskól-
anum í Reykjavík árið 1958.
Einnig lærði hann köfun og var
prófdómari til margra ára hjá
köfunarnemum. Hann var fast-
ráðinn stýrimaður á varðskipum
ríkisins frá 1959-1966.
Hinn 15. mars 1966 tók hann
við skipstjórn á björgunarskip-
inu Goðanum og var skipstjóri á
Goðanum þar til skipið fórst við
Vöðlavík 10. janúar 1994 þar
sem skipið var við björgunar-
aðgerðir.
Kristján gekk í Skipstjóra-
félag Íslands árið 1966 og starf-
aði hann í ýmsum nefndum fyrir
félagið og sat í stjórn þess sem
meðstjórnandi frá árinu 1985,
ritari frá 1989 og gjaldkeri fé-
lagsins frá árinu 1992 til ársins
1994. Hann var félagi í Kiwanis-
klúbbnum Esju frá árinu 1976
og gegndi þar ýmsum trún-
aðarstörfum. Kristján var ritari
Sjómannadagsráðs þar til hann
var áttræður. Kristján var
sæmdur heiðursmerki sjó-
mannadagsins árið 1994.
Eftir að Kristján lét af störf-
um sem sjómaður starfaði hann
sem vaktmaður hjá Pósti og
síma þar til hann lét af störfum
vegna aldurs.
Útför hans fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag, 29. september
2021, kl. 13.
ágúst 1957. Hennar
maður er Friðrik
Björgvinsson, f. 25.
desember 1957.
Þau eiga þrjú börn
og sex barnabörn.
2) Þorbjörg Ísafold
Kristjánsdóttir, f. 4.
desember 1958.
Fyrri maður henn-
ar er Kristján Þver-
dal Kristjánsson, f.
29. desember 1957,
þau skildu. Seinni eiginmaður
hennar Staale Anda, f. 26. jan-
úar 1959, þau skildu. Hún á þrjú
börn og eitt barnabarn. 3) Elína
Hrund Kristjánsdóttir, f. 30. maí
1962. Hennar maður var Geir
Jónsson, d. 10. janúar 1994. Þau
eiga tvö börn og þrjú barna-
börn. 4) Karítas Kristjánsdóttir,
f. 24. október 1972. Hennar
maður er Ingólfur Hartvigsson,
f. 29. október 1972. Þau eiga
þrjú börn.
Kristján lauk gagnfræðaprófi
frá Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar í Reykjavík 1950. Það ár
hóf hann sjómennsku og var há-
seti á togurunum Bjarnarey og
Vilborgu Herjólfsdóttur frá
Vestmannaeyjum. Hann var há-
seti og bátsmaður á norskum
skipum í þrjú ár, en síðar háseti
Pabbi var sjómaðurinn sem
sigldi um heimsins höf og bauð upp
á sögur um framandi heima sem
heilluðu áheyrendur. En mest af
öllu var hann bara pabbi sem okkur
þótti svo undur vænt um og sökn-
uðum sárt þegar hann var úti á sjó.
Nú kveðjum við systur og
mamma hann pabba í síðasta sinn,
og að þessu sinni snýr hann ekki
aftur eins og forðum daga, enda
farinn í sína síðustu siglingu. Sökn-
uðurinn er sár, en við dætur hans
fjórar og eftirlifandi eiginkona ylj-
um okkur við góðar minningar um
yndislegan föður og elskulegan eig-
inmann.
Sigríður, Þorbjörg Ísafold,
Elína Hrund og Karítas.
Kristján Sveinsson, tengdafað-
ir minn, er látinn og verður jarð-
sunginn í dag. Hugur minn hefur
farið síðustu daga um heima
góðra minninga og vináttu sem
varði í ein 27 ár. Það var gott að
eiga Kristján sem vin og tengda-
föður. Hann var alltaf boðinn og
búinn til að hjálpa og trygglyndi
er eitt orð sem kemur upp í huga
minn þegar ég minnist Kristjáns.
Það var magnað að hlusta á frá-
sagnir hans af sjómennsku, sigl-
ingum og björgunarstörfum.
Kristján var fróður, víðlesinn og
gríðarlega víðförull. Hann var
fyrst og fremst sjómaður alla sína
tíð og skipstjóri að eðlisfari. Sigldi
um höfin sjö og var einn af fáum,
ef ekki sá eini sem bókstaflega
gekk á milli lands og Eyja, þ.e.a.s.
í kafarabúningi eftir hafsbotnin-
um. Frásagnir hans báru ævin-
týraljóma og börnin mín nutu
þess að hlusta á ferðasögur afa og
dáðust að flottum húðflúrum sem
hann bar með stolti. Kristján
hafði ánægju af því að ferðast en
ferðalagið varð að hafa einhvern
tilgang. Til dæmis var stangveiði
mikil ástríða og einnig ljósmynd-
un. Hann hafði gaman af staf-
rænu ljósmyndabyltingunni þeg-
ar hún byrjaði og var á tímabili
með stórtæka ljósmyndaprentun
heima hjá sér. Við fjölskyldan
nutum góðs af því en hann var
duglegur að mynda barnabörnin.
