Morgunblaðið - 27.10.2021, Page 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021
Undankeppni HM kvenna
C-RIÐILL:
Ísland – Kýpur.......................................... 5:0
Hvíta-Rússland – Holland....................... 0:2
Staðan:
Holland 4 3 1 0 13:1 10
Ísland 3 2 0 1 9:2 6
Tékkland 3 1 1 1 9:5 4
Hvíta-Rússland 2 1 0 1 4:3 3
Kýpur 4 0 0 4 1:25 0
A-RIÐILL:
Slóvakía – Georgía.................................... 2:0
Finnland – Írland ..................................... 1:2
Staðan: Svíþjóð 9, Finnland 6, Slóvakía 3,
Írland 3, Georgía 0.
B-RIÐILL:
Úkraína – Spánn....................................... 0:6
Færeyjar – Ungverjaland ....................... 1:7
Staðan: Spánn 9, Skotland 9, Úkraína 3,
Ungverjaland 3, Færeyjar 0.
D-RIÐILL:
Norður-Makedónía – Lúxemborg ...........2:3
Lettland – England................................ 0:10
Norður-Írland – Austurríki..................... 2:2
Staðan: England 12, Austurríki 10, Norð-
ur-Írland 7, Lúxemborg 3, Norður-Make-
dónía 3, Lettland 0.
E-RIÐILL:
Bosnía – Rússland .................................... 0:4
Aserbaídsjan – Malta............................... 1:2
Svartfjallaland – Danmörk...................... 1:5
Staðan: Danmörk 12, Rússland 12, Svart-
fjallaland 6, Malta 4, Bosnía 1, Aserbaíd-
sjan 0.
F-RIÐILL:
Armenía – Kósóvó .................................... 0:1
Noregur – Belgía...................................... 4:0
Pólland – Albanía ..................................... 2:0
Staðan: Noregur 10, Pólland 8, Belgía 7,
Albanía 4, Kósóvó 4, Armenía 0.
G-RIÐILL:
Litháen – Ítalía ......................................... 0:5
Sviss – Króatía.......................................... 5:0
Staðan: Sviss 12, Ítalía 12, Rúmenía 6, Mol-
dóva 0, Litháen 0, Króatía 0.
H-RIÐILL:
Þýskaland – Ísrael.................................... 7:0
Búlgaría – Portúgal.................................. 0:5
Serbía – Tyrkland .................................... 2:0
Staðan: Þýskaland 12, Portúgal 10, Tyrk-
land 4, Serbía 3, Ísrael 0, Búlgaría 0.
I-RIÐILL:
Kasakstan – Frakkland ........................... 0:5
Grikkland – Slóvenía................................ 1:4
Wales – Eistland....................................... 4:0
Staðan: Frakkland 12, Wales 10, Slóvenía
7, Grikkland 6, Kasakstan 0, Eistland 0.
Vináttulandsleikur kvenna
Skotland – Svíþjóð.................................... 0:2
England
Deildabikarinn, 16-liða úrslit:
Arsenal – Leeds........................................ 2:0
Chelsea – Southampton .................. 4:3 (1:1)
QPR – Sunderland........................... 1:3 (0:0)
Þýskaland
Bikarkeppni:
1860 München – Schalke ........................ 1:0
- Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik-
inn og bar fyrirliðaband Schalke.
Hoffenheim – Holstein Kiel.................... 5:1
- Hólmbert Aron Friðjónsson var ónotað-
ur varamaður hjá Holstein Kiel.
Ítalía
Venezia – Salernitana............................. 1:2
- Arnór Sigurðsson og Bjarki Steinn
Bjarkason voru ónotaðir varamenn hjá Ve-
nezia.
Rússland
Bikarkeppni:
Lipetsk – CSKA Moskva ......................... 0:2
- Hörður Björgvin Magnússon hjá CSKA
er frá keppni vegna meiðsla.
Danmörk
Bikarkeppni:
Horsens – Vejle ............................... 1:3 (frl.)
- Aron Sigurðarson lék allan leikinn og
skoraði mark Horsens. Ágúst Eðvald
Hlynsson var ónotaður varamaður.
Svíþjóð
Helsingborg – GAIS ................................ 0:1
- Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn fyr-
ir Helsingborg.
