Morgunblaðið - 27.10.2021, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 27.10.2021, Blaðsíða 23
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Vörn Einar Þorsteinn Ólafsson (17) hefur vakið athygli fyrir vasklega fram- göngu í vörn Vals. Hefur hann orðið Íslands- og bikarmeistari á árinu. Kristján Jónsson kris@mbl.is Guðmundur Þ. Guðmundsson, lands- liðsþjálfari karla í handknattleik, hef- ur valið leikmenn til æfinga hér heima dagana 1.-6. nóvember næstkomandi. HSÍ tilkynnti þetta í gær en þessi törn verður að líkindum mikilvæg fyrir landsliðið vegna undirbúnings þess fyrir lokakeppni EM sem fram fer í Ungverjalandi og Slóvakíu í janúar. Í tilkynningu frá HSÍ kemur fram að liðið muni ekki koma saman aftur fyrr en á nýju ári en þá fær liðið tvo vináttuleiki fyrir EM gegn Litháen. Þegar leikmannahópurinn er skoð- aður vekur athygli að einungis tveir leikmenn af tuttugu og einum hafa leikið fleiri en 100 A-landsleiki. Eru það gömlu samherjarnir úr FH, Aron Pálmarsson og Ólafur Guðmundsson. Þegar karlalandsliðið í handknattleik er annars vegar er slík staða nokkuð sjaldgæf. Björgvin Páll Gústavsson og Alex- ander Petersson eru ekki í hópnum og því er enginn verðlaunahafi frá Ól- ympíuleikunum í Peking í leikmanna- hópnum. Guðmundur og Gunnar Magnússon voru þó í þjálfarateyminu í Peking eins og nú. Einar Þorsteinn í hópnum Tveir nýliðar eru í hópnum. Annar er Valsarinn Einar Þorsteinn Ólafs- son sem hefur fengið mikið hrós fyrir framgöngu sína í vörn Íslandsmeist- aranna. Fyrir áhugafólk um ættfræði má geta þess að Einar er sonur Ólafs Stefánssonar sem er næstmarka- hæsti leikmaður landsliðsins frá upp- hafi. Hinn nýliðinn hefur áður verið val- inn í landsliðshópinn þótt hann eigi ekki landsleik að baki og það er Elvar Ásgeirsson hjá Nancy. Fyrirliðinn á HM í Egyptalandi í fyrra, Arnór Þór Gunnarsson, er ekki í hópnum. Ekki heldur Sigvaldi Björn Guðjónsson og örvhentu hornamennirnir á síðasta HM eru því ekki. Óðinn Þór Ríkharðsson úr KA er hins vegar í hópnum. Tveir sem náð hafa hundrað landsleikjum - Óvenjulítil leikreynsla í landsliðshópnum sem kemur saman í nóvember ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021 _ Alexander Petersson mun yfirgefa þýska handknattleiksfélagið Melsung- en þegar samningur hans rennur út næsta sumar. Handball-World News greindi frá þessu á heimasíðu sinni í fyrradag. Hægriskyttan, sem er 41 árs gömul, gekk til liðs við Melsungen fyrir þetta tímabil og samdi til eins árs við félagið. _ Úrvalsdeildarliðin Arsenal og Chelsea og C-deildarlið Sunderland tryggðu sér í gærkvöldi sæti í fjórð- ungsúrslitum enska deildabikarsins í knattspyrnu karla. Calum Chambers og Eddie Nketiah skoruðu mörk Ars- enal í 2:0 sigri gegn Leeds United. Chelsea vann Southampton 4:3 í víta- spyrnukeppni eftir að Kai Havertz og Ché Adams höfðu séð til þess að stað- an var 1:1 að loknum venjulegum leik- tíma. Sunderland vann þá QPR 3:1 í vítaspyrnukeppni eftir að staðan var markalaus að loknum venjulegum leik- tíma. _ Knattspyrnustjórinn fyrrverandi Walter Smith er látinn, 73 ára aldri, en hann gerði garðinn frægan með Rang- ers, Everton og skoska landsliðinu. Hann stýrði Rangers frá 1991 til ársins 1998 og svo aftur frá 2007 til ársins 2011 en liðið vann 21 bikar undir hans stjórn. Smith var næstsigursælasti stjóri í sögu skoska liðsins á eftir Bill Struth. Smith stýrði einnig Everton frá 1998 til ársins 2002 og skoska lands- liðinu frá 2004 til ársins 2007. _ Jökull Elísabetarson hefur verið ráð- inn aðstoðarþjálfari karlaliðs Stjörn- unnar í knattspyrnu. Þetta tilkynnti fé- lagið á samfélagsmiðlum sínum í gær. Jökull mun aðstoða Ágúst Gylfason sem var ráðinn þjálfari Garðbæinga á dögunum en Ágúst hafði undanfarin tvö tímabil stýrt Gróttu á Seltjarn- arnesi. _ Gamla stórveldið Chicago Bulls er í efsta sæti austurdeildarinnar með fjóra sigra í fyrstu fjórum leikjum tímabilsins í NBA-deildinni í körfu- knattleik. Hefur liðið ekki byrjað jafn vel í deildinni í aldarfjórðung eða frá því Michael Jordan var allt í öllu hjá Chicago. DeMar DeRozan skoraði 26 stig fyrir Chicago Bulls þeg- ar liðið heimsótti Toronto Raptors. Leiknum lauk með þriggja stiga sigri Chicago, 111:108, en Bretinn Ogugua Anunoby var stigahæstur í liði Toronto með 22 stig. Eitt ogannað Aron Jóhannsson