Morgunblaðið - 29.09.2021, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.09.2021, Blaðsíða 23
HANDBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Arnar Pétursson og aðstoðarþjálf- arinn Ágúst Þór Jóhannsson hafa gert þriggja ára samning við Hand- knattleikssamband Íslands um að stýra áfram kvennalandsliðinu. Frá þessu var greint á blaðamannafundi í gær og þá var einnig tilkynnt hvaða leikmenn mæta Svíþjóð og Serbíu í næsta mánuði. Arnar segist í samtali við Morgunblaðið vilja sjá liðið ná meiri árangri en síðustu ár. Til að svo megi verða þurfi markvissa vinnu næstu árin. „Lang- tímamarkmiðin eru að eftir þrjú til fjögur ár muni íslenska kvenna- landsliðið gera al- vöru atlögu að því að komast inn á stórmót. Ég vil sjá okkur taka stór- stígum framförum og við séum í bar- átttunni um að komast inn á öll stór- mót eftir þennan tíma. Ég á mér að minnsta kosti þann draum að sjá lið- ið komast á stórmót og það er mitt markmið. Til skemmri tíma litið vil ég sjá okkur taka framförum í hverju verkefni fyrir sig. Byggt sé ofan á það sem gert var síðast þegar liðið kom saman og við séum að efl- ast sem lið. Hvort sem það sé innan vallar eða utan, eða í vörn eða sókn. Þannig tel ég vænlegast að nálgast þetta,“ segir Arnar. Er þessi munur eðlilegur? Sú spurning hefur leitað á Arnar hvort eðlilegt sé að jafn mikill mun- ur sé á árangri karlalandsliðsins í handknattleik og kvennalandsliðs- ins. Fyrst litið sé á Ísland sem hand- boltaþjóð þá eigi kvennalandsliðið að geta náð meiri árangri. Munurinn á árangri liðanna þurfi ekki að vera svona mikill. Hann segist í það minnsta vera tilbúinn til að leita svara við þessari spurningu. „Ég hef bent á að það er einhver skekkja í því að karlalandsliðið skuli vera á leið á sitt tuttugasta og fimmta stórmót frá aldamótum á meðan konurnar hafa farið á þrjú. Tíu ár eru liðin síðan það gerðist síð- ast. Við þurfum alla vega að svara því af hverju þetta er og eigum við ekki að sætta okkur við það. Ég held að einnig sé nauðsynlegt að átta okkur á hvar við stöndum ef við ætlum að taka skrefin fram á við. Í dag erum við bara töluvert á eftir tuttugu bestu landsliðum heims og við höfum ekki nálgast þau á und- anförnum árum. Til að breyta því er nauðsynlegt að átta sig á því hver staðan er. Við sem hreyfing munum vonandi taka þau nauðsynlegu skref sem þarf til að breyta hlutunum og gera það í sameiningu.“ Hefur Arnar fundið fyrir meðbyr í hreyfingunni þegar hann hefur viðr- að þessar skoðanir sínar? „Já já, en auðvitað þarf maður að fara varlega þegar maður talar um þessa hluti. Á Íslandi er fullt af þjálf- urum og fullt af liðum sem eru að gera góði hluti. Ég er einfaldlega að benda á að staðan er a.m.k. ekki í samræmi við mínar væntingar og að við sem hreyfing getum gert betur.“ Nefndin skilar í nóvember Á síðasta ársþingi HSÍ var sam- þykkt að fela stjórn HSÍ að skipa nefnd til að móta stefnu til framtíðar fyrir handbolta kvenna hérlendis. Fram kom hjá Guðmundi B. Ólafs- syni, formanni HSÍ, í gær að útlit sé fyrir að nefndin skili af sér í nóv- ember. Bindur Arnar vonir við vinnu þessarar nefndar? „Ég geri það já og mér fannst já- kvætt hjá HSÍ að fara þessa leið. Ég á ekki von á öðru en að nefndin skoði einfaldlega hvernig staðan er og komi með hugmyndir um hvernig hægt sé að gera betur. Ég held að þetta sé gæfuspor.“ Í gær var einnig tilkynnt að HSÍ hafi komið á fót B-landsliði til að styrkja frekar umhverfi kvenna- landsliðsins. „Mér finnst skipta mjög miklu máli að ná snertifleti við fleiri leikmenn en við höfum verið með. Í komandi verkefni vantar til dæmis nokkra leikmenn. Við slíkar aðstæður höfum við fundið aðeins fyrir því að við fáum inn leikmenn sem langt er síðan voru í yngri landsliðum eða hafa ekki verið í landsliðum. Með B-landsliði getum við búið til snertiflöt við fleiri leik- menn. Þá er hægt að fara í gegnum það með þeim hvernig landsliðið vill spila og hverjar áherslurnar eru í leik liðsins. Þegar kallið kemur frá okkur varðandi A-landsliðið þá eru leikmenn með á hreinu til hvers er ætlast af þeim. Í stað þess að hafa unnið með tuttugu til tuttugu og fimm leikmenn þá verður sá hópur fjörutíu til fjörutíu og fimm leik- menn. Sem er allt annað og betra. Stundum þarf að gera breytingar og tilkoma B-landsliðsins ætti að auð- velda það. Umhverfið hefur verið þannig að þegar keppni með 18 ára landsliðinu lýkur þá hefur afskaplega lítið tekið við hvað varðar landsliðsverkefni. Nú geta efnilegir leikmenn komið inn í B-liðið og tekið þátt í landsliðs- verkefnum þar,“ segir Arnar og með auknu umfangi hefur tveimur þraut- reyndum fyrrverandi landsliðs- konum verið bætt við þjálf- arateymið. Tilkynnt var í gær að Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og Hrafnhildur Skúladóttir muni koma inn í þjálfarateymi landsliðsins ásamt Arnari og Ágústi. „Þær hafa reynslu af stórmótum. Þær eru miklir sigurvegarar þessar stelpur. Þær lögðu mikið á sig fyrir íþróttina og eru til fyrirmyndar að öllu leyti. Við erum því að fá sterkar persónur inn í teymið með okkur.“ Mæta einu besta liði heims Fram undan eru leikir gegn Sví- um ytra og Serbum hér heima 7. og 10. október í undankeppni EM 2022. Svíar léku um verðlaun á Ól- ympíuleikunum í Tókýó. „Við munum mæta Svíum úti en þær voru frábærar á Ólympíu- leikunum í sumar. Ég hef horft á leiki Svía á leikunum og þetta er eitt af betri landsliðum heims í dag. Það verður spennandi að mæta þeim og bera okkur saman við sænska liðið. Við gerum okkur al- veg grein fyrir því að við erum að mæta liði sem er töluvert sterkara en við. Í þeim leik viljum við sjá framfarir í okkar leik. Við viljum sjá leikmenn fara eftir skipulagi og styrkja þann grunn sem við höfum verið að vinna í. Ofan á það verður svo hægt að byggja í framhaldinu. Það á í raun við um báða leikina. Á meðan sænska liðið er líklega á meðal sex bestu liða í heimi þá er serbneska liðið á meðal fimmtán til átján bestu liðanna. Serbía á frá- bæra leikmenn. Við þurfum að nálgast það verkefni með svipuðum hætti en við verðum reyndar á heimavelli sem er alltaf betra. Eftir þetta verkefni myndum við vilja sjá liðið vera komið aðeins lengra og að grunnurinn verði traustari,“ segir Arnar Pétursson. - Í fréttum á mbl.is/sport/ handbolti má sjá landsliðshópana fyrir A-landsliðið og B-landsliðið. Takast þarf á við vandann - Landsliðsþjálfarinn segir Ísland ekki hafa nálgast bestu liðin - Hreyfingin þarf að bregðast við stöðunni - Vill sjá stórstígar framfarir á næstu árum Arnar Pétursson Morgunblaðið/Eggert Á Ásvöllum Rut Jónsdóttir og Ragnheiður Júlíusdóttir voru áberandi í leiknum gegn Slóveníu í apríl. ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2021 _ Fanndís Friðriksdóttir, leikmaður Vals í knattspyrnu, hefur framlengt samning sinn við félagið til næstu tveggja ára. Fanndís, sem er 31 árs gömul, gekk til liðs við Val frá Mar- seille í Frakklandi árið 2018 en hún er uppalin hjá ÍBV í Vestmannaeyjum. Hún lék tólf leiki með Íslandsmeist- araliði Vals í efstu deild í sumar þar sem hún skoraði fjögur mörk. Alls á hún að baki 216 leiki í efstu deild þar sem hún hefur skorað 111 mörk og þá á hún að baki 109 A-landsleiki þar sem hún hefur skorað 17 mörk en hún er ellefta leikjahæsta landsliðskona sög- unnar. _ Haukar, sem féllu úr úrvalsdeild karla í körfuknattleik á síðasta tíma- bili, ætla sér líklega ekki að staldra lengi við í 1. deildinni. Liðið lék sinn fyrsta leik á tímabilinu í gær og rót- burstaði ÍA á Skaganum 120:44. Shemar Deion Bute skoraði 26 stig fyrir Hauka. _ Gauti Guðmundsson, landsliðs- maður Íslands á skíðum, gerði góða ferð til Hollands um nýliðna helgi. Gauti keppti á tveimur svigmótum inn- andyra í Landgraaf, SnowWorld Cup ILC 2021 og Lowland Championship 2021. Hann gerði sér lítið fyrir og vann á báðum mótunum en hann undirbýr sig nú erlendis fyrir komandi keppn- istímabil. _ Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari karla í handknattleik, sagði ákvörðun forráðamanna Melsun- gen hafa komið sér á óvart á dögunum en þeir tóku þá ákvörðun að slíta sam- starfinu við Guðmund. Segist Guð- mundur hafa skömmu áður greint þeim frá áhuga danska liðsins Fre- derica. Guðmundur sagði frá þessu í hlaðvarpsþættinum Mín skoðun. _ Simone Biles, ein fremsta fim- leikakona sögunnar, segir að það hafi verið mistök að taka þátt í Ólympíu- leikunum í Tókýó síðasta sumar. Þetta kom fram í viðtali hennar við New York Magazine. Biles komst í úrslit í alls sex greinum í fimleikakeppni Ólympíu- leikanna í Tókýó en hætti keppni í fjór- um þeirra vegna andlegra erfiðleika. Hún fékk brons á jafnvægisslá í Tókýó og silfurverðlaun í liðakeppni með Bandaríkjunum.Vann hún til fernra gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Ríó árið 2016 og höfðu margir vonast til þess að hún myndi leika sama leik í Japan. „Það voru mistök að taka þátt á Ólympíuleikunum miðað við allt sem ég var búin að ganga í gegnum und- anfarin sjö ár,“ sagði Biles. Biles var misnotuð kynferðislega af Larry Nassar, fyrrverandi lækni bandaríska fimleikasambandsins, en hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir brot sín gegn bandarískum fim- leikakonum árið 2017. „Ég var stað- ráðinn í því að láta hann ekki ræna mig gleðinni í því sem ég var að gera. Ég var búin að byrgja þetta inni í mér í langan tíma og að lokum varð eitthvað undan að láta. Ég fann fyrir meira stressi, eftir því sem leikarnir nálg- uðust, og sjálfs- traustið var ekki eins og það var vanalega eftir langar og strangar æfing- ar.“ Eitt ogannað Lið Skautafélags Reykjavíkur fór upp í Grafarvog í gærkvöldi og vann Fjölni 6:2 í Egilshöllinni í Hertz-deild karla í íshokkí. Þótt undarlega kunni að hljóma þá skor- aði Fjölnir tvö fyrstu mörk leiksins en SR svaraði með sex mörkum. Styrmir Maack skoraði tvívegis fyrir SR og kom liðinu á blað eftir hálftíma leik. Þeir Gunnlaugur Þor- steinsson, Sölvi Atlason, Bjarki Jó- hannesson og Styrmir Friðriksson skoruðu eitt mark hver. Hilmar Sverrisson skoraði bæði mörkin fyrir Fjölni í leiknum. 2:0 staða Fjölnis dugði skammt Ljósmynd/Þórir Tryggvason Skoraði Styrmir Friðriksson skor- aði sjötta mark SR-inga í gær. Aðalsteinn Eyjólfsson er að gera góða hluti með svissneska liðið Ka- detten og sló í gær spænska liðið Granollers úr keppni í 2. umferð Evrópudeildarinnar. Kadetten vann samtals 68:60. Ýmir Örn Gíslason og liðsfélagar í Rhein-Neckar Löwen féllu úr keppni gegn Benfica 64:59. Kristján Örn Kristjánsson var markahæstur með 6 mörk hjá franska liðinu Aix sem vann Ar- endal samtals 67:49. GOG, lið Vikt- ors Gísla Hallgrímssonar, sló út Mors-Thy 57:51. Kadetten sló út Granollers AFP Markahæstur Kristján Örn Krist- jánsson skoraði sex mörk í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.