Þegar ég varð hluti af fjölskyldu
Kristjáns var hann að mestu leyti
hættur á sjó en taugin til sjávar
og sjómennskunnar var alltaf
sterk, alla hans ævi.
Það var ávallt gott að heim-
sækja tengdaföður minn og eft-
irlifandi eiginkonu hans og
tengdamóður mína Valgerði
„Völu“ Hjartardóttur sem nú
syrgir eiginmann sinn. Þau hafa
ávallt reynst mér og fjölskyldu
minni vel á svo margan máta og er
ég þeim ævinlega þakklátur fyrir
það.
Það má svo ekki gleyma einni
ástríðu hjá Kristjáni en það var
golf. Hann stundaði þá íþrótt í
mörg ár og átti hún hug hans allan
síðustu árin og hélt í honum lífinu.
Hann fór á hverjum degi á golf-
völlinn, hitti þar góða félaga og
gekk með þeim marga kílómetra.
Það eru ekki nema um tvö ár síð-
an hann treysti sér ekki lengur á
golfvöllinn.
Að lokum þakka ég fyrir vin-
áttu og velgjörðir tengdaföður
míns í minn garð og fjölskyldu
minnar. Ég bið Guð, sem er kær-
leikur, að blessa minningu Krist-
jáns Sveinssonar og styrkja Völu
tengdamóður mína í hennar miklu
sorg. Samúðarkveðjur til allra
vina og vandamanna Kristjáns.
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
Fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
Gleddu og blessaðu þá,
Sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
(Sálmur 427, Herdís Andr-
ésdóttir.)
Ingólfur Hartvigsson.
Elsku besti afi Kristján, við er-
um svo þakklát fyrir að hafa feng-
ið að kynnast þér. Við eigum svo
margar góðar og skemmtilegar
minningar tengdar þér. Allar bíó-
ferðirnar sem við fórum í saman,
þar sem þú slökktir á heyrnar-
tækjunum því hljóðið var svo hátt
stillt í bíó. Öll gamlárskvöldin þar
sem þú sprengdir upp að okkur
fannst mörg þúsund rakettum. Í
hvert skipti sem eitthvert okkar
fór til útlanda flettir þú upp á
staðnum í stóra Atlasinum og
sýndir okkur hvert við vorum að
fara og sagðir sögur frá landinu ef
þú hafðir komið þangað. Frábæri
dagurinn í fyrrasumar þar sem þú
varst enn nógu hress til að fara
með okkur að pútta úti á velli, öll
fótboltaspjöldin sem þú komst
með þegar þú komst í heimsókn til
okkar austur á Kirkjubæjar-
klaustur. Þú elskaðir vínarbrauð
og önnur sætindi. Við munum
sakna þess að koma til þín á
Brúnaveginn með bakkelsi og
sitja við borðstofuborðið og eiga
með þér huggulega stund. Við
munum sakna þess að sjá þig sitja
í hægindastólnum þínum að lesa
bók, hlæja að okkur barnabörnun-
um eða segja magnaðar sögur af
ævi þinni. Þú ert mesti töffari sem
við höfum kynnst og rólegasti
maður á jörðinni.
Þín barnabörn,
Naómí Alda, Sveinn
Hartvig og Kristján
Pétur Ingólfsbörn.
Í dag kveðjum við fjölskyldan
og vandamenn hann afa Kristján.
Afi Kristján var töffari í orðsins
fyllstu merkingu. Ekki af því að
hann leit stórt á sig heldur einmitt
vegna þess að hann gerði það ekki.
Þegar ég var krakki átti ég til að
segja sögur af fjölskyldu minni
sem myndu hreint út sagt teljast
lygar. En þegar kom að sögum um
hann afa minn þá voru þær tölu-
vert nærri sannleikanum. Afi var
hörkukarl sem átti ótrúlega en á
köflum harmi þrungna ævi. Afi
var boxari, heimshornaflakkari,
kafari, skipstjóri, golfari, veiði-
maður, húmoristi, ljúflingur,
barngóður, hlýr og dásamlegur
maður. Það er margt sem ég mun
alltaf tengja við hann afa minn og
allt er það af hinu góða. Hann
hafði dálæti á íslenskum pönnu-
kökum, góðu kaffi og að sjálfsögðu
hinni ástinni í lífi hans, íslensku
neftóbaki. Afi var alltaf klæddur
eftir tilefni, snyrtilegur með six-
pensarana sína og flotta gömlu-
karlastafinn sinn sem ég gerði oft
grín að og þóttist einu sinni nota
sem sverð. Afi þóttist þá líka vera
með sverð. Þetta var ekki þegar
ég var barn heldur var þessi „bar-
dagi“ okkar bara í fyrra. Þessi
minning finnst mér svo dýrmæt af
því hún lýsir afa svo vel, alltaf
stutt í krakkann Kristján.
Afi var sköllóttur mest sitt líf.
Ég veit ekki hvort hann afi hafi í
raun og veru verið viðkvæmur fyr-
ir því að vera sköllóttur en tel mig
hafa einu sinni móðgað hann fyrir
að reyna að kyssa hann á skallann.
