Morgunblaðið - 29.09.2021, Side 18
✝
Sigríður
Hanna Gunn-
arsdóttir fæddist í
Reykjavík 11. mars
1940. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 16. september
2021. Foreldrar
Sigríðar voru
Gunnar Jóhanns-
son, f. 17.8. 1913, d.
1.4. 2006, og Lára
Áslaug Theodórsdóttir, f. 14.2.
1918, d. 24.6. 2003. Systkini
hennar eru: Málfríður Dóra, f.
25.3. 1944, gift Ólafi Ragnari
Eggertssyni, f. 1.10. 1945, d.
18.1. 2002, og Guðmundur
Helgi, f. 22.9. 1947, kvæntur
Hrund Hjaltadóttur, f. 27.9.
1949. Auk þess átti Sigríður
samfeðra hálfbróður, Hauk
Kjartan, f. 11.1. 1937, d. 2.7.
2017, kvæntan Grétu Ósk-
arsdóttur, f. 19.11. 1936, d. 24.5.
2019.
Sigríður Hanna giftist Sverri
Gunnarssyni húsasmíðameist-
ara, f. í Reykjavík 2.3. 1941,
arnesskóla og síðar Iðnskólann í
Reykjavík, þar sem hún lærði
hárgreiðslu og lauk meistara-
prófi í þeirri iðn. Rak hún um
skeið hárgreiðslustofu í Reykja-
vík en þegar fjölskyldan stækk-
aði lét hún af því starfi og varð
heimavinnandi. Árið 1977 tók
hún stúdentspróf frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð og í
framhaldinu lá leiðin í Kenn-
araháskólann þaðan sem hún út-
skrifaðist sem kennari og síðar
sem sérkennari. Starfaði hún
við kennslu, lengst af í Foss-
vogsskóla, þar til hún lét af
störfum árið 2005.
Sigríður Hanna og Sverrir
byggðu sér hús í Hjallalandi í
Fossvogi og bjuggu þar 23 ár,
en fluttu í Garðabæ árið 1992 og
hafa búið þar síðan.
Sigríður Hanna var fé-
lagslynd, jákvæð og hafði mikla
ánægju af samskiptum við ann-
að fólk. Þau Sverrir voru sér-
staklega samrýnd og samhent.
Áhugi á tónlist var þeim sameig-
inlegur og þá ferðuðust þau
mjög mikið bæði innan lands og
utan. Sigríður Hanna gekk í
Oddfellow-regluna árið 1997
var allt til loka virk í starfi regl-
unnar.
Jarðarför Sigríðar Hönnu fer
fram frá Vídalínskirkju í Garða-
bæ 29. september 2021 kl. 13.
hinn 15.12. 1962.
Foreldrar hans
voru Gunnar Björn
Halldórsson, f. 9.9.
1900, d. 13.10.
1978, og Að-
alheiður Jóhanns-
dóttir, f. 6.9. 1904,
d. 26.7. 1989.
Sigríður Hanna
og Sverrir eiga tvö
börn. 1) Lára Ás-
laug lögfræðingur,
f. 1.7. 1964, í sambúð með Jóni
Höskuldssyni landsréttardóm-
ara, f. 3.10. 1956. Sonur Láru er
Davíð Björn Pálsson, f. 10.7.
2001. 2) Gunnar Halldór við-
skiptafræðingur, f. 4.10. 1965.
Hann var kvæntur Sigríði
Hrólfsdóttur rekstrarhagfræð-
ingi, f. 16.1. 1967, d. 6.1. 2018.
Gunnar og Sigríður eiga þrjú
börn, tvíburana Halldór Árna og
Sverri Geir, f. 22.4. 1997, og
Þórunni Hönnu, f. 24.9. 2004.
Sambýliskona Gunnars er Þórey
Ólafsdóttir viðskiptafræðingur,
f. 11.11. 1971.
Sigríður Hanna gekk í Laug-
Amma Sigga var klárlega ein
besta manneskja sem ég hef hitt.
Ef að það var eitthvað sem vantaði,
þá var alltaf hægt að leita til ömmu
og afa og þau voru alltaf tilbúin að
hjálpa með hvað sem er. Svo var
alltaf gaman að kíkja í heimsókn til
þeirra og bara tala við þau klukku-
tímunum saman og þar var líka
alltaf tekið svo vel á móti okkur
barnabörnunum með allskonar
kræsingum sem þau buðu upp á.
Amma var yndisleg kona sem
var góð við alla og passaði alltaf vel
upp á mig, bræður mína og frænda.
