Morgunblaðið - 13.10.2021, Qupperneq 1
Friðrik krónprins Danmerkur kom
hingað til lands í gær og snæddi
kvöldverð á Bessastöðum með for-
seta Íslands, Guðna Th. Jóhannes-
syni. Með prinsinum í för var utan-
ríkisráðherra Danmerkur, Jeppe
Kofod, og sendinefnd tíu danskra
fyrirtækja og samtaka.
Prinsinn og sendinefndin eru hér á
landi til þess að styrkja viðskipta-
tengsl Íslands og Danmerkur á sviði
sjálfbærra lausna í orkumálum. Frið-
rik krónprins mun ræða við leiðandi
aðila í þróun orkumála hér á landi
meðan á heimsókn hans stendur. Er
landið fyrsti áfangastaður krón-
prinsins í ferðum hans í þágu Dan-
merkur eftir heimsfaraldurinn.
Kvöldverðinn á Bessastöðum í gær
sátu einnig Guðlaugur Þór Þórðar-
son utanríkis- og þróunarsamvinnu-
ráðherra Íslands, Kirsten Geelan
sendiherra Danmerkur á Íslandi,
Guðmundur Ingi Guðbrandsson um-
hverfis- og auðlindaráðherra og Þór-
dís Kolbrún R. Gylfadóttir ferða-
mála-, iðnaðar- og nýsköpunar-
ráðherra.Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ræddu
saman yfir
kvöldverði
M I Ð V I K U D A G U R 1 3. O K T Ó B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 240. tölublað . 109. árgangur .
HLUTABRÉFA-
EIGN AUKIST Í
FARALDRINUM
SPILA VIÐ
REAL MADRID
Á ÚTIVELLI
KYNNGIMAGN-
AÐUR SPENNU-
TRYLLIR
MEISTARADEILDIN 23 ÍSLENSKU BARNABÓKAVERÐLAUNIN 24VIÐSKIPTAMOGGINN
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari ís-
lenska karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu, gat ekki valið alla þá leik-
menn sem hann hafði hug á að
velja í landsliðshóp sinn fyrir
nýafstaðna leiki gegn Armeníu og
Liechtenstein í undankeppni HM.
Þetta herma heimildir Morgun-
blaðsins.
Hinn 27. september barst stjórn
Knattspyrnusambands Íslands
tölvupóstur frá aðgerðahópnum
Öfgum en innihald tölvupóstsins
var flokkað sem trúnaðarmál á
stjórnarfundi sambandsins sem
fram fór 30. september.
Daginn eftir kynnti Arnar Þór
svo leikmannahóp sinn fyrir leikina
tvo sem fram fóru 8. og 11. október
á Laugardalsvelli. Margir leikmenn,
sem hafa verið lykilmenn í liðinu
undanfarin ár, voru þar fjarverandi.
Tölvupóstur Öfga innihélt meðal
annars nöfn á sex leikmönnum
karlaliðsins og dagsetningar yfir
meint ofbeldis- og kynferðisbrot
þeirra samkvæmt
heimildum Morg-
unblaðsins.
Aron Einar
Gunnarsson, Kol-
beinn Sigþórsson
og Gylfi Þór Sig-
urðsson hafa allir
verið nafn-
greindir í íslensk-
um fjölmiðlum
fyrir meint brot en hinir þrír hafa
ekki verið nafngreindir. Þeir hafa
allir verið fastamenn í íslenska
landsliðshópnum undanfarinn ára-
tug og eiga allir að baki fjölda
landsleikja fyrir A-landsliðið.
Mál landsliðsmannanna er nú til
skoðunar hjá Sigurbjörgu Sigur-
pálsdóttur, samskiptaráðgjafa
íþrótta- og æskulýðsstarfs ÍSÍ, en á
meðan málin eru til skoðunar hjá
ÍSÍ eru þeir ekki gjaldgengir í ís-
lenska landsliðið, að því er heim-
ildir Morgunblaðsins herma.
bjarnih@mbl.is
Sex landsliðsmenn sakaðir um brot
- Landsliðsþjálfarinn gat ekki valið þá leikmenn sem hann hafði hug á að velja
Arnar Þór
Viðarsson
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri tel-
ur íslenskt samfélag standa frammi
fyrir sögulegu tækifæri við að
tryggja varanlega lágt vaxtastig í
landinu.
