Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021 VINNINGASKRÁ 166 11098 20592 29745 39527 50611 61344 72521 193 11177 20795 29956 39562 50644 61380 72522 285 11256 21506 30004 39688 50729 61855 72564 343 11403 21640 30017 40015 51430 62003 72814 589 11547 21655 30150 40408 51471 62199 72833 759 11739 21775 30245 40590 51741 62940 72845 870 12344 21781 30621 40928 52520 63004 73556 1020 13027 22157 30826 40985 52553 63114 73642 1053 13061 22465 31034 41117 52850 64010 73771 1106 13683 23624 31167 41121 52884 64268 73996 1366 13913 23668 31471 41516 52966 64612 74085 1367 14733 23761 31947 41636 53075 65868 74114 2232 14796 23846 32248 42029 54308 66368 74847 2287 15144 24040 32641 42281 55874 66747 75994 3027 15372 24472 32864 42328 56043 66869 75996 3375 15490 24488 32992 42445 56053 67701 76168 4323 15744 24785 33232 42495 56249 68140 76359 4331 16050 24803 33899 43461 56323 68328 76715 4392 16377 24953 33902 43825 56475 68426 77129 4557 16641 24999 34133 44249 56595 68573 77156 4693 16820 25085 34249 44410 56699 68778 77229 5147 17129 25593 34602 45665 56785 68859 77334 5471 17195 25877 34654 46061 56875 69282 77696 6067 17446 25928 34670 46162 57208 69514 77728 6850 17455 25971 35635 46341 57301 69751 77799 6930 17746 26131 35809 46824 57707 69826 78290 7033 17918 26385 35842 47366 58008 71060 78351 7416 17984 26658 36120 47452 58110 71106 78570 7975 18878 26778 36296 48330 58178 71207 79819 8789 19103 27054 36498 48361 58472 71390 79919 8842 19251 27056 36515 48429 58727 71499 79963 9062 19670 27312 36719 48473 59732 71515 9315 19709 27450 38249 48712 59965 71684 9998 20020 27643 38384 48725 60415 72052 10107 20164 28383 38457 48940 60645 72106 10717 20237 28505 38697 49605 60710 72136 10770 20501 29455 39093 49928 61064 72203 1996 13118 22504 30333 39956 52246 61628 71403 2184 14210 22741 30613 41077 53823 62300 72033 2368 15296 23190 32021 41552 54162 62801 74407 3998 15627 23794 33645 42329 55191 63700 74685 4507 18365 23935 34163 42382 55227 63763 75445 4524 18777 24148 35527 46393 55812 64642 76826 5266 18883 24497 37090 47915 56680 65391 77295 6521 20116 24499 37931 49199 56698 67381 77624 6940 20557 26449 37985 49211 57647 69214 78913 7132 21804 26932 38352 49241 58750 69308 9093 21877 28311 38520 50759 59491 69323 10765 22063 28908 39521 51065 60715 70040 12296 22346 29088 39552 51515 61501 70516 Næsti útdráttur fer fram 28. október 2021 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 36403 42376 47874 53686 72198 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 3313 12980 24300 42336 53717 66170 3925 14052 31974 43092 57309 73906 5271 20083 37559 44215 59652 74662 6869 22502 41079 46642 63748 74915 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 6 6 3 0 24. útdráttur 21. október 2021 Í gær féll niður birting meðfylgj- andi töflu, sem átti að fylgja grein Hauks Arnþórssonar um danskar þjóðaratkvæðagreiðslur. Í töflunni kemur fram að þjóðar- atkvæðagreiðslur í Danmörku eru annars vegar haldnar að frumkvæði þjóðþingsins og hins vegar vegna skylduákvæða í stjórnarskrá – og þjóðaratkvæðagreiðslur má halda af sex tilgreindum tilefnum. Þá eru nefndar þær 19 þjóðaratkvæða- greiðslur sem hafa átt sér stað í Danmörku frá 1916. Dönsk útfærsla á rétti almennings til beinnar aðkomu að ákvörðunum með þjóðaratkvæðagreiðslum gæti átt fullt erindi í íslenska umræðu um meðferð fullveldisréttar og alþjóð- legra samninga ekki síður en til að mæta vilja þeirra sem kjósa lifandi málskotsrétt minni hluta þingmanna gagnvart nýjum lögum – eða til að mæta vilja annars áhugafólks um þjóðaratkvæðagreiðslur. Morgunblaðið biðst velvirðingar á mistökunum. Um þjóðaratkvæða- greiðslur í Danmörku Þjóðaratkvæðagreiðslur í Danmörku frá 1916 Stjórnarskrárgrein í núgildandi stj.skr. Tilefni Framkvæmd Að frumkvæði þingsins (valkvæðar) 1.mgr. 42. gr. Þriðjungur þingmanna getur krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um lagafrumvarp. Kosið var um jarðalögin 1963, felld. 