Honum fannst það fyrir neðan
mína virðingu að kyssa skítugan
beran koll á gömlum karli, eins og
hann sjálfur orðaði það. Afi var
ekki oft sá sem orðið hafði í okkar
fjölskyldu en þegar hann talaði þá
hlustaði fólk. Sögur hans voru æv-
intýrum líkar og gerðu mig oft
agndofa, þakkláta og kjaftstopp.
Sögur af skútusiglingu um heim-
inn rétt 17 ára, sögur af lífshættu-
legum prakkarastrikum á stríðs-
árum og harmsögur úr æsku eða
af sjónum. Það er nefnilega ótrú-
lega skrítið hvað manns eigið líf
veltur oft á litlum tilviljunum og
heppilegum lífsbjörgum annarra.
Einhvern veginn kom hann afi
alltaf á óvart. Sérstaklega verð ég
að nefna þegar ég rakst á viðtal
við afa á forsíðu Morgunblaðsins
fyrir tveimur árum þar sem fjallað
var um köfunarafrek hans frá
Vestmannaeyjum til Landeyja-
hafnar sem enginn hefur leikið
eftir. Afi var töffari.
Hann og amma Vala eiga nú
orðið stóran hóp af afleggjurum,
um allt land og úti í Noregi. Afi
var umkringdur konum bróður-
part lífsins en hann var það vin-
sæll karlinn meðal dætra sinna að
þrjár af fjórum þeirra eiga drengi
með hans nafni. Þetta getur orðið
smá fyndið í fjölskylduboðum eða
þegar verið er að ræða afabörnin:
„Er það Kristján Geirsson? Nei
Kristján Þverdal. Nei ég meina
Kristján Pétur.“ Ég mun sakna
þess að geta ekki boðið afa aftur
upp á pönnukökur í afmælum, að
geta ekki reynt að kyssa hann á
skallann, að bregða fyrir okkur
sverðum eða sitja í óþægilega
gullsófanum, þegja og drekka
heimsins besta ömmuafakaffi.
Sonur minn mun alltaf fá að heyra
um töffarann afa Kristján þegar
hann vill og munum við hugsa vel
um langömmu þar til þau afi sam-
einast.
Ágústa.
15. september sl. andaðist á
Hrafnistu í Reykjavík Kristján
Sveinsson skipstjóri, góður vinur
og samstarfsmaður til margra
ára. Kristján hóf sjómennsku ung-
ur að árum sem háseti á togurum
frá Vestmannaeyjum. Háseti og
bátsmaður á norskum kaupskip-
um í nokkur ár, síðar háseti á
strandferða- og varðskipum ríkis-
ins. Kristján lauk farmannaprófi
frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík 1958, stýrimaður á
varðskipum ríkisins til ársins
1962, þá stýrimaður á nýju vita-
skipi, Árvakri, sem kom til lands-
ins í júnímánuði 1962. Ég var að
ljúka 2. bekk í farmannadeild
Stýrimannaskólans í byrjun apríl
1965 þegar Kristján Sveinsson
hafði samband við mig, það vant-
aði stýrimann á vitaskipið. Ég sló
til og sá ekki eftir þeirri ákvörðun
því siglt var nánast inn á alla firði,
voga og víkur landsins. Það var
gott og farsælt samstarfið við
Kristján, hann var ákveðinn og
öruggur í sínu starfi sem gat
ástundum verið við vosbúð og
kulda þegar farið var í land vegna
lagfæringa á vitum og öðru þeim
tilheyrandi. Kristján tók við skip-
stjórn á björgunarskipinu Goðan-
um 1966 og til þess tíma er skipið
strandaði í Vöðlavík í janúar 1994.
Kristján var fulltrúi skipstjór-
afélagsins í Sjómannadagsráði,
var í stjórn ráðsins og Hrafnistu-
heimilanna í 15 ár.
Kristján Sveinsson var heiðrað-
ur á sjómannadaginn 1994.
Við hjónin sendum Valgerði,
dætrum og öðrum ættingjum
samúðarkveðjur vegna fráfalls
Kristjáns Sveinssonar.
Guðmundur Hallvarðsson.
Kristján Sveinsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JENS OLSEN
frá Dynjanda, Hornafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði
föstudaginn 24. september. Útförin fer fram
frá Hafnarkirkju mánudaginn 4. október
klukkan 11. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Gjafa- og
minningarsjóð Skjólgarðs.
Sigurbergur Olsen Jóhanna G. Einarsdóttir
Þorleifur Olsen Katrín Steindórsdóttir
og barnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
FINNBOGI JÓNSSON
verkfræðingur og fv.
framkvæmdastjóri, Helgamagrastræti
23, Akureyri,
lést í Vancouver í Kanada 9. september.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 8. október
klukkan 15.
Berglind Ásgeirsdóttir
Esther Finnbogadóttir Ólafur Georgsson
Ragna Finnbogadóttir Roberto Gonzalez Martinez
barnabörn og aðrir aðstandendur