Morgunblaðið - 13.10.2021, Page 18

Morgunblaðið - 13.10.2021, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2021 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Færir þér fréttirnar mbl.is Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30, nóg pláss - Morgun- spjall, heitt á könnunni kl.10:00 - Dansfimi með Auði Hörpu kl.12:50, ókeypis - Söngstund við píanóið, með Helgu kl.13:45 - Kaffi kl.14:30- 15:00 - Bókaspjall með Hrafni kl.15:00 - Nánari upplýsingar í síma 411-2702 - Allir velkomnir. Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9-12. Stóladans m. Þóreyju kl. 10. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Pílukast kl. 13. Dansleikfimi kl. 13:45. Hádegismatur kl. 11.40- 12.40. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. Sími: 411-2600. Boðinn Leikfimi kl. 10:30. Handavinnustofa opin frá kl. 12:30-15:00. Leshópur kl. 15:00. Sundlaugin er opin frá kl. 13:30-16:00. Breiðholtskirkja Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12:00 alla miðviku- daga, súpa og brauð eftir stundina. Eldriborgara starfið "Maður er manns gaman" er kl. 13:15. Allir hjartanlega velkomnir. Bústaðakirkja Hádegistónleikar kl. 12.05 ,,Manstu gamla daga”, Diddú, Örn Árna og Jónas Þórir flytja. Súpa í safnaðarsal á eftir. Félagsstarf heldur áfram í safnaðarsal og verður sér Elínborg Sturlu- dóttir gestur dagsins og segir frá Pílagrímaferðum í máli og myndum. Kaffið á sínum stað og prestur verður með hugleiðingu og bæn. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7:00-8:00. Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00. Ljóðahópur Soffíu kl. 10:00-12:00. Spaugarar og spellarar kl. 10:30-11:30. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Salatbar kl. 11:30-12:15. Kaplar og spil kl. 13:30.Tálgun með Valdóri kl. 13-15:30. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Garðabær Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Gönguhópur fer frá Jóns- húsi kl. 10:00. Skák í Jónshúsi kl. 10:30. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13:00. Bridge í Jónshúsi kl. 12:30-15:30. Stólajóga kl. 11:00 í Kirkjuhv. Gler kl. 13:00 í Smiðju Kirkjuhv. Vatnsleikf Sjál kl. 15:00 / 15:40 og 16:20. Zumba Gold kl. 16:30. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á könn- unni. "Augnablik ég á mér rödd" stutt og skemmtilegt námskeið með Rebekku og Þóreyju kl. 09:30. Félagsvist frá kl. 13:00. - Döff Félag heyrnarlausra frá kl. 12:30. Gjábakki Kl. 8.30 til 11.30 opin handavinnustofa og verkstæði. Kl. 10. til 11.15 bozzia. Kl. 12 til 14.30 postulínsmálun á verkstæði. Kl. 13 til 14.30 bingó í aðalsal. Kl. 14 til 15.30 leshópur í handavinnustofu. Kl. 14 til 16 Nafnlausi leikhópurinn með námskeið. Guðríðarkirkja. Félagsstarf eldriborgara miðvikudaginn 13.október kl: 12:00. Helgistund í kirkjunni og söngur. Matur verður í safnaðar- heimilinu kr. 1000.- Lesin verður saga. Við fáum góðan gest til okkur. Skráning í haustlitaferðalagið kr. 2000.- Hlökkum til að sjá ykkur sr. Leifur, sr. Pétur, Hrönn og Lovísa. Gullsmári Myndlist kl. 9.00 Boccia kl. 10.00 Postulín og Kvenna- bridge kl. 13.00 Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli 9:00-11:00. Ganga með Evu kl 10:00-11:00 allir velkomnir. Útskurður með leiðbeinanda kl 9:00-12:00 500kr skiptið. Hraunsel Billjard kl. 8 -16. Stóla yoga kl. 10:00. Línudans kl. 11. Bingó kl. 13. Handverk kl. 13. Gaflarakórinn kl. 16 Hvassaleiti56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleik- fimi kl. 9:45. Handavinna – opin vinnustofa 13:00-16:00. Bridge kl. 13. Hádegismatur kl. 11:30-12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Morgunleikfimi útvarpsins í Borgum kl. 9:45, gönguhópar Korpúlfa þrír styrkleikahópar kl. 10:00 frá Borgum og inni í Egilshöll, kaffispjall á eftir. Keila hjá Korpúlfum í Egilshöll kl. 10:00. Korpúlfa- bingó kl. 13:00 í Borgum margt góðra vinninga. Qigong með Þóru Halldórsd. hefst á ný í dag kl. 16:30 í Borgum. Allir hjartanlega vel- komnir. Seltjarnarnes Kaffirókur alla morgna frá kl. 9.00. Leir á Skólabraut kl. 9.00. Botsía Skólabraut kl. 10.00. Billjard Selinu kl. 10.00. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12.00.Timburmenn Valhúsaskóla kl. 13.00. Gler á neðri hæð félagsheimilisins kl. 13.00. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13.00. Á morgun fimmtudag kl. 13.30 verður bingó í salnum á Skólabraut. Allir hjartanlega velkomnir. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, verður gestur á opnum hádegisfundi eldri sjálfstæðismanna, í dag kl. 12:00 í Valhöll. Húsið opnar 11:30. Allir velkomnir. Fundir/Mannfagnaðir Elsku vinkona okkar, það er erfitt að trúa því að þú sért látin. Okkur var kippt á jörðina og tíminn stóð í stað við þessar fréttir. Minning- ar um þig þutu í gegnum hugann og birtust ljóslifandi. Þegar þú labbaðir inn í Snælandsskóla með rauða hárið, glottandi, í prjónaðri peysu, með kassaskólatösku og við hittum þig í fyrsta sinn. Þú varst hlédræg, skemmtileg og réttsýn vinkona en við fylgdumst að í gegnum grunnskólann og áfram inn í lífið. Réttlætiskennd- in og eljan dreif þig áfram í lög- Guðbjörg Sigríður Einarsdóttir ✝ Guðbjörg Sig- ríður Ein- arsdóttir fæddist 3. júní 1980. Hún lést 25. september 2021. Útförin fór fram 11. október 2021. regluna þangað sem þú stefndir og áttir svo sannarlega heima. Það voru mikil forréttindi að fá að deila svo mörg- um stundum með þér sem einkennd- ust af traustum vin- skap. Þú varst fyrst okkar að verða móð- ir, elsku Ivy Alda kom í heiminn og lífið tók svo sannarlega góðum breytingum. Virkilega sem Ivy Alda var hepp- in að fá þig sem móður og ljóst að hún mun búa að yndislegum minningum og góðu uppeldi frá þér. Við fylgdumst af aðdáun með sambandi ykkar Jóhönnu og hvernig þið fylgdust að með Ivy Öldu. Það er mikill fengur fyrir hana að eiga yndislega móður- systur að í dag. Það er óraunverulegt og óskaplega erfitt að kveðja þig allt allt allt of snemma. Við vottum Ivy, Jóhönnu og fjölskyldu okkar dýpstu samúð. Minning þín er ljós sem lifir! Horfin úr heimi augnablik hverfur ei aftur þar við sit. Lokar nú augum hinsta sinn í langa ferð þangað inn. Í töfralandið stígur þú æðri slóðir sérðu nú Þú áttir von sem nú í flýti flýgur hjá og átt í senn eilíft líf friður yfir þér um langan veg sem sál þín snemma fer. Í huganum öll við fylgjum þér með söknuði hvert sem lífið fer. (VV&B) Þínar vinkonur, Eyrún, Jónína og Klara. Elsku Gugga okkar, við eigum eftir að sakna þín svo mikið. Allar minningarnar sem við eigum um þig frá því að við kynntumst í Snælandsskóla. Bara smástelpur í krumpugöllum með beinklippt- an topp. Leikir eftir kvöldmat, hittingar á körfuboltavellinum, sólböð í unglingavinnubeðum, þaulskipulögð plott til að lauma okkur inn á skemmtistaði og seinna kerlingaboð þar sem allt var rifjað upp og rætt. Við fylgd- umst hver með annarri í gegnum lífið. Þetta eru minningar sem við munum geyma með okkur og hafa gert okkur að þeim sem við erum í dag. Þú varst hæglát og hafðir þig aldrei mikið í frammi. Það sem einkenndi þig svo sterkt var kald- hæðni húmorinn þinn. Við gátum alltaf treyst á að þú sæir fyndnu hliðina á aðstæðum sem við kom- um okkur í og máttum búast við að þú héldir andliti á meðan þú hvíslaðir einhverri athugasemd að okkur, sem við sprungum úr hlátri yfir. Styrkleiki og traust voru þínir bestu kostir. Það var hægt að koma til þín með hvaða vandamál sem var, alltaf var hægt að treysta á þig. Elsku Gugga, við geymum þig í hug okkar og hjarta, hvíldu í friði. Hugur okkar er hjá fjölskyldu þinni á þessum erfiðu tímum. Þínar vinkonur alltaf, Halla og Vaka. Þakklæti er mér efst í huga þegar ég hugsa til baka til þeirra minn- inga sem við eigum um ömmu og langömmu. Þakklæti fyrir Hulda Friðbertsdóttir ✝ Hulda Frið- bertsdóttir fæddist 24. maí 1933. Hún lést 28. september 2021. Hulda var jarð- sungin 9. október 2021. að börnin mín fengu að kynnast þér og þakklæti fyrir hvað þú varst hlý og hrósaðir mér mikið fyrir uppeldið og hversu frábær börn ég ætti! Þær eru ófáar minningarnar af Brekkugötunni og einna bestar eru aðfangadagsminningarnar! Ég vissi að það myndi styttast í þessa kveðjustund og því skipti það mig svo miklu að börnin mín myndu ná einum jólum eins og ég átti sem barn! Það gleður mig að hafa náð því með þér, þótt áramót- in hafi ekki alveg gengið eins og við vonuðum. Það situr svo fast í mér hvað ég er lánsöm að hafa átt ömmu sem var svona flott fyr- irmynd! Hvað þú afrekaðir mikið þrátt fyrir allt sem lífið hefur lagt fyrir þig! Ég dáist að manneskjunni sem þú varst og hvað þú snertir marga á lífsleiðinni. Ég hugsa til gleð- innar sem fylgdi þér og gleð- innar sem skein úr augunum þegar við kíktum í heimsókn og hvað þú varst glöð að fá börnin í heimsókn án foreldra! Ég held að það sé ekki al- veg sokkið inn að nú sértu farin og á sama tíma og það er sárt að kveðja með svona stuttum fyrirvara þá er ég samt þakklát fyrir að þú fékkst að fara hratt en ekki hverfa hægt og rólega eins og afi! Ég leita huggunar í því að nú hefur þú fundið friðinn og hittir aftur afa og Matta. Elsku amma hvíldu í friði. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Guðrún Ásta og börn. Með Finnboga Jónssyni er geng- inn traustur fé- lagsmaður Verk- fræðingafélags Íslands. Hann lauk prófum í eðlisverkfræði og rekstrarhagfræði frá háskólan- um í Lundi í Svíþjóð árið 1978 og gekk þá strax í félagið. Finnbogi sýndi félaginu ætíð mikinn velvilja og lagði því lið með ýmsu móti. Hann lagði einnig yngri verkfræðingum lið, eins og þeirri er þetta ritar, leiðbeindi og gaf góð ráð. Finn- bogi hafði skilning á mikilvægi verkfræðimenntunar fyrir ís- Finnbogi Jónsson ✝ Finnbogi Jóns- son fæddist 18. janúar 1950. Hann lést 9. september 2021. Útför hans var gerð 8. október 2021. lenskt atvinnulíf. Hann studdi við nýsköpun og frum- kvöðlastarf og átti auðvelt með að setja sig inn í vandamál sem við var að etja, hvort sem það varðaði rekstur eða tækni- lausnir. Hann skildi mikilvægi og hlutverk félagsins við að standa vörð um gæði náms í tæknigreinum og við að efla og miðla þekkingu á sviði vísinda og tækni. Árið 1999 hlaut Finnbogi gullmerki Verkfræðingafélags Íslands. Þann heiður hlaut hann fyrir farsæl störf í iðn- aðarráðuneytinu, sem fram- kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar og framkvæmda- stjóri Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað á erfiðum tímum. Með aðferðum nútímastjórnun- ar og verkviti tókst Finnboga að stórefla Síldarvinnsluna og gera hana að leiðandi fyrirtæki í sjávarútvegi hér á landi. Í viðurkenningarskjal Verkfræð- ingafélagsins er m.a. ritað: „Finnbogi hefur aflað sér mik- ils og vaxandi trausts í við- skiptaheiminum og hefur hon- um verið falinn fjöldi trúnaðarstarfa innan sjávarút- vegsins.“ Ennfremur: „Finn- bogi hefur í störfum sínum sýnt áræði og framsýni og jafnframt hvers verkfræði- þekking er megnug til fram- fara og nýsköpunar í atvinnu- lífinu.“ Um þær mundir hafði Finnbogi nýlega verið ráðinn forstjóri Íslenskra sjávaraf- urða hf. Á persónulegum nótum langar mig að minnast sam- starfs okkar Finnboga í fyrir- tækinu Stika ehf. sem ég stofn- aði og rak ásamt öðrum í 27 ár. Finnbogi hafði dag einn sam- band og bauð mér í kaffispjall. Hann var þá framkvæmda- stjóri Nýsköpunarsjóðs at- vinnulífsins. Hann hafði haft spurnir af því að Stiki væri áhugavert tæknifyrirtæki og vildi kynnast starfsemi þess. Að loknu spjalli okkar spurði hann hvort hluthafar Stika kynnu að hafa áhuga á að fá Nýsköpunarsjóðinn inn sem hlutahafa. Sú varð raunin og Finnbogi var stjórnarformaður Stika um árabil. Við tók ein- staklega farsælt og ánægjulegt samstarf. Úr varð vinátta við bæði Finnboga og Berglindi sem hefur verið mér dýrmæt. Hugmynda- og lausnabanki Finnboga var óþrjótandi lind nýsköpunar. Finnbogi var einstakur mað- ur, vel að sér og velviljaður en einnig lífsglaður. Á lífsleiðinni hlotnaðist honum virðing og margvíslegur heiður fyrir störf sín. Ég minnist Finnboga með hlýju og votta fjölskyldu og að- standendum innilega samúð. Svana Helen Björnsdóttir, formaður Verkfræðinga- félags Íslands. Páll Magnússon ✝ Páll Magn- ússon fæddist 26. október 1952. Hann lést 29. sept- ember 2021. Útförin fór fram 6. október 2021. Hann hafði einstak- lega notalega nær- veru, sérstaka og góða kímnigáfu, var fróður og vel lesinn. Hann var ekki margorður en hlust- aði þeim mun betur. Mér leið alltaf vel í návist hans og var svo heppin að ferðast nokkuð með honum og Veigu. Ég veiddi líka með þeim en þau systkini eru afbragðs veiðimenn og fiskin með eindæmum. Það var yndislegt að ferðast með Ég kveð Pál Magnússon með söknuð í hjarta. Hann hef ég aldrei heyrt kallaðan ann- að en Palla. Hann var eldri bróð- ir Veigu vinkonu minnar en þrátt fyrir nokkurn aldursmun hafa þau alltaf verið óvenju náin. honum og mér eru þessar ferðir ákaflega minnisstæðar. Þegar ég og Veiga vorum bara tvær að veiða í Laxá í Mývatnssveit var alltaf hægt að hringja í Palla og fá ráð. Hann þekkti ána ótrúlega vel og gat útskýrt mjög ná- kvæmlega hvernig við ættum að bera okkur að þrátt fyrir að vera sjálfur víðsfjarri. Það er huggun að geta dvalið við minningar um góðan og skemmtilegan mann. Aldrei heyrði ég hann hallmæla neinum og þegar ég fann ein- hverju allt til foráttu benti hann mér á, á sinn hlýja hátt og jafn- vel án þess að ég tæki eftir, að það skipti kannski meira máli hvaða augum ég sjálf leit til- veruna. Þó að ég hafi aldrei heyrt Palla kallaðan annað en Palla þá var nafn hans sjaldan nefnt án þess að með því fylgdi „og Vallý“. Palli og Vallý. Þegar hún lést held ég að stór hluti af Palla hafi líka dáið. Þau höfðu verið hvort öðru það sem flesta dreymir um í ástarsambandi en fáum er gefið og ég trúi því að Palli sé sáttur við að vera á leið til hennar. Vinskapur hans og Veigu systur hans var afskap- lega mikill, hún hefur ekki ein- göngu misst kæran bróður held- ur líka traustan vin. Ég votta öllum aðstandendum, Magnúsi og Frances, Tuma, Pétri, Gutta og Kolbeini og ekki síst elsku Veigu vinkonu minni mína dýpstu samúð. Hjördís Bjartmars.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.