Morgunblaðið - 27.10.2021, Qupperneq 1
Andrés Magnússon
andres@mbl.ia
Miðað er við að formenn stjórnar-
flokkanna nái saman um útlínur end-
urnýjaðs stjórnarsamstarfs ekki síð-
ar en um helgina. Þá tekur við stutt
hlé meðan tveir formannanna fara af
landinu í embættiserindum, Katrín
Jakobsdóttir á loftslagsráðstefnuna í
Glasgow og Sigurður Ingi Jóhanns-
son á þing Norðurlandaráðs í Kaup-
mannahöfn. Gert er ráð fyrir að eig-
inleg vinna við stjórnarsáttmála geti
hafist þegar þau snúa aftur.
„Mín tilfinning er sú að það sé
ekkert eftir sem ekki er hægt að
finna lausn á,“ sagði stjórnarliði í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Ríkisstjórnarfundur fór fram í
Ráðherrabústaðnum í gær, en sjálf-
stæðismenn og framsóknarmenn
héldu einnig þingflokksfundi, þar
sem formenn flokkanna ræddu stöðu
viðræðnanna. Vinstri græn hafa boð-
að til þingflokksfundar í dag.
Stjórnarþingmenn segja að lítið
nýtt sé að frétta af viðræðum for-
mannanna. Þar ríki enn ágreiningur
um ýmis vel þekkt deiluefni flokk-
anna, svo sem rammaáætlun, friðlýs-
ingar og hálendisþjóðgarð, en einnig
voru flóttamannamál nefnd til sög-
unnar. „Þetta eru mál sem þarf að
leysa og er ekki hægt að ýta á undan
sér,“ sagði einn sjálfstæðismanna.
„Það eru svona mál sem sprengja
ríkisstjórnir ef menn semja ekki um
þau fyrirfram.“
Þingmaður Vinstri grænna tók í
sama streng, en sagði að þótt þetta
væru erfið mál, þá væru þau komin á
góðan rekspöl og engin ástæða til
þess að ætla annað en að formenn-
irnir næðu málamiðlun um þau.
Mikið hefur miðað í viðræðum
Til þess er tekið að formennirnir
séu enn að hittast einir síns liðs, en
gert er ráð fyrir því að fleiri komi að
borðinu í næstu viku, þegar farið
verður í ritun stjórnarsáttmála.
Það mun þó ekki vera svo að for-
mennirnir ræði ekki annað en helstu
þrætuefnin. Þingmenn taka fram að
vel hafi miðað um margvísleg mál-
efni og að uppkast liggi fyrir um
marga málefnapunkta, sem lagt
verður til grundvallar þegar hin eig-
inlega ritun málefnasamnings getur
hafist í næstu viku.
Þingmenn segja að formenn flokk-
anna nálgist verkefnið af raunsæi og
málefnasamningurinn muni taka mið
af því, sér í lagi varðandi stöðu ríkis-
fjármála. Ekki sé að vænta mikillar
útgjaldaukningar, enda óráðlegt í
ljósi yfirvofandi verðbólgu. Hins
vegar séu uppi ráðagerðir um ýmsar
kerfisbreytingar, sem m.a. hafi í för
með sér bætta nýtingu fjármuna rík-
isins þar sem þeirra er helst þörf.
Að sögn eru þreifingar um ráð-
herrastóla og ráðuneytisskipan
hafnar, en talsvert í að þau mál verði
leidd til lykta.
Lokahnykkurinn skammt undan
- Líklegt að ritun stjórnarsáttmála geti hafist í næstu viku - „Erfiðu málin“ komin á góðan rekspöl
- Vonast til þess að umgjörð stjórnarsamstarfs liggi fyrir um helgina - Þreifingar um stóla hafnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ríkisstjórnarfundur Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var glöð í
bragði þegar hún kom til fundar í Ráðherrabústaðnum við Tjörnina í gær. MStjórnarandstaðan mun »…10
M I Ð V I K U D A G U R 2 7. O K T Ó B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 252. tölublað . 109. árgangur .
VÆGAST SAGT
STÓRBROTIÐ
RITVERK
MIKIL
GÆÐI Í
MYRKRINU
HÆKKANIR
BÍTA Í
FLUGFÉLÖGIN
AURORA BASE CAMP SÆKIR FRAM 6 VIÐSKIPTAMOGGINNDÓMUR bbbbb 25
Ísland vann afar öruggan 5:0 sigur á Kýpur í
undankeppni HM kvenna í knattspyrnu á Laug-
ardalsvellinum í gær. Hér sjást þær Dagný
Brynjarsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir fagna
marki í gær en þær skoruðu fyrstu tvö mörk Ís-
lands. Í baksýn má sjá Amöndu Andradóttur sem
fékk tækifæri í byrjunarliðinu en hún er ekki
orðin 18 ára gömul. Ísland á enn eftir einn leik á
þessu ári en hann verður á Kýpur. »22
Annar stórsigur í undankeppni HM 2023
Morgunblaðið/Unnur Karen
Alsælar landsliðskonur í rigningunni í Laugardalnum
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri
Vinnumálastofnunar, segir óráðið í
30-40% auglýstra starfa í átakinu
Hefjum störf. Meðal annars hafi
reynst erfitt að manna stöður á hót-
elum úti á landi, ekki síst þeim sem
eru langt frá höfuðborgarsvæðinu.
Skýringin geti meðal annars verið
sú að atvinnuleitendur hafi aflað sér
háskólamenntunar en að auglýstu
störfin krefjist mörg hver ekki
menntunar á umræddum sviðum.
Tilefnið er að viðmælendur blaðs-
ins í verslun og heildsölu hafa kvart-
að undan því að erfitt sé að manna
lausar stöður, þrátt fyrir að nú sé
skráð 5% atvinnuleysi á Íslandi.
Samkvæmt mælaborði átaksins
Hefjum störf hafa verið auglýst
15.783 störf síðan átakið hófst 1.
mars og hafa verið skráðar 6.800
ráðningar, sem er 43% ráðningar-
hlutfall. »ViðskiptaMogginn
Tekst ekki
að manna
fjölda starfa
- Unnur bendir á
vægi menntunar
Morgunblaðið/Einar Falur
Á ferð um landið Störf í ferðaþjón-
ustu hafa verið afþökkuð í ár.