Morgunblaðið - 27.10.2021, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 27.10.2021, Qupperneq 11
Elísabet 2. Bretadrottning sinnti skyldustörfum sínum í gær á ný, en það var í fyrsta sinn síðan hún þurfti að dveljast næturlangt á sjúkrahúsi í síðustu viku. Tók hún á móti sendiherrahjónunum frá Suður-Kóreu, sem hér sjást á mynd, og svo sendiherrahjónunum frá Sviss, en báðir sendiherrar voru að afhenda þjóðhöfðingjanum erindis- bréf sín. Báðir fundir fóru hins vegar fram yfir fjarfundabúnað. Þetta var fyrsta embættisverk drottning- arinnar frá 19. október en þá tók hún á móti gestum ríkisstjórn- arinnar í Windsor-höll. Læknar skipuðu henni að hvíla sig í kjölfar- ið. Gert er ráð fyrir að hún muni sækja loftslagsráðstefnuna í Glas- gow í næstu viku. Elísabet 2. Bretadrottning sinnir skyldustörfum sínum á ný Hitti sendi- herrana á fjarfundi AFP AFP Japan Hjónin hneigja sig á blaðamanna- fundi sem haldinn var eftir athöfnina. Mako, prinsessa af Japan, giftist í gær Kei Komuro, unnusta sínum, en þau kynntust fyrst á háskóla- árum Mako. Athöfnin var lág- stemmd, en Mako neyddist til þess að gefa frá sér tign sína og titla til þess að mega giftast Komuro. Hjúskapur þeirra hefur valdið deilum í Japan, og hörmuðu hin ný- giftu hjón hvernig „staðlausir orð- rómar“ hefðu orðið að mat slúður- blaða. „Fyrir mér er Kei óbætan- legur. Hjónaband okkar er nauð- synlegt skref fyrir okkur til að verja hjörtu okkar,“ sagði Mako. Komuro sagði að við fengjum að- eins eitt líf, og að hann vildi eyða því með þeirri sem hann elskaði. Hjónin hyggjast nú flytja til Banda- ríkjanna, en Komuro vinnur hjá lögmannsstofu í New York. JAPAN Fórnaði tigninni fyrir æskuástina FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021 Núverandi áætlanir ríkja í loftslags- málum munu einungis skila brota- broti af þeim árangri sem þörf er á, ætli ríki heims að halda hlýnun jarðar undir 1,5 gráðum á Celsíus frá því sem var fyrir iðnbyltingu, að mati Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNEP. Sagði í skýrslu stofnunarinnar að miðað við núverandi áætlanir myndi hlýnunin ná 2,7°C fram yfir meðalhita fyrir iðnbyltingu, en Parísarsam- komulagið frá 2015 skuldbindur ríki heims til þess að stefna að því að hlýnunin verði undir tveimur gráð- um, og helst undir 1,5 gráðum árið 2050. Antonio Guterres, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði að skýrslan sýndi að heimurinn stefndi enn í átt að loftslagshörm- ungum. Spurði hann hversu margar viðvörunarbjöllur þyrftu að hringja áður en gripið yrði til aðgerða. Inger Andersen, framkvæmda- stjóri UNEP, sagði að þjóðir heims hefðu átta ár til þess að skera niður útblástur á gróðurhúsalofttegundum um helming, ætluðu þær sér að ná markmiðinu um hlýnun upp á 1,5°C. Stjórnvöld í Ástralíu hétu því í gær að landið myndi ná að kolefnisjafna allan útblástur sinn fyrir árið 2050, en þau höfðu verið gagnrýnd fyrir að draga lappirnar í loftslagsmálum. Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, sagði að áætlunin myndi ekki fela í sér að dregið yrði úr kola- og jarðgasvinnslu Ástrala, en landið er einn helsti útflytjandi þeirra orku- gjafa. Sagði Morrison að Ástralar myndu ekki hlusta á gagnrýni frá fólki sem skildi ekki Ástralíu. „Ástr- alska leiðin snýst öll um hvernig þú gerir hlutina, ekki hvort þú gerir þá.