Morgunblaðið - 13.10.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 13.10.2021, Qupperneq 25
AF TÓNLIST Hallur Már hallurmar@mbl.is Loksins er líf farið að færast í tónleikahald að nýju. Fyrir fáeinum árum var töluvert úrval af áhugaverðum tónlistar- hátíðum í boði fyrir tónlistarunn- endur en staðan hefur breyst tölu- vert og af ýmsum ástæðum hefur framboðið dregist verulega saman. Extreme Chill-hátíðin á sér tölu- verða sögu þar sem tilraunakennd raftónlist hefur verið helsta áhersl- an. Hátíðin var haldin í ellefta sinn um síðustu helgi og dagskráin var metnaðarfull þar sem vel þekktir er- lendir listamenn í þessum jaðargeira komu fram ásamt heimafólki. Roger Eno var í Kaldalóni í Hörpu á föstu- dagskvöldinu og lék á flygil á meðan ljósmyndum hans af heimaslóðum var varpað á vegginn fyrir aftan hann. Það lá vel á karlinum og það var býsna hressandi að sjá mann á sjötugsaldri setjast við virðulegan flygil með tvo bjóra við höndina. Hann sökkti sér þó svo djúpt í að skapa hljóðmyndir að flöskurnar tvær voru ennþá fullar klukkustund síðar. Tónlist Rogers – höldum okk- ur bara við fyrra nafnið til að rugla honum ekki saman við bróður hans Brian sem svo vill til að er einn allra áhrifamesti tónlistarmaður síðustu 50 ára – er lágstemmd og fram- vindan er yfirleitt hæg. Mögulega gæti einhver fundið ástæður til að tala illa um hana sem er algjör óþarfi enda er varla neitt nema gott að segja um fólk sem nýtir tímann sinn í að föndra við ljósmyndir og tónlist. Afbragðsseiður Borgar Magnason fylgdi í kjölfar- ið og óf saman afbragðsseið með kontrabassa og tölvu. Frábær tónlist þar á ferð. Síðasta atriði föstudags- kvöldsins var svo samstarfsverkefni hjá norðlenska teknó-séníinu Bjarka, dansaranum Mathilde Cay- ers og vídeólistamanninum Arttu Nieminen sem bæði eru norsk. Verkefnið hlaut styrk frá Menning- arráði Norðmanna en var leitt sam- an að frumkvæði forsvarsfólks Extreme Chill-hátíðarinnar og norsku hátíðarinnar Insomnia. Ekki er hægt að segja annað en að bræð- ingurinn hafi heppnast vel. Ágeng, hvikul og marglaga raftónlist Bjarka smellpassaði við kuldalegan og súr- realískan myndheim Nieminens og það gaf henni líka aðra vídd að vera túlkuð af mjög færum dansara. Frá- bær viðburður sem augljóst var að fólk í salnum kunni vel að meta. Sjónræni þátturinn á tónleikum raf- tónlistarfólks er ávallt mikilvægur og var ekki síst það sem stendur upp úr eftir helgina. Fleiri litbrigði lífsins Þegar komið var fram á laugardag og sunnudag færðist fjörið yfir á Húrra. Á laugardaginn sá ég meðal annars áhugaverða tónleika búlg- arska gítardrón-meistarans E.U.E.R.P.I. Mesta eftirvæntingin var þó tvímælalaust fyrir því að sjá breska rafdúettinn Plaid sem hefur verið að í rúma þrjá áratugi og gefið út afbragðstónlist hjá W.A.R.P.- útgáfunni. Plötusnúðurinn Mixmas- ter Morris og Skurken höfðu hitað salinn ágætlega upp þegar Plaid hóf leik á sunnudagskvöldinu. Aggressíf og taktföst tónlistin ásamt sjónrænu veislunni á bak við þá félaga hafði leitt salinn áfram í nokkra stund þegar það rann almennilega upp fyr- ir mér hversu mikill söknuðurinn hefur verið eftir viðburðum af þessu tagi. Þar sem lágu tíðnirnar gera al- vöru atlögu að innyflunum og háu tíðnirnar skera mögulega örlítið af heyrninni. Ekki síst til að fylgjast með og vera hluti af mannlífinu sem er óvíða jafn litríkt og á raftónlistar- hátíðum. Sjá gamla karla gleyma sér í dansi, eyrnalokka með app-stýrð- um ljósum, bleikt hár, blátt hár, dreadlokka og barþjóna sem líta út fyrir að vera að koma af harkalegu fylleríi með Madonnu. Þessu sem gefur lífinu fleiri litbrigði. Extreme Chill-hátíðin hefur þroskast vel og mun vafalaust verða enn fyrirferðar- meiri í íslensku tónlistarlífi á kom- andi árum. Háar tíðnir, lágar tíðnir og allt þar á milli Ljósmynd/Magnús Bergsson Einbeiting Plaid-liðar hafa verið framarlega í raftónlistarsenunni. Tónleikar þeirra voru einn hápunktanna. » … það rann almenni- lega upp fyrir mér hversu mikill söknuður- inn hefur verið eftir við- burðum af þessu tagi. MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI T H E T E L E G R A P H S . F. C H R O N I C L E B B C T I M E O U T 90% F R Á L E I K S T J Ó R A T H E R I T U A L R E B E C C A H A L L N I G H T H O U S E T H E T O D A R K A N D D A N G E R O U S P L A C E S” “A F I L M T H A T A L L O W S T H E M I N D T O G O S I L V E R S C R E E N R I O T 86% O R I G I N A L C I N T H E A U ST I N C H R O N I C L E SÍÐASTA BOND MYNDIN MEÐ DANIEL CRAIG ÞESSA VERÐA ALLIR AÐ SJÁ Í BÍÓ 84% Hljómsveitin Of Monsters and Men kemur fram á tvennum tónleikum í Gamla bíói 9. og 10. nóvember og heldur upp á tíu ára afmæli fyrstu plötu sveitarinnar, My Head Is An Animal. Útgáfutónleikar plötunnar voru haldnir á þeim sama stað. Hljómsveitin mun flytja My Head Is An Animal í heild á hvorum tveggja tónleikum og þar að auki ný og eldri uppáhaldslög sveitar- innar og verður lagavalið ólíkt á tónleikunum. Þá kemur sérstök afmælisútgáfa plötunnar á markað 29. október, með tveimur áður óút- gefnum lögum. Morgunblaðið/Golli Vinsæl Hljómsveitin Of Monsters and Men á tónleikum í Hljómskálagarði árið 2012. Tíu ára afmæli Of monsters and men Skáldkonurnar Linda Vilhjálms- dóttir og Didda (Sigurlaug) Jóns- dóttir koma fram á Ljóðakaffi Borgarbóka- safnsins í Gerðu- bergi í kvöld, miðvikudags- kvöld. Hefst dag- skráin kl. 20 og er yfirskrift hennar „Hamingjan er ljóð“. Í tilkynningu segir að þær Linda og Didda eigi það helst sam- eiginlegt „að í ljóðum þeirra er viss uppreisnarandi, hugrekki og sjálfs- skoðun. Þótt þær hafi báðar marga ausuna sopið eru ljóð þeirra ólík en hjá þeim báðum eru þau oft lituð af innsæi og visku sem lífsreynslan hefur fært þeim“. Ljóðakaffi er vettvangur fyrir alla að lesa upp ljóðin sín. Eftir hlé eru ljóðaáhugamenn og skáld með- al gesta hvött til að lesa upp ljóð sem þau hafa samið. Linda og Didda lesa upp ljóð sín Linda Vilhjálmsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.