Morgunblaðið - 13.10.2021, Qupperneq 23
MEISTARADEILDIN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Breiðablik mætir stórliði Real Mad-
rid í B-riðli Meistaradeildar kvenna í
knattspyrnu á Alfredo Di Stéfano-
vellinum í Madríd í kvöld.
Þetta er annar leikur Breiðabliks í
riðlakeppni Meistaradeildarinnar en
Blikar töpuðu 0:2-fyrir París SG á
Kópavogsvelli í fyrstu umferð riðla-
keppninnar.
Blikar eru án stiga, líkt og Zhytlo-
bud Kharkiv frá Úkraínu, í fjórða og
neðsta sæti riðilsins en París SG og
Real Madrid eru bæði með þrjú stig
í efstu sætunum.
„Þessi leikur leggst mjög vel í
okkur og við erum mjög spenntar að
mæta þeim,“ sagði Ásmundur Arn-
arson, nýráðinn þjálfari Breiðabliks,
á fjarfundi í Madríd með fjölmiðla-
mönnum í gær. „Við flugum út á
mánudaginn og ferðalagið hingað út
var langt en gott. Við millilentum í
París og tókum svo leiguflug þaðan
til Madrídar. Við vorum komin á
leikstað rétt fyrir kvöldmat og
markmiðið frá því að við komum út
hefur verið að hvíla mannskapinn vel
eftir langan ferðadag,“ sagði Ás-
mundur.
Mótherjinn kortlagður
Ásmundur tók við þjálfun Breiða-
bliks af Vilhjálmi Kára Haraldssyni
4. október og mun stýra sínum
fyrsta leik gegn Real Madrid.
„Það er óneitanlega mjög sérstakt
að koma inn í þetta á þessum tíma-
punkti og stýra liðinu í sínum fyrsta
leik gegn Real Madrid. Það er ýmis-
legt sem þarf að huga að en ég hef
líka fylgst vel með þessum stelpum
undanfarið og þetta er fyrst og
fremst frábær hópur.
Það er gríðarlega spennandi að fá
tækifæri til að stýra liðinu í Meist-
aradeildinni og það hefur ekki gefist
neinn tími í einhverjar breytingar
þannig séð. Við munum byggja á því
sem hefur verið gert vel og fara yfir
þau smátriði sem þarf að fínpússa.“
Real Madrid hefur ekki farið vel
af stað á tímabilinu en liðið er með
fjögur stig í þrettánda og fjórða
neðsta sæti spænsku 1. deildarinnar.
Liðið hefur einungis skorað þrjú
mörk í fyrstu sex deildarleikjum sín-
um en Madrídingar hafa þó verið að
rétta úr kútnum í undanförnum
leikjum sínum og hafa nú unnið tvo
leiki í röð í öllum keppnum.
„Við erum búin að fara mjög vel
yfir þetta lið og það verður virkilega
gaman að máta sig við þær. Tækni-
lega eru þær mjög góðar og mjög
hreyfanlegar. Þær hafa verið að
finna taktinn í síðustu leikjum sínum
en það er alltaf möguleiki í fótbolta.
Þeim hefur ekki gengið vel að
skora á tímabilinu og vonandi verður
það þannig þegar við mætum þeim.
Þær eru líka með ákveðna veikleika
og vonandi tekst okkur að nýta okk-
ur þá og markmiðið er að sjálfsögðu
að refsa þeim,“ bætti Ásmundur við.
Fullar sjálfstrausts
Breiðablik sýndi lipra takta gegn
Frakklandsmeisturum París SG í
fyrstu umferðinni, þrátt fyrir 0:2-
tap, en Agla María Albertsdóttir
fékk meðal annars frábært mark-
tækifæri á 26. mínútu þegar hún
slapp ein í gegn í stöðunni 0:1 en
Barbora Votiková í marki PSG varði
vel frá henni.
„Það er margt jákvætt sem við
getum tekið með okkur úr leiknum
gegn París SG,“ sagði Agla María
sem var einnig mætt á fjarfundinn
ásamt Ásmundi þjálfara.
„Í fyrsta lagi mætum við fullar
sjálfstrausts inn í leikinn því við
sáum það best sjálfar í leiknum gegn
París SG að við eigum alveg raun-
hæfa möguleika gegn þessum
stærstu liðum.