“ AFP Loftslagsmál Umhverfisstofnun SÞ segir að ríki heims þurfi að draga mun meira úr útblæstri sínum. Loftslagsáætlanir langt frá markinu - Ástralía stefnir að hlutleysi 2050 Þingnefnd öld- ungadeildar bras- ilíska þingsins um viðbrögð við kór- ónuveirunni ósk- aði í gær eftir því við hæstarétt landsins og emb- ætti ríkis- saksóknara að Jair Bolsonaro, forseti landsins, yrði sviptur að- gangi sínum að samfélagsmiðlum. Er beiðnin tilkomin þar sem Bolson- aro lýsti því yfir í síðustu viku á Facebook að tengsl væru á milli bóluefna gegn veirunni og alnæmis. Hafa bæði Facebook og YouTube bannað upptökuna á vefjum sínum. BRASILÍA Forsetinn verði svipt- ur samfélagsmiðlum Jair Bolsonaro Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Mótmælt var annan daginn í röð gegn valdaráni hersins í Súdan í gær. Antonio Guterres, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, ítrekaði kröfu sína um að Abdalla Hamdok, forsætisráðherra Súdans, yrði sleppt úr haldi hersins þegar í stað, og að aftur yrði tekið til hönd- um við að koma á lýðræði í landinu. Abdel Fattah al-Burhan, æðsti yfirmaður hersins, þrætti í gær fyrir að Hamdok væri í haldi hersins, og sagði á fréttamannafundi að Ham- dok væri við góða heilsu á heimili hershöfðingjans, og að hann mætti snúa aftur heim til sín um leið og nú- verandi „krísu“ væri lokið. Burhan lýsti því yfir á mánudag- inn að herinn hefði einungis brugðist við til þess að „leiðrétta gang bylt- ingarinnar“ frá 2019, þegar Omar al- Bashir var steypt af stóli eftir 20 ára samfellda valdatíð. Sendiherrar Súd- ans í Frakklandi, Belgíu og Sviss til- kynntu hins vegar í gær að þeir for- dæmdu aðgerðir hersins, og að sendiráð þeirra væru nú „sendiráð fólksins í Súdan og byltingar þess“. Fjórir látnir eftir mánudaginn Mótmælendur í Kartúm, höfuð- borg landsins, kölluðu slagorð gegn hernum og hétu því að þeir myndu hvergi víkja, þrátt fyrir fregnir um að skotið hefði verið á mótmælendur í fyrradag. Talið er að minnst fjórir hafi látist af völdum skothríðarinnar, og um áttatíu til viðbótar særst. Antony Blinken, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, lýsti yfir áhyggjum sínum í fyrrinótt af fregn- um um að skotið hefði verið á al- menning, en Bandaríkjastjórn for- dæmdi valdaránið harðlega. Ákváðu stjórnvöld þar að frysta neyðarað- stoð til Súdans upp á 700 milljónir bandaríkjadala, eða sem nemur um níu milljörðum íslenskra króna, vegna valdaránsins. Bandaríkin, Noregur og Bretland, sem öll hafa átt þátt í að stilla til frið- ar í hinum ýmsu deilum sem hrjáð hafa Súdan, lýstu því svo sameigin- lega yfir í gær að valdarán hersins væri „svik við byltinguna, valda- skiptin og lögmætar óskir almenn- ings í Súdan um frið, réttlæti og efnahagslega þróun“. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundaði um mál Súdans á bak við luktar dyr í gærkvöldi, en fyrirfram var talið ólíklegt að ráðið myndi senda frá sér ályktun, þar sem enn væri á huldu hver afstaða Rússa og Kínverja væri til slíkrar ályktunar. Valdaráninu mótmælt - Guterres kallar eftir því að Hamdok verði sleppt úr haldi þegar í stað - Burhan segir Hamdok við góða heilsu - Bandaríkjastjórn frystir neyðaraðstoð til Súdans AFP Súdan Abdel Fattah al-Burhan mót- mælti því í gær að Hamdok for- sætisráðherra væri í haldi. Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Nýjar haustvörur Vesti • Peysur • Kjólar • Blússur Bolir • Túnikur • Pils • Silkislæður Vinsælu velúrgallarnir komnir í nýjum litum stærðir S-4XL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.