Morgunblaðið - 13.10.2021, Blaðsíða 28
„Encore“ er heiti sýningar með myndverkum eftir Árna
Pál Jóhannsson (1950-1920) sem verður opnuð á fæð-
ingardegi hans í Portfolio galleríi á Hverfisgötu 71 í
dag, miðvikudag, frá kl. 16 til 20. Á löngum ferli hélt
Árni Páll margar sýningar og starfaði með ólíkum
myndlistarmönnum að fjölbreytilegum verkefnum.
Hann var einnig þekktur fyrir hönnunarvinnu sína, eink-
um leikmyndahönnun. Á sýningunni eru fjölbreytileg
verk frá ólíkum tímaskeiðum á ferli Árna Páls en þau
elstu voru á sýningu hans í Gallerí SÚM árið 1975.
Úrval verka eftir Árna Pál Jóhanns-
son á sýningu í Portfolio galleríi
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjum
Eyjamenn halda þeim sið að vera
með sauðfé í úteyjum og getur verið
slarksamt að sinna því. Á mánudag-
inn voru lömb sótt í Brandinn,
Bjarnarey og Elliðaey og fór Óskar
Pétur Friðriksson ljósmyndari
Morgunblaðsins með Lóðsinum út í
Elliðaey. Í sömu ferð var sótt fé í
Bjarnarey. Samtals á annað hundrað
lömb. Gott veður var um morguninn
en brældi þegar á leið. Var komin
töluverð alda þegar féð var flutt úr
Bjarnarey yfir í Lóðsinn á tuðru sem
tók átta til tíu lömb. Í ferðinni voru
um 20 manns, fólk á öllum aldri.
„Þetta var skemmtilegt en tók
sinn tíma. Það gekk vel að smala í
Elliðaey, koma fénu í réttina og á
steðjann austan á eynni. Komin tölu-
verð alda,“ sagði Óskar Pétur. „Það
var öllu erfiðara í Bjarnarey. Það er
brattara niður á steðjann, kominn
meiri sjór og farið að dimma. Allt
gekk slysalaust fyrir sig enda vanir
menn að verki.“
Sleppi ekki smölun
„Ég er sjálfur hættur rollustússi í
úteyjum en sleppi ekki smölun, sama
hver eyjan er,“ sagði Pétur Stein-
grímsson sem lengi hefur verið í
hópi öflugra frístundabænda í Eyj-
um. „Ólst upp við rollubúskap, hef
haldið hefðinni þótt í litlum mæli sé.
Þetta gekk vel núna nema að flot-
bryggja sem notuð var við Lóðsinn
slitnaði og rak á land og brotnaði við
klappirnar. Sýndi miðflokksmað-
urinn Guðni Hjörleifsson mikla
dirfsku þegar hann reyndi að bjarga
bryggjunni. Það var erfiðara við
Bjarnarey en allt gekk vel og allir
komust heilir í land.“
Ágúst Ingi Jónsson er einn fjög-
urra bænda sem eiga fé í Elliðaey.
„Við erum með um 80 ær sem ganga
í eynni allt árið. Allt með leyfi Mat-
vælastofnunar. Venjulega sækjum
við lömbin fyrr en það gaf ekki í
september og því erum við seinni
núna en venjulega,“ sagði Ágúst. „Í
desember förum við út með hrútana
og hleypum til. Þegar kemur að
sauðburði skiptumst við á að fylgjast
með. Féð er sprautað eins og vera
ber. Á sumrin er yfirleitt einhver úti,
fuglafræðingar, veiðimenn og ferða-
menn, þannig að það er alltaf ein-
hver sem getur gripið inn í ef eitt-
hvað gerist.“
Pusaði í báðum
Guðni Hjörleifsson, sem ferjaði fé
úr Elliðaey yfir í Lóðsinn, vill ekki
gera mikið úr því þegar hann reyndi
að bjarga flotbryggjunni. „Við
reyndum eins og við gátum en tókst
ekki að bjarga henni. Það var tölu-
verður öldugangur og komu fyll-
ingar inn á milli sem við reyndum að
forðast,“ sagði Guðni, sem lét öðrum
eftir tuðruna við Bjarnarey.
„Ég kunni betur við volkið í þess-
ari ferð en í pólitíkinni. Það pusaði í
báðum en átök við náttúruna eru
hressandi á meðan hitt dregur mann
niður og er hundleiðinlegt,“ sagði
Guðni.
Slarksamt að sækja fé
í Elliðaey og Bjarnarey
- Eyjabóndi kann betur við volkið á sjónum en í pólitíkinni
Morgunblaðið/Óskar Pétur
Bjarnarey Það er mikið vandaverk að koma lömbunum yfir í tuðruna.
Mæðinni kastað Hópurinn fær sér nesti eftir átökin í Elliðaey.
MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 286. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Íslenska U21-árs landsliðið í knattspyrnu karla þurfti
að sætta sig við naumt 0:1-tap gegn Portúgal þegar lið-
in mættust í 3. umferð D-riðils undankeppni Evrópu-
mótsins á Víkingsvellinum í gær. Umfjöllun um leikinn
er að finna í blaðinu í dag. Íslenska liðið má naga sig í
handarbökin yfir því að hafa ekki fengið neitt út úr
leiknum þar sem spilamennskan var með besta móti
gegn öflugum andstæðingum sem hafa unnið alla leiki
sína til þessa. Ísland á enn eftir sjö leiki í riðlinum og
því á mikið vatn eftir að renna til sjávar. »22
Spilamennskan var með besta móti
gegn Portúgal þrátt fyrir tap
ÍÞRÓTTIR MENNING