Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Qupperneq 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.10.2021, Qupperneq 8
E in frægasta ljósmynd sparksögunnar er af vesturþýska markverð- inum Hans Tilkowski að horfa á eftir knettinum hrökkva niður af þverslánni eftir skot Geoffs Hursts í framlengingu úrslitaleiksins gegn Englendingum á Wembley-leikvanginum í Lund- únum 30. júlí 1966. Allir vita hvað gerðist næst, knöttinn bar eitt augnablik við svörðinn og rússneski línuvörðurinn, eins og sú ágæta stétt hét í þá daga, Tofiq Bakhra- mov, flaggaði í ofboði og svissneski dómarinn Gottfried Dienst dæmdi mark. Eitt það umdeildasta sem um getur enda voru ekki allir sann- færðir um að tuðran hefði farið yfir línuna. Heimamenn voru þó ekki í nokkrum vafa enda breiddi þeirra næsti maður, eini Englendingurinn á téðri ljósmynd, Roger Hunt, út faðminn til marks um það að boltinn væri inni. Hann var orðlagt sént- ilmenni og þjóðin þurfti ekki frekari vitna við. Það var ekki að ósekju að stuðningsmenn félagsliðs Hunts, Liverpool, kölluðu hann aldrei ann- að en Sir Roger, og kærðu sig koll- ótta um að hann hefði aldrei fengið formlegt vottorð þess efnis frá drottningu. Nú er Sir Roger allur, 83 ára, og er syrgður í sparkheimum, vítt og breitt. Það þýðir að einungis þrír sem léku úrslitaleikinn 1966 eru eft- ir; Bobby Charlton, George Cohen og fyrrnefndur Geoff Hurst. tíma. Meiðsli hans hleyptu Hunt á endanum inn í liðið. Varð lykilmaður hjá Shankly Skömmu síðar bar Bill nokkurn Shankly að garði – með kústinn hátt á lofti. Hvorki fleiri né færri en 24 leikmenn enduðu úti á stétt. Aðeins hörðustu Púlarar muna hvern Shankly leysti af hólmi á An- field. Ég heyri þá núna slá sér á lær og mæla hátt og snjallt: Phil Taylor. Drjúgir með sig. Í Liver- pool Echo-viðtalinu lýsir Hunt Shankly sem stórmenni og fljótt hafi komið í ljós að hann ætlaði að umturna félaginu. „Ég vissi að hann var sérstakur og drengur góður. Hann var ekki eins mikill harðjaxl og margir halda,“ sagði Hunt og eiginkona hans, Rowan, bætti við að leikmennirnir hefðu hlaupið gegnum veggi fyrir Shankly. Spurð hvort allt sem sagt hafi verið um Shankly sé satt og rétt hristu hjónin höfuðið og svör- uðu: „Kannski svona 50%“ Sönn er þó sagan af því þegar Hunt sneri aftur á Melwood eftir að hafa orðið heimsmeistari með Eng- lendingum og hitti Shankly. „Vel gert, vinur,“ sagði stjórinn, „en nú skulum við snúa okkur að því sem skiptir máli!“ Shankly var sumsé Skoti. Hunt lenti ekki í brottkastinu hjá Shankly og átti eftir að verða lykilmaður í endurreisn hans næstu árin; vann tvo Englandsmeistaratitla (1964 og 1966) og enska bikarinn einu sinni (1965). Þá varð hann markakóngur efstu deildar 1966 með 29 mörk ásamt Willie Irvine, leikmanni Hvað er spark án marks? Tveir af marksækn- ustu sparkendum Englandssögunnar, Jimmy Greaves og Roger Hunt, féllu frá í nýliðnum mánuði, báðir rúmlega átt- ræðir. Þeir byrjuðu sem miðherjapar Eng- lands á HM 1966 en aðeins annar endaði með medalíu um hálsinn. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is AFP Roger Hunt, miðherji Englands, og Vestur-Þjóðverjarnir Hans Tilkowski og Wolfgang Weber horfa á boltann hrökkva niður af þverslánni í úrslitaleik HM á Wembley 1966. Viðbrögð Hunts þóttu næg sönnun þess að hann hefði verið inni. Slapp undan kústinum Prúðmennskan sem bjó í eðlis- farinu kom aldrei í veg fyrir að Hunt væri grimmur og óvæginn andspænis marki andstæðing- anna. Hann gerði 18 mörk í 34 lands- leikjum, þar af þrjú á HM 1966, og 285 mörk í 492 leikjum fyrir Rauða herinn. Aðeins Ian Rush hefur gert betur og raunar á Hunt ennþá met- ið í deildarleikjum, 244 stykki. Rush á 229. Rush skoraði að jafnaði 0,52 mörk í leik, Hunt 0,53. Okkar maður varð markakóngur á Anfield átta tímabil í röð. Hann var líka fljótastur allra til að skora 100 mörk fyrir Liverpool, í 152 leikjum, þangað til Mohamed Salah sló met- ið á dögunum; þurfti einum leik minna. Hunt gekk til liðs við Liverpool frá áhugamannaliðinu Stockton Heath árið 1958, tvítugur að aldri, en lék ekki sinn fyrsta leik fyrr en rúmu ári síðar – og hélt upp á það með viðeigandi hætti, marki gegn Scunthorpe United í leik í gömlu 2. deildinni. Í samtali við blaðið The Liverpool Echo í fyrra greindi Hunt frá því að andað hefði köldu í hans garð til að byrja með enda hafi at- vinnumennirnir á Anfield ekki skilið hvaða erindi áhugamaður beint úr hernum ætti upp á dekk. Vara- liðsþjálfarinn, Joe Fagan, mun þó hafa tekið honum opnum örmum, stappað í hann stálinu og kennt hon- um að æfa eins og atvinnumaður. „Hann var goðsögn, magnaður maður.“ Ekki bætti úr skák að skórnir sem Hunt átti að fylla voru stórir og víðir en goðsögnin Billy Liddell var farin að reskjast og rifa seglin á þessum KNATTSPYRNA 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.10. 2021 • • • • 4 gangar af dekkjum. • 2 gangar af álfelgum. • Dráttarbeisli sett undir 6/2021. • Frábært viðhald. Mi bi hi 0 Jeppi í glæsilegu standi. Undir bílnum eru General Grabber dekk og Visin Wheel álfelgur. Bílnum fylgja orginal MMC álfelgur og nýleg Continental nagladekk á þeim. Einnig fylgja gangar aukalega af glæný- jum nagla- og sumardekkjum. Dráttarbeisli var sett undir sumarið 2021. Bíllinn hefur fengið fullkomið viðhald hjá núverandi eiganda. Bíllinn er til sýnis hjá Diesel bílasölu. Upplýsingar í síma 615 8080. Nýskr. 5/2017. Ekinn 102 þ.km. Pallhús. tsu s L20 Verð 4.995.000

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.