Morgunblaðið - 13.10.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.10.2021, Blaðsíða 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2021 Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Þetta eru verðlaun sem ég hef oft horft á með aðdáunaraugum,“ segir Ólafur Gunnar Guðlaugsson sem hlaut í gær Íslensku barnabóka- verðlaunin 2021 fyrir bók sína Ljós- bera. Hann segist einnig hafa horft með aðdáunaraugum á þá rithöfunda sem hlotið hafa verðlaunin og minnist þess þegar vinur hans Friðrik Erl- ingsson hlaut þau fyrir Benjamín dúfu. Sér hafi þótt mikið til koma. Ólaf ættu margir að þekkja sem höfund bókanna um Benedikt búálf, sem hið vinsæla barnaleikrit um bú- álfinn var unnið upp úr. „Manni er mikill heiður sýndur að fá svona verðlaun og þetta er ákveðin viðurkenning sem allir þrá en eru ekki endilega að leitast eftir þegar þeir eru að skrifa. Þetta er gjör- samlega magnað. Þetta er líka ákveð- in styrking fyrir rithöfunda, þetta hjálpar manni að geta haldið áfram að skrifa,“ segir hann. Í rökstuðning dómnefndar segir: „Ljósberi er kraftmikil og spennandi fantasía fyrir unglinga, metnaðarfull fyrsta bók í fyrirhuguðum þríleik.“ Alls bárust samkeppninni nítján handrit. „Ljósberi er ævintýri fyrir full- orðin börn á öllum aldri. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á goðsögum og þjóðsögum og ég elska vísinda- skáldsögur, fantasíur, ævintýri og hasarblöð. Með Ljósbera vildi ég blanda saman þessum söguhefðum og skapa eitthvað nýtt, koma með nýtt sjónarhorn inn í þessi þekktu minni þjóðsagnanna og goðsagnanna. Ég er að reyna að búa til eitthvað sem íslensk ungmenni hafa ef til vill ekki lesið áður.“ Ólafur hefur ágæta reynslu af því að vinna með þjóðsögur og ævintýri enda hefur hann sent frá sér þó- nokkrar bækur um Benedikt búálf. Ólafur er grafískur hönnuður og hannar sjálfur útlit bóka sinna. Ljósberi fjallar að sögn Ólafs um fjögur ungmenni sem eru að rann- saka dularfullan dauða lærimeistara síns. „Öllum þessum ungmennum er gefin skyggnigáfa en þau eru mis- langt komin í að læra að beita henni. Í þessari rannsókn þeirra kemur í ljós að ekkert af því sem þau þóttust vita um lífið, alheiminn eða eðli tilver- unnar er eins og þau héldu eða gat ór- að fyrir. Vilji þeirra til að sættast við krafta sína og að læra að beita þeim skiptir sköpum í viðureigninni við djöflana sem ógna tilveru okkar allra.“ „Alveg á epískum skala“ Sagan er sögð í fyrstu persónu og koll af kolli fær hver af þessum fjór- um aðalpersónum orðið. „Þannig að við náum góðri tengingu við persón- urnar því þetta er allt út frá þeirra reynslu og þeirra tilfinningum.“ Þannig sé sagan jarðbundin þótt hann segi söguna „brjálæðislega fan- tastíska“. „Þetta er alveg á epískum skala. Eigum við ekki að segja að þetta sé kynngimagnaður spennutryllir fyrir táninga á öllum aldri,“ segir Ólafur og leggur áherslu á að bókin sé fyrir fólk á öllum aldri þótt hún sé markaðssett sem ungmennabók. Markmiðið sé að skrifa á sama hátt og J.K. Rowling gerði í bókunum um Harry Potter. Henni hafi tekist að skrifa þannig sögu og þannig texta að bæði börn og fullorðnir hafi gaman af því. Síðasta bókin um Benedikt búálf kom út árið 2012 svo það eru þó nokk- ur ár síðan eitthvað hefur birst eftir Ólaf. „Í kjölfar hrunsins þurfti maður að leggja allt til hliðar til þess að reyna að lifa af eins og svo margir.“ Hann leggur þó áherslu á að sköp- unarkrafturinn hafi ekki dalað. Á þessum tíma sem liðinn er hafi hann lagt grunninn að þremur trílógíum, heilum níu bókum. „Ljósberi er fyrsta af þeim bókum. Ein trílógían er ofurnáttulegur spennutryllir, næsta verður tilraun til þess að gera „pjúra massíva“ vísindaskáldsögu, svona „space opera“, og þriðja verður alvörutilraun til þess að gera góða ís- lenska fantasíu. Ég er kominn aftur og ég er rétt að byrja,“ segir hann. „Ég er ofboðslega hrærður. Þetta er voðalega gaman. Það er eitt að sitja einn og skrifa bækur og að kom- ast í gegnum eigin efa og óöryggi, en það er annað að geta komið svona bók út, og vonast til að sem flestir lesi hana og fíli hana í botn, það er geggj- að.