Morgunblaðið - 13.10.2021, Page 16

Morgunblaðið - 13.10.2021, Page 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2021 ✝ Tama Sólbjörg Vestergaard fæddist í Lopra á Suðurey í Fær- eyjum 23. apríl 1936. Hún lést 23. september 2021 á LSH. Foreldrar hennar voru hjónin Jens Sofus Vester- gaard frá Sumba á Suðurey, f. 1905, d. 1980, og María Vestergaard, fædd Brynjólfs- dóttir, frá Eyrarsveit á Snæ- fellsnesi, f. 1909, d. 2003. Tama var þriðja í röð fjögurra systk- ina. Elst er Esther Brynhild Nielsen, f. 1930, gift Rasmusi Nielsen, f. 1924, d. 1997, býr í Sandavági í Færeyjum, Her- garð, f. 1931, d. 2016, bjó í Stykkishólmi, Ingibjörg Ves- tergaard, f. 1938, gift Sólver Hafsteini Guðnasyni, f. 1937, búsett í Garðabæ. Tama ólst upp hjá foreldrum sínum í Lopra og gekk þar í skóla, en 18 ára fór hún á hús- mæðraskóla í Danmörku. Eiginmaður Tömu var Davíð Guðmundur Bjarnason bifreiða- stjóri, f. 1940, d. 1983. Hann var Áróra Ásgeirsdóttir, f. 1997. 4) Bjarni Sigurður, f. 1972, d. 2019, var búsettur í Reykjavík. Fyrir átti Tama Maj-Britt Ves- tergaard sjúkraliða, f. 1957, gift Guðmundi G. Haraldssyni pró- fessor, f. 1953, búsett í Kópa- vogi. Börn þeirra eru: a) María Vestergaard, f. 1977, sam- býlism. Eiður Fannar Erlends- son, f. 1981, synir þeirra eru Guðmundur Gunnar, f. 2005, Erlendur Fannar, f. 2011, og Kristján Jens, f. 2014. b) Har- aldur Gunnar, f. 1987, sam- býlisk. Ebba Sif Möller, f. 1987, og eiga þau Guðmund Gunnar, f. 2017. c) Hjálmar Vesterga- ard, f. 1989, og á hann Sonju Björt Ylfu- og Hjálmarsdóttur, f. 2014. Tama vann við ýmis störf, m.a. hjá ríkisskattstjóra til fjölda ára, saman stofnuðu Dav- íð og Tama og ráku fyrirtækið Plastpökkun hf. um nokkurra ára skeið. Tama vann nokkur ár á Hótel Sögu og loks sem að- stoðariðjuþjálfi hjá Lömuðum og fötluðum. Sambýlismaður Tömu til 30 ára er Gísli Þórðarson bifreiða- stjóri, f. 1944, ættaður frá Öl- keldu, Staðarsveit á Snæfells- nesi. Seinustu mánuðina bjó Tama á dvalarheimilinu Ísafold í Garðabæ. Útför Tömu fór fram í kyrr- þey 4. október 2021 frá Linda- kirkju í Kópavogi. ættaður úr Stykk- ishólmi og voru foreldar hans hjón- in Kristín Bryn- hildur Davíðsdóttir og Bjarni Sigurður Jakobsson. Börn þeirra eru: 1) Súsanna Hel- en hjúkrunarfræð- ingur, f. 1958, gift Skafta Gunnars- syni viðskiptafræð- ingi, f. 1959, búsett í Garðabæ. Börn þeirra eru: a) Berglind Björk, f. 1992, sambýlism. Oddvar Godø Elgvin, f. 1995. b) Birta Dögg, f. 1994. c) Ásdís Hrund, f. 1997. 2) Sigríður Ása, f. 1960, búsett í Reykjavík. Son- ur hennar er Davíð Guðmundur Arnarson, f. 1987. 3) Kristín Brynhildur kennari, f. 1962, gift Ásgeiri Loga Ásgeirssyni fram- kvæmdastjóra, f. 1963, búsett á Ólafsfirði. Börn þeirra eru: a) Sæunn Tamar, f. 1990, sam- býlism. Sigtryggur Arnþórsson, f. 1984, börn þeirra eru Arnþór, f. 2017, og Áróra Kristín, f. 2021. b) Gunnlaug Helga, f. 1995, sambýlism. Kristján Jóns- son, f. 1988. c) Sigurbjörg Mér er bæði ljúft og skylt að rita eftirmæli um kæra tengda- móður mína, Tömu Vesterga- ard, sem lést 23. september sl. 85 ára gömul. Ég kynntist Tömu þegar ég fór að gera hos- ur mínar grænar fyrir Maj- Britt elstu dóttur hennar, sem þá var nýkomin til náms á Ís- landi frá Færeyjum þar sem hún ólst upp hjá móðurforeldr- um sínum. Tama bjó þá í Skerjafirðinum ásamt fjöl- skyldu sinni, Davíð Bjarnasyni og börnum þeirra hjóna þeim Súsönnu, Siggu, Stínu og Bjarna. Er ekki að orðlengja það að fjölskyldan tók þessum rauðhærða efnafræðinema opn- um örmum frá fyrstu tíð. Tama fæddist og ólst upp í Lopra, litlu þorpi á syðsta hluta Suðureyjar í Færeyjum. For- eldrar hennar voru sæmdar- hjónin Jens Vestergaard frá ná- grannabænum Sumba og kona hans María Brynjólfsdóttir sem var fædd og uppalin á Snæfells- nesi. Í Lopra gekk María jafn- an undir nafninu Íslandskonan, en þangað fluttist hún 1930. Þar var starfrækt hvalveiðistöð í meira en hálfa öld frá 1901- 1953. Má því nærri geta að mikið líf hefur verið í Lopra á uppvaxtarárum Tömu því þar starfaði fjöldi manns við vinnslu á afurðum stórhvela. Faðir hennar var mikið fjarvistum sem sjómaður á miðum við Ís- land og Grænland og á stríðs- árunum sigldi hann með fisk- afurðir til Bretlands. Að hætti Færeyinga stundaði hann sauð- fjárrækt í Lopra, sjóróðra þeg- ar hann dvaldi heima og skaff- aði vel af fiski, sjófugli og eggjum til heimilisins úr björg- unum á Suðurey. Allt þetta mótaði Tömu á æskuárunum í Færeyjum. Tama var hæglát en glaðvær og kát kona, heilsuhraust, hörkudugleg og samviskusöm. Þau Davíð voru okkur einstak- lega góðviljuð og gjafmild og nutum við ómældrar velvildar þeirra og gæsku. Það var Tömu og okkur öllum mikið áfall þeg- ar Davíð féll frá aðeins 43 ára gamall 1983. Tama gafst ekki upp og lagði enn harðar að sér. Hún hafði mikinn metnað fyrir börnin sín, fjölskyldur þeirra, ömmubörnin og síðar lang- ömmubörnin. Hún setti hag þeirra ávallt í fyrirrúm enda var hún þeim öllum einkar kær. Það var Tömu mikið gæfu- spor þegar hún kynntist eftirlif- andi sambýlismanni sínum til þriggja áratuga, Gísla Þórðar- syni frá Ölkeldu í Staðarsveit. Þau voru mjög samhent og ferð- uðust saman til fjarlægra landa, m.a. Asíu og Afríku, og höfðu ómælda ánægju af. Gísli reynd- ist Tömu stoð og stytta þegar hún varð fyrir heilsubresti 2013 sem og í veikindum Bjarna son- ar hennar sem féll frá 2019. Gísli sinnti henni af aðdáunar- verðri natni, fórnfýsi, alúð og fagmennsku í veikindum henn- ar. Á Gísli svo sannarlega mikið hrós skilið, ómælt þakklæti og virðingu allra ástvina Tömu. Tama var myndarleg kona, reglusöm, hógvær og þægileg í umgengni. Hún var tónelsk og söng dátt á góðri stundu að hætti Færeyinga. Hún var fróð- leiksfús, vel lesin og fróð um ýmsa hluti og hafði unun af að deila margvíslegum fróðleik með fjölskyldu og vinum og fylgdist ætíð vel með. Ég er stoltur af að hafa átt sóma- konuna Tömu að tengdamóður. Blessuð sé minning Tömu Ves- tergaard og sendi ég öllum að- standendum hennar nær og fjær mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Guðmundur G. Haraldsson. Mig langar að minnast tengdamóður minnar, Tömu Vestergaard Bjarnason, með nokkrum orðum. Okkar fyrstu kynni voru er ég og dóttir henn- ar, Kristín, vorum að byrja að draga okkur saman. Þá var ég í Stýrimannaskólanum í Reykja- vík og gat róið lausaróðra með Eggert Gíslasyni á Njálnum í Faxaflóann. Fengum við oft ýmsan meðafla sem við í áhöfn- inni fengum að „gramsa“ í soð- ið. Þannig gat ég fært Stínu nokkur lúðulok, sem hún svo aftur fór með heim í Einars- nesið. Leiddi þetta til þess að Tama vildi fá að sjá þennan mann sem var svona ötull við að draga björg í bú. Stína var nú eitthvað treg til, fannst sam- bandið kannski ekki komið á þann stað að hún vildi fara að kynna piltinn fyrir fjölskyldunni ennþá. Þá brá Tama á það ráð að bjóða mér í mat. Nú skyldi elduð lúða eins og ég hefði aldr- ei fengið hana tilreidda áður. Og allt gekk þetta eftir. Og nú erum við hér, komin að kveðjustund. Minningarnar eru margar. Á gleðistundum eins og í brúðkaupi okkar Stínu þegar Tama fékk hljómsveitina til að spila ákveðið lag fyrir sig og skellti sér svo með alla boðs- gesti í „kónga“, gegnum allt fé- lagsheimilið Tjarnarborg, út á Aðalgötu og stoppaði þar alla umferð meðan kjóran var að lið- ast í gegn og inn í hús aftur. Þegar hún kom og heimsótti okkur til Tromsö og á Andenes og svo síðar hingað norður til Ólafsfjarðar. Þegar Gísli kom inn í líf hennar og hún blómstr- aði. Á sorgarstundum þegar hún sá á eftir syninum, langt fyrir aldur fram. Svo eftir að heilsan brást henni, heilablæðing sem svipti hana mætti öðrum megin í lík- amanum. Hvernig hún barðist áfram og reyndi að lifa lífinu lif- andi. Hún fylgdist vel með, bæði fréttum almennt en svo sérstaklega afkomendum sínum. Vissi allt um alla. Hver var að gera hvað og var alveg sann- færð um að þetta myndi allt ganga vel hjá viðkomandi. Hún var mikill Færeyingur í sér. Þrátt fyrir að hafa alið lungann úr sinni ævi hér á Ís- landi, þá áttu Færeyjar stærst- an sessinn í hjarta hennar og huga. Hún fylgdist með jarð- gangagerð og samgöngubótum þar ytra og átti ekki orð yfir máttleysi Íslendinga á því sviði í samanburði. Hún var alveg með það á hreinu hvar Færeyinga var að finna í boltaíþróttunum hér heima og hélt sérstaklega með Leiftri meðan þar voru Jens Martin, Uni Arge og fleiri góðir menn. Ef Færeyingur tók þátt í hæfileikakeppni í Dan- mörku sem síðan var sjónvarp- að, þá fengum við símtal þar sem okkur var góðfúslega bent á að nú skyldum við fylgjast með. Með þessum orðum vil ég þakka kynnin og samfylgdina. Megir þú hvíla í friði og eiga góða ferð. Ásgeir Logi Ásgeirsson. Með söknuð í hjarta kveðjum við ömmu okkar, Tömu. Amma var góð kona og stundum aðeins of góð. Hún setti alla aðra en sjálfa sig í fyrsta sæti og vildi allt fyrir alla gera. Þetta er merkilegur hæfileiki sem marga skortir, að minnsta kosti að ein- hverju leyti. Amma var full af hlýju og til hennar voru allir velkomnir. Á heimilinu var æv- inlega til kaka og maður vissi, að ef maður færi til ömmu og afa Gísla, þá fengi maður eitt- hvað gott. Amma og afi Gísli voru líka dugleg að koma norð- ur til okkar á meðan heilsan hennar ömmu leyfði. Þegar amma kom gekk hún strax í húsverkin, spilaði músík og bak- aði skúffuköku fyrir okkur syst- ur. Amma var einhvern veginn alltaf að hjálpa til. Hún var einnig góð vinkona okkar systra. Við gátum talað við hana um strákamálin og alltaf fylgd- ist hún með þótt hlutirnir væru komnir í eina flækju. Amma varð mjög heilsulítil eftir heila- blóðfallið en hún var alltaf skýr. Afi Gísli annaðist ömmu allan tímann og mætti helst tala um afrek í þeim efnum. Amma var svo sannarlega heppin með fólk- ið sem stóð henni næst enda vorum við heppin með hana. En nú er komið að kveðjustund og kveðjum við ömmu okkar með þeirri kveðju sem hún var vön að nota. Elsku amma, Guð veri með þér og passi upp á þig (koss og faðmlag). Sæunn, Gunnlaug og Sigurbjörg. Elsku amma Tama. Það er svo sárt hvað þú kvaddir þenn- an heim skyndilega. Við héldum að við fengjum meiri tíma. Þú varst alltaf svo dugleg, þraut- seig og gafst aldrei upp. Hjarta- hlýrri manneskju var erfitt að finna og þú vildir alltaf allt fyrir alla gera. Við munum sakna þess að heyra sögurnar þínar og heyra þig syngja. Þú varst orðin svo hress og svo gaman að sjá þig dansa við uppáhaldslagið þitt „Iko Iko“. Þú varst alltaf með allt á hreinu, fylgdist alltaf með öllum í kringum þig, hvað börn og barnabörn þín voru að bralla. Þú elskaðir tónlist, söng og dans og varst stoltur Færeying- ur. Þú varst vön að hringja og passaðir sko upp á að láta okk- ur vita ef það voru Færeyingar að keppa í keppnum. Þú hlust- aðir mikið á útvarp, bæði ís- lenskt og færeyskt, og sögur og varst dugleg að segja frá því. Einnig lumaðir þú alltaf á bröndurum og það var alltaf stutt í hláturinn. Þú varst alveg einstaklega góð og gjafmild, vildir allt fyrir alla gera og settir sjálfa þig aldrei í fyrsta sæti, allir aðrir komu á undan. Þér fannst gam- an að fara í búðir og passaðir upp á að allir ættu nóg og eng- an vantaði neitt. Þið Gísli elsk- uðuð að ferðast og voruð ekki hrædd við að fara á framandi slóðir sem var svo aðdáunar- vert. Þú varst einnig mikill dýra- vinur og þér þótti mjög vænt um Ronju litlu. Þú spurðir alltaf um hana og skildir hana sko ekki út undan, keyptir á hana föt og alltaf fékk hún líka jóla- gjöf. Ronja vissi líka alveg hjá hverjum hún gæti fengið smá matarbita við matarborðið. Þú varst einstaklega hand- lagin og varst dugleg að búa til eitthvað í höndunum svo sem að prjóna, mála, búa til glerlist og svo margt fleira. Okkur þykir óendanlega vænt um alla fallegu hlutina sem þú bjóst til og gafst okkur. Það var aldrei langt í trúna og fórst þú alltaf með bænirnar þínar, baðst fyrir öllum í kring- um þig. Takk amma fyrir að vera sú sem þú varst, svo góð, hlý, fyndin, sterk og þrautseig. Þú varst alla tíð ákveðin og trú sjálfri þér. Takk fyrir að hafa alltaf verið til staðar fyrir okk- ur. Takk fyrir allt sem þú hefur gefið okkur. Takk fyrir allar stundirnar saman og góðu minningarnar. Takk fyrir öll jól- in saman, þau verða tómleg án þín. Þín verður sárt saknað elsku amma Tama. Við vitum að þú ert á betri stað. Hvíl í friði. Þínar ömmudætur, Berglind Björk, Birta Dögg og Ásdís Hrund. Tama Vestergaard Bjarnason Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, tengdaamma og langamma, SÓLRÚN ÓLAFSDÓTTIR, bókari og fyrrv. bóndi, Kirkjubæjarklaustri II, varð bráðkvödd föstudaginn 8. október. Hún verður jarðsungin frá Prestsbakkakirkju á Síðu laugardaginn 23. október klukkan 13. Guðrún Lárusdóttir Þórarinn Leifsson Fanney Ólöf Lárusdóttir Sverrir Gíslason Kristín Lárusdóttir Guðbrandur Magnússon barnabörn og barnabarnabarn Elskuleg systir okkar, MAGNEY STEINGRÍMSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 45, lést á Hrafnistu Sléttuvegi fimmtudaginn 7. október. Útförin verður auglýst síðar. María Steingrímsdóttir Bragi Steingrímsson Magnús Steingrímsson og fjölskyldur ✝ Jacob Jacob- sen fæddist í Reykjavík 24. apr- íl 1943. Hann lést á Landspítalanum 29. júlí 2021. Foreldrar hans voru Marín Ingi- björg Bjarnadóttir Jacobsen og Peder Jacobsen. Seinni maður Ingibjargar var Gunnar Ár- mann Björnsson. Systkini Ja- cobs eru Kristjana Ingibjörg Jacobsen og Björn Gunn- arsson. Eiginkona Jacobs var Þór- unn Eydís Lár- usdóttir, f. 1. sept- ember 1947, d. 17. febrúar 2011. Þau áttu fjögur börn. Elstur var Pétur Ingi, en hann lést 15. mars 2019. Eftirlifandi börn Jacobs eru: Ragna Lára, Jakob Þór og Sólveig El- ísabet. Jacob átti einnig tengdabörn, fimmtán barnabörn og fjögur barna- barnabörn. Útför Jacobs fór fram í kyrrþey 5. ágúst 2021. Jacob þurfti fljótt að takast á við lífið. Við misstum pabba okk- ar þegar hann var 7 ára og ég 3 ára. Helmingur af æskuheimili okkar var þá fokheldur. Mömmu okkar tókst að ljúka við viðbygg- inguna og úr varð lítil íbúð með sameiginlegum inngangi, þvotta- húsi, klósetti og sturtu, sem hún gat leigt út og við höfðum öruggt húsnæði og við vorum líka hepp- in, því við höfðum ömmu okkar búandi hjá okkur. Eftir 9 ár fór hamingjuhjólið hjá mömmu okk- ar að snúast á ný og hún hóf nýtt líf er við eignuðumst fósturföður og seinna bróður. Starfsævin byrjaði snemma hjá Jacobi, strax eftir fermingu fór hann að vinna á sveitabýlum og var nokkur ár á togurum áður en hann gerðist verktaki við jarðvinnu og fór að vinna sjálfstætt með vörubíl og önnur tæki ásamt vinnu við sprengingar. Hann giftist æsku- vinkonu minni, Þórunni Lárus- dóttur, og eignuðust þau fjögur börn. Hún þurfti að berjast við erfið veikindi mörg seinni ár sín og reyndi þá sannarlega á þau áður en hann missti hana. Þau áttu hamingjuríkt líf þrátt fyrir veikindi hennar. En mikill var missir hans. Ég sagði honum stuttu áður en hann dó að ég væri hrædd um að hann færi að leggja upp í sína seinustu ferð, sagði honum að mig hefði dreymt Þóru og að hún hefði verið búin að smyrja fullan bakka af snittum, en snitturnar sem ég hafði ætlað að smyrja varð ég að hætta við þar sem áleggið hjá mér var fros- ið, ég sagði honum að þessi draumur hlyti að tákna að Þóra væri alveg tilbúin að taka á móti honum, en ég ekki tilbúin að láta hann fara. Hann lét sig hafa það að hlusta á drauminn og sagði svo: það verður nú varla leiðin- legt – og glotti en hann var oft góður í því og oft stutt í grínið. Og ég átti ekki að hafa áhyggjur. Mörg sl. ár hefur hann fært mér blómvönd í kringum afmælið mitt. Á síðasta afmæli mínu var hann á spítalanum, nokkrum dögum seinna var hann farinn heim. Það liðu svo einhverjir dag- ar, þá kom Jacob Þór sonur hans heim til mín með pabba sinn, hann segir mér að fara og tala við pabba sinn í bílnum því hann treysti sér ekki að koma inn. Ég fór að bílnum til að tala við hann, þá réttir hann mér fallegan blóm- vönd og segir að þetta hafi átt að koma á afmælinu mínu. Jacob Þór sonur hans sagði mér svo að þessi vöndur hefði verið mikið mál hjá honum og að hann hefði verið sendur í blómabúð og feng- ið ákveðin fyrirmæli um hvernig blómin ættu að vera og hann átti að taka mynd af blómunum og sýna honum í bílnum áður en hann keypti þau, þau áttu líka sum að vera óútsprungin. Ég hef oft fengið falleg blóm, en þessi vöndur verður mér án efa alltaf eftirminnilegur. Síðast þegar ég heimsótti hann á spítalann leið honum greinilega ekki nógu vel og ég hugsaði að heimsóknum mínum til hans færi að fækka. Hann lifði bara fáa daga eftir þessa heimsókn mína. Hann átti marga góða kosti sem komu vel í ljós hjá honum á erfiðum tímum. Ég held að hann hafi verið sáttur við að kveðja og ég kveð góðan bróður og á eftir að minnast margs og sakna. Við Bjöggi send- um börnum hans og fjölskyldum þeirra samúðarkveðjur. Kristjana Jacobsen. Jacob Jacobsen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.