Morgunblaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
S . F. C H R O N I C L E
B B C
T I M E O U T
84%
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Frábær ný mynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali.
Forlagið er afkastamikið í útgáfu að
vanda og væntanlegar, eða nýkomn-
ar, eru fjölmargar skáldsögur fyrir
börn og fullorðna, auk fræðirita og
ævisagna. Einnig gefur Forlagið út
talsvert af þýddum bókum.
Í skáldsögunni Þung ský segir
Einar Kárason frá hrikalegu slysi
við ysta haf og örlagaríkum björg-
unarleiðangri. Á þungbúnum vor-
degi sér drengur á afskekktum bæ
hvar stór farþegaflugvél birtist út
úr skýjaþykkni og fólkið í glugg-
unum veifar. Síðar sama dag frétt-
ist að vélin sé týnd.
Í smásagnasafninu Umfjöllun eft-
ir Þórarin Eldjárn eru átta sögur
úr fortíð og samtíð, stuttar og lang-
ar og umfjöllunarefnin fjölbreytt.
Stóra bókin um sjálfsvorkunn
heitir fyrsta skáldsaga Ingólfs Ei-
ríkssonar. Í bókinni segir frá Hall-
grími sem hrökklast heim úr leik-
listarnámi í erlendri stórborg eftir
sambandsslit til að fara á geðdeild.
Í skáldsögunni Merkingu eftir
Fríðu Ísberg segir frá svonefndu
samkenndarprófi, byltingarkenndri
tækni sem byggist á rannsóknum
um marktæka fylgni milli andsam-
félagslegrar hegðunar og að mælast
undir lágmarksviðmiðum þess.
Myrkrið milli stjarnanna eftir
Hildi Knútsdóttur er martraðar-
kennd samtímasaga. Iðunn vaknar
alltaf þreytt á morgnana. Allir hafa
ráð á reiðum höndum – læknirinn,
sálfræðingurinn, vinkonurnar – en
ekkert þeirra fær að heyra alla
söguna.
Launsátur heitir ný glæpasaga
Jónínu Leósdóttur. Í Launsátri
glíma rannsóknarlögreglukonan
Soffía og fyrrverandi eiginmaður
hennar, sálfræðingurinn Adam, við
flókið glæpamál sem hefst á því að
nálar eru faldar í ávöxtum í verslun.
Svikaskáldin Þórdís Helgadóttur,
Þóra Hjörleifsdóttir, Sunna Dís
Másdóttir, Ragnheiður Harpa
Leifsdóttir, Melkorka Ólafsdóttir og
Fríða Ísberg senda frá sér fyrstu
skáldsöguna sem þær nefna Olíu.
Skáldleg afbrotafræði Einars
Más Guðmundssonar er aldarfars-
saga sem bregður upp mynd af
samfélagi og tíðaranda í byrjun 19.
aldar, glæpaöldinni sem Einar
nefnir svo.
Í spennubókinni Náhvít jörð
segir Lilja Sigurðardóttir frá
glæpamönnum sem svífast einskis
og fórnarlömbum mansals.
Einlægur Önd, ævisaga er með
undirtitilinn Eiríkur Örn, skáld-
saga. Í bókinni, sem er eftir Eirík
Örn Norðdahl, tekur aðalpersóna
bókarinnar, Eiríkur Örn, að sér
kennsluverkefni í ritlist fyrir erlent
stórfyrirtæki. Hann kann kennsl-
unni vel en þegar veist er að hon-
um til að fá hann til að hætta
kennslunni sökkvir hann sér niður
í söguna af Felix Ibaka frá Arbí-
treu.
Skáldsagan Dyngja, eftir Sig-
rúnu Pálsdóttur, hefst um miðbik
20. aldar á litlum bæ við rætur
Ódáðahrauns og berst þaðan
lengra inn í landið; frá hálendi Ís-
lands út í geim og að lokum til
tunglsins.
Sextíu kíló af kjaftshöggum er
sjálfstætt framhald skáldsögunnar
Sextíu kíló af sólskini. Í bókinni
rekur Hallgrímur Helgason frekar
sögu Gests Eilífssonar sem er orð-
inn átján ára og er fyrirvinna fimm
manna heimilis.
Skáldsagan Djúpið, eftir Benný
Sif Ísleifsdóttur, gerist í brothættri
byggð við Djúp 1975 þegar ungt
vísindafólk er ráðið til starfa hjá
Búseturöskun ríkisins í þeim til-
gangi að efla mannlíf og atvinnu í
samstarfi við heimamenn.
Í bókinni Út að drepa túrista eft-
ir Þórarin Leifsson segir af leið-
sögumanninum Kalmani sem er
þreyttur. Hring eftir hring og ár
eftir ár hefur hann mátt sinna kenj-
um fólks frá öllum heimshornum,
svara furðulegum spurningum og
bregðast við óvæntum uppákomum.
Illfyglið er lokabókin í þríleik
Sigrúnar Elíasdóttur um ævintýr
Húgós og Alex. Þegar bókin hefst
eru þau búin að týna hvort öðru en
halda þrátt fyrir það áfram leitinni
að síðustu steinstyttunni.