Það er ekkert sem að amma gerði
ekki fyrir okkur og ég er svo óend-
anlega þakklát fyrir hana og afa og
allt sem að þau hafa gefið okkur.
Þórunn Hannna.
Orð munu seint gera fyllilega
grein fyrir ömmu Siggu og hvernig
mér fannst hún vera. Hún var
ávallt blíð og góð við mig og aðra,
studdi mig í því sem ég tók mér
fyrir hendur og var ávallt hjálpfús.
Amma Sigga gerði mjög mikið
fyrir mig. Hún hjálpaði mér með
heimanám þegar ég átti erfitt, hún
hjálpaði mér þegar ég skipti um
grunnskóla. Hún skutlaði mér
margoft þegar mamma gat það
ekki. Hún gerði margoft rækjusal-
atið sitt, sem mér þykir svo gott,
fyrir mig og dekraði við mig þegar
ég gisti. Hún og afi fóru oft í ferða-
lög og buðu mér og mömmu stund-
um með.
Ég get seint þakkað henni fyrir
allt sem amma Sigga gerði fyrir
mig, líklega þakkaði ég henni ekki
nóg.
Ég á enga eina uppáhaldsminn-
ingu um ömmu Siggu en minning-
arnar um ferðalögin sem hún fór
með mér, mömmu og afa í, tugi
skipta sem ég gisti hjá þeim og
þegar ég borðaði kvöldmat með
henni og afa mun ég geyma alla
mína ævi.
Síðustu orðin sem ég sagði við
ömmu Siggu finnst mér lýsa betur
hvað mér fannst um hana en nokk-
uð sem ég get skrifað í minning-
argrein. Ég sagði: „Amma, þú ert
best.“ Og við þessu brosti hún blíða
brosinu sínu.
Amma Sigga var besta amma
sem ég hefði geta beðið um og ég
er stoltur að hafa átt svona góða,
duglega og vandaða ömmu.
Davíð.
Frá því að við vorum litlir hafa
heimsóknir til ömmu Siggu og afa
Sverris verið reglulegar. Við bræð-
urnir gistum oft hjá þeim í Skóg-
arhæðinni þegar við vorum litlir,
þaðan eigum við svo margar góðar
minningar.
Amma Sigga var alltaf jákvæð
og uppbyggjandi. Hana skipti
miklu máli hvernig okkur barna-
börnunum gengi í skólanum og
sýndi öllu því sem við unnum að
mikinn áhuga. Þegar við bræðurn-
ir vorum ungir og órólegir var
mamma alveg að gefast upp á því
að kenna okkur stærðfræðina. Þá
var gott að geta hringt í ömmu en
hún hjálpaði okkur með grunninn í
lærdómnum sem við byggjum enn
ofan á í háskóla í dag.
Amma Sigga varð himinlifandi
þegar fyrsta langömmubarnið
fæddist í nóvember í fyrra, nafna
hennar Sigríður Thea. Henni þótti
svo vænt um litla skottið sitt og
gladdist í hvert skipti sem Sigga
litla kom í heimsókn.
Þótt sársauki sorgarinnar hafi
látið finna fyrir sér á síðustu dög-
um er það þó aðallega þakklæti fyr-
ir frábæra ömmu sem kemur upp í
hugann þegar hugsað er til ömmu
Siggu.
Halldór Árni og Sverrir Geir.
Nú kveð ég hana elsku móður-
systur mína, Sigríði Hönnu Gunn-
arsdóttur, Siggu frænku. Þó Sigga
frænka hafi verið hluti af æsku
minni frá upphafi er það þó ekki al-
mennilega fyrr en foreldrar mínir
og ég búum í Noregi og ég er um
átta ára gamall, þegar Sigga,
Sverrir, Lára og Gunni koma í
heimsókn til okkar, að minningin
fer að skýrast. Þetta sumar var
ferðalag aldarinnar í huga ungs
drengs, öll Skandinavía skoðuð, Tí-
volí í Kaupmannahöfn og Finnland
svo eitthvað sé nefnt.
Við frændsystkinin tengdumst
órjúfanlegum böndum frá upphafi
sem styrktust frekar þegar við fjöl-
skyldan fluttum aftur heim til Ís-
lands. Þá voru ferðir í Hjallalandið
hluti af hversdagslífinu og þar var
mér tekið sem einum af fjölskyldu-
meðlimunum og sambandið við
Siggu frænku varð sterkara. Sigga
og Sverrir höfðu tekið upp fjöl-
skyldusport, skíðaiðkun, og var
mér iðulega boðið með í Skálafellið
og við krakkarnir, Gunnar og Lára
urðum frá þeim tíma, og fram eftir
aldri traustir skíðafélagar. Þessi
æskuár eru full af góðum minning-
um og þeim góða anda sem ríkti í
kringum frænku mína.
