Morgunblaðið - 13.10.2021, Side 12

Morgunblaðið - 13.10.2021, Side 12
SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is S vonefndar framkvæmda- rannsóknir eru í miklum meirihluta þeirra forn- leifarannsókna sem fram fóru í sumar og er raunar ekki öll- um lokið. Rannsóknin á Seyð- isfirði, sem stofnað var til vegna fyrirhugaðra ofanflóðavarna, verð- ur til dæmis út þessa viku enda hefur veðurfar verið óvenju hag- stætt fyrir útivinnu þar eystra að undanförnu. Alls veitti Minja- stofnun leyfi til 28 framkvæmda- rannsókna í ár. Á vef stofnunar- innar eru þær skilgreindar sem „fræðileg rannsókn á fornleifum sem ákveðið hefur verið að rann- saka vegna framkvæmda. Yfirleitt unnin innan strangs tímaramma og kostnaðaráætlunar.“ Að auki voru fornleifafræðingar við eftirlit á þremur stöðum þar sem fram- kvæmdir voru í gangi. Þrettán vísindarannsóknir Hreinar vísindarannsóknir voru þrettán í sumar og tvö leyfi voru veitt til björgunarrannsókna vegna minja í hættu.Vísindarann- sóknirnar voru margar framhald á rannsóknum sem áður voru hafn- ar. Bjarni F. Einarsson og sam- starfsmenn á Fornleifafræðistof- unni voru við uppgröft á Stöð í Stöðvarfirði og Arfabót á Mýrdals- sandi; starfsmenn Fornleifastofn- unar Íslands voru á sjö stöðum, í Svarfaðardal, á Odda á Rang- árvöllum, í Ólafsdal, á Staðarhól í Dölum, Eyrarbakka, Selströnd og Galtafelli í Hrunamannahreppi. Sólrún Inga Traustadóttir stýrði rannsókn á vegum Háskóla Íslands á fornum minjum í Árbæ og Steinunn J. Kristjánsdóttir hélt áfram rannsókn á Þingeyrum þar sem leitað er minja um klaustrið sem þar var á miðöldum. Síðan var framhaldið rannsókn Háskólans á Hólum á landnámsminjum í Hjaltadal undir forystu Guðnýjar Zoëga. Loks var veitt leyfi til rannsóknar á vegum Háskóla Ís- lands á Búðatanga í Hrísey. Margir áhugasamir Hægt er að kynna sér margar þessara fornleifarannsókna á Facebook-síðum sem forsvars- menn þeirra halda úti. Eru margir áhugasamir um það og fylgjast grannt með fréttum sem þar eru birtar. Oft eru þar myndir af forn- gripum sem nýkomnir eru upp úr jörðinni og þykja forvitnilegir eða óvæntir fundir. Allir gripir sem finnast fara í forvörslu og frekari rannsókn þegar greftri er lokið. Ekki reynast þeir alltaf vera það sem fyrst sýnist. Framkvæmdarannsóknir skila ekkert síður óvæntum fundum en hreinar vísindarannsóknir. Dæmi um það er kumlateigurinn í landi Fjarðar á Seyðisfirði sem enginn átti von á. Þar hafa fundist tvö bátskuml með mannabeinum og dýrabeinum. „Með bátskumli er vísað til þess að hinn látni hefur verið lagður til hvílu í bát en sá siður virðist hafa verið algengari í Noregi en á Íslandi,“ segir á heimasíðu rannsóknarhópsins Antikva. Af um 400 kumlum sem grafin hafa verið upp hérlendis frá upphafi fornleifarannsókna eru að- eins ellefu slík kuml. Bátskumlin á Seyðisfirði eru jafnframt þau fyrstu sem finnast á Austfjörðum að undanskildu barnskumli með litlum báti sem fannst að Straumi í Hróarstungu. Leitað klausturminja Meðal vísindarannsókna í sumar var uppgröftur á Þing- eyrum undir stjórn Steinunnar J. Kristjánsdóttur. Er þetta þriðja sumarið í röð sem grafið er á staðnum.Verkefnið er að afla upp- lýsinga um klaustrið sem þar var fyrr á öldum. Á Þingeyrum reis ritmenning hátt um tíma, einar 20 bækur sem þar voru skrifaðar hafa varðveist en ljóst þykir að mun fleiri hafa verið samdar. Það var fyrst í sumar sem fornleifa- fræðingarnir komust niður á klausturminjarnar því ofan á þeim eru ríkulegar minjar frá síðustu öldum. Meðal gripa sem komu upp úr jörðinni í sumar var forn inn- siglishringur og húfa sem var tískuvara fyrr á öldum. Áður hafði fundist kirkjukambur sem munkar notuðu í trúarlegum tilgangi ásamt leifum af skóm, bænaperl- um og sveskjusteinum sem eru frá tímum klausturhaldara. Lykill frá víkingaöld? Rannsókn Fornleifastofnunar undir stjórn Kristborgar Þórs- dóttur á manngerðum helli frá miðöldum á Odda á Rangárvöllum hefur vakið talsverða athygli. Ekki hafa margir fornir gripir fundist en mannvirkin sjálf eru stærri og betur gerð en menn ímynduðu sér. Reyndar kom fágætur gripur í ljós framan við hellismunnann snemma í ágúst, lykill sem er líklega frá víkingaöld. Hann verður rannsak- aður betur í vetur. Fornleifar rannsak- aðar á nær 50 stöðum Ljósmynd/Af heimasíðu Þingeyrarannsóknarinnar Klaustur Þriðja sumarið í röð var leitað að minjum um klaustrið sögu- fræga á Þingeyrum. Þar voru merkar bækur samdar á miðöldum. 12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Alþjóðagjald- eyris- sjóðurinn tilkynnti í gær að efnahagsviðreisn heimsbyggðarinnar væri að fatast flug- ið. Því valda meðal annars aukin smit í sumum heimshlutum, vandræði á helstu aðfangakeðjum heims og orkuskortur, sem allt munu reynast dragbítur á viðreisnina. Talið er að það hægist á hagvexti heimsins árið 2022 niður í 4,9%, eftir kröftugan vöxt á þessu ári, nær 6% samkvæmt spám, en síð- an verði hann um 3,3% að jafn- aði. Fyrir þessu eru margvíslegar ástæður, en í grunninn ræðir þar um misgengi framboðs og eftir- spurnar. Eftirspurn hefur aukist mikið eftir að hörðum sótt- vörnum heimsfaraldursins var aflétt, en á hinn bóginn hefur framboðið látið á sér standa. Við bætist orkuskortur víða um lönd, sem að hluta má rekja til ofuráherslu á grænar lausnir í nafni boðaðrar loftslagsvár, sem hefur latt menn til fjárfestingar á vinnslu jarðefnaeldsneytis, en skortur á því tefur efnahagsbat- ann. Efnahagsástand heimsins á sennilega eftir að versna áður en það batnar á ný. Enginn skyldi efa að þessu umróti heimsbyggð- arinnar mun einnig skola á Ís- lands strendur fyrr en varir. Verðbólga er þegar farin að reigja sig í helstu viðskiptalönd- um Íslands, en aðeins af þeirri ástæðu – alls óháð innlendum að- stæðum – mun verðbólga að öðru óbreyttu aukast hér á landi. Hún verður flutt inn með vöru að ut- an, sem Íslendingar reiða sig svo ákaflega á. Sú verðbólga mun óhjákvæmilega hafa áhrif á vaxtastigið og fyrir því munu þeir fyrst finna, sem tekið hafa óverðtryggð lán. Það mun hafa áhrif á hagkerfi heimilanna og getur hæglega leitt til víðtækari ólgu í samfélaginu. Það bætist á óvissu vegna kjaraviðræðna rétt handan við hornið. Engum ætti að dyljast að atvinnulífið er ekki aflögufært, en samt talar forysta verkalýðs- hreyfingarinnar um að það sé „nóg til“, sem lýsir stakri raun- veruleikafirringu, skeyting- arleysi eða ábyrgðarleysi. Því það er ekki nóg til og ríkisvaldið er ekki lengur í stöðu til þess að hlaupa aftur undir bagga, líkt og gert var í miðjum heimsfaraldr- inum. Þrátt fyrir þau óveðursský við sjóndeildarhring er ástandið ekki alslæmt. Það var mikil gæfa að ríkis- sjóður var einstaklega vel búinn til þess að fást við heims- faraldurinn. Sömuleiðis hafa gleðitíðindin um loðnuna veruleg áhrif. Margt bendir til þess að ferðaþjónustan taki hraustlega við sér. Ísland er í kjörstöðu til þess að brynja sig gegn orkukreppu með því að gera átak í orkuskiptum, sem þó verður vit- anlega að fram- kvæma af skynsemi og yfirvegun til að Ísland lendi ekki í sömu ógöngum og ríki í Evrópu. Eins gefur sagan okkur skýr for- dæmi um að það megi ná skyn- samlegum samningum á vinnu- markaði, þar sem viðsemjendur sýna hófsemd til þess að komast út úr kórónukreppunni og bægja frá víðtæku og viðvarandi at- vinnuleysi. En það má nefna fleiri tæki- færi; tækifæri sem kalla á póli- tískt frumkvæði, dug og þor. Til þess er einmitt tækifæri nú, þeg- ar rætt er um endurnýjað stjórn- arsamstarf, verkaskiptingu og markmið. Brýnast er að halda aftur af verðbólgu og vaxtahækkunum og til þess höfum við ráð. Hin vel heppnaða sala á hlut í Íslands- banka og hækkandi gengi hans vísar veginn til frekari sölu á hlut ríkisins í honum, en á sama tíma þyrfti að draga úr útgáfu ríkisskuldabréfa. Það mundi færa okkur nær settu marki. Raunar mætti vel ganga lengra en það með sölu á öðrum fjárfestingum ríkisins og má nefna Landsbankann í því sam- bandi, jafnvel aðeins að minni- hluta til. Ríkissjóður þarf nauð- synlega á auknu fé að halda og fráleitt að hafa á sama tíma stór- kostlega fjármuni bundna, al- gerlega að þarflausu. Um leið væri unnt að seðja uppsafnaða fjárfestingaþörf á markaði, hemja ríkisskuldabréfaútgáfu og tempra vexti. Á vettvangi stjórnmálanna hefur verið rætt um umbætur í félagsþjónustu gagnvart börn- um og eldra fólki. Ekki þó síður um heilbrigðiskerfið, sem tekur til sín gríðarlega fjármuni, en hefur samt ekki náð að uppfylla þarfir þjóðarinnar. Við blasir að þar, líkt og víðar á vettvangi hins opinbera, má ná betri árangri og hagkvæmni með endur- skipulagningu og hagræðingu. Í heilbrigðiskerfinu er það meira að segja alger forsenda þess að heilbrigðiskerfið sé starfi sínu vaxið, en auknar fjárveitingar einar gætu gert illt verra. Þar mun reyna á fyrrnefnt frumkvæði, dug og þor við samn- ingaborð formanna stjórn- arflokkanna, en þar mun líka reyna á forystu, frumleika og fyrirhyggju. Sagt er að kosn- ingaúrslitin feli í sér ákall um stöðugleika, en þau voru ekki ákall um stöðnun. Á næstunni kemur í ljós hvort stjórnarflokk- arnir eru vandanum vaxnir. Verkefnið er skýrt og þess er beðið að þeir móti stefnuna fram veginn, þar sem saman fara verðmætasköpun, velferð og vel- sæld. Á viðsjárverðum tímum í efnahags- málum heimsins er Ísland í einstakri stöðu} Verkefnið er skýrt O rkumál munu skipa veglegan sess í stjórnmálunum næstu árin. Fyrir liggur að raforkukerfi landsins er nánast fullnýtt á sama tíma og við stefnum að umfangsmiklum orku- skiptum á næstu áratugum. Markmið stjórn- valda er að Ísland verði kolefnishlutlaust eftir um 20 ár og að 10 árum síðar – um miðja öldina – verði notkun jarðefnaeldsneytis hætt. Þess- um markmiðum verður ekki náð nema með aukinni nýtingu endurnýjanlegra orkuauðlinda landsins. Þar er einkum um að ræða fallvötnin og jarðhitann en líklegt er að vindorka bætist einnig við sem þriðja stoð orkubúskaparins. Sérfræðingar eru sammála um að mikilvæg- asta verkefni þjóða heims gegn loftslagsbreyt- ingum – loftslagsvánni sem svo er nefnd – felist í því að hverfa frá notkun jarðefnaeldsneytis og nýta þess í stað endurnýjanlega orkugjafa. Þetta gerist ekki með öðrum hætti en þeim að náttúruöflin verði beisluð og nýtt í mun meiri mæli en nú er. Þar erum við í ákjósanlegri stöðu í samanburði við flestar aðrar þjóðir vegna þeirrar stefnu um nýtingu jarðhita til húshit- unar og orku fallvatnanna til framleiðslu rafmagns sem fylgt hefur verið á undangengnum áratugum. Til þess að ná markmiðum okkar um orkuskipti þurfum við að ráðast í frekari virkjun fallvatna og jarðhitans auk vindorkunnar. Samhliða því að einfalda og auðvelda alla umsóknarferla liggur verkefnið í því að fella orkunýt- inguna að almennri stefnumörkun okkar í umhverfis- málum; finna heppilegt jafnvægi á milli stefnu um nýtingu náttúruauðlinda annars vegar og verndarsjónarmiða hins vegar. Ekki verður bæði haldið og sleppt í þeim efnum. Við búum svo vel að þegar eru fyrir hendi miklir mögu- leikar á orkuöflun í landinu án þess að eyði- leggja þurfi þær dýrmætu auðlindir sem við eigum í náttúrufegurð landsins. Þau verðmæti eru eitt helsta aðdráttarafl ferðamanna sem hingað koma. Þetta tvennt getur vel farið sam- an ef rétt er haldið á málum. Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefst í Glasgow í Skotlandi í lok mánaðarins. Ákallið um græna orku og fráhvarf frá jarð- efnaeldsneyti mun væntanlega setja mark sitt á umræður ráðstefnugesta. Sú stefna kallar á mikið rask á núverandi orkuöflun heimsins, enda er það óhjákvæmilegt. Vandinn verður ekki leystur nema á löngum tíma og ekki nema með því að nýta náttúruna með skilvirkum en um leið sjálfbærum hætti líkt og við Íslendingar höfum gert. Þá er átt við vatnsaflið og jarðvarmann en einnig sólarorku, vindorku og jafnvel kjarnorkuna. Við Íslendingar getum ekki staðið hjá eða skilað auðu gagnvart þessu stóra verk- efni sem þjóðir heims standa frammi fyrir. Tækifærin eru líka fyrir hendi, bæði til að framleiða orku, minnka losun gróðurhúsalofttegunda og efla tækniþróun í landinu. Okk- ur ber að nýta þau tækifæri. aslaugs@althingi.is Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Nýtum tækifærin í orkumálum Höfundur er dómsmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.