6.mgr. 42. gr. Halda má með lögum þar um þjóðar- atkvæðagreiðslur um lagafrumvörp, þó ekki frumvörp af öllu tagi – en m.a. um alþjóðasamninga. Kosið var 1993 um aðild Danmerkur að Mastrichtsáttmál- anummeð viðauka frá Edinborgarsamningnum, samþykkt og 2009 um jafna stöðu kynjanna í erfðarétti konung- dóms, samþykkt. Ráðgefandi atkvæðagreiðslur með einfaldri lagaheimild. Haldin 1916 um söluna á Vestur-Indíum, samþykkt og 1986 um Evrópusáttmálann, samþykktur. Stjórnar- skrárbundnar (skyldu-) atkvæða- greiðslur 20. gr. Afsal fullveldisréttar. Ef ekki næst stuðningur 5/6 þingmanna fer frumvarpið í þjóðaratkvæði. Haldnar 1972 um inngönguna í ESB, samþykkt; 1991 um Mastrichtsáttmálann, felldur; 1998 umAmsterdamsátt- málann, samþykktur; 2000 um sameiginlegan gjaldmiðil, fellt; 2014 um aðild að Einkaréttardómstóli ESB, samþykkt og 2015 um lagalega fyrirvara gagnvart ESB, felld. 88. gr. Breytingar á stjórnarskrá. Sérákvæði um hlutfall kjósenda sem geta hafnað (40% á kjörskrá). Haldnar 1920 um breytingar, samþykktar; 1939 um heildarlög, felld og 1953 um heildarlög, samþykkt. 2.mgr. 29. gr. Breytingar á kosningaaldri. Haldnar 1953, úr 25 í 23 ár, samþykkt, en 21 ár felld; 1961, úr 23 árum í 21 ár, samþykkt; 1969, úr 21 í 18 ár, felld; 1971, úr 21 í 20 ár, samþykkt og 1978, 20 í 18 ár, samþykkt. Telja má nánast á fingrum annarrar handar þá málaflokka þar sem enn er krafizt einróma samþykkis ríkja Evrópu- sambandsins við ákvarðanatöku í ráð- herraráði þess. Með hverjum nýjum sátt- mála sambandsins í gegnum tíðina hefur einróma samþykki ver- ið afnumið í sífellt fleiri málaflokk- um. Með gildistöku Lissabon- sáttmálans 2009, sem í dag er grundvallarlöggjöf Evrópusam- bandsins, var það gert í um 40 mála- flokkum á einu bretti. Þannig heyrir krafan um einróma samþykki innan sambandsins í raun til undantekn- inga í dag. Ég vakti athygli á þessu í grein í Morgunblaðinu 24. september þar sem ég benti einnig á þá staðreynd að íbúafjöldi ríkja Evrópu- sambandsins réði mestu um mögu- leika þeirra til þess að hafa áhrif þegar ákvarðanir væru teknar í ráð- herraráðinu og þá einkum þeirra fá- mennustu. Stærstu ríkin væru hins vegar í algerri lykil- og yfir- burðastöðu í þeim efnum vegna fjöl- mennis. Ég fór enn fremur ítarlega yfir fyrirkomulag Evrópu- sambandsins í þessum efnum en upplýsingar um það eru til dæmis ágætlega aðgengilegar á vefsíðum sambandsins. Hvet ég lesendur, sem það hafa ekki þegar gert og áhuga hafa, til þess að kynna sér þá samantekt mína. Fyrri fullyrðing ekki endurtekin Mér barst nokkru síðar svargrein sem raunar gerði lítið annað en að undirstrika það sem ég hafði bent á í grein minni. Þá einkum og sér í lagi þá staðreynd að einróma sam- þykki ríkja Evrópusambandsins í ráðherraráði þess eigi aðeins við um fáeina málaflokka. Þannig voru til að mynda einungis tekin dæmi um einróma samþykki tengd þeim fáu málaflokkum þar sem slíks er enn krafizt í ráðinu og síðan fullyrt á þeim grunni, líkt og í fyrri grein höfundar, að engin ákvörðun um mikilvæg mál væri tekin án sam- þykkis