Morgunblaðið - 29.09.2021, Side 20
Breiðavað Sóley Birta Sigfinnsdóttir
fæddist 11. janúar 2021. Hún vó 4.270
g og var 55,5 cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Sigfinnur Björnsson og
Guðlaug Margrét Jóhannsdóttir.
Nýr borgari
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2021
30 ÁRA Sigfinnur er fæddur og upp-
alinn á Höfn í Hornafirði, en býr á
Breiðavaði í Eiðaþinghá. Hann er með
BS-gráðu í ferðamálafræði frá Háskóla
Íslands og er verkefnastjóri hjá
Austurbrú. „Ég er aðallega að vinna að
verkefninu Áfangastaðurinn Austur-
land. Núna er ég m.a. að koma að þró-
unarmálum og verkefnum með sam-
starfsaðilum okkar, sem eru þá ferða-
þjónustufyrirtæki hérna á Austurlandi.
Áhugamál mín eru snjóbretti og
skíði á veturna og svo tók ég upp á því í
sumar að byrja í utanvegahlaupum.
Mitt helsta áhugamál núna er því að hlaupa úti í náttúrunni.“
FJÖLSKYLDAN Sigfinnur er í sambúð með Guðlaugu Margréti Jóhanns-
dóttur, f. 1993, ferðamálafræðingi. Hún vinnur hjá Vök Baths. Dóttir þeirra
er Sóley Birta, f. 2021. Foreldrar Sigfinns eru Björn Sigfinnsson, f. 1962,
kennari í Grunnskóla Hornafjarðar, og Ester Þorvaldsdóttir, f. 1961,
hjúkrunarfræðingur og hjúkrunarstjóri í Hornafirði hjá Heilbrigðisstofnun
Suðurlands.
Sigfinnur Björnsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Það glittir í eitthvað nýtt á ferli
þínum. Ekki leyfa óttanum að ná yfirhönd-
inni í dag, þér eru allir vegir færir.
20. apríl - 20. maí +
Naut Stutt ferðalög, fundir og námskeið
gera það að verkum að það er óvenjumik-
ið að gera hjá þér þessa dagana. Taktu
þér tíma til þess að sinna líkamsræktinni.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Taktu við því sem aðrir gefa þér.
Ráðgáta varðandi vissan hlut leysist ekki
á næstunni, en mun þó gera það.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú er full/ur af sköpunarþrá, og
það besta er að hugmyndirnar þínar eru
bráðsnjallar og auk þess hagnýtar. Njóttu
litlu hlutanna í lífinu.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Sambönd sem hefjast í dag verða
ástríðufull. Þú fréttir af fjölgun í fjölskyld-
unni. Allir eru að reyna að gera sitt besta,
mundu það.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það er óskynsamlegt að hafa öll
sín egg í sömu körfunni. Ákvarðanir þínar
hljóta ekki alltaf góðan hljómgrunn. Þú
verður að taka því eins og hverju öðru
hundsbiti.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Eitthvað verður til þess að setja allt á
annan endann hjá þér í dag. Vertu öðru-
vísi, þér finnst það gaman.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú færð óvænt tækifæri til
að ferðast. Nýttu þér það og skildu
áhyggjurnar eftir heima. Peningar sogast
að þér.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það er komið að því að þú
þarft að taka ákvörðun í stóru máli. Settu
þér markmið, skrifaðu þau niður og þau
rætast eitt af öðru.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Ræddu við maka þinn um upp-
eldið, þið verðið að vera á sömu blaðsíð-
unni, annað gengur ekki. Þú hittir mann-
eskju sem getur gefið þér góð ráð.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Láttu ekki endalaust undan
þeim kröfum sem aðrir gera til þín því þú
átt þinn rétt eins og aðrir. Farðu til læknis
ef þú finnur fyrir verkjum.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Lítið bros getur dimmu í dagsljós
breytt. Fáðu einhvern í heimsókn sem get-
ur lyft þér upp og gerðu eitthvað
skemmtilegt. Kvöldið mun koma á óvart.