Við getum vel staðið í þessum
leikmönnum sem spila í þessum
gæðaflokki og það þýðir ekki að bera
of mikla virðingu fyrir þeim. Það
getur nefnilega allt gerst í fótbolta,“
sagði Agla María.
Breiðablik er fyrsta íslenska fé-
lagið sem spilar í riðlakeppni Meist-
aradeildarinnar.
„Spennustigið í þessum leikjum er
klárlega hærra en í öðrum leikjum, á
því leikur enginn vafi. Á sama tíma
erum við flestar með mikla reynslu
og vanar því að spila stóra leiki.
Það er fyrst og fremst gaman að
fá tækifæri til þess að spila gegn
þessum stærstu liðum og það er eng-
in þreyta í hópnum. Við erum bara
spenntar og þakklátar að fá tæki-
færi til að taka þátt í þessari
keppni,“ bætti Agla María við.
Þýðir ekki að bera of
mikla virðingu fyrir þeim
Morgunblaðið/Unnur Karen
Leikin Agla María sýndi lipra takta gegn Frakklandsmeisturum París SG
í fyrstu umferðinni og fékk frábært tækifæri til þess að jafna metin í 1:1.
- Breiðablik heimsækir stórlið Real Madrid í Meistaradeildinni í kvöld
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2021
_ Ásgerður Stefanía Baldursdóttir
hefur framlengt samning sinn við
kvennalið Vals í knattspyrnu út næsta
tímabil. Ásgerður Stefanía lék aðeins
einn leik með Val á liðnu tímabili, í
lokaumferðinni gegn Selfossi, þar sem
hún eignaðist sitt annað barn í sumar.
Ásgerður, sem er 34 ára gömul, er á
meðal reyndustu leikmanna efstu
deildar kvenna frá upphafi en hún á að
baki 252 leiki í efstu deild þar með Val,
Stjörnunni og Breiðabliki. Hún hefur
tvívegis orðið Íslandsmeistari með Val,
2019 og 2021, og þá varð hún fjórum
sinnum Íslandsmeistari með Stjörn-
unni og þrívegis bikarmeistari.
_ Línumaðurinn reyndi, Atli Ævar
Ingólfsson, verður ekki með Selfoss-
liðinu á næstunni í Olísdeildinni í
handknattleik vegna meiðsla. Atli mun
líklega ekki leika aftur með Selfossi
fyrr en að loknu hléinu sem gert er á
Íslandsmótinu í janúar eftir að hafa
farið í liðþófaaðgerð. Hann segir frá
þessu í samtali við Handbolta.is.
_ Cristiano Ronaldo skoraði þrennu
þegar Portúgal vann Lúxemborg 5:0 í
undankeppni HM í knattspyrnu í gær.
Hefur hann nú skorað 115 mörk í 182
landsleikjum fyrir Portúgal.
_ John Stones skoraði fyrir England
sem gerði 1:1-jafntefli gegn Ungverja-
landi í London. Roland Sallai skoraði
fyrir Ungverja.
_ NBA-liðið Brooklyn Nets tilkynnti í
gær að ein skærasta stjarna deildar-
innar, Kyrie Irving, myndi hvorki æfa
né leika með liðinu á meðan hann er
óbólusettur. Lög og reglur geta verið
mismunandi í ríkjunum sem mynda
Bandaríkin og því var spurning um
hvort Kyrie Irving myndi geta spilað
einhverja útileiki með Brooklyn þótt
hann megi ekki spila í New York.
_ Raphaël Varane, miðvörður Man-
chester United, verður ekki með
næstu vikurnar í ensku úrvalsdeildinni
í knattspyrnu eftir að hafa meiðst í
leik franska landsliðsins gegn því
spænska um síðustu helgi. Varane fór
af velli skömmu fyrir leikhlé í úrslita-
leik Þjóðadeildar Evrópu á sunnudag-
inn, í leik sem Frakkland vann 2:1.
United sendi frá sér fréttatilkynningu í
gær þar sem kom fram að Varane yrði
frá næstu vikurnar vegna nárameiðsla.
