Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Blaðsíða 2
Ertu búin að leikstýra lengi?
Kannski ekki mjög lengi. Ég byrjaði á því að gera tónlistar-
myndbönd og stuttmyndir. Svo leikstýrði ég tveimur þáttum af
Broti og síðan einum þætti af Kötlu. Þaðan fór ég í að leik-
stýra tveimur þáttum af sex í nýju seríunni um Stellu Blóm-
kvist.
Lærðir þú leikstjórn?
Nei, ég tók átta mánaða kvikmyndakúrs í lýðháskóla í Dan-
mörku sem gagnaðist mér mjög vel. Ég hef alltaf haft áhuga á
bæði kvikmyndagerð og list og fór því næst í listnám í London
og útskrifaðist þaðan með háskólapróf í fagi sem er eiginlega
sambland af listum og kvikmyndagerð.
Finnst þér skemmtilegt að leikstýra?
Já, mjög gaman. Það samtvinnar vel minn sögusagnaáhuga við
listaáhuga. Kannski var leikstjórn alltaf það sem ég stefndi að en
ég fór ekki hefðbundna leið.
Hvernig var að leikstýra Stellu Blómkvist?
Það var ótrúlega gaman, þrátt fyrir að við værum að því í
miðjum faraldri. Við vorum svolítið einangruð og höfðum ekki
marga aukaleikara, enda fjöldatakmarkanir og allir með grím-
ur. En hópurinn sem kom að gerð þáttanna var alveg frábær
og hæfileikaríkur og það er gaman að vinna með þennan heim
hennar Stellu.
Hvað er annað á döfinni?
Ég er nýkomin frá Bretlandi þar sem ég var að vinna að sjón-
varpsseríu fyrir Sky sem heitir The Rising. Síðan er ég með
bíómynd í bígerð ásamt ýmsu öðru. Mér finnst líka mjög gam-
an að hoppa inn í auglýsingar og styttri verkefni inn á milli
stærri verkefna.
Morgunblaðið/Unnur Karen
ÞÓRA HILMARSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Heimurinn
hennar Stellu
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.10. 2021
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Einstök
minning
Barna- og
fjölskyldu-
myndatökur
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
H
vatvísi getur verið ansi skemmtileg því maður tekur oft ákvarðanir án
þess að hugsa sem reynast svo bara fínar. Í gær voru til dæmis tólf
útlendingar í mat hjá mér og þekkti ég engan þeirra. Þeim hafði ver-
ið lofað að borða í heimahúsi hér á landi en upprunalegu gestgjafarnir voru víst
veðurtepptir á Ísafirði. Enda var þar hávetur í síðustu viku. Ég vissi að þetta
væri nú lítið mál og hljóp í skarðið. Úr varð hin skemmtilegasta kvöldstund
með fólki frá Kína, Bretlandi, Tékklandi, Rúmeníu, Finnlandi, Danmörku og
ég man ekki meir. Bara gaman! En ég tek ekki bara að mér „týnda“ túrista.
Kettir eru líka velkomnir til mín.
Það er annað dæmi um ákvörðun
sem tekin var í hasti; þegar ég um
daginn ákvað að taka að mér
ókunnugan kött. Fólk sem ég þekki
ekkert auglýsti eftir manneskju til að
passa köttinn sinn í svona níu mán-
uði. Í hvatvísi minni fannst mér þetta
bara fínasta hugmynd, enda afar
tómlegt eftir að kötturinn minn Gull-
brandur var sendur í Biskupstungur
að sinna hestum. Hann stundar þar
reiðmennsku af krafti á milli þess
sem hann veiðir mýs, stjórnar hæn-
um, hundum og fólki.
Guttormur frá Hnífsdal er því mættur í Garðabæinn og mun hafa hjá mér
vetursetu. Hann sem búið hefur alla sína hunds- og kattartíð í litlum bæ á
Vestfjörðum er nú kominn í þennan stórhættulega bæ. Eða að minnsta kosti
finnst honum það, því kötturinn sem var „seldur“ mér sem útiköttur þorir
varla út fyrir hússins dyr. Ég hendi honum reglulega út og skelli hurðinni á
eftir honum og segi honum að fara út að leika, en hann er yfirleitt fljótur að
troða sér inn um lúguna og hlaupa beint í kassann sinn. Óttalegt hérahjarta en
besta skinn.
Annars lenti ég á spjalli við bandarískan vin minn yfir netið og sagði honum
frá skiptinemakettinum mínum, honum Guttormi. Hann vildi vita hvað nafnið
hans þýddi og sagðist ég ekki vita það. Ormur væri jú „worm“ útskýrði ég.
Mögulega gæti hann heitið á ensku Gutworm?
Sem er alls ekki jafn krúttlegt nafn og Guttormur!
Vinur minn var yfir sig hneykslaður og skrifaði með hástöfum: WORST
NAME EVER! Ég ætti sannarlega að skíra köttinn upp á nýtt!
Ég sagðist ekkert geta það, enda ætti ég ekki köttinn. Ekki það að hann
þekki nafnið sitt. Ég hef alveg sannreynt það. Annars var ég að enda við að
fletta nafninu upp og Guttormur þýðir víst sá sem Guð þyrmir.
Sem er nú fallegra en Iðraormur. Alveg klárlega.
Af hvatvísi
og iðraormum
Pistill
Ásdís
Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’
Vinur minn var yfir
sig hneykslaður og
skrifaði með hástöfum:
WORST NAME EVER!
Ég ætti sannarlega að
skíra köttinn upp á nýtt!
Kolbrún Kjerúlf
Ganga um í náttúrunni og njóta
haustlitanna.
SPURNING
DAGSINS
Hvað er
skemmti-
legast að
gera á
haustin?
Alexander Hood
Ferðast innanlands. Ég er einmitt á
leið í jeppaferð í Jökulheima.
Anny Björk Arnardóttir
Hreiðra um mig heima og hafa það
kósí.
Orri Ármannsson
Bíða eftir snjónum!
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Önnur sería af Stellu Blómkvist er komin í Sjónvarp Símans
Premium. Þættirnir eru byggðir á samnefndri bók og er leikstýrt af
Þóru Hilmarsdóttur og Óskari Þór Axelssyni.