Þegar upp er staðið þá gaf Sigga
frænka mér annað heimili og er ég
ríkari fyrir vikið og ævarandi þakk-
látur henni, Sverri, Gunnari og
Láru. Vinskapur þeirra við mig og
mína hefur verið einstakur og gef-
andi í gegnum árin og hef ég æv-
inlega búið að því.
Síðar þegar ég var kominn með
mína eigin fjölskyldu og við að
mestu leyti búsett erlendis hittum
við Siggu ekki eins oft og áður. Þó
voru sterku fjölskylduböndin enn
til staðar og maður fann alltaf til
væntumþykju hennar til mín og
minna, og það var alltaf jafn gott að
hitta hana frænku mína á ferðalög-
um okkar til Íslands. Hún og
Sverrir nutu þess mikið að ferðast
og sögðu okkur oft skemmtilegar
sögur frá upplifunum sínum á
framandi slóðum. Það er mér
minnisstætt að hún og Sverrir
heimsóttu okkur þar sem við
bjuggum erlendis og við gátum
deilt með þeim hvernig lífi okkar í
útlöndum var háttað. Einhvern
veginn fannst mér það mikilvægt
að Sigga frænka myndi sjá að við
hefðum það gott þar sem við höfð-
um valið okkur að búa.
Það er með miklum söknuði sem
ég kveð hana frænku mína. Að
sama skapi er ég þakklátur fyrir
þann stuðning sem hún gaf mér í
lífinu, hún var mér einstaklega góð
fyrirmynd, með sterkan karakter
og bar með sér góðan anda. Við
fjölskyldan vottum Sverri, Láru,
Gunnari og þeirra fjölskyldum
okkar dýpstu samúð.
Eggert Ólafsson.
Fram undan eru páskar og við
búin að fá lána íbúð á Akureyri.
Eftirvæntingin er mikil. Hópurinn
hefur varla áður stigið á skíði. Við
keyrðum norður í ágætisveðri. Við
vorum með Siggu okkar. Sigga
Hanna og Sverrir með Láru og
Gunnar. Útbúnaðurinn var gamall,
lúinn og aðallega fenginn að láni.
Það voru engir skíðagallar, bara
venjuleg hlý föt og okkur gat að-
eins dreymt um „moonboots“.
Sigga Hanna og Sverrir voru á
gönguskíðum þessa fyrstu ferð af
mörgum, sem allar voru ánægju-
legar. Við fórum snemma í fjallið
alla daga og seint niður. Ásetning-
urinn var að vera fyrsti bíll í fjallið
og síðasti niður. Oft tókst það.
Verkaskiptingin var skýr.
Mömmurnar elduðu kvöldmatinn
og pabbarnir vöskuðu upp. Ekki
man ég hvað börnin gerðu á með-
an. Svona var upphafið að áralöng-
um vinskap og fjölda ferðalaga inn-
an lands og utan. Traustari og betri
vini er varla hægt að eiga.
Í 40 ár höfum við komið saman á
fyrsta vetrardag í veislumat, oft
með leynigestum. Þegar veturnir
voru undirlagðir af skíðaferðum
sögðum við oft „vonum að það vori
bæði seint og illa“. Það er nú langt
síðan sú setning hefur verið sögð.
Ótal leikhúsferðir, óperusýningar,
tónleikar og skemmtilegar uppá-
komur hafa sett svip sitt á lífið.
Mikið verður lífið fábreyttara hjá
okkur þegar Siggu Hönnu nýtur
ekki lengur við. Við yljum okkur
við minningar af góðum árum sam-
an.
Gréta og Brynjólfur.
Sigríður Hanna
Gunnarsdóttir
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2021
Tilkynningar
Aðalskipulag Mýrdalshrepps 2012-2028
– Norður-Garður 3
Í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með
auglýst tillaga um breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps
2012-2028.
Norður-Garður 3 er 5 ha spilda úr jörðinni Norður-Garði
og hefur henni verið skipt upp í 4 lóðir. Breyting felst í að
landnotkun á spildunni verði skilgreind sem frístundabyggð
þar sem landeigendur hafa áhuga að byggja á lóðunum fjögur
frístundahús.