“ „Ég er ofboðslega hrærður“ - Ólafur Gunnar Guðlaugsson er handhafi Íslensku barnabókaverðlaunanna 2021 - Verðlaunabókin Ljósberi er kynngimagnað ævintýri fyrir fullorðin börn á öllum aldri - „Manni er mikill heiður sýndur“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Verðlaunahafi „Ljósberi er kraftmikil og spennandi fantasía fyrir ung- linga, metnaðarfull fyrsta bók í fyrirhuguðum þríleik,“ segir dómnefnd. Tónleikaröðin Beethoven í 250 ár, sem hófst í Salnum í Kópavogi í fyrra, heldur áfram með tónleikum í kvöld, mið- vikudagskvöld, kl. 19.30. Á þessum fyrstu tónleikum haustsins verða fluttar þrjár af píanósónötum Beethovens. Guð- rún Dalía Salómonsdóttir flytur sónötu nr. 15 í D-dúr (Pastoral), Guðríður St. Sigurðardóttir flytur sónötu nr. 17 í d-moll, opus 31 nr. 2 (Tempest) og Helga Bryndís Magnúsdóttir flytur sónötu nr. 18 í Es-dúr, opus 31 nr. 3 (The Hunt). Arnar Jónasson leikari mun jafn- framt lesa valda kafla úr bókinni Beethoven – í bréfum og brotum sem Árni Kristjánsson tók saman. Flytja þrjár píanósónötur Beethovens Píanóleikari Guðrún Dalía Salómons- dóttir hefur leikinn á tónleikunum í kvöld. Kvartett Ólafs Jónssonar saxófónleikara kemur fram á tónleikum Jazzklúbbsins Múlans í Hörpu í kvöld, mið- vikudagskvöld, kl. 20. Að þessu sinni verða tónleikarnir í Kaldalóni. Gestur Ólafs á tónleikunum er danski saxó- fónleikarinn Christian Vuust en hann er bæði þekktur heima fyrir og á alþjóðavísu. Á dagskrá tónleikanna verður bland af lögum eftir saxófónleikarana báða. Ásamt þeim koma fram píanó- leikarinn Kjartan Valdemarsson, Þorgrímur Jónsson sem leikur á bassa og trommuleikarinn Matthías M.D. Hemstock. Tónleikarnir eru styrktir af Fondet for Dansk-Islandsk Samarbejde. Múlinn er nú á sínu 24. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Jazzvakningar. Vuust blæs með kvartetti Ólafs Ólafur Jónsson Galleríið BERG Contemporary tekur þátt í Frieze Masters- listkaupstefn- unni í London sem hefst í dag og stendur út helgina. Þar sýn- ir galleríið í svo- kölluðum „Spot- light“-hluta Frieze, verk eftir Woody Vasulka, bæði vídeóverk og prentmyndir. Frieze marsters-kaupstefnan hefur verið haldin frá 2012 í The Regent’s Park í London. Um 130 af virtustu galleríum samtímans, frá fjölmörgum löndum, eru með í ár. Í „Spotlight“-hlutanum eru settar upp einkasýningar á verkum mikil- vægra samtímalistamanna. BERG sýnir verk Woodys Vasulka Hluti eins verka Woodys Vasulka. Í hádegisfyrir- lestri í Nátt- úrufræðistofu Kópavogs í dag fjallar Kristján Léósson um ís- lenska kristalinn sem breytti heiminum. Fyrir- lesturinn er und- ir hatti „Menn- ingar á miðviku- dögum“ og hefst kl. 12.15. Kristján mun fjalla um þau mót- andi áhrif sem íslenskt silfurberg frá Helgustöðum í Reyðarfirði hafði á framþróun náttúruvísinda. Á 250 ára tímabili var það eini þekkti staðurinn þar sem finna mátti nógu tæra og stóra silfur- bergskristalla til að þá mætti nýta til vísindarannsókna. Fjallar um kristal sem breytti heimi Kristján Leósson Aðstandendur Kling & Bang- gallerísins í Marshall-húsinu taka höndum saman með A-DASH sýn- ingarrýminu í Aþenu á Grikklandi og gangast fyrir viðamikilli myndlistarhátíð, „Head 2 Head“, þar í borg dagana 5.-7. nóvember. Um er að ræða eina umfangsmestu myndlistarhátíð listamannarekinna rýma sem haldin hefur verið í Aþenu og í tilkynningu frá Kling & Bang segir að „sjaldan hafa jafn margir ís- lenskir listamenn komið saman og sýnt verk sín á erlendri grundu.“ Opnaðar verða sýningar 44 grískra og íslenskra myndlistar- manna sem fram fara í 11 lista- mannareknum sýningarrýmum víðs- vegar um Aþenu. Íslensku listamennirnir sem taka þátt eru hátt í þrjátíu talsins. Hátíðin er fyrri liðurinn í tveggja þátta verkefninu „Head 2 Head“ en seinni hlutinn fer fram í Reykjavík haustið 2023. Í verkefninu er leitast við að búa til nýjar tengingar, möguleika og sambönd landanna á milli. Löndin tvö eiga það sameiginlegt að mynd- listarsenur þeirra eru drifnar áfram af kröftugu framtaki listamanna og listamannareknum rýmum. Myndlistarsenan í Aþenu er afar kröftug en á síðustu árum hafa lista- menn streymt þangað víða að til að vinna. Hátíð íslenskra og grískra listamanna Morgunblaðið/Árni Sæberg Framsækin Frá sýningu í sal Kling & Bang í Marshall-húsinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.