Morgunblaðið - 27.10.2021, Side 8

Morgunblaðið - 27.10.2021, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021 Að gefnu tilefni bendir Jón Magnússon fv. alþing- ismaður á þekkt tilþrif: „Lofts- lagsráðstefna S.Þ. á að hefjast í Glas- gow um næstu helgi og svo virðist sem Glasgow sé nú sem oftast með sóðalegustu borg- um á norðurhveli jarðar, þar sem rottugangur og óhreinindi eru ógn við lýðheilsu fólks í borginni. - - - Formaður borgarráðs Glas- gow, Susan Aitken frá Skoska þjóðarflokknum, er með það á hreinu, að ástæða þess, að Glasgow skuli vera með sóðaleg- ustu borgum veraldar, sé Marg- aret Thatcher að kenna. - - - Vinstra fólk á yfirleitt ekki í erfiðleikum með að finna blóraböggla og kenna öllum öðr- um um en sjálfum sér og varast að horfast í augu við afleiðingar sósíalískra stjórnunarhátta sinna. - - - Mikill má máttur Margaret Thatcher vera fyrst hún nú rúmum 30 árum eftir að hún lét af embætti sem forsætisráð- herra og rúmum 8 árum eftir að hún andaðist ber alla ábyrgð á sóðaskapnum og rottuganginum í Glasgow eins og borgarráðs- formaðurinn heldur fram. - - - Sérkennilegt að svona snar- galin umræða skuli eiga sér stað og það frá fólki sem gegnir mikilvægum áhrifastöðum og vinstri fjölmiðlaelítan lætur sem ekkert sé og tekur jafnvel undir bullið.“ Jón Magnússon Henni að kenna! Staksteinar Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Almenningur á Norðurlöndum er enn jákvæður gagnvart norrænu samstarfi en margir Norðurlanda- búar telja hins vegar að samhæfing aðgerða í tengslum við heimsfar- aldurinn verði að vera betri. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri skoðanakönnun Norður- landaráðs og Norrænu ráðherra- nefndarinnar, sem greint var frá í gær. Könnunin náði til 3.400 þátt- takenda á öllum Norðurlöndum, en hún var gerð í maí og júní á þessu ári. Í fréttatilkynningu Norðurlandaráðs segir að 86% svarenda telji að þróað samstarf milli norrænu ríkjanna sé mikil- vægt eða mjög mikilvægt. Er það ögn minna en í könnuninni 2017, en þá voru 92% þeirrar skoðunar. 60% óska eftir auknu samstarfi milli norrænu ríkjanna, 32% finnst staðan góð eins og hún er nú og aðeins 1% vill að samstarfið sé minna en nú. Þá kemur einnig fram að Norðurlandabúar telji mikilvægast að ríkin vinni saman í baráttu gegn glæpastarfsemi þvert á landamæri ríkjanna. Umhverfis- og loftslags- mál voru þar næst og svo varnar- og öryggismál. Sömu þrjú málefni voru einnig efst á baugi í síðustu könnun, sem gerð var árið 2017. Jákvæðir gagnvart samstarfinu - Barátta gegn glæpum sögð mikilvæg- asta samstarfsverkefni Norðurlanda Ljósmynd/Norðurlandaráð Þjóðfánar Almenningur á Norð- urlöndum er enn hlynntur góðu samstarfi norrænu ríkjanna. Til stendur að opna skautasvell í miðbæ Hafnarfjarðar í lok nóv- ember um leið og Jólaþorpið verður opnað. Lagt var til á fundi menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðar í vikunni að fjárfesta í skautasvelli. Fram kemur í tilkynningu frá Hafn- arfjarðarbæ að fyrstu hugmyndir geri ráð fyrir að svellið verði sett upp á Ráðhústorgi, miðja vegu milli Jólaþorpsins og Hellisgerðis eða beint á móti Bæjarbíói. Um sé að ræða hagkvæmt gervisvell með 12- 20 ára endingu. Segir í tilkynning- unni að hugmyndir um slíkt skauta- svell í Hafnarfirði hafi verið í um- ræðunni um árabil. Jólaskreytingar Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar hófst í síðustu viku handa við upp- setningu á jólaskreytingum í miðbæ Hafnarfjarðar og munu ný ljós og skreytingar bætast jafnt og þétt við næstu daga og vikur. Jólaþorpið á Thorsplani verður opnað föstudaginn 26. nóvember og er jólaævintýrið í Hellisgerði einnig í fullum undirbúningi. Hellisgerði Það var jólalegt í Hellisgerði í Hafnarfirði á aðventunni í fyrra. Skautasvell í miðbæ Hafnarfjarðar SKVÍSAÐU ÞIG UPP FYRIR SUMARIÐ STÆRÐIR 1428 Sundkjóll 15.990 kr Stærðir 42-56 Bikiní haldari 8.990 kr C-H skálar Bikiní haldari 8.990 kr Stærðir 42-54 Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.