Morgunblaðið - 13.10.2021, Síða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2021
KANARÍ
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS
18. - 29. OKTÓBER | 11 DAGAR Á
Íslendingar hafa sótt í dásamlegar strendur
Kanarí áratugum saman og er eyjan einn
vinsælasti áfangastaður Úrvals Útsýnar.
Betri stað í sólarfrí er erfitt að finna, fyrir unga
sem aldna. Jafnt hitastig, þægilegt loftslag,
hreinar strendur og stórbrotið landslag er
eitthvað sem heillar alla!
VERÐ FRÁ:89.900 KR.
á mann m.v. tvo fullorðna og 2 börn
Verð frá 105.900 kr. á mann m.v. 2 fullorðna
FLUG OG VALIN GISTING Á KANARÍ
11 DAGA FERÐ | 18. - 29. OKTÓBER
GOLF
VERÐ FRÁ219.900 KR.Á MANN M.V. 2. FULLORÐNA18
KTÓBER
. - 29. O
BEINT FLU
G
TIL KANA
RÍ
89.900 KR.
BÁÐAR LEIÐIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Útlit er fyrir að endurgreiðslur
vegna kostnaðar við kvikmynda-
framleiðslu hér á landi verði lægri í
ár en í fyrra. Samkvæmt yfirliti á vef
Kvikmyndamiðstöðvar Íslands nema
endurgreiðslur rétt ríflega 700 millj-
ónum króna það sem af er ári. Það er
um það bil helmingi minna en greitt
var út árið 2020 en hafa ber þó í huga
að enn er talsvert eftir af árinu.
Þannig hefur ekki verið greitt enn út
fyrir íslenskar kvikmyndir á borð við
Saumaklúbbinn eða Dýrið auk þess
sem myndir á borð við Birtu og
Leynilöggu hafa ekki verið frum-
sýndar.
Endurgreiðslurnar í ár skiptast
nær jafnt á milli innlendra og er-
lendra verkefna. Alls voru 312 millj-
ónir króna greiddar út vegna raun-
veruleikaþáttanna The Challenge
sem sýndir eru á MTV og teknir
voru upp í fyrra, meðal annars við
Jökulsárlón og á Þingvöllum. Þá
voru ríflega 30 milljónir greiddar út
vegna stórmyndarinnar Dungeons
and Dragons. Umtalaðir heimildar-
þættir breska sjónvarpsmannsins
Alexanders Armstrongs, þar sem
hann heimsótti meðal annars Reð-
ursafnið, fengu 2,7 milljónir.
Hæstu endurgreiðsluna af ís-
lenskum verkefnum hefur kvik-
myndin Svar við bréfi Helgu fengið,
um 59 milljónir króna. Fjöldi sjón-
varpsþátta hefur fengið endur-
greiðslur í ár. Áramótaskaupið og
Kappsmál, sem framleiddir voru fyr-
ir Ríkissjónvarpið, fengu samtals 31
milljón króna og Hver drap Friðrik
Dór? 15 milljónir. Skítamix Dóra
DNA fékk rúmar fimm milljónir og
hinir umdeildu þættir Hækkum rána
fengu 13 milljónir. Þættirnir Á flakki
með Loga fengu tæpar 10 milljónir
og Æði fengu fimm milljónir.
Þá vekur nokkra athygli að tón-
listarþættirnir Í kvöld er gigg, þar
sem Ingólfur Þórarinsson fékk til sín
gesti og spilaði vinsæl lög, fékk 21
milljón króna í endurgreiðslu. Það
þýðir að framleiðsla þáttanna hefur
kostað yfir 80 milljónir króna enda
eiga framleiðendur kvikmynda og
sjónvarpsefnis kost á endurgreiðslu
á allt að 25% framleiðslukostnaðar
sem fellur til hér á landi.