_ Bakvörðurinn Trent Alexander-
Arnold hefur jafnað sig af meiðslum
og mun því geta tekið þátt í leik Liver-
pool gegn Watford í ensku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu í Watford á laugar-
daginn kemur. Þá má hins vegar búast
við því að markvörðurinn Alisson og
varnartengiliðurinn Fabinho missi af
leiknum þar sem þeir eiga fram undan
leik með brasilíska landsliðinu gegn
Úrúgvæ í undankeppni HM 2022 að-
faranótt föstudags. Þar sem leikur
Watford og Liverpool fer fram í hádeg-
inu á laugardeginum er ekki gert ráð
fyrir að þeir verði
leikfærir. Þá
þurfti sókn-
armaðurinn
Diogo Jota frá
að hverfa úr
portúgalska
landsliðs-
hópnum í fyrra-
dag vegna vöðva-
meiðsla og því
ríkir óvissa með
þátttöku hans um
helgina.
Eitt
ogannað
Hilmar Rafn Mikaelsson og Orri
Steinn Óskarsson skoruðu mörk
U19-ára landsliðs Íslands í knatt-
spyrnu þegar það vann 2:1-sigur
gegn Litháen í lokaleik sínum í 1.
umferð undankeppni EM 2022 í
Radenci í Slóveníu í gær. Íslenska
liðið endaði í öðru sæti riðilsins með
sex stig, þremur stigum minna en
topplið Ítalíu, og er því komið
áfram í A-deild undankeppninnar.
Dregið verður í riðla annarrar um-
ferðarinnar í loks árs en hún verður
leikin næsta vor. Lokakeppnin fer
fram í Slóvakíu 18. júní til 1. júlí.
Ísland í A-deild
undankeppninnar
Ljósmynd/Köbenhavn
Mark Orri Steinn er samningsbund-
inn Köbenhavn í Danmörku.
Hannes Þór Halldórsson, fráfar-
andi landsliðsmarkvörður í knatt-
spyrnu, segist ekki vera inni í áætl-
unum Valsmanna á næsta keppnis-
tímabili. „Ég veit að þjálfarinn vill
ekki hafa mig hjá félaginu. Ég hef
hvorki heyrt hósta né stunu frá fé-
laginu síðan mér var tilkynnt það.
Ég veit ekki hvers vegna eða
hvernig menn hyggjast leysa þessa
skrítnu stöðu sem er komin upp. Ég
er bara steinhissa á þessu ef ég á að
segja alveg eins og er,“ sagði Hann-
es meðal annars í Síðdegisþætt-
inum á K100 í gær.
Ljósmynd/Kristinn Steinn
Á förum? Hannes Þór Halldórsson á
eitt ár eftir af samningnum við Val.
Steinhissa á
Valsmönnum
Danmörk tryggði sér í gær sæti í
lokakeppni HM karla í knattspyrnu
sem fer í Katar á næsta ári. Danir
hafa tryggt sér sæti í keppninni
með miklum glæsibrag því liðið hef-
ur unnið alla átta leikina til þessa í
F-riðli og ekki fengið á sig eitt ein-
asta mark. Danir komust í fyrsta
skipti á HM árið 1986 og verður
þetta í sjötta sinn sem Danir verða
með á HM.
Danmörk vann Austurríki 1:0 í
Kaupmannahöfn í gær með marki
frá Joakim Mæhle. Skotland er sjö
stigum á eftir og getur ekki náð
Danmörku þegar aðeins tvær um-
ferðir eru eftir. Færeyingar eru
með fjögur stig í riðlinum og eru í
5. sæti af sex liðum. Skotland náði
að kreista fram 1:0-sigur gegn Fær-
eyingum í Færeyjum.
Svíar eiga einnig fína möguleika
og eru fyrir ofan Spánverja í efsta
sæti B-riðils en þar verða spilaðar
átta umferðir. Svíþjóð vann Grikk-
land 2:0 með mörkum Emils Fors-
bergs og Alexanders Isaks. Svíar
eiga eftir útileikinn gegn Spáni.
AFP
Kaupmannahöfn Danir fagna markaskoraranum Joakim Mæhle í gær.
Danir á HM í Katar með
miklum glæsibrag