T.d. vann hann Hreppasvipuna
1978 á Murneyrum sem þá voru
verðlaun fyrir alhliða gæðing. Í dag
stundar hann nám í reiðmennsku á
háskólastigi á vegum
endurmenntunardeildar Landbún-
aðarháskóla Íslands sem nefnist
Reiðmaðurinn. Skipulagðar hesta-
ferðir á sumrin með góðu fólki
félags sem í dag flokkast eins og önn-
ur fyrirtæki hans sem fyrirmyndar-
fyrirtæki.
Georg lærði ungur til einkaflug-
manns og naut þess að skoða lendur
sínar og ræktun úr lofti. Þá hefur
hann alla tíð haft áhuga á hestum
og sannri reiðmennsku og eignast
um tíðina nokkra ágætis gæðinga.
G
eorg Már Ottósson fædd-
ist 29. september 1951 á
Hvolsvelli og ólst þar
upp. Hann lauk barna-
skóla þar og gagnfræða-
prófi á Skógum 1967. Flestum sumr-
um eyddi hann í fangi ömmu og afa á
Giljum í Hvolhreppi. Þar kunna að
hafa þroskast í honum ræktunargen
sem hafa komið honum vel síðan.
Eftir gagnfræðaskóla fór hann að
vinna við smíði á nýjum skóla á
Hvolsvelli í eitt ár og hóf svo skóla-
göngu aftur í Kennaraskóla Íslands
við Stakkahlíð. Þaðan fór hann í
Íþróttaskólann á Laugarvatni og út-
skrifaðist sem íþróttakennari 1971.
Eftir útskrift sinnti Georg kennslu
á Hellu í tvö ár, við íþróttir og bók-
lega kennslu á barna- og unglinga-
stigi. Sundkennsla fór þá fram í
Laugalandi í Holtum undir yfirstjórn
þess merka manns Más Sigurðssonar
Greipssonar frá Geysi. Í framhaldi af
því réðst Georg sem íþrótta- og bók-
legur kennari að Flúðum í Hruna-
mannahreppi og starfaði þar í 18 ár
og hafði þá kennt í 20 ár samfellt. En
síðustu kennsluárin hóf þessi athafna-
maður ásamt fyrrverandi eiginkonu
sinni, Guðbjörgu Runólfsdóttur, upp-
byggingu á garðyrkjustöðinni Flúða-
Jörfa. Flúða-Jörfi dafnaði og óx uns
þau bættu við og kauptu garðyrkju-
stöðina Ásland sem þá var ein stærsta
garðyrkjustöð á landinu. Þar með
varð til hagkvæm rekstrareining sem
gekk vel og gerir enn í dag með
ágætum.
Árið 2005 keypti Georg svo hluta-
félagið Flúðasveppi ehf. og þá enn
sem fyrr komu fram ræktunar-
eiginleikar hans og svepparæktin
dafnar og vex enn í dag. „Við erum
komin með veitingastaðinn Farmers
Bistro, sem var opnaður fyrir þremur
árum. Þetta var hugmynd sem kom
upp hjá mér fyrir mörgum árum til að
kynna okkar vörur og landbúnaðinn í
heild. Við vorum með opið í sumar og
það var brjálað að gera, en við lok-
uðum í fjórðu bylgjunni í ágúst og
opnum svo ekki aftur fyrr en með
hækkandi sól.“
Georg var stjórnarformaður Sölu-
félags garðyrkjumanna og átti þar
drjúgan þátt í uppbyggingu þess
skipa háan sess í hans hesta-
mennsku.
Georg er vinfastur, kappsamur og
metnaðarfullur orkubolti sem ekki
hefur kallað allt ömmu sína í gegnum
tíðina. Hann fagnar nú sjötugasta
aldursári sínu fullur af hugmyndum
og orku til framtíðar.
Georg ætlar að bíða með að halda
Georg Ottósson, framkvæmdastjóri Flúðasveppa og Flúða-Jörfa – 70 ára
Á Högnhöfða Feðgarnir Daði og Georg, Svavar bróðir og Hófí, konan hans, og vinahjónin Bibba og Siggi.
Haustverkin á fullu á Flúðum
Hestamenn Georg, Júlíus og Ómar uppi á Skarðsfjalli í Landsveit. Flugmaðurinn Á leið í loftið.
Til hamingju með daginn