Tillaga þessi að aðalskipulagsbreytingu liggur frammi hjá
skipulags- og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17,
870 Vík og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá
29. september 2021 til og með 12. nóvember 2021.
Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrif-
stofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á
bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út
föstudaginn 12. nóvember 2021.
George Frumuselu
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Mýrdalshrepps
Auglýsing um skipulagsmál
í Mýrdalshreppi
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Ukulele kl. 10,
ókeypis og hljóðfæri á staðnum. Myndlist kl. 13, leiðbeinandi. Söng-
fuglarnir kl. 13, pláss fyrir allar raddir. Bókmenntaklúbbur kl. 13.15.
Kaffi kl. 14.30-15. Nánari upplýsingar í síma 411-2702. Allir velkomnir.
Árbæjarkirkja Kyrrðarstund miðvikudaga í Árbæjarkirkju kl. 12.
Opið hús fullorðinsstarfs í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 12.30-15.30.
Súpa og meðlæti gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar á
www.arbaejarkirkja.ís
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-14. Opin vinnustofa
kl. 9-12. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Félagsfundur kl. 11. Bónus-
bíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Pílukast kl. 13. Hádegismatur kl.
11.40-12.40. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir.
Sími 411-2600.
Boðinn Handavinnustofa er opin frá kl. 12.30-15. Leshópur kl. 15.
Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16.
Breiðholtskirkja Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12 alla miðviku-
daga, súpa og brauð eftir stundina. Eldri borgara starfið ,,Maður er
manns gaman" er kl. 13.15. Allir hjartanlega velkomnir.
Bústaðakirkja Félagsstarfið er á sínum stað á miðvikudögum.
Göngutúr kl. 12.30 frá safnaðarsal. Opið hús frá kl. 13-16, spil, handa-
vinna, slökun og kaffið góða frá Sigurbjörgu. Prestur verður með
hugleiðingu og bæn, Jónas Þórir mætir við píanóið. Hlökkum til að
sjá ykkur, starfsfólk Fossvogsprestakalls.
Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi
kl. 10. Skák í Jónshúsi kl. 10.30. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13.
Brids í Jónshúsi kl. 13. Stólajóga kl. 11 í Kirkjuhvoli. Gler kl. 13 í
Smiðju Kirkjuhvoli. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 15 / 15.40 og 16.20.
Zumba Gold kl. 16.30.
Gullsmári Myndlist kl. 9, botsía kl. 10, postulínsmálun og kvenna-
brids kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli
kl. 9-11. Ganga með Evu kl. 10-11, allir velkomnir. Útskurður með leið-
beinanda kl. 9-12, 500 kr. skiptið.
Hraunsel Billjard kl. 9-16. Stóla-jóga kl. 10. Línudans kl. 11. Bingó kl.
13. Gaflarakórinn kl. 16.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Handavinnuhópur kl. 13-16. Brids kl. 13. Styttri ganga
kl. 13.30. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi degin-
um áður.
Korpúlfar Morgunleikfimi kl. 9.45 í Borgum, glerlistanámskeið kl. 9 í
Borgum. Gönguhópur Korpúlfa kl. 10, gengið frá Borgum og inni í
Egilshöll. Keila í Egilshöll kl. 10. Lagt af stað stundvíslega kl. 10 frá
Borgum í haustferð Korpúlfa, 40 þátttakendur, hellaferð á Hellu,
Fljótshlið, Stracta, nýr miðbær Selfossi o.fl. Áætluð heimkoma kl.
ca 18.
Seltjarnarnes Kaffikrókur alla morgna frá kl. 9. Leir Skólabraut kl. 9.
Botsía Skólabraut kl. 10. Billjard Selinu kl. 10. Kyrrðarstund í kirkjunni
kl. 12.Timburmenn Valhúsaskóla kl. 13. Gler á neðri hæð félagsheim-
ilis. kl. 13. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Tölvur
Sérhæfð gagnabjörgun
af hörðum diskum o.fl.
Datatech.is sérhæfir sig í gagna-
björgun af öllum gerðum af tölvum og
hörðum diskum. Hafðu samband í
síma 571-9300 eða kíktu á
heimasíðuna okkar Datatech.is
Bílar
Nýr VW Crafter L3H3 háþekju
Það eru hvergi til sendibílar nema
hjá Sparibíl!
Þessi er til afhendingar strax !
Verð: 5.990.000,- án vsk.
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 10–18 virka daga.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
fyrir veturinn og
tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Rað- og smáauglýsingar
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
með
morgun-
!$#"nu