Morgunblaðið - 13.10.2021, Síða 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2021
„ÞÚ ERT KANNSKI AÐ FÆRAST OF
MIKIÐ Í FANG. ÞÁ ER HÆTT Á AÐ ALLT
FARI Í HANDASKOLUM.“
„OG ÞVÍ SAGÐI ÉG „EF ÞÚ VILT VERÐA AÐ
GAGNI GETUR ÞÚ MÁLAÐ GIRÐINGUNA“.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fagna honum
innilega.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ODDI! ÍKORNINN
ÁT MATINN ÞINN!
VOFF! VOFF!
VOFF! VOFF!
ROP
LÁTT’ANN
HEYRA
ÞAÐ!
ÉG ER FARIN AÐ
HITTA STELPURNAR
Í BÓKAKLÚBBNUM!
ERU EINHVERJAR
GÓÐAR
UPPSKRIFTIR AÐ
SÚKKULAÐIKÖKUM
Í BÓKINNI?
NEI! ÞETTA ER
SKÁLDSAGA!
EN ÞAÐ ER
SÚKKULAÐIGÆI Í HENNI!
Í pósti segir Helgi R. Einarsson
frá því að hann hafi á göngu
mætt hundi sem líktist frekar ketti
og þá varð þessi til, – „Hundakúnst-
ir“:
Hefur gölluð gen
gamli rakkinn sen –
jor Hjálmar,
hvæsir, mjálmar,
hvílíkt fenomen.
Á Boðnarmiði yrkir Gunnar J.
Straumland „Dróttkveðna stillu“:
Þokuslæða þekur
þungan skafl við klungur,
föl er tó í felum,
frosin urt við mosa.
Skín á þunnu skæni
skálaform, á hálu
bjargi undir bergi
bærist ljós á glæru.
„Smá svartsýni“ er í Ármanni
Þorgrímssyni:.
Finnst mér tíminn lengi að líða
lítið get ég honum breytt
alla daga er að bíða
aldrei samt hér gerist neitt.
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir:
Húfan er himneskur fengur!
Ég hleyp eins og nýklipptur drengur
svo alsæll og glaður,
umbreyttur maður
og er ekki sköllóttur lengur.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
„Þingmannsefni“:
Óprúttinn ég aðra lasta,
alltaf snýst í hring,
úr glerhúsi ég grjóti kasta,
gæti sest á þing.
Hraðlyginn á heimavelli
hygg, að þar ég sé.
Alla svík í einum hvelli,
ef á því græði fé.
Ekki er gott hljóðið í Magnúsi
Geir Guðmundssyni:
Mín er vonlaus vísnagerð,
svo varla rís.
Held’ ún sé á hraðri ferð,
til helvítis?!
Magnús Halldórsson svaraði:
Andagift þín oft er vís,
með öðrum því deili.
Og hún að sönnu hærra rís,
en hraunið við Keili.
Páll Eyþór Jóhannsson bætti við:
Þín er vegleg vísnagerð
vegferð andans rís,
efalaust þú endar ferð
inni í Paradís.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hundakúnstir
og þokuslæða
ásamt að vera virk í leikrita- og
búningagerð sem sýnd voru í félags-
heimilinu, núna Lyngbrekku. Hún
tók þátt í landsmóti UMFÍ á Akur-
eyri 1981 í plöntugreiningu. Hún
var í slysavarnadeildinni Unni á
Patreksfirði og vann þar ýmis verk-
efni. Hún var einnig í Bútasaums-
félaginu Spólurnar sem starfar af
krafti á Patreksfirði en Sonja er ein
af stofnendunum.
Þessa dagana stendur Sonja í
flutningum, en hún er að flytja frá
Patreksfirði þar sem hún átti heima
í 24 ár. Hún er að flytja í sumar-
bústaðinn Stolt sem hún byggði
með eigin höndum. Bústaðurinn er í
landi Laxárholts, en Sonja bjó þar
sem bóndi í 32 ár og býr sonur
hennar Unnsteinn þar núna mynd-
arbúi. „Ég er alveg á fullu að sort-
era og henda og verð líka á fullu á
afmælisdaginn.“
Fjölskylda
Börn Sonju með fyrrverandi eig-
inmanni hennar, Jóhanni Kristjáni
Lárussyni, bónda í Laxárholti, f.
1929, d. 2017, eru 1) Jónína, fjall-
göngukona og fyrrverandi leikskóla-
starfsmaður. Hennar börn eru tvö
og tvö barnabörn. Sambýlismaður
er Heimir F. Guðmundsson vega-
gerðarmaður, þau búa í Hafnarfirði;
2) Anna Kristjana keramikari, býr í
Danmörku. Hún á þrjá syni og tvö
barnabörn; 3) Jóhann Valur þús-
undþjalasmiður. Hann á einn son og
fjögur barnabörn. Sambýliskona er
Jette kennari, þau búa í Danmörku;
4) Sólveig Ásta, heiðursplokkari og
skipuleggjari, eiginmaður er Helgi
Páll Pálmason bifvélameistari, þau
búa á Patreksfirði, eiga fjögur börn
og sex barnabörn; 5) Unnsteinn
Smári, stórbóndi í Laxárholti, ný-
kvæntur Carol frá Keníu og á einn
kjörson; 6) Silja Björg, rekur ferða-
þjónustuna Móra ehf. ásamt beint
frá býli í Skálholti á Barðaströnd.
Eiginmaður er Þórður Sveinsson
bóndi, þau eiga tvo syni.
Systkini Sonju: Hans Óli, f. 28.3.
1946, d. 20.10. 2012, flugmaður og
útgerðarmaður í Ólafsvík og síðar í
Keflavík, og Alex Von Elíason, f.
24.11. 1948, ökukennari, bjó lengi á
Akureyri, nú í Reykjavík.
Foreldrar Sonju voru Björg
Kristmundsdóttir, f. 23.6. 1915, d.
27.1. 2006, saumakona, síðast búsett
á Akureyri, og Hans Christian
Larsen Elíason, f. 25.10. 1910, d.
18.11. 1987, bóndi og smiður í
Hraundal á Mýrum. Þau slitu
samvistir.
Sonja Ísafold
Brigitte Eliason
húsmóðir í Horsens
Fredrik Eliason
járnsmiður í Horsens í Danmörku
Hans Christian Larsen Elíason
bóndi og smiður í Hraundal á Mýrum
Kristín Þóra Pétursdóttir
húsfreyja á Hamri, síðar í Hvammi
Guðmundur Jónsson
bóndi á Hamri á Barðaströnd,
síðar í Hvammi
Kristmundur Sumarliði Guðmundsson
bóndi, síðast á Húsum í Selárdal
Kristjana Guðbjörg Þorgrímsdóttir
húsfreyja og skreðari, síðast á Húsum í Selárdal
Þorgrímur Ólafsson
bóndi í Efri-Rauðsdal
Björg Þorgrímsdóttir
húsfreyja í Efri-Rauðsdal á Barðaströnd
Ætt Sonju Ísafoldar
Björg Kristmundsdóttir
saumakona, síðast bús. á Akureyri.
Höfum opnað á Selfossi
komdu og skoðaðu úrvalið í glæsilegum sýningarsal okkar
GÆÐI ÞJÓNUSTA ÁBYRGÐ
www.tengi.is
Kópavogur – Smiðjuvegur 76
Akureyri – Baldursnes 6a
Selfoss – Austurvegur 69
414 1000
414 1050
414 1040