allra ríkja sam- bandsins. Hins vegar hjó ég eftir því að höfundur svargreinarinnar minntist ekki orði á hina stóru fullyrð- inguna í fyrri grein hans þess efnis að fá- menn ríki gætu stöðv- að framgang hvaða mála sem væru á vett- vangi Evrópusam- bandsins. Nokkuð sem ég benti ekki hvað sízt á að stæðist enga skoðun og sem kemur ekki sérlega mikið á óvart að hafi ekki verið endurtekið. En þó svargreinin hafi litlu sem engu bætt við það sem áður hafði komið fram í mínum skrifum og í raun aðeins áréttað það sem ég benti á felur hún engu að síður í sér ágætis tilefni til þess að fjalla frekar um málið sem ekki reyndist mögu- legt í fyrri grein minni sökum lengdartakmarkana. Hvorki sjávarútvegs- né orkumál Mjög langur vegur er frá því að allar ákvarðanir um mikilvæg mál á vettvangi Evrópusambandsins kalli á einróma samþykki. Það á til að mynda almennt hvorki við um ákvarðanir um sjávarútvegsmál né orkumál. Vitanlega getur það verið nokkuð afstætt hvað telst til mikil- vægra mála en miðað við svargrein- ina verður að draga þá ályktun að höfundur hennar telji hvorugan þessara málaflokka falla undir þá skilgreiningu. Flestir Íslendingar eru þó líklega þeirrar skoðunar að þeir skipti þvert á móti afar miklu máli. Að minnsta kosti séð frá Ís- landi. Mörg dæmi eru einmitt um það að margfalt fjölmennari ríki en Ís- land hafi orðið undir í ráðherra- ráðinu, til að mynda þar sem rætt hefur verið um sjávarútvegsmál. Til að mynda stjórnvöld á Írlandi þegar þau mótmæltu harðlega samþykkt samninga um makrílveiðar við Fær- eyjar árið 2014 sem þau töldu skaða írska hagsmuni en Írar eru mesta makrílveiðiþjóð Evrópusambands- ins. Eins danskir ráðamenn þegar þeir beittu sér gegn því að sam- bandið gripi til refsiaðgerða gegn Færeyingum árið á undan vegna síldveiða þeirra í eigin lögsögu. Urðu Danir að lokum að taka þátt í því að refsa hluta danska kon- ungdæmisins þvert gegn eigin vilja. Þegar verið gengið of langt Með hliðsjón af þeirri staðreynd að ríki Evrópusambandsins hafa ítrekað samþykkt að afnema einróma samþykki í sífellt fleiri málaflokkum, nú síðast í um 40 málaflokkum með Lissabon- sáttmálanum fyrir einungis fáeinum árum, er vitanlega engan veginn á vísan að róa að slíkt muni ekki ger- ast eina ferðina enn. Full ástæða er þvert á móti til þess að vanmeta ekki þann mikla og vaxandi póli- tíska þrýsting sem til staðar er í þeim efnum innan sambandsins, meðal annars frá framkvæmda- stjórn þess og stjórnvöldum í Þýzkalandi. Hitt er svo annað mál að jafnvel þó engin frekari skref verði stigin í þá átt að afnema einróma samþykki ríkja Evrópusambandsins er ljóst að nú þegar hefur verið gengið svo langt í þeim efnum að það getur seint talizt ásættanlegt með tilliti til hagsmuna Íslands og íslenzku þjóð- arinnar. Langflestar ákvarðanir ráðherraráðsins krefjast þannig ein- ungis samþykkis 55% ríkja sam- bandsins með 65% íbúafjölda þess að baki sér. Þar eru stærstu ríkin sem fyrr segir í algerri lykil- og yfirburðastöðu í krafti fjölmennis. Líkt og ég nefndi í lok fyrri greinar minnar er vitanlega fyrir utan ann- að lítið gagn að sæti við borðið þeg- ar ekki er setið við sama borð. Eftir Hjört J. Guðmundsson »Mjög langur vegur er frá því að allar ákvarðanir um mikilvæg mál innan ESB kalli á einróma samþykki. Það á til að mynda ekki við um sjávarútvegsmál. Hjörtur J. Guðmundsson Höfundur er sagnfræðingur og al- þjóðastjórnmálafræðingur. hjortur@fullveldi.is Sjávarútvegsmálin ekki mikilvæg? Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.