Morgunblaðið - 29.09.2021, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 29.09.2021, Blaðsíða 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI THERE’S A LITTLE HERO INSIDE US ALL RYAN REYNOLDS – JODIE COMER – TAIKA WAITITI GEGGJUÐ NÝ GRÍNMYND FRÁBÆR NÝ MYND FRÁ MARVEL STUDIOS MYND SEM ALLIR VERÐA AÐ SJÁ Í BÍÓ SIMU LIU AWKWAFINA WITHMICHELLE YEOH ANDTONY LEUNG 92% KOMIN Í BÍÓ T H E T E L E G R A P H T H E G U A R D I A N E M P I R E TOTA L F I L M 90% Þ að er langt síðan síðast var gerð tilraun með hádegis- leikhús, er það ekki? Von- andi tekst vel til með til- raun Þjóðleikhússins í vetur. Það er í það minnsta hægt að segja að það fari vel af stað. Það lofar góðu að rýmið í kjallaranum sé sveigjanlegt, en ekki bundið við að leika á „hljóm- sveitarpallinum“, sem gerir engum greiða hvað varðar súlur, sjónlínur og innkomuleiðir. Að þessu sinni er leikið á stórum palli fyrir miðju með áhorfendur allt í kring og gengur vel að vinna með það form. Efnisskráin fram undan er for- vitnileg, og gaman að sjá að þar ætla tvö úr leikarahópi leikhússins að spreyta sig á leikstjórn, hugsan- lega í fyrsta sinn þótt ég ætli nú ekki að fullyrða það hástöfum. Í þessu fyrsta hádegi er það hins veg- ar hinn kornungi reynslubolti Gréta Kristín Ómarsdóttir sem heldur í taumana. Tilfinningin utan frá séð er að það hafi ekki verið ýkja krefj- andi verkefni, en þeim mun ánægju- legra. Leikverk sem ekki fylla upp í heila kvöldstund eru fáséð á fjölum atvinnuleikhúsa þótt formið lifi góðu lífi hjá áhugaleikfélögunum, þökk sé m.a. leikritunarnámskeiðum þar sem Bjarni Jónsson hefur ásamt fleirum leiðbeint. Absúrdleikhúsið, um og upp úr miðri síðustu öld, nýtti sér kosti stutta formsins og frelsið sem fæst í þrengri stakki, vinsæl verk af því tagi er til að mynda að finna hjá Ionesco, Beckett og Pinter. Endurómur úr húsi fáránleikans heyrist í nánast öllum stuttverkum nútímans og svo er einnig um Út að borða með Ester. Vantraust absúrdistanna á drama- tík og efasemdir um nauðsyn þess að hnýta lausa enda ganga aftur í þessari hálftíma löngu heimsókn okkar inn í líf tveggja eldri borgara í tilhugalífinu. Eða eru þau á þeim buxunum? Kannski sum þeirra, það er einn af spennugjöfum verksins hvað Hauk langar mikið að komast upp á milli Esterar og framliðins eiginmanns hennar. Annar, sem er kannski frekar gleðigjafi en spennu-, er hvað þeim Hauki og Ester hefur gengið vel að verða gömul hjón, með öllum þeim samstillingar- og núnings- áhrifum sem svoleiðis samlífi ber með sér, án þess að vera slík hjón, eða hafa endilega þekkst mjög lengi. Og þá má spyrja: af hverju reyn- ist þessi mótsagnakennda staða ekki galli á verki Bjarna Jónssonar, og sýningunni í Leikhúskjallaranum þegar til kastanna kemur? Það má tefla fram tveimur skýringum. Önnur er arfur úr absúrdleik- húsinu; órökvísi og óræðni getur vel verið listræn ákvörðun í þeirri hefð frekar en höfundaglöp. Það sama má segja um það stílbragð að leika tveimur skjöldum um hvort fjórði veggurinn umlyki persónurnar eða ekki, eins og Bjarni leikur sér mjög skemmtilega með hér. Hin er aldeilis framúrskarandi frammistaða reynsluboltanna á sviðinu. Það er hreinn unaður að horfa úr návígi á þennan dans Guðrúnar Gísladóttur og Sigurðar Sigurjónssonar. Eftir á að hyggja er engin leið að tilgreina hvað kveikti hin tíðu hlátrasköll í kjallaranum. Sýningin er ekki keyrð áfram á orðaleikjum, hnyttiyrðum eða farsa- brellum svo böndin berast að algeru öryggi flytjendanna. Þetta er fyndið af því að það er satt, er stundum sagt og það er upplifunin af þessum fyrstu og einu kynnum af Ester og Hauki. Og það er einmitt áreynslu- laus og afslöppuð fimi Guðrúnar og Sigurðar sem sannfærir okkur um að allt sé satt. Gulu tónarnir í búningum Evu Signýjar Berger gerðu svo sitt til að létta brúnina á bæði leikurum og áhorfendum. Heilt yfir alveg hin prýðilegasta hádegisstund hjá gest- um Leikhúskjallarans, þótt allt sé í óvissu með framtíðina hjá Hauki og Ester. Parið á næsta borði Prýðileg Sigurður Sigurjónsson og Guðrún S. Gísladóttir í Út að borða með Ester sem er prýðileg hádegisstund. Þjóðleikhúsið Út að borða með Ester bbbbn Eftir Bjarna Jónsson. Leikstjórn: Gréta Kristín Ómarsdóttir. Leikmynd og bún- ingar: Eva Signý Berger. Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson. Leikarar: Guðrún S. Gísladóttir og Sigurður Sigurjónsson. Frumsýning í Leikhúskjallaranum í Þjóð- leikhúsinu miðvikudaginn 22. septem- ber 2021. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Kvikmyndahátíð- in Nordatlantiske Filmdage fer fram 30. septem- ber til 10. október í menningar- húsinu Norður- bryggju í Kaup- mannahöfn og að þessu sinni verð- ur sérstök áhersla lögð á þá farsælu þróun sem átt hefur sér stað í íslenskri kvikmyndagerð upp á síð- kastið, að því er segir í tilkynningu. Íslensku myndirnar eru Bergmál eftir Rúnar Rúnarsson, Fúsi eftir Dag Kára Pétursson, Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálmason, Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson og Tryggð eftir Ásthildi Kjartansdótt- ur. Rúnar, Ásthildur og Benedikt munu spjalla um kvikmyndir sínar að loknum sýningum og verða hinar kynntar af dönskum kvikmynda- fræðingum. Í lok hátíðar mun Norðurbryggja bjóða upp á sérstaka hátíðarsýningu á Last and First Men eftir Jóhann Jóhannsson heitinn, í samstarfi við sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn, og mun kvikmyndatökumaðurinn Sturla Brandth Grøvlen kynna myndina en hann lauk við gerð hennar eftir fráfall Jóhanns. Ísland í öndvegi Ásthildur Kjartansdóttir Fyrstu tónleikar haustdagskrár Jazzklúbbsins Múlans fara fram í Flóa í Hörpu í kvöld kl. 20. Á þeim kemur fram Unnur Birna & Björn Thoroddsen Band. Verða hin- ir ýmsu tónlistar- stílar leiknir af alúð, eins og því er lýst í tilkynningu, og í því sambandi nefnd samsuða af djassi, django, blús, rokki og poppi. Með Unni Birnu og Birni leika Skúli Gíslason á trommur og Sigurgeir Skafti á bassa. Haustdagskrá Jazzklúbbsins Múlans heldur áfram á miðviku- dagskvöldum fram í miðjan desem- ber og er klúbburinn nú á sínu 24. starfsári. Hinir ýmsu stílar Unnur Birna Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.