er á leiðinni til karlaliðs Vals í knattspyrnu og mun skrifa undir samning við félagið á næstu dögum. Fréttablaðið skýrði frá þessu í gær. Aron var síðast á mála hjá pólska félaginu Lech Poznan en fékk samningi sínum rift í lok ágúst eftir hálfs árs dvöl. Aron er uppalinn hjá Fjölni og lék síðast hér á landi með liðinu sumarið 2010 áður en hann gekk til liðs við AGF. Hann hefur einnig verið á mála hjá AZ, Werder Bre- men og Hammarby á ferli sínum. Á heimleið eftir ellefu ár erlendis Ljósmynd/Hammarby Heim Aron Jóhannsson fagnar marki með Hammarby á síðasta ári. Ole Gunnar Solskjær, knatt- spyrnustjóri Manchester United, mun halda starfi sínu, að minnsta kosti um sinn. Í gær funduðu for- ráðamenn félagsins þar sem ákveð- ið var að leyfa Solskjær að stýra lið- inu í leik gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi. Sir Alex Ferguson, fyrrverandi stjóri félagsins, situr í stjórn þess og var einn þeirra sem töluðu fyrir því að Solskjær fengi meiri tíma. Fari illa gegn Tottenham er þó búist við því að hann verði rekinn eftir slæmt gengi undanfarið. Solskjær heldur starfinu um sinn AFP Tækifæri Sæti Solskjærs er heitt en hann stýrir þó United um helgina. Mögnuð byrjun Íslendingaliðs Magdeburg frá Þýskalandi á tíma- bilinu heldur áfram. Í gær vann liðið góðan 31:27 sigur á franska liðinu Aix í Íslendingaslag í C-riðli Evr- ópudeildarinnar og hefur þar með unnið alla leiki sína í öllum keppnum á tímabilinu. Leikurinn var hnífjafn framan af en í síðari hálfleik hóf hann að sveifl- ast. Eftir að Magdeburg komst í 23:20 skoruðu gestirnir í Aix næstu fimm mörk og komust þannig í 23:25. Magdeburg brást við því með því að skora næstu fimm mörk. For- ystan þar með orðin 28:25 og sigldi Magdeburg að lokum sterkum fjög- urra marka sigri í höfn. Kristján Örn Kristjánsson fór fyr- ir sóknarleik Aix og skoraði sex mörk auk þess að leggja upp önnur fjögur. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk og lagði upp tvö fyrir Magdeburg en Ómar Ingi Magnússon tók ekki þátt í leiknum þó hann hafi verið á leikskýrslu. Lemgo skellti Nantes Bjarki Már Elísson hafði hægar um sig en venjulega hjá þýska liðinu Lemgo þegar hann skoraði fjögur mörk, sem er öllu minni marka- skorun en venjan er hjá Bjarka Má, í sterkum 28:27 útisigri gegn franska liðinu Nantes í B-riðlinum. Viktor Gísli Hallgrímsson varði átta skot þegar lið hans GOG frá Danmörku vann 46:30 stórsigur gegn finnska liðinu Cocks í sama riðli. Þá gerði svissneska liðið Ka- detten, sem Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar, 28:28 jafntefli í hörkuleik gegn Pelister frá Norður-Makedón- íu í D-riðlinum. Magdeburg vann Íslendingaslaginn - Stórleikur Kristjáns dugði ekki til AFP Öflugur Kristján Örn Kristjánsson fór á kostum í liði Aix en gat ekki komið í veg fyrir tap gegn sterku liði Magdeburg í Evrópudeildinni í gærkvöldi. Evrópudeildin B-RIÐILL: GOG – Cocks ........................................ 46:30 - Viktor Gísli Hallgrímsson varði 8 skot í marki GOG. Nantes – Lemgo................................... 27:28 - Bjarki Már Elísson skoraði 4 mörk fyrir Lemgo. C-RIÐILL: Magdeburg – Aix................................. 31:27 - Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 2 mörk fyrir Magdeburg en Ómar Ingi Magnússon skoraði ekki. - Kristján Örn Kristjánsson skoraði 6 mörk fyrir Aix. D-RIÐILL: Kadetten – Eurofarm Pelister........... 28:28 - Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten. .$0-!)49, Markmenn: Daníel Freyr Andrésson, Guif Grétar Ari Guðjónsson, Nice Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG Aðrir leikmenn: Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen Aron Pálmarsson, Aalborg Bjarki Már Elísson, Lemgo Einar Þorsteinn Ólafsson, Val Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach Elvar Ásgeirsson, Nancy Elvar Örn Jónsson, Melsungen Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg Haukur Þrastarson, Kielce Hákon Daði Styrmisson, Gummersbach Kristján Örn Kristjánsson, Aix Óðinn Þór Ríkharðsson, KA Ólafur Guðmundsson, Montpellier Ómar Ingi Magnússon, Magdeburg Sveinn Jóhannsson, SönderjyskE Teitur Einarsson, Flensburg Viggó Kristjánsson, Stuttgart Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen Hópurinn:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.