Yfir 700 milljónir í endurgreiðslur
- Hæsta greiðslan vegna raunveruleikaþátta MTV - Útlit fyrir að greiðslur verði lægri í ár en í fyrra
- Tugmilljónir vegna íslenskra sjónvarpsþátta - 21 milljón greidd vegna þáttanna Í kvöld er gigg
Dungeons and Dragons 31
The Challenge 312
Alexander Armstrong's
Icelandic Adventure 3
Amma Hófí 16
Áramótaskaupið 13
Kappsmál 18
Hver drap Friðrik Dór? 15
Í kvöld er gigg 21
Svar við bréfi Helgu 59
Á flakki með Loga 10
Hvernig á að vera
klassa drusla 10
Æði 5
Endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar 2021
Helstu verkefni
Heimild: Kvikmyndamiðstöð Íslands
355
m.kr.
360
m.kr.
715 milljónir
kr. alls
Erlend
verkefni
Innlend
verkefni
m.kr.
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í
gær á aðalkröfur fjögurra yfirlög-
regluþjóna hjá embætti ríkislög-
reglustjóra um að greiða beri
þeim laun í samræmi við sam-
komulag sem Haraldur Johann-
essen, þáverandi ríkislögreglu-
stjóri, gerði við þá í lok ágúst
2019.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir,
eftirmaður Haraldar, ákvað eftir
að hún tók við embættinu í mars
2020 að launahækkanirnar yrðu
afturkallaðar, og hélt verjandi
hennar því fram að samkomulagið
við Harald hefði verið óskuldbind-
andi þar sem það hefði verið gert í
andstöðu við lög, kjarasamning og
stofnanasamning. Héraðsdómur
féllst hins vegar ekki á þau rök.
Óskar Bjartmarz, fyrrverandi
yfirlögregluþjónn og einn þeirra
sem stefndu embætti ríkislög-
reglustjóra og íslenska ríkinu,
sagðist í samtali við mbl.is í gær
vera ánægður með niðurstöðuna
enda fallist á þær dómkröfur sem
settar voru fram í nafni fjórmenn-
inganna.
Sigríður Björk segir í samtali
við Morgunblaðið að ekki sé tíma-
bært að tjá sig um málið, þar sem
hún vilji gefa sér tíma til að skoða
dómana og ræða við fjármálaráðu-
neytið um hvort þeim verði áfrýj-
að. gunnhildursif@mbl.is
Ríkislögreglustjóri varð undir
- Í skoðun hjá ráðuneyti hvort dómunum verði áfrýjað
Vel gekk að flytja 53 grindhvalshræ
úr Melavík á Ströndum um borð í
varðskipið Þór í gær en hvalirnir
syntu á land aðfaranótt 2. október sl.
og drápust í fjörunni. Til stóð að
sigla með hræin í nótt norður fyrir
Langanes og varpa þeim þar í sjóinn.
Varðskipið kom á tíunda tímanum
í gærmorgun í Trékyllisvík og lagð-
ist við festar rétt fyrir utan Melavík.
200 mílna sigling
Páll Geirdal, skipherra á Þór,
sagði við Morgunblaðið að vissulega
hefði þetta verið nokkuð óvenjulegt
verkefni sem varðskipsmenn feng-
ust við í gær. Vel hefði gengið að
flytja hvalshræin um borð í varð-
skipið. Þau voru dregin að skipinu
með harðbotnabátum og hífð um
borð en heimamenn í Árneshreppi
aðstoðuðu áhöfnina við verkið í fjör-
unni. Síðasta hræið var komið um
borð í Þór á sjötta tímanum seinni-
partinn í gær. Páll sagði áformað að
sigla með hvalina norður fyrir land
og varpa þeim í sjóinn um 30 sjómílur
út af Langanesi, þar væru haf-
straumar sem myndu bera þau frá
landinu. Gerði Páll ráð fyrir að sigl-
ingin gæti tekið um sólarhring en
siglingaleiðin er um 200 sjómílur.
Grindhvalavöður hafa nokkrum
sinnum strandað hér við land á síð-
ustu árum, flestar voru þær árið
2019. Ekki er vitað um ástæður þess-
arar hegðunar, sem virðist árstíða-
bundin, en líffræðingar eru með ýms-
ar kenningar um það hvers vegna
hvalirnir leiti á land. gummi@mbl.is
Vel gekk að flytja
hvali um borð í Þór
- Siglt með hræin norður fyrir Langanes
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Óvenjulegur farmur 52 grindhvalshræ voru flutt um borð í varðskipið Þór.