„Ég held að þetta sé ákveðin próf-
raun sem við stöndum nú frammi
fyrir. Ef við náum að halda aftur af
verðbólgunni og komumst í gegnum
þetta án þess að okkur sé þröngvað í
harðar aðgerðir, þá gætum við séð
nafnvaxtakerfið á húsnæðislánum
festa sig í sessi. Og ef við stöndum í
lappirnar með þetta þá gætum við
séð verðtrygginguna heyra sögunni
til.“
Hann segir þó að þetta muni ekki
raungerast nema með virkri þátt-
töku þriggja aðila; ríkisstjórnarinn-
ar, aðila vinnumarkaðarins ásamt
Seðlabankanum.
Hann varar við því að ráðist verði í
ósjálfbærar launahækkanir í kjara-
samningum á komandi árum. Hækki
laun hér á landi umfram það sem
gerist í nágrannalöndunum brjótist
það út í verðbólgu fyrr eða síðar.
Hann segir mikilvægt að hags-
munaaðilar hætti að horfa á tekju-
færslur og einblíni frekar á fjárfest-
ingar sem komi öllu samfélaginu vel.
„[…] Þetta býður einnig upp á
ákveðna möguleika á vinnumarkaðn-
um um að í stað þess að hækka laun-
in verði ráðist í stórfellda uppbygg-
ingu íbúðarhúsnæðis. Rétt eins og
gert var þegar Breiðholtið byggðist
upp.“
Með slíkri uppbyggingu megi
mæta vaxandi eftirspurn eftir íbúð-
arhúsnæði og kæla fasteignamark-
aðinn, sem nú er helsta ógnin við
verðstöðugleika í landinu.
Einblíni ekki á launaliðinn
- Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri varar við höfrungahlaupi á vinnumarkaðnum
- Stórfelld uppbygging íbúðarhúsnæðis vænlegri lausn til að bæta stöðu heimilanna
MViðskiptaMogginn
Morgunblaðið/Eggert
Hagkerfi Ásgeir Jónsson segir nafn-
vaxtaumhverfið geta fest sig í sessi.
Orkukreppa geis-
ar á meginlandi
Evrópu og hefur
orkuverð ríflega
tvöfaldast á
stærstu mörk-
uðum.
Sigríður
Mogensen, sviðs-
stjóri iðnaðar- og
hugverkasviðs SI,
segir líklega um
skammtímasveiflu að ræða.
Raunar sé búist við að orkuverðið
fari aftur lækkandi, í ljósi stór-
aukinnar áherslu á framleiðslu endur-
nýjanlegrar orku. Sú framleiðsla
verði að hluta niðurgreidd með íviln-
unum. Það muni aftur hafa áhrif á
samkeppnisstöðu Íslands.
Tækifærin háð orkuvinnslu
„Þannig að við þurfum að nýta okk-
ar samkeppnisforskot sem snýr ekki
aðeins að orkuverði og sveiflum á því
heldur þeirri staðreynd að hér eru
99,9% orkunnar nú þegar endur-
nýjanleg. Tækifærin sem geta skap-
ast hér á landi eru hins vegar háð því
að frekari orkuvinnsla eigi sér stað,“
segir Sigríður.
Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri
Samáls, segir orkuskort í Kína skýra
að hluta hækkandi álverð en ál-
framleiðslan þar sé fimm milljónum
tonna minni en ella. Álverð fór í gær
yfir 3.100 dali í kauphöllinni í London
og hefur það ekki gerst síðan 2008.
»ViðskiptaMogginn
Sigríður
Mogensen
Umbrot á
orku- og
álmarkaði