>;(//24)3;(
Naby Keita, miðjumaður enska
knattspyrnufélagsins Liverpool, er
ekki alvarlega meiddur þrátt fyrir
að hafa verið borinn sárþjáður af
velli í 5:0 sigri liðsins gegn Man-
chester United í ensku úrvalsdeild-
inni síðastliðinn sunnudag.
Hann varð þá fyrir ljótri tækl-
ingu frá Paul Pogba, miðjumanni
United. Óttast var að Keita væri
fótbrotinn en hann er aðeins illa
marinn.
Pogba fékk beint rautt spjald fyr-
ir brotið og hefur verið úrskurð-
aður í þriggja leikja bann.
Keita marinn en
ekki brotinn
AFP
Meiddur Naby Keita borinn af velli
á Old Trafford á sunnudaginn.
Evrópumeistarar Hollands lentu í
vandræðum með Hvíta-Rússland á
útivelli í C-riðli undankeppni HM
2023 í knattspyrnukvenna, riðli Ís-
lands, í gærkvöldi.
Hvít-Rússar héldu Hollendingum
í skefjum lengi framan af enda var
það ekki fyrr en á 71. mínútu sem
Hollendingar brutu ísinn þegar
Lieke Martens skoraði. Skömmu
síðar, á 75. mínútu, innsiglaði Dani-
elle van de Donk svo 2:0 sigur.
Holland er eftir sigurinn áfram á
toppi riðilsins með 10 stig að lokn-
um fjórum leikjum.
Hvíta-Rússland
stóð í Hollandi
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Efstar Danielle van de Donk (t.v.)
var á skotskónum í gærkvöldi.
Lítil mótspyrna
Eftir að flautað var til leiks var
aldrei nein spurning um hvort liðið
myndi vinna þennan leik. Spurn-
ingin var hversu stór sigur ís-
lenska liðsins yrði. Íslensku lands-
liðskonurnar völtuðu þó ekki yfir
Kýpur í fyrri hálfleik. Leikurinn
var ekki mjög hraður og íslenska
liðið nýtti í raun marktækifærin
nokkuð vel í fyrri hálfleik. Mark-
vörður Kýpur var ekki traustvekj-
andi og gerði mistök bæði í fyrsta
og þriðja marki Íslands. Með öfl-
ugri markvörð á milli stanganna
hjá Kýpur hefði ef til vill ekki
munað miklu að loknum fyrri hálf-
leik. Kýpur skipti reyndar um
markvörð þegar staðan var orðin
5:0 og varamarkvörðurinn virtist
vera betri. Á móti má nefna að
mark var dæmt af íslenska liðinu í
fyrri hálfleik. Svava Rós Guð-
mundsdóttir var þá dæmd brotleg
áður en Karólína kom boltanum í
opið markið. Svava botnaði lítið í
túlkun úkraínska dómarans á regl-
unum í það skiptið.
Mótspyrnan í gær var ekki í lík-
ingu við það sem gerist í erfiðum
landsleikjum og því lítil ástæða til
að fella mikla dóma yfir frammi-
stöðu íslensku leikmannanna. Þær
náðu í stigin þrjú og gerðu það
mjög örugglega. Auk þess tókst að
gefa mörgum leikmönnum tæki-
færi sem eiga fáa leiki að baki og
máttarstólpar eins og Glódís Perla
Viggósdóttir og Gunnhildur Yrsa
Jónsdóttir fengu hvíld.
Amanda lék í 90 mínútur
Amanda Andradóttir er spenn-
andi leikmaður og sýndi að hún
hefur góða tilfinningu fyrir bolt-
anum. Hún er eiginlega bara ung-
lingur ennþá og á því eftir að öðl-
ast meiri kraft og snerpu með
tímanum.
Elísa Viðarsdóttir lagði upp tvö-
mörk úr bakvarðastöðunni og var í
boltanum í þriðja markinu. Sveind-
ís Jane Jónsdóttir skoraði tvívegis
en það var fyrirséð að leikmenn
Kýpur myndu lenda í vandræðum
gegn Sveindísi.
