Morgunblaðið - 13.10.2021, Page 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2021
Margvísleg útilokun er vinsæl
um þessar mundir og sækir
á ef eitthvað er. Útilokunin er iðu-
lega í nafni frjálslyndis eða góð-
mennsku, nema hvort tveggja sé,
og skýtur sú tenging skökku við.
- - -
Í hlað-
varpi
breska
vikuritsins The Spectator var á
mánudag rætt um þá ákvörðun
háskólans í Nottingham að hafna
kaþólskum presti sem biskup
hafði tilnefnt þar sem skóla-
yfirvöld voru ósátt við tíst prests-
ins.
- - -
Í umfjölluninni kom fram að tíst-
in hefðu aðeins verið í sam-
ræmi við trúarsannfæringu kaþ-
ólskra og boðun kaþólsku
kirkjunnar, en skólinn var ósáttur
við hvernig presturinn tjáði sig
um fóstureyðingar og líknarmorð.
- - -
Fleiri dæmi um fórnarlömb úti-
lokunarinnar voru rakin í
þessum umræðum og áhyggjum
lýst af því hversu langt í þessa átt
sumir háskólar hefðu gengið.
Sumir þeirra voru þó sagðir reyna
að spyrna við fótum og stjórnvöld
voru einnig sögð vilja bregðast við
þessari áráttu og reyna að verja
tjáningarfrelsið með lagasetningu.
- - -
Athyglisvert er að útilokunin
beinist jafnan að borgara-
legum eða íhaldssömum sjónar-
miðum og þeim sem taldir eru
hallast til hægri í stjórnmálum.
Hinir þurfa ekki að sæta slíkri úti-
lokunarmeðferð, sama hversu
langt þeir ganga.
- - -
Það er fagnaðarefni að vinstri-
menn fái að tjá sig hindr-
unarlaust, en allir ættu að samein-
ast um að hið sama gildi líka um
hina.
Tjáning fyrir suma,
útilokun annarra?
STAKSTEINAR
ÓLATILBOÐ
Malika125
með
setu
verð
. vsk.
20
óll
erð
vsk.
05
aðri setu
verð
m. vsk.
Malika1
Staflast
Tilboðsv
14.648 m.
Malika1
Með bólstr
Tilboðs
18.907
Staflastóll
bólstraðri
Tilboðs
20.269 m
ST
Malika100
Tilboðsverð
13.664 m. vsk.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Ákvörðun um flutning embættis-
manna er í höndum veitingarvalds-
hafa og hefur veitingarvaldshafi
heimild til að flytja embættismann í
annað starf án auglýsingar, það er í
starf almenns starfsmanns, sam-
kvæmt 36. grein laga um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins (70/
1996). Forsenda þess er að allir hlut-
aðeigandi aðilar séu samþykkir því.
Sé það gert skal greiða embættis-
manninum launamismun, ef starfið
sem hann tekur við er lægra launað
en fyrra starf, þann tíma sem eftir er
af skipunartíma hans.
Þetta kom fram í svari fjármála-
og efnahagsráðuneytisins við fyrir-
spurn Morgunblaðsins. Hún var
send í framhaldi af frétt um að Páll
Matthíasson, fyrrverandi forstjóri
Landspítalans, hefði óskað eftir til-
flutningi úr starfi forstjóra í stöðu
sérfræðings á Landspítalanum.
Í þessu tilfelli var veitingarvalds-
hafi heilbrigðisráðuneytið og féllst
heilbrigðisráðherra á beiðni forstjór-
ans fyrrverandi. Jafnframt kom
fram að Páll héldi óbreyttum kjörum
út skipunartíma sinn, það er í tvö og
hálft ár. Auk sérfræðistarfa sinna
verður hann nýjum forstjóra innan
handar og sinnir tilteknum verkefn-
um á vegum ráðuneytisins í
tengslum við spítalann. gudni@mbl.is
Óbreytt laun út skipunartímann
- Veitingarvaldshafi getur flutt
embættismann á milli starfa
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Landspítali Fyrrverandi forstjóri
spítalans lét nýlega af því starfi.
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
Rannsókn lögreglunnar á Vest-
urlandi á kæru Karls Gauta Hjalta-
sonar er lokið en hann kærði nið-
urstöðu kosninganna til lögreglu
vegna endurtalningar í kjördæminu
og meðferðar yfirkjörstjórnar á
kjörgögnum við talningu.
Þetta staðfesti Gunnar Örn Jóns-
son, lögreglustjóri á Norðurlandi
vestra, í samtali við mbl.is í gær.
Kæra Karls Gauta beinist að end-
urtalningunni sem varð til þess að
hann og fleiri jöfnunarþingmenn
annarra flokka duttu af þingi og nýj-
ir úr sömu flokkum komu í þeirra
stað.
Segir talninguna gallaða
Karl Gauti efast um lögmæti end-
urtalningarinnar og segir í bréfi til
yfirkjörstjórnar í Norðvestur-
kjördæmi:
„Fyrir liggur að endurtalning eða
einhvers konar endurskoðun hafi
farið fram mörgum klukkustundum
síðar eftir að lokatökur voru til-
kynntar og eftir að kjörstjórn yfir-
gaf talningarstað. Vandséð er með
hvaða lagaheimild sú endurskoðun
eða talning fór fram og þar með lög-
mæti þeirrar endurskoðunar.
Þá skal upplýst að framkvæmd
hennar hefur verið kærð til lögreglu
vegna mögulegra lögbrota við fram-
kvæmd endurtalningar yfirkjör-
stjórnar á greiddum atkvæðum í
Norðvesturkjördæmi.“
Í fréttum gærdagsins kom einnig
fram að undirbúningsnefnd kjör-
bréfanefndar Alþingis myndi, við sín
störf, afla gagna frá lögreglu um
málið.
Rannsókn lokið á
kæru Karls Gauta
- Nefnd Alþingis
mun safna gögnum
frá lögreglu
Morgunblaðið/Hari
Alþingi Karl Gauti Hjaltason, fyrr-
verandi þingmaður Miðflokksins.