Furðufjall: Nornaseiður er fyrsta
bókin í nýrri ævintýrasagnaröð eftir
Gunnar Theodór Eggertsson. Bókin
segir frá ungmennunum Íma og
Andreasi og því hvernig óvæntir og
skelfilegir atburðir setja tilveru
þeirra í uppnám.
Drekar, drama og meira í þeim
dúr er sjálfstætt framhald bók-
arinnar Vampírur, vesen og annað
tilfallandi eftir Rut Guðnadóttur.
Söguhetjurnar, Milla, Rakel og
Lilja, ramba á dularfullt leyndarmál
og ógn hins yfirnáttúrulega grípur
þær á nýjan leik.
Í barnabókinni Meira pönk, meiri
hamingja heldur Gerður Kristný
áfram með söguna af Iðunni og
pönkaranum afa hennar. Eftir að
hafa heyrt útihátíðarsögur afa
ákveða Iðunn og María Sara að
halda sína eigin útihátíð með tjaldi
og söng og sprangi og ræðum og
varðeldi (ef leyfi fæst).
Þorgrímur Þráinsson segir frá
vinunum Máneyju og Sólmundi og
ævintýri þeirra hjá álfum í bókinni
Tunglið tunglið taktu mig.
Handbók gullgrafarans er síðasta
bókin í þríleik Snæbjörns Arn-
grímssonar um vinina Millu og Guð-
jón G. Georgsson. Á háaloftinu á
Sjónarhóli finnur Guðjón G.
Georgsson gamla stílabók og í bók-
inni er kort sem á að vísa á gamlan
fjársóð.
Söguhetja bókarinnar Alexander
Daníel Hermann Dawidsson: Bann-
að að eyðileggja eftir Gunnar
Helgason er með ADHD en það er
allt í lagi – nema þegar lífið tekur
upp á því að fara á hvolf.
Þín eigin ráðgáta eftir Ævar Þór
Benediktsson er áttunda bókin í
bókaflokki þar sem lesandinn stýrir
ferðinni.
Þrjár Lárubækur Birgittu Hauk-
dal eru væntanlegar: Lára lærir að
baka, Lára lærir á hljóðfæri og
Syngdu jólalög með Láru og
Ljónsa. Bókin Rauð viðvörun!
Jólin eru á leiðinni eftir Sigrúnu
Eldjárn er jólasaga í 24 stuttum
köflum um systkinin Jóa og Lóu.
Sólkerfið okkar heitir bók þar
sem Sævar Helgi fer í ferðalag um
sólkerfið okkar.
Hildur Knútsdóttir og Þórdís
Gísladóttir skrifa saman bókina Nú
er nóg komið!, sem segir frá ævin-
týrum vinkvennanna Vigdísar
Fríðu, Geirlaugar og Rebekku.
miSter einSam heitir bók Ragn-
heiðar Eyjólfsdóttur og segir frá
Samma, syni Hákarlsins, eins um-
deildasta manns landsins, sem er í
sumarbústað með vinum sínum þeg-
ar eitt unmennanna hverfur spor-
laust út í vetrarmyrkrið.
Þórunn Valdimarsdóttir skrifar
um eitt þekktasta sakamál Íslands-
sögunnar í bókinni Bærinn brenn-
ur, morðið á Natani Ketilssyni, og
styðst meðal annars við nákvæmar
yfirheyrslur yfir sakborningunum
og sveitungum þeirra.
Í Þjóðarávarpinu fjallar Eiríkur
Bergmann um þjóðernishugmyndir,
popúlisma, upplýsingaóreiðu og
samsæriskenningar af ýmsu tagi. Í
bókinni Ilmreyr eftir Ólínu Kjerúlf
Þorvarðardóttur er kveðja frá dótt-
ur til móður en um leið óður til for-
mæðra og -feðra sem háðu sitt lífs-
stríð við úthafsölduna vestur á
fjörðum og áttu líka glímutök við
brimöldur hjartans.
Í bókinni Rætur rekur Ólafur
Ragnar Grímsson æskuárin á Ísa-
firði og Þingeyri, segir frá þorpinu í
Þingholtunum og andstæðum á
Melunum og æskuvinum í skólunum
við Lækjargötu.
Úrval af íslenskum skáldskap
- Á þriðja tug skáldverka fyrir börn og fullorðna koma út eða eru komin út á vegum Forlagsins
- Nýjar skáldsögur Jónínu Leósdóttur, Fríðu Ísberg, Einars Más og Hallgríms Helgasonar
Rut
Guðnadóttir
Fríða
Ísberg
Gerður
Kristný
Benný Sif
Ísleifsdóttir
Sigrún
Pálsdóttir
Birgitta
Haukdal
Lilja
Sigurðardóttir
Hildur
Knútsdóttir
Jónína
Leósdóttir
Þórunn
Valdimarsdóttir
Sigrún
Elíasdóttir
Ragnheiður
Eyjólfsdóttir