2.175 manns voru á leiknum í
gær og landsliðsþjálfaranum Þor-
steini Halldórssyni þótti það ekki
mikið þegar hann tjáði sig á blaða-
mannafundi að leiknum loknum .
„Mér finnst stelpurnar eiga það
skilið að fleiri mæti á völlinn og ég
vil sjá 5.000 til 6.000 manns á vell-
inum þegar þær spila.“
Mjög öruggt gegn Kýpur
- Markatalan hjá kvennalandsliðinu í knattspyrnu orðin fín í undankeppni HM
eftir tvo stórsigra - Landsliðsþjálfarinn vill sjá fleiri mæta á völlinn
Morgunblaðið/Unnur Karen
Sigur Sveindís Jane Jónsdóttir alsæl fyrir miðri mynd á Laugardalsvelli í gær en hún skoraði tvívegis og hefur nú skorað 4 mörk fyrir A-landsliðið.
ÍSLAND – KÝPUR 5:0
1:0 Dagný Brynjarsdóttir 14.
2:0 Sveindís Jane Jónsdóttir 21.
3:0 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 45.
4:0 Sveindís Jane Jónsdóttir 55.
5:0 Alexandra Jóhannsdóttir 64.
MM
Elísa Viðarsdóttir
M
Guðný Árnadóttir
Alexandra Jóhannsdóttir
Dagný Brynjarsdóttir
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Sveindís Jane Jónsdóttir
Amanda Andradóttir
Ísland: (4-3-3) Mark: Cecilía Rán Rún-
arsdóttir. Vörn: Guðný Árnadóttir
(Hafrún Rakel Halldórsdóttir 68), Sif
Atladóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir,
Elísa Viðarsdóttir. Miðja: Dagný
Brynjarsdóttir (Berglind Rós Ágústs-
dóttir 63), Karólína Lea Vilhjálmsdótt-
ir (Karitas Tómasdóttir 63), Alexandra
Jóhannsdóttir. Sókn: Sveindís Jane
Jónsdóttir (Agla María Albertsdóttir
68), Svava Rós Guðmundsdóttir (Berg-
lind Björg Þorvaldsdóttir 75), Amanda
Andradóttir.
Dómari: Anastasiya Romanyuk frá
Úkraínu.
Áhorfendur: 2.175.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Subway-deild kvenna:
Borgarnes: Skallagrímur – Njarðvík . 18:15
Keflavík: Keflavík – Breiðablik........... 19:15
Dalhús: Fjölnir – Grindavík .................20:15
Í KVÖLD!
NBA-deildin:
Indiana – Milwaukee........................ 109:119
Charlotte – Boston ........................... 129:140
Toronto – Chicago ............................ 108:111
Miami – Orlando................................. 107:90
Brooklyn – Washington ..................... 104:90
Atlanta – Detroit .............................. 122:104
LA Clippers – Portland ..................... 116:86
Denver – Cleveland.............................. 87:99
Minnesota – New Orleans ................. 98:107
4"5'*2)0-#
Í LAUGARDAL
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu er með 6 stig eftir þrjá
fyrstu leikina í undankeppni HM
2023 en allar leikirnir til þessa
hafa verið heimaleikir. Íslenska
liðið bætti við þremur stigum í
gær með afar öruggum 5:0 sigri
gegn Kýpur í rigningu á blautum
Laugardalsvelli.
Markatala liðsins er orðin fín
eftir 4:0 og 5:0 sigra í síðustu
tveimur leikjum. Dagskránni á
þessu ári er ekki lokið hjá liðinu
því enn er eftir útileikur gegn
Kýpur í undankeppninni og mun
hann fara fram seint í nóvember.
Einhverjar heimildir eru víst til
um að heldur hlýrra loftslag sé á
Kýpur en hér á ævintýraeyjunni
og því ætti að vera lítið mál að
spila þar í lok nóvember. Í gær
gæti ég trúað að gestunum frá
Kýpur hafi verið heldur kalt. Það
mátti nánast sjá á leikmönnum
þegar flautað var til leiks. Um leið
og Ísland komst yfir virkuðu þær
áhugalitlar. Vissu sjálfsagt að
þær ættu litla sem enga mögu-
leika á að ná í stig eftir að hafa
tapað fyrstu tveimur leikjunum
8:0.