Morgunblaðið - 29.09.2021, Side 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2021
„HANA, NÁÐI EINUM. HVERJIR AÐRIR ERU
AÐ LÖGSÆKJA OKKUR?“
„ÞETTA VERÐUR SVONA TUTTUGU MÍNÚTNA
BIÐ.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vilja eyða ævinni
saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GRRRRRR…VOFF! AFSAKAÐU. ÉG
MISSTI ÁHUGANN VEISTU HVERNIG
MÉR LÍÐUR?
JÆJA, NÚ SKULUM
VIÐ SPJALLA UM ÞAÐ
HVERNIG DAGURINN
VAR HJÁ ÖLLUM …
NEMA ÞÉR, HRÓLFUR!
VIÐ ERUM EKKI BÚIN
AÐ BORÐA!
VILTU
GIFTAST
MÉR?
APÓTEK
upp á afmælið. „Það er svo mikið að
gera, loksins hætti að rigna, haust-
verkin eru því á fullu og við erum að
þreskja korn og taka upp gulrætur.
Við höfum verið að bíða eftir þessari
viku og ég get því ekki farið að halda
veislu núna, hver sólarhringur skiptir
máli. Það eru veðurviðvaranir allt í
kringum okkur, en þurrt og gott hér.“
Fjölskylda
Börn Georgs með fyrrverandi eig-
inkonu sinni, Guðbjörgu Runólfs-
dóttur, f. 7.10. 1954, eru: 1) Daði, f.
14.8. 1975, tónlistarmaður og tónlist-
arkennari, búsettur í Borgarnesi.
Eiginkona hans er Þóra Sif Svans-
dóttir, f. 3.5. 1983; 2) Láretta, f. 8.12.
1978, viðskiptafræðingur og vinnur
hjá Atlanta, búsett í Mosfellsbæ. Eig-
inmaður hennar er Hjörtur Péturs-
son, f. 25.5. 1975; 3) Kári, f. 25.12.
1984, viðskiptafræðingur og starfar
hjá Nova, búsettur í Reykjavík. Eig-
inkona hans er Anna Guðmunda
Andrésdóttir, f. 5.5. 1985; 4) Ragn-
heiður, f. 4.5. 1986, viðskiptafræð-
ingur og starfar hjá Farmers Bistro,
búsett á Flúðum. Barnabörn Georgs
eru tíu.
Systkini Georgs eru Svavar Ottós-
son, f. 4.7. 1947, véltæknifræðingur í
Mosfellsbæ; Sólveig Eyfjörð Ottós-
dóttir, f. 24.8. 1953, húsmóðir á Giljum
í Rangárþingi eystra; Óli Kristinn
Ottósson, f. 30.5. 1960, bóndi á Eystri-
Seljalandi undir Eyjafjöllum, og Sig-
urður Grétar Ottósson, f. 17.3. 1962,
bóndi í Ásólfsskála undir Eyjafjöllum.
Foreldrar Georgs voru hjónin Ottó
Eyfjörð Ólason, f. 19.8. 1928, d. 31.5.
2009, bílstjóri, listmálari og ljósmynd-
ari á Hvolsvelli, og Fjóla Guðlaugs-
dóttir, f. 3.6. 1930, d. 27.4. 2020, hús-
freyja á Hvolsvelli og starfsmaður
Kaupfélags Rangæinga.
Georg Már
Ottósson
Margrét Jónsdóttir
húsfreyja í Austur-Saltvík
Sigurjón Sofanías Jónsson
bóndi í Austur-Saltvík á
Kjalarnesi
Láretta Sigríður Sigurjónsdóttir
húsfreyja á Giljum
Guðlaugur Bjarnason
bóndi á Giljum í Hvolhr., Rang.
Fjóla Guðlaugsdóttir
húsfreyja á Hvolsvelli og
starfsmaður Kaupfélags
Rangæinga
Þorbjörg Einarsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Bjarni Símonarson
bóndi í Hallstúnum í Holtum,
síðar trésmiður í Reykjavík
Þorgerður Jóhannsdóttir
saumakona í Vestmannaeyjum
Eysteinn Gunnarsson
sjómaður og verkamaður
í Vestmannaeyjum
Sólveig Eysteinsdóttir
húsfreyja í Vestmannaeyjum og á
Skammbeinsstöðum í Holtum, Rang.
Óli Kristinn Frímannsson
skósmiður í Vestmannaeyjum og Rvík
Sigurbjörg Friðriksdóttir
húsfreyja á Lundi
Frímann Steinsson
bóndi á Lundi í Stíflu, Skag.
Úr frændgarði Georgs Ottóssonar
Ottó Eyfjörð Ólason
bílstjóri, listmálari og ljós-
myndari á Hvolsvelli
ÁBoðnarmiði skrifar Anton
Helgi Jónsson við mynd af sér
og Jónasi Hallgrímssyni:
„Ég veit ekki hvað er hægt að
segja um úrslit kosninganna en við
Jónas gerðum það gott hér á Akur-
eyri í gær. Dagskráin „Jónas á tím-
um loftslagsbreytinga“ fór ákaflega
vel í fólk og nú er ákveðið að næst
verður hún flutt á Norðurbakk-
anum í Hafnarfirði 16. nóvember.
Þegar ég rölti út í morgun fannst
mér eins og Jónas stæði heilshugar
með mér í þeirri ákvörðun en ég
gleymdi að spyrja hvernig honum
litist á úrslit kosninganna. Einhver
fugl, samt ekki þröstur, hvíslaði
hins vegar að mér þessari limru“:
Þótt hvatt sé til kosningadáða
og kíkt sé á lífsskoðun tjáða
þarf fólk samt að skilja
þann forsjónarvilja
að framsóknarmennirnir ráða.
Magnús Halldórsson skrifaði árla
á sunnudagsmorgun: „Samkvæmt
könnun MMR er það stuðningsfólk
Flokks fólksins sem stundar mest að
„snúsa“, þegar horft er til stjórn-
málaskoðana Íslendinga“:
Mundi sár og merin reið,
nú mega snúsa.
Frá þeim burtu fylgið skreið,
til föðurhúsa
Ármann Þorgrímsson við morg-
unverðarborðið daginn eftir kosn-
ingar:
Hér ég sit með hönd við kinn
hugsa um framtíð dapur
er nú fluga orðinn minn
eini félagsskapur.
Stefán Már Halldórsson orti á
sunnudag:
Alþýðubarátta’ er ekkert grín,
og óvíst hvort bættur sé skaðinn.
Byltingin étur börnin sín
og B-listinn kominn í staðinn!
Skúli Pálsson yrkir og kallar
„Gosbrunnur“:
Braghenda er brunni lík hvar buna flýg-
ur,
lóðrétt upp í loftið stígur,
lokahending niður hnígur.
„Þjóðarsálin“ er limra eftir Helga
Ingólfsson:
Hennar telst heiðarleg fæðing,
til höfðingja kaus hún sér fræðing.
Hún átti sér glóð.
Svo greip mína þjóð
fádæma fávitavæðing.
Enn yrkir Helgi:
Bjartur og breiðleitur hnokki
brosir nú hreykinn á stokki.
Í fjósið hjá þeim
fylgið kom heim,
baulur úr Framsóknarflokki.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Antoni Helga og Jónasi