Morgunblaðið - 13.10.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 13.10.2021, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Unnið hefur verið að viðgerð á lista- verkinu Fallandi gengi sem stendur austast við Bæjarháls í Árbæjar- hverfi. Þetta er skúlptúr frá árinu 1976 eftir myndlistarmanninn Inga Hrafn Hauksson. Verkið er í eigu Listasafns Reykjavíkur. Á þessum árum var óðaverðbólga í landinu og gengisfellingar tíðar. Vísar nafn verksins til ástandsins sem þá ríkti. Það var farið að láta á sjá eftir öll þessi ár og þarfnaðist viðgerðar. Verkið stendur á tveggja metra háum steinsteyptum stöpli og var gert við hann í leiðinni. Ingi Hrafn Hauksson fæddist 30. desember 1941 og lést í ágúst 1983, aðeins rúmlega fertugur. Nú eru lið- in rúm 50 ár síðan Ingi Hrafn vakti þjóðarathygli fyrir verkið Fallinn víxill sem sýnt var á höggmynda- sýningu á Skólavörðuholti í sept- ember 1968. Sýndar voru 32 högg- myndir og var Fallinn víxill sú fyrsta sem seldist. Það var sænskur verk- fræðingur sem keypti verkið á 60 þúsund íslenskar krónur. sisi@mbl.is Að undanförnu hefur verið unnið að viðgerð á listaverki sem stendur austast við Bæjarháls í Árbæjarhverfi Fallandi gengi er sem nýtt Morgunblaðið/Unnur Karen Hjónavígslum hér á landi fækkaði í fyrra um tæp 14% frá árinu á undan samkvæmt nýju yfirliti Hagstofu Ís- lands yfir hjónavígslur og skilnaði. Bent er á í umfjöllun Hagstofunnar að ekki sé þó hægt að draga þá álykt- un að heimsfaraldur kórónuveirunn- ar sé skýringin á þessari fækkun þar sem fjöldi hjóavígslna hafi verið mjög breytilegur á milli ára. Hjónavígslur voru alls 1.831 á seinasta ári eða fimm á hverja eitt þúsund íbúa, en þær voru töluvert fleiri eða 2.075 á árinu 2019, eða 5,8 á hverja þúsund íbúa. Sjá má á yfirliti Hagstofunnar að borgaralegum vígslum hefur fjölgað mikið á umliðnum árum. Um sein- ustu aldamót voru þær 677 talsins á einu ári eða 14,6% af öllum hjóna- vígslum á landinu en þær voru 727 á árinu 2019 og 677 í fyrra eða ríflega þriðjungur allra hjónavígslna. Kirkjulegum vígslum hefur á hinn bóginn fækkað nokkuð. Þær voru 1.200 á árinu 2001 en tveimur ára- tugum síðar voru þær 1.154. „Tíðasti aldur, meðalaldur og mið- aldur við hjúskap hefur hækkað hjá bæði konum og körlum en árið 2001 var tíðasti aldur brúðguma 27 ára og brúða 28 ára. Árið 2020 var meðal- aldur brúðguma 32 ár og brúða 30 ár. Meðalaldur karla við upphaf hjú- skapar er venjulega um tveimur ár- um hærri en kvenna,“ segir í umfjöll- un Hagstofunnar. Fram kemur að þó að lögskilnuð- um hafi fjölgað úr 545 á aldamóta- árinu í 687 í fyrra, er fjöldi þeirra stöðugur yfir tímabilið þegar litið er á lögskilnaði á hverja þúsund íbúa eða 1,9 í fyrra á þúsund íbúa. Aldur þeirra sem skilja hefur hækkað nokkuð á umliðnum árum. Fram kemur að á síðustu fimm árum hafa flestir þeirra sem skilja verið á aldrinum 35 til 44 ára. Sjá má af töl- um Hagstofunnar að aldur þeirra sem skilja hefur farið hækkandi á umliðnum árum. Þannig var t.a.m. meðalaldur karla við lögskilnað 41,9 ár um seinustu aldamót en var kom- inn upp í 46,1 ár í fyrra. Meðalaldur kvenna við lögskilnað var 39,3 ár árið 2001 en hafði hækkað í 43,1 ár í fyrra. Sem fyrr segir hefur aldur hjónaefna við hjúskap hækkað á um- liðnum árum og algengasta lengd hjónabands sem endar með skilnaði virðist því ekki hafa breyst í sama mæli. Hjúskapartíðni hækkaði hér Í samanburði við önnur lönd kem- ur fram að annars staðar á Norður- löndunum var hjúskapartíðni hæst í Danmörku eða 5,3 á hverja þúsund íbúa árið 2019. Frá 2010 til 2019 lækkaði hjúskapartíðni í Noregi, Finnlandi og Svíþjóð en hækkaði yfir sama tíma á Íslandi og var 5,5 á hverja þúsund íbúa hér frá 2016 til 2020. Lægsta hjúskapartíðni er í Finnlandi og Noregi eða um fjórar hjónavígslur á hverja þúsund íbúa, að því er fram kemur í umfjöllun Hagstofunnar. omfr@mbl.is Hjónavígslum fækkaði um 14% í fyrra - Borgaralegum vígslum hefur fjölgað mikið - Karlar og konur ganga í hjúskap nokkru eldri en áður fyrr og skilnaðir eiga sér stað síðar á lífsleiðinni - Meðalaldur brúðguma 32 ár og brúða 30 ár í fyrra Vígslur og skilnaðir » Borgaralegar hjónavígslur voru 11,9% af öllum hjóna- vígslum á árinu 1990 en þær voru 37% á seinasta ári. » Kirkjulegar hjónavígslur voru 83% allra hjónavígslna árið 1980 en 63% í fyrra. » Tíðni skilnaða er svipuð í ná- grannalöndunum og á Íslandi. Hún var 1,8 á þúsund íbúa í Danmörku og 1,9 í Noregi árið 2019 en tveir lögskilnaðir á þúsund íbúa á Íslandi sama ár. Fjöldi hjónavígslna á hverja 1.000 íbúa 1971 til 2020 Tegund hjónavígslna 1971 og 202010 8 6 4 2 1971 1978 1985 1992 1999 2006 2013 2020 Heimild: Þjóðskrá Íslands 5,0 5,8 4,0 6,3 8,8 7,9 Kirkjulegar vígslur Borgaralegar vígslur 63% 37%7% 93% 1971 2020 Arctic Circle-ráðstefnan, Hringborð norðurslóða, verður sett í Hörpu á morgun, fimmtudag, og stendur yfir í þrjá daga. Þingið er fyrsti stóri al- þjóðlegi viðburðurinn um málefni norðurslóða síðan Covid-19 hófst. Yfir 100 málstofur fara fram þar sem ríflega 400 ræðumenn taka til máls. Meðal þeirra eru þjóðarleiðtogar, forstjórar fyrirtækja, vísindamenn og talsmenn umhverfisverndar. Samkvæmt upplýsingum frá ráð- stefnuhöldurum er norðurslóða- samfélagið að koma saman í fyrsta sinn síðan forsetar Bandaríkjanna og Rússlands ræddu ítarlega um málefni norðurslóða á fundi sínum í Genf í sumar. Ný staða norðurslóða á vettvangi heimsmálanna verði því ofarlega á baugi í Hörpu næstu daga. Við upphaf ráðstefnunnar á morg- un mun Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra flytja ræðu. Ný stefna ESB í málefnum norðurslóða verður kynnt á opnunarfundinum af Virg- inijus Sinkevicius, ráðherra ESB um málefni umhverfis, hafs og fiskveiða. Bandarískir öldungadeildarþing- menn taka til máls og einnig ráð- herra úr nýrri ríkisstjórn Græn- lands, Naaja Nathanielsen. Málefni Grænlands verða rædd sérstaklega í nokkrum málstofum. Nicola Sturgeon, forsætisráð- herra Skotlands, flytur einnig ávarp á opnunarfundi Arctic Circle, sem og Jeppe Kofoed, utanríkisráðherra Dana, Jongmoon Choi, aðstoðarut- anríkisráðherra S-Kóreu, Bárður Á. Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, og Valery Falkov, ráðherra vísinda í Rússlandi. 100 málstofur og 400 ræðu- menn um norðurslóðir - Þjóðarleiðtogar á Arctic Circle sem hefst á morgun Morgunblaðið/Eggert Norðurslóðir Katrín Jakobsdóttir og Ólafur Ragnar í umræðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.