Morgunblaðið - 29.09.2021, Page 24

Morgunblaðið - 29.09.2021, Page 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2021 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Út að drepa túrista nefnist nýjasta bók Þór- arins Leifssonar sem einnig teiknaði í hana myndir og braut um. Í bókinni segir af lífs- þreyttum leiðsögumanni, Kalman Pétri, sem leggur í enn eina ferðina með erlenda ferða- menn en sú stefnir þó í að vera öllum öðrum ólík. Einn ferðamannanna finnst myrtur á hóteli í upphafi bókar og virðist nokkuð ljóst að einn hinna ferðamannanna er morðinginn. Lögreglan hefur rannsókn og Kalman leggur grunlaus af stað með fulla rútu af ferðamönn- um og fúllynda bílstjórann Magga. Þetta er glæpasaga og um leið svipmynd af íslenskri ferðaþjónustu, að því er fram kemur í tilkynningu og titillinn sagður leikur að þeirri þversögn að þótt stór hluti þjóðarinnar lifi af ferðaþjónustu séu tilfinningar margra Íslendinga til túrista ansi flóknar. Þeir bæði hati þá og elski. Stífur rammi Þórarinn hefur skrifað bækur fyrir börn og fullorðna og þær verið þýddar á fjölda tungu- mála. En nú kveður við nýjan tón því þetta er hans fyrsta glæpasaga. Hann er spurður að því hvers vegna hann hafi ákveðið að skrifa krimma. „Mig langaði til að gera bók sem myndi fá fleiri lesendur þann- ig að ég ákvað að gera stutta kafla, einskorð- aða við þúsund orð, minnir mig. Ég hef verið svo mikið í tilraunum að ég ákvað að setja ein- hvern stífan ramma utan um þetta og taka þá eitthvað sem er vinsælt og það eru til dæmis krimmar,“ svarar Þórarinn. „Ég vildi fá ein- hverja skál utan um efnið svo það myndi ekki flæða í allar áttir. Vaða úr einu sjónarhorni í annað, hafa stutta kafla. Þetta er svolítið eins og Netflix-sería.“ – Þú setur mjög skemmtilegan fyrirvara áður en sagan hefst, biður lesanda að athuga að fordómar, kynþáttahatur, fitusmánun, karl- remba, kvenfyrirlitning, minnihlutasmánun, mistök í leiðsögn og ýmiss konar óeðli séu ekki höfundar. „Já, já, nú á tímum er nauðsynlegt að hafa alltaf fyrirvara. Málið er að það er alltaf hætta á því að lesandinn tengi karakterana of mikið við mig og þá losna ég aldrei við þennan stimpil og hætti væntanlega að fá vinnu sem leiðsögumaður,“ svarar Þórarinn kíminn. Kalman siðlaus og brotinn – Mig langaði einmitt að spyrja þig hvort leiðsögumaðurinn Kalman Pétur sé að miklu leyti þú sjálfur eða byggður á þinni reynslu … „Já og nei. Allar þessar íslensku karl- persónur yfir þrítugu eru alltaf að einhverju leyti byggðar á mér en líka oft byggðar á fólki sem er í kringum mig. Þannig að ég passa mig náttúrlega á því að fara heldur ekki of nálægt. Að vera leiðsögumaður er svipað og að vera leikskólakennari þannig að Kalman leyfir sér miklu meira en ég myndi nokkurn tíma leyfa mér og meira að segja í hugsun. Hann er nokkuð siðlaus, í raun og veru, brotinn. En það eru element í honum úr mér og element úr mér líka í Magga bílstjóra,“ svarar Þór- arinn. Hann sé að leika sér svolítið með mið- aldra hvíta karlinn og líka leiðsögumanna- og bílstjóratýpurnar. Spaug í anda Fargo – Þetta er gamansöm glæpasaga, það er léttur tónn í henni, ekki satt? „Jú, ég er að reyna að ná svolítið þessum grófa húmor sem er til dæmis í kvikmyndinni Fargo,“ svarar Þórarinn og er í framhaldi spurður hvort fléttan sé í anda Agöthu Chris- tie, full rúta af grunuðum. Jú, hann staðfestir að svo sé og bendir í því sambandi á Morðið í Austurlandahraðlestinni. „Ég er að taka viljandi upp þá klisju til að reyna að setja einhver bönd á þetta. Bókin er á mörkunum að vera of fagurfræðileg þannig, eins og einhver lesandinn sagði. Ég er að reyna að gera það ekki, er að reyna að gera klisju, reyfara, en þar sem ég hef aldrei lesið mikið af þannig reyfurum er ég ekkert endi- lega að koma inn sem sérfræðingur í glæpa- sögum,“ segir Þórarinn. Hann nálgist formið utan frá, sem aðkomumaður, og sækist eftir því að bókin virki eins og Netflix-sería. Hún verði vonandi „hámlesin“. Þórarinn segir Covid-faraldurinn með öllum sínum takmörkunum, ferðamannaþurrð og hléum hafa bjargað sér að mörgu leyti. Covid hafi fært sér sögusviðið og auk þess heilt ár til að skrifa. Bókin er því allmikið innblásin af kófinu. „Og í raun og veru skrifuð beint inn í það, þessi vika sem gerist í miðjum mars er vika sem ég lifði sjálfur,“ bætir Þórarinn við og á þar við tímabilið sem sagan spannar. Beint upp úr dagbók Fremst í bókinni er upptalning á öllum ferðamönnum sögunnar, hinum látna og hin- um grunuðu. Lýsingarnar eru stuttar en oftar en ekki spaugilegar og Þórarinn er spurður hvort einhverjar þessara persóna séu byggðar á fólki sem hann hafi kynnst á ferðum sínum. „Já, lauslega og á stuttum atvikum sem ég hef lent í. Ég man eftir stelpu með dredda sem var augljóslega undir áhrifum ofskynjunar- lyfja og ég hef oftar en einu sinni dílað við Trump-ista, pólitíska öfgamenn. Oft eru setn- ingar sem þú lest í bókinni teknar beint upp úr dagbók hjá mér, ég held alltaf dagbók,“ segir Þórarinn. Hann hafi haldið dagbók allt frá því sonur hann fæddist árið 2011 og hún bæði hjálpað honum við bókaskrif og ýmsar upprifj- anir. Þórarinn er að lokum spurður hvort bókin verði gefin út á fleiri tungumálum og segir hann bandarískan þýðanda vinna að því að fá bókina gefna út á ensku. „Það skýrist í janúar eða febrúar, ég bind vonir við það og titillinn verður þá Killing Tourists,“ segir Þórarinn. – Þetta er ansi grípandi titill … „Já, Út að drepa túrista. Einhver sagði að þetta væri titill ársins,“ segir Þórarinn sposk- ur. Honum hafi líka tekist að rugla nokkra í ríminu á samfélagsmiðlum með þessum ágæta titli. Með túristum Þórarinn með tveimur grunuðum eða jafnvel grunlausum ferðamönnum. Skál sem heldur efninu inni - Leiðsögumaðurinn Þórarinn Leifsson drepur túrista í sinni fyrstu glæpasögu - Fordómar, smán, remba og margs konar óeðli eru ekki höfundar - Krimminn sá stífi rammi sem stuttir kaflarnir þurftu að setja Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykja- vík, RIFF, hefst á morgun, fimmtu- dag, og er nú haldin í 18. sinn. Að vanda verður sýndur fjöldi íslenskra stuttmynda í tveimur flokkum og sjónum þannig beint að grasrótinni í íslenskri kvikmyndagerð, að því er fram kemur í tilkynningu. Einni stuttmynd sem þykir skara fram úr verða veitt sérstök verðlaun. Í fyrri stuttmyndaflokknum eru tvær myndir sem voru í keppni á kvikmyndahátíðinni í Cannes í sum- ar sem þykir fágætt fyrir íslenskar stuttmyndir. Annars vegar er það stuttmyndin Frie Mænd eða Frjálsir menn sem er útskriftarmynd Óskars Kristins Vignissonar úr Konunglega danska kvikmyndaskólanum og fjallar um vináttu tveggja karl- manna sem vinna í fiskvinnslu, og hins vegar Céu De Agosto eða Ágústhiminn eftir brasilísku kvik- myndagerðarkonuna Jasmin Ten- ucci en myndin er brasilísk-íslensk samframleiðsla og segir af hjúkrun- arfræðingi sem leitar á náðir hvíta- sunnusöfnuðar á sautjánda degi skógarbruna í Amasón. Eldingar eins og við nefnist stutt- mynd sem er fyrsta leikstjórnar- verkefni Kristínar Bjarkar Krist- jánsdóttir sem er einnig þekkt sem tónlistarkonan Kira Kira og Frenjan eftir Þóreyju Mjallhvíti H. Ómars- dóttir segir frá konu á miðjum aldri sem verður sífellt önugri er kúa- hjörð tekur yfir borgina en hún er sú eina sem tekur eftir skepnunum. Poppararnir Jóhann Kristófer Stefánsson/Joey Christ og Bríet fara með aðalhlutverkin í Egginu, ástarsögu í framtíðarsamfélagi sem er leikstýrt af Hauki Björgvinssyni, og Klettur aldanna eftir Eron Sheean segir frá hermanni á flótta sem rekst á talandi klett og í eru Tómas Lemarquis og Ólafur Darri Ólafsson í aðalhlutverkum. Hinn flokkurinn er skipaður nemamynd- um og koma þær úr ýmsum áttum eins og sjá má á riff.is. Fimm íslenskar stuttmyndir eru svo sýndar á hátíðinni í öðrum flokk- um. Má þar nefna Ólafur Arnalds: Er við fæðumst sem sýnir lifandi flutning á tónlist Ólafs og skyggnist í hugarheim tónskáldsins þar sem einstakrar upplifunar af einingu náttúru, vitundar og listar er notið, eins og því er lýst í tilkynningu en Ólafur leikstýrir myndinni með Vincent Moon. Horfin borg í leikstjórn Magnúsar Andersen er sögð óður til Reykja- víkur þá og nú, innblásinn af sam- nefndu lagi Úlfs Eldjárns, og eru þessar tvær myndir hluti af tónlistarmyndaflokki hátíðarinnar. Tvær íslenskar stuttmyndir keppa um Gullna eggið, þar sem stuttmyndir þátttakenda í kvik- myndasmiðju hátíðarinnar, Talent Lab, eru sýndar. Það eru myndirnar Í gegnum stórmarkaðinn í fimm hlutum eftir Önnu-Mariu Jóakims- dóttir Hutri, dansmynd sem kjarnar hversdagsraunir nútímafjölskyld- unnar við vikulega matarsöfnun, og Panikkprósi eftir Ernu Mist sem sögð er ljóðrænn vitnisburður um einangrun, firringu og þýðingu þess að týnast í félagsskap við sjálfan sig. Síðast en ekki síst er svo nefnd stuttheimildarmyndin MÍR: Bylt- ingin lengi lifi eftir Hauk Hallsson sem verður sýnd sem hluti af „sovéskri tvennu“ með Village Detective: A Song Cycle eftir Bill Morrison, og er hluti af heimildar- myndadagskrá hátíðarinnar. Leikstýrir Ólafur Arnalds er annar tveggja leikstjóra stuttmyndarinnar Ólafur Arnalds: Er við fæðumst. Grasrótin í stuttmyndunum Söngleikurinn Moulin Rouge!, eða Rauða myllan!, hlaut flest verðlaun þegar bandarísku Tony-leikhús- verðlaunin voru afhent um helgina eða tíu alls. Söngleikurinn er byggður á kvikmynd Baz Luhr- manns frá árinu 2001 og hófust sýn- ingar á ný 24. september eftir langt hlé vegna Covid. Er söngleikurinn áströlsk framleiðsla og sá fyrsti sem slíkur sem hlýtur Tony- verðlaun sem besti söngleikur. Var hann tilnefndur til 14 verðlauna og af þeim sem hann hlaut má nefna verðlaun fyrir besta leikara í söng- leik en þau hlaut Aaron Tveit. Þá var söngleik- urinn verðlaun- aður fyrir bún- ingahönnun, lýsingu, hljóð, danshönnun og leikstjórn, svo nokkur verð- launa til viðbótar séu nefnd. Á Tony-hátíðinni var því sérstaklega fagnað að sýningar væru hafnar í leikhúsum á ný eftir langt Covid-hlé. Rauða myllan hlaut flest Tony-verðlaun Aaron Tveit Bandaríski rapparinn R. Kelly var í gær sakfelldur fyrir að hafa í ára- tugi beitt ungar þeldökkar konur og börn af báðum kynjum ofbeldi, mis- notað þau kynferðislega og haft milligöngu um slíka glæpi. Var hann ákærður fyrir fjölda brota og þeirra á meðal að hafa haldið ungum stúlk- um sem kynlífsþrælum. Í frétt The Guardian um sakfell- inguna segir að kviðdómur sem í sátu sjö karlar og fimm konur hafi komist að þessari niðurstöðu en rétt- arhöldunum lauk á föstudaginn var og höfðu þá staðið í sex vikur. Segir í fréttinni að framburður vitna hafi oft verið sláandi þar sem sagt var frá því hvernig Kelly misþyrmdi konum, stúlkum og drengjum. Kelly sýndi engin við- brögð þegar dómur var kveð- inn upp. Kelly heitir fullu nafni Robert Sylvester Kelly og er 54 ára. Mun hann hafa framið glæpi sína í um tvo ára- tugi og sagði lög- maður nokkurra fórnarlamba hans, Gloria Allred, að af öllum þeim rán- dýrum sem hún hefði sótt að í störf- um sínum, þeirra á meðal Harvey Weinstein og Jeffrey Epstein, væri Kelly það allra versta. Dómur verð- ur kveðinn upp 5. maí og gæti Kelly hlotið 20 ára fangelsisdóm. Kelly misþyrmdi konum og börnum R. Kelly

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.