Morgunblaðið - 13.10.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 13.10.2021, Síða 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2021 30 ÁRA Hilmar Tryggvi Finnsson ólst upp að mestu á Hvolsvelli en býr í dag á Selfossi. Hann er með einkaflug- mannsréttindi frá Flugskóla Íslands og leiðsögumannsréttindi hjá Fræðsluneti Suðurlands. Hilmar er þungaflutninga- bílstjóri hjá ET ehf. „Þetta eru aðal- lega vélaflutningar, gámaflutningar og malarflutningar með tengivögnum sem ég er í. Áður var ég fjallaleiðsögu- maður en svo gerðist dálítið í heim- inum.“ Hilmar hefur verið formaður bíla- flokks í Flugbjörgunarsveitinni á Hellu síðustu fjögur árin. Áhugamál hans eru tónlist, útivist, ferðalög og fjölskyldan. „Ég hef aðeins gripið í gítarinn og ver- ið að trúbadora síðustu tíu árin.“ FJÖLSKYLDA Unnusta Hilmars er Emelía Rafnsdóttir, f. 1995, sviðs- maður hjá Þjóðleikhúsinu. Dóttir þeirra er Birna Þórey, f. 2021. Foreldrar Hilmars eru Magnea Þórey Hilmarsdóttir, f. 1972, heimavinnandi, og Finnur Bjarki Tryggvason, f. 1971, kokkur og flutningabílstjóri. Þau eru búsett á Selfossi. Hilmar Tryggvi Finnsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Nú er rétti tíminn til þess að fara í gegnum sambönd þín við aðra. Myrkar til- finningar liðinna daga eru horfnar. 20. apríl - 20. maí + Naut Alltaf er gott að vera varkár og hafa sitt á hreinu en þá geta tækifærin líka runnið manni úr greipum. Gefðu þér tíma til að sinna þínum nánustu. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú færð ekki fólk til að samsinna þér með því að æpa á það. Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þér finnst allir vera í andstöðu við þig en láttu það ekki brjóta þig niður. Vertu nærgætinn á öllum sviðum. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þér líður afskaplega vel um þessar mundir og mátt ekki láta neinn hafa neikvæð áhrif þar á. Engin spenna er í loftinu og því skaltu taka lífinu með ró. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Láttu þér ekki bregða, þótt til þín verði leitað um handtök sem heyra nú ekki beint til þíns lifibrauðs. Einbeittu þér að því að gefa og þiggja og koma til móts við aðra. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú verður að freista þess að fá lengri tíma til þess að ljúka þeim verkefnum sem þú hefur tekið að þér. Ekki pína sjálfan þig til þess að gera eitthvað sem þér hugnast ekki. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Það er einhver óvissa í loftinu og því er hætt við að umræður um mikilvæg fjölskyldumál leiði til ruglings og deilna. Vertu samkvæmur sjálfum þér hvað sem á dynur. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Vertu ekki vonsvikinn þótt þér hafi mistekist eitthvað. Ef þú ert jákvæður og hefur augun opin eru þér allir vegir færir. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Vertu ekkert að skafa utan af hlutunum, þótt þú haldir að einhverjum í áheyrendaslanum verði ómótt. Eitthvað sem sagt er hefur mikil áhrif á þig. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Mundu að misjafn sauður er í mörgu fé svo þú skalt vanda val þeirra sem þú treystir fyrir þínum málum. Líttu í eigin barm og skoðaðu málin í rólegheitunum. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú verður að leggja þig fram um að fá það besta út úr málum, þótt á brattann sé að sækja. Fyrsta skrefið í átt að heimsfriði, er að skapa frið innra með þér. S onja Ísafold Elíason fæddist 13. október 1936 í Árósum og ólst upp í Danmörku til tólf ára aldurs, síðast í Randers, en fluttist þá til Íslands. „Ég kunni þá ekki íslensku. Þegar við komum til Íslands fór faðir minn að vinna í Borgarnesi en við mamma og bróðir minn vorum í Reykjavík. Síðan þeg- ar faðir minn fékk húsnæði í Borg- arnesi fluttum við þangað. Eftir nokkur ár fluttum við á eyðibýlið Ytri-Hraundal í Hraunhreppi. Það- an strauk ég 15 ára gömul og hef séð um sjálfa mig síðan þá.“ Aðspurð segir Sonja að það sé örugglega fljótlegra að segja hvað hún sé ekki að fást við en hvað hún sé að fást við. „Það er verið að klessa á mig nafninu listamaður. Ég vinn mikið úr steinum, skreyti þá, mála og bý til alls konar fígúrur úr þeim. Svo bý ég til skúlptúra og ýmsa muni úr steinsteypu,“ en Sonja fór út til Danmerkur eftir átt- rætt til að mennta sig frekar í því. Ég hef aldrei talið mig hafa þá sérgáfu að vera flink. Ég tók þátt í sýningu, einni af mörgum, sem var í Keflavík og kallaði hana Arf, vegna þess að þarna voru ég og börnin mín að sýna listaverk. Þetta er arf- ur sem ég og mitt fólk höfum fengið frá mínum forfeðrum. Afi minn í Danmörku var járnsmiður og snill- ingur og amma mín á Íslandi var fyrst kvenna til að læra að vera skreðari og ég hef heyrt fólk tala um það að þegar einhver var ríðandi á ferð milli bæja þá sást hvort fólk var klætt í föt sem amma mín hafði saumað, það var svo vel gert. Þegar dóttir mín Silja var 12 ára þá fyrst uppgötvaði hún að til væru klaufar. Hún vissi ekki að svoleiðis fólk væri til.“ Sonja var loðdýrabóndi í Laxár- holti á Mýrum, í gamla Hraun- hreppnum. „Ég á fullt herbergi af skinni sem ég lét súta á Englandi og er að vinna úr því. Ég er með leyfi frá ráðuneytinu til að kalla mig pelsahönnuð en ég fór út til Grikk- lands að læra. Ég var orðin fullorðin þegar þetta var og nennti því ekki í Iðnskólann heldur stökk til Grikk- lands og fór að vinna á saumastofu þar og lærði að sauma úr skinnun- um. Ég er meira að vinna smærri hluti núna eftir að ég varð fullorðin. Þetta er svo þungt efni. Svo er ég mikið að laga pelsa því skinnið vill skreppa saman í skápunum eins og sagt er.“ Sonja hefur rekið Gallerí Ísafold á Patreksfirði á sumrin fyrir ferða- menn. „Það er mottó hjá mér að enginn hlutur þar sé „made in China“ eða Taívan heldur séu allir hlutir úr íslensku hráefni. Annars hef ég svo mörg áhugamál að það er sénslaust fyrir mig að láta mér leið- ast og ég er alltaf að læra eitthvað nýtt. Sonur minn spurði mig eitt sinn: Ertu enn að fara á námskeið, ertu ekki búin að læra allt? En ég segi að þegar maður hættir að læra þá er maður andlega dauður. Ég get haldið jafnt á nál og tvinna og verk- færum og byggði minn eigin bústað frá grunni í Laxárholti. Mörgum finnst það merkilegt, en mér finnst það ekki. Það eina sem maður þarf að nota er hausinn og hendur. Faðir minn á heiðurinn af því að kenna mér á verkfæri.“ Á Mýrunum var Sonja kvenfélags- kona og stóð fyrir menningarferð til Reykjavíkur og í Ungmennafélaginu fyrir menningarferð til Danmerkur Sonja Ísafold listakona – 85 ára Í Laxárholti Sonja ásamt börnum sínum og Sigurði Jóhannssyni stjúpsyni. Alltaf að læra eitthvað nýtt Listakonan Sonja með græna töffarann, sem er steypuverk. Afmælisbarnið Sonja 17 ára. Til hamingju með daginn Selfoss Birna Þórey Hilmarsdóttir fæddist 7. febrúar 2021 á Landspít- alanum við Hringbraut í Reykjavík Hún vó 3.580 g og var 50 cm löng. For- eldrar hennar eru Hilmar Tryggvi Finnsson og Emelía Rafnsdóttir. Nýr borgari Greið leið – til fram Við ráðum